Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Side 13
MÁNUDAGUR 14.JÚLÍ2003 FRÉTTiR 13 Anægja með írska daga STEMNING: Talið eraðum þrettán þúsund gestir hafi verið á Akranesi um helgina, þar sem voru haldnir írskir dagar og Lotto-mótið í knattsþyrnu drengja. Bæjar- búar eru afar ánægðir með hvernig til tókst. „Skaga- menn hafa nú eignast sína eigin sumarhátíð. Gestir hafa aldrei verið fleiri og þátttaka Akurnesinga sjálfra var mjög mikil," sagði Sigurður Sverr- isson, formaður nefndar um írska daga. Fjölmargar uppá- komur voru, tengdar hátíð- inni, og má nefna götuleik- hús, sandkastalakeppni, limrunámskeið og dorgveiði- keppni. Þá var haldinn dans- leikur og skemmtanir voru af ýmsum toga. ÞAÐ MA EKKl: Umferð um Hvalfjarðargöngin hefur verið mun meiri en gert var ráð fyrir í upphafi þannig að ekki hefur verið þörf á því, hingað til að minnsta kosti, að hleypa hesta- mönnum, hjólreiðamönnum eða gangandi vegfarendum í gegnum göngin til að auka nýtingu þeirra. DV-mynd Pjetur GÖNGIN l'TÖLUM Heildarlengd (göng í bergi + veg- skálar): 5.770 metrar Þar af undir sjó: 3.750 Tvær akreinar aö sunnanverðu: 3,6 km Þrjár akreinar aö norðanverðu: 2,2 km Halli vegar aö sunnanverðu: 4-7%, minni en í Kömbunum Halli vegar aö noröanveröu: mest 8,1%, álíka og í Bankastræti í Reykjavík Dýpsti hluti ganganna: 165 metrar undir yfirborði sjávar Mesta dýpi á Idöpp á jarðganga- lelöinni: 116metrar Mesta dýpt sjávar: 40 metrar Mesta þykkt sets ofan á berggrunni: 80 metrar Þykkt bergs yfir jarðgöngum: Hvergi undir 40 metrum Heimild: Spolur.is Starfsfólk ganganna sér alla flóruna í mannlífinu Karlinn keyrir á föstudögum SÉR ALLA FLÓRUNA: MarinóTryggvason og starfsfólk hans við Hvalfjarðargöngin hafa orðið vitni að ýmsu frá því að göngin voru opnuð fyrir fimm árum. Sérstaklega verða starfsmenn varir við að fólk sé í misjöfnu skapi eftir því hversu langt er liðið á vikuna. DV-mynd Pjetur Margar milljónir bílferða hafa verið farnar í gegnum Hval- fjarðargöngin frá því að þau voru opnuð fyrir fimm árum og það liggur því Ijóst fyrir að þeir sem standa þar vaktina verða vitni að ýmsu skrautlegu. „Það renna svo margir hér í gegn á hverjum degi að við sjáum alla flóruna í mannlífinu, bæði það já- kvæða og einnig hið neikvæða," segir Marinó Tryggvason sem sér um daglega starfsemi og öryggis- mál í Hvalfjarðargöngunum. „Við hittum skælbrosandi fólk, fólk með versta fýlusvip og sjáum svo öll svipbrigði þar á milli.“ Konan rauk út úr bíln- um, skellti hurðinni á eftir sér með látum, gekk hringinn í kring- um bílinn sinn en sett- ist svo beint inn í hann aftur. Marinó segir að starfsfólkið í göngunum taki greinilega eftir því að landinn sé í mismunandi skapi eftir vikudögum. „Fólk keyrir bí- sperrt og í góðu stuði á leiðinni hér í gegn á föstudögum en kemur svo þreytt og heldur framlágt til okkar aftur á sunnudögum," segir Marinó og hlær við. „Einhverra hluta vegna hefur þetta hins vegar breyst örlítið síðustu ár. Við tókum meira eftir þessu hérna áður fyrr en nú er það að verða sífellt algengara að fólk sé í góðu skapi á bakaleiðinni líka.“ Marinó segist ekki geta ímyndað sér sérstaka skýringu á þessari breytingu á lundarfari landans á sunnudögum. í framhaldi af þessu hafa svo starfsmenn við göngin komið auga á annað hegðunarmynstur sem þeir kalla „karlinn keyrir á föstu- dögum“. Þá keyrir karlinn í gegn með fjölskylduna hressa í bragði á föstudögum, en þegar komið er til baka á sunnudögum er konan komin undir stýri, faðirinn situr fýldur og þreyttur í farþegasætinu og krakkamir alveg brjálaðir af því að hann er ekki í neinu ástandi til að sinna þeim. Konan óþolinmóða Marinó kann margar sniðugar sögur af atburðum sem hafa komið upp á þessum fimm ámm og sum- ar þeirra allt að því óprenthæfar. Eitt skondið atvik er hann þó til í að rifja upp, en það átti sér stað þegar nokkur röð hafði myndast við af- greiðslulúguna. Kona nokkur í röð- inni, sem farin var að nálgast lúg- una, varð viðþolslaus af biðinni þegar erfiðlega gekk að renna greiðslukorti þess sem fyrir framan var í gegnum posann. Hún rauk út úr bílnum, skellti hurðinni á eftir sér með látum, gekk hringinn í kringum bílinn sinn en settist svo beint inn í hann aftur. Hún hafði nefnilega áttað sig á því að hún vissi ekki hvar hennar eigið kort var niðurkomið og því eins gott að hefja leit að því áður en aðrir í röð- inni yrðu skammaðir fyrir slóða- skap! kja@dv.is Biocomfort G-5 líkamsnudd HRUND Verslun & snyrtistofa Grænatún 1 • 200 Kópavogur • Sími 554 4025 a Þakgluggar ian ÁL7AK Opnanlegir að neðan öryggisgler Valin Pine viður Stillanleg öndun Tvöföld vatnsvörn Stórhöfði 33 • Sími: 577 4100 Fax: 577 4101* www.altak.is Sm áauglýsingar $ 550 5000 Í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.