Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Síða 8
8 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 14.JÚLÍ2003
Afsláttur hjá OgVodafone
SÍMAR: Og Vodafone býður mánuðina.Tilboðiðgildirá
viðskipta- Spáni, Italíu, Grikklandi og í
vinumsín- ^ "J' Portúgal frá 10. júlí til 10.
um 20% af- september. Til að njóta þess-
slátt af sím- V\c JÁd ara kjara þarf að velja farsíma-
tölum úr far- ifSÍZCÆ/ net samstarfsfyrirtækja Og
símum á fjór- Vodafone sem eru E VODA-
um vinsælustu FONE eða E AIRTEL á Spáni,
áfangastöðum (s- VODAIT á (talíu, VODAFONE
lendinga við Mið- y í Portúga og VODAFONE eða
jarðarhafið yfir sumar- PANAFON á Grikklandi.
Bitna mest á hátæknifyrirtækjum
Tölvubrot (skýrslu
PricewaterhouseCoopers, sem
birt var á þriðjudag, kemur
fram að þó svo að tölvuglæpir
og önnur efnahagsbrot bitni á
fyrirtækjum í öllum geirum
iðnaðar séu fjarskipta- og upp-
lýsingatæknifyrirtæki í mestri
hættu. Könnunin náði til 3.623
fyrirtækja í 50 löndum en í
henni kemur fram að tæpur
helmingur slíkra fýrirtækja hafi
orðið fyrir barðinu á efnahags-
brotum og svikum. Flærri tölur
er einungis að finna meðal
banka og tryggingafélaga.
PwC slær þó þann varnagla að
það sem virtist meiri fjöldi
efnahagsbrota meðal hátækni-
fyrirtækja gæti í raun skýrst að
hluta af möguleikum þessara
fyrirtækja umfram önnur til að
uppgötva glæpina. (skýrslunni
segir að vegna þess hversu vel
starfsemin sé skipulögð hafi
þessi fyrirtæki allajafna þróað
með sér árangursríkari stjórn-
og eftirlitskerfi. Fleiri svikamál í
þessum geirum endurspegli
að hluta að fyrirtækin séu lík-
legri til að verða fyrir barðinu á
- og uppgötva - slíka glæpi.
Könnunin náði ekki til (slands.
George Best gríp-
ur flöskuna á ný
George Best, knattspyrnukapp-
inn frægi, komst aftur í heims-
fréttirnar um helgina þegar í
Ijós kom að hann væri aftur far-
inn að drekka. Best hefur löng-
um verið þekktur fyrir að vera
gefinn fyrir sopann, en hann
sagðist vera hættur eftir að
græða þurfti í hann nýja lifur
fyrir nokkru.
Kappinn var handtekinn á laug-
ardaginn eftir að hafa lent í áflog-
um við blaðaljósmyndara. Báðir
mennirnir voru handteknir grun-
aðir um líkamsmeiðingar en var
sleppt án ákæru og segist lögreglan
ekki ætla að gera meira í málinu.
Eftir að hafa verið sleppt sneri Best
aftur á barinn og fór ekki þaðan íyrr
en eftir lokun.
„Afhverju má ég ekki
mæta á pöbbinn til að
lesa blöðin og fá mér
steik eins og allir hinir?"
Heyrst hefur að Best, sem gerði á
sfnum tíma garðinn frægan með
Manchester United og landsliði
Norður-frlands, hafi sést reglulega
á hverfisbar sínum, en hann neitar
því að hafa verið að drekka áfengi
þar síðustu misseri. „Af hverju má
ég ekki mæta á pöbbinn til að lesa
blöðin og.fá mér steik eins og allir
hinir?" sagði hann þegar blaða-
menn spurðu hann út í þetta.
Ljóst er að þetta umtal hefur
endurvakið umræðuna sem átti sér
stað á sínum tíma þegar Best fékk
lifrarígræðslu. Þá voru margir á því
að ýmsir aðrir sjúklingar sem biðu
eftir nýrri lifur ættu hana frekar
skilið en Best.
Spilaði bara í 9 ár
Ferill George Best hefur verið
sem rússíbanareið síðan hann spil-
aði sinn fyrsta leik fyrir Manchester
United árið 1963. Hann varð í raun
fyrsta ofurstjarnan á knattspyrnu-
vellinum en hann lagði skóna á
hilluna einungis 26 ára, níu árum
eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik.
Tók þá við vafasamt líferni þar sem
Best tottaði pytduna af áfergju.
Árið 1984 sat hann inni í tvo mán-
uði fyrir að keyra undir áhrifum
áfengis og að ráðast á lögreglu-
menn. En hann sagðist hættur að
drekka eftir að hann veiktist og
þurfti að gangast undir lifrar-
fgræðslu. Best viðurkenndi þó að
það væri mjög erfitt að hætta og
hélt hann áfram að drekka jafnvel
eftir að læknar höfðu sagt honum
að einungis eitt glas í viðbót gæti
orðið honum aldurtila. kja@dv.ii
FALLINN: Gamla knattspyrnuhetjan,
George Best, er enn á ný fallinn fyrir
flöskunni en um það bil eitt ár er síðan
hann fékk nýja lifur. Á laugardag var
kappinn handtekinn eftir að hafa lent í
áflogum við blaðaljósmyndara. Best er án
efa einn þekktasti knattspyrnumaður allra
tíma en hann lék á árum áður með
Manchester United.
Fjölskylda og vinir úeorge Best tjá sig um ástand hans:
Eiginkonan og sonur í sárum
Breskir fjölmiðlar hafa farið
mikinn eftir að vandamál Ge-
orge Best komst upp og hafa
nánast allir sem tengjast hinni
öldnu knattspyrnuhetju tjáð sig
um málið.
Umboðsmaður Best, Phil Hughes,
hefur talað fyrir munn eiginkonu
hans, hinnar þrítugu Alex Best.
Hann segir að hún sé mjög sorg-
mædd yfir ástandi eiginmanns síns,
sem hann hefur þurft að berjast við í
þrjú ár. Alex er ekki reið út í Best
sjálfan fyrir að drekka en er hins veg-
ar bálvond út í pöbbinn sem veitti
honum áfengi. Hún segir að allir
ábyrgir menn ættu að vita betur en
að veita eiginmanni sínum áfengi.
Jafnframt sagði Hughes að svo virtist
sem Best væri farinn að umgangast
nýja vini sem hefðu ekki hjálpað
honum í baráttunni við Bakkus.
Roger Williams, læknirinn sem
græddi lifur í George Best, sagði um
helgina að hann myndi hjálpa knatt-
spyrnuhetjunni að reyna að hætta
að drekka á nýjan leik. Hann sagðist
vissuiega hafa orðið vonsvikinn að
heyra að Best hefði farið á fyllirístúr
síðustu daga en það væri þó engin
ástæða til annars en reyna að hjálpa
honum. Williams sagði þó að
ástandið væri vissulega alvarlegt því
Williams sagði þó að
ástandið væri vissulega
alvarlegt því að Best
gæti hreinlega drukkið
sig til dauða efhann
hætti ekki strax.
að Best gæti hreinlega drukkið sig til
dauða ef hann hætd ekki strax.
Sonurinn áhyggjufullur
Vinur sonar George Best hefur
einnig lýst því yfir um helgina að
sonurinn, Calum Best, hafi hringt í
sig þegar hann var staddur í fríi
ásamt föður sínum og móður á
grísku eyjunni Korfú fyrir stuttu og
sagt að pabbi hans væri dottinn í
það á nýjan leik. Fríið átti að nýta til
að leyfa feðgunum að slappa af sam-
an í rólegheitunum, en endaði með
því að Calum þurfti að reyna að
hugga grátandi eiginkonu föður síns
efúr að þau áttuðu sig á því að Best
hefði látið ífeistast af ódýru áfeng-
inu á sólarströndinni.
Vinur Calums sagði að þetta hefði
verið hræðilegt áfall fyrir Calum og
Alex vegna þess að þau héldu að Ge-
orge Best hefði náð að losa sig við
áfengið fyrir fullt og allt. Þau höfðu
nokkrum sinnum áður getað farið í
frí til sólarlanda saman án þess að
George léti nokkum tímann freist-
ast. En Calum veitti því athygli að
George fór að hegða sér undarlega í
fríinu á Korfú, gaf vafasamar skýr-
ingar á því að þurfa að skjótast í
burtu en kom svo til baka löngu síð-
ar, greinilega valtur á fótum.
Nú hefur George Best greinilega
tapað baráttunni við Bakkus, um
stundarsakir að minnsta kosti, og
ljóst að fjölmiðlar í Bretlandi munu
fylgjast vel með því hvort honum
tekst að koma sér á beinu brautina á
nýjan leik.