Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2003, Side 29
MÁNUDAGUR 14.JÚLÍ2003 TILVERA 45 Farrell og Young SAMDRÁTTUR: Fréttir frá Bret- landi herma að Phone Booth- stjarnan Colin Farrell og Liberty X- söngkonan Kelli Young séu að draga sig saman og hafi hist á laun síðan þau kynntust nýlega á Ólympíuleikum fatlaðra í Dublin á (rlandi. Farrell er meira að segja sagður hafa flogið sérstaklega frá Bandaríkjunum til London til þess að hitta hina gullfallegu Kelli,sem er sjö árum yngri. Farrell þykir nokkuð víðförull í kvennamálum og hefur nýlega verið orðaður við þær Britney Spears og Demi Moore, Þar að auki á hann von á barni meðfyrirsætunni Kim Bordenave. Góð vinkona Kelliar segir að hún geri sér vel grein fyrir fýrra orðspori Farrells í kvenna- málum en hún sé ólofuð og hafi engu að tapa. Prins spyr um brjóstaþyngd KÓNGAFÓLK: Karl Breta- prins fékk unga og íturvaxna söngkonu til að stokkroðna á dögunum þegar hann spurði hana heldur óvæntrar spurningar.Hann spurði hina barmfögru Michelle Heaton úr söngsveitinni Liberty X spurningarinnar sem vafa- laust hefur brunnið á margra vörum: „Hversu þungar eru þær á þér tútturnar?" Þótt breski ríkisarfjnn kunni að tala tæpitungulaust var það þó ekki meiningin að for- vitnast um þennan framúr- skarandi líkamspart ungfrú- arinnar. Prinsinn fór bara stafavillt á ensku, setti„b“ þar sem„t" átti að vera, sagði „boobs" í stað„boots". aldamótin 18-1900. Um tfma var hann bannaður þar sem hann særði blygðunarkennd siðapost- ula og þá voru það gleðikonur sem stigu dansinn með herrum af ýms- um stigum. En gullöld tangósins var í kringum 1930-1950, er hann breiddist út um allan heim. Aftur kom lægð í þennan lostafulla dans en fyrir 10-15 árum hófst hann til virðingar á ný og nú hafa sprottið upp opnir tangóklúbbar víða um lönd. Þessa sögu alla má lesa á síðu íslenska tangóklúbbsins sem stofnaður var á sfðasta vori og er um sextíu manns. Veffangið er einfaldlega tango.is Þótt daman hreyfi sig yfirleitt mun meira þá erþað herrann sem leggur línurnar en hún vinnur svo úr því svig- rúmi sem henni er gefið sem skapar ýmsa möguleika. Bryndís segir að varla líði sá dagur að hún hitti ekki fólk á götu sem segir: „Mig hefur alltaf langað svo til að læra tangó en ...“ þannig að áhuginn virðist víða fyrir hendi þótt erfitt geti verið að stíga fyrsta skrefið. En geta allir Iært tangó? „Já, en það þarf að æfa sig. Þetta er krefjandi dans og mjög spenn- andi. Við höfum fengið nemendur í Kramhúsið sem hafa ekkert dansað áður en þó orðið mjög færir þannig að ég hvet sem flesta til að reyna,“ segir hún. Tangódagar fram undan Ýmsir viðburðir eru fram undan fyrir tangóáhugafólk. Bryndís lýsir því: „Höfuðborgarstofa hefur áhuga á að fá milonga inn á dag- skrá menningarnætur og við erum mjög svo tilbúin til þess. Ef veður leyfir verður það á útitaflinu við Lækjargötu um kvöldið. í ágústlok verða svo tangódagar. Þá fáum við til okkar frábæran tangódansara og kennara, Ceciliu Gonzalez, sem við kynntumst í Buenos Aires og er alveg á heimsmælikvarða, ásamt sínum dansfélaga, Jean-Sebastian Rampazzi. Við erum líka í sam- starfi við Egil Ólafsson og hljóm- sveitina Le Grand Tangó, en þar innanborðs eru hjónin Olivier Manoury, bandoneonleikari og Edda Erlendsdóttir píanóleikari. Það verða útgáfutónleikar, dans- sýningar, námskeið bæði fyrir byrjendur og lengra komna og að siðustu milonga í Iðnó.“ Inni á Café Kulture sitja gestir yfir öli eða öðrum drykkjum, eins og vera ber á veitingastað. Því verður lokaspurning til Bryndísar nokkuð gildishlaðin: - E... það þýðir væntanlega ekki að vera undir áhrifum áfengis þegar tangó er dansaður, eða hvað? „Nei, það gengur ekki því tangóinn krefst svo mikillar ein- beitingar. Maður heyrir stundum: „Hann Jón minn vill aldrei koma út á dansgólfið nema hann sé bú- inn að fá sér að minnsta kosti íjóra bjóra." En það er mikill misskiln- ingur að þetta tvennt fari saman því eftir fjóra bjóra getur Jón ekk- ert dansað af viti.“ gun@dv.is. TANGÓ: „Tónlistin er drifkraft- urinn og hún stýrir því hvernig dansað er. En tangó er alltaf spuni," segir Bryndís sem hér dansar við eiginmann sinn, Hany Hadaya, utan við Kram- húsið. DV-myndlR E.ÓI. Icelandair í allan vetur fyrir sumarhúsa- eigendur og aðra farþega til Spánar! 22. október, 5. nóvember, 19. nóvember, 3. desember, 18. desember og 5. janúar. Kynningarverð á fyrstu 200 sœtunum Verð frá Flug aðra leið með flugvallarsköttum. Vegna gífurlegrar eftirspurnar höfum við fengið örfá viðbótarsæti á eftirfarandi dagsetningar: 25. júni 10 sæti - 9. júli 8 sæti 23. júii 15 sætí - 13. ágúst 10 sæti. - 27. ágúst - 10. sæti. 3., 10., 17. og 24. september 40 sæti. Verð frá kr. Flug fram og til baka með flugvallarsköttum. FERÐIR www.plusferdir. is % * r < Hliðasmára 15 • Simi 535 2100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.