Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST2003
Nýr seðlabankastjóri
Forsætisráðherra, Davíð Odds-
son, hefur í dag skipað Jón Sig-
urðsson framkvæmdastjóra í
embætti bankastjóra í Seðla-
banka (slands til sjö ára frá 1.
október nk.;
Jón Sigurðsson er fæddur 1946.
Hann hefur m.a. lokið prófum í
sagnfræði, rekstrarhagfræði og
stjórnun. Jón hefur gegnt fjölda
trúnaðarstarfa fyrir stjórnvöld
og í atvinnulífinu, m.a. sem
rektor Samvinnuskólans og síð-
ar Samvinnuháskólans á Bifröst
1981 til 1991 og framkvæmda-
stjóri Vinnumálasambandsins
frá 1997 til 1999. Þá hefur hann
sem rekstrarhagfræðingur sinnt
ráðgjöf og verkefnisstjórn fyrir
ýmsa aðila, þ.á m. Verslunarráð
íslands og Samtök atvinnulífs-
ins.
Jón Sigurðsson.
Enn í rannsókn
EFNAHAGSBROT: Um ár er síð-
an starfsmenn Ríkislögreglu-
stjórans framkvæmdu húsleit
hjá Baugi Group hf. og lögðu
hald á fjölda gagna og muna í
tengslum við rannsókn á
meintum brotum forsvars-
manna fyrirtækisins. Málið
mun enn vera í rannsókn hjá
embætti Ríkislögreglustjóra en
ekki er vitað hvenær rannsókn-
inni verður lokið.
„Málið er í rannsókn," sagði
Jón H. Snorrason, saksóknari
hjá efnahagsbrotadeild lög-
reglunnar, þegar hann var
spurður um hvernig rannsókn
málsins miðaði og sagðist ekki
geta haft fleiri orð um það.
Vatnavextir
FJALLVEGIR: Enn er mikil um-
ferð um vegi landsins, og ekki
síður fjallvegi. Vegna mikilla
vatnavaxta er Hnjúkakvísl á
Skagafjarðarleið nú aðeins fær
stærstu fjallabílum og vönum
bílstjórum. Á miðhálendinu er
spáð sunnan- og suðvestan
átt, 13 til 18 m/s og skúrum
vestan til en bjartviðri norðan
Vatnajökuls.
Heimilislausir fá húsaskjól
Skilyrði að fólk vilji takast á við lífið
Samhjálp, í samvinnu við Fé-
lagsþjónustuna í Reykjavík,
hefur opnað heimili fyrir heim-
ilislausa Reykvíkinga.
Á heimilinu verður rými fyrir átta
einstaklinga og mun hver hafa sitt
eigið herbergi, utan einn sem mun
fá til umráða litla einstaklings-
íbúð. önnur aðstaða verður sam-
eiginleg. Heimilið verður nokkurs
konar áfangaheimili en með miki-
um stuðningi.
Vakt starfs-
manna verður
alla virka daga,
auk þess sem lit-
ið verður til með
heimilinu utan
þess tíma. Mark-
miðið með heim-
ilinu verður að
styðja þá einstak-
linga sem hefð-
bundin meðferð-
arúrræði hafa
ekki dugað til að
hjálpa til betra lífs. Að sögn að-
standenda er mikil þörf á heimili
sem þessu fyrir hóp manna sem
hafa ekki átt fastan samastað mjög
lengi. Telja þeir því mikið fagnað-
arefni að nú skuli vera hægt að
stfga þetta skref að bjóða hluta
þessara illa stöddu einstaklinga
upp á mannsæmandi aðstæður,
aðstæður sem flestir telja sjálf-
sagðar, þ.e. stað sem hægt sé að
kalla heimili. Félagsmálastjóri og
„Menn geta sótt um
pláss hjá borgarhluta-
skrifstofu Félagsþjón-
ustunnar og sérstakt
inntökuteymi mun fara
yfir umsóknirnar og út-
hluta plássunum í sam-
ráði við yfirmann heim-
ilisins."
forstöðumaður Samhjálpar skrifa
formiega undir samninginn í
Heimilinu að Miklubraut 18 í gær.
Tveggja ára dvöl
Heiðar Guðnason, forstöðu-
maður Samhjálpar, sagði í samtali
við DV að samkvæmt samningn-
um við Félagsþjónustuna sæi
Samhjálp um rekstur heimilisins.
„Menn geta sótt um pláss hjá
borgarhlutaskrifstofu Félagsþjón-
ustunnar og sér-
stakt inn-
tökuteymi mun
fara yfir umsókn-
irnar og úthluta
plássunum í
samráði við yfir-
mann heimilis-
ins." Heiðar sagði
að markmiðið
væri að mæta
þeim hópi fólks
sem hefði orðið
illa úti í lífinu,
hefði oft farið í
meðferð en slfkt ekki dugað hing-
að til. „Við viljum aðstoða það fólk
við að koma undir sig fótunum á
ný. Við miðum við að fólk sé hérna
í tvö ár og að eftir þann tíma geti
það fært sig yflr á næsta stig í líf-
inu. Hugmynd okkar og félags-
þjónustunnar er að mynda eins
konar þjónustukeðju og markmið-
ið er að eftir vistina hjá okkur taki
gatan ekki við heldur varanlegt
heimili fýrir fólkið." Guðni sagði
I Glasgow þarftu að:
Skoða byggingar eftir arkitektinn Charles
Rennie Mackintosh.
Prófaðu þjóðarréttinn Haggis en ekki
spyija um innihaldið!
•í »í£* ■ ;:3
a vM,. ..s■’iU
á mann í tvíbýli í 2 nactur. Innifalið: flug, gisting á Premier
Lodge, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Brottfarir 7. nóv, 6. feb. og 5. mars.
•* / e*i
^ ~~ //-• -
.' I mvtSrcSSf
}! i Cí-
i *»
VR orioftivitun
Munið f«rði
að fólk þyrfti að borga 18 þúsund
krónur á mánuði fyrir fæði og 20
þúsund krónur fyrir húsnæði en
það gæti sótt um styrk til Félags-
þjónustunnar. Skilyrði er að fólk
hafi verið edrú í fjórar vikur og hafi
vilja til þess að takast á við lífið.
„Við erum nú þegar byrjuð að taka
við umsóknum og búumst við að
fylla heimilið á næstu vikum. Þetta
er úrræði sem hefur sárvantað og
við erum bjartsýn á að það gefi
góðan árangur."
HEIMILI: Nýtt heimili fyrir heimilislausa
Reykvíkinga var opnað í gær og vonast er
til að fylla plássin á næstu vikum.
Sumir geta hugsað sér
að þiggja - aðrir ekki
Varast ber að þiggja það sem túlka má sem „góðgjörð gegn greiða" segir
þingmaður
Þingmenn og ráðherrar svara spurningum DV um boðsferðir misjafnlega ftarlega og greinilegt er að skiptar skoðanir eru
um hvort það getur verið réttlætanlegt að þiggja slfkar ferðir. Hér er birtur 5. skammtur svara og hefur ríflega helmingur
77 þingmanna og borgarfulltrúa svarað.
Spurtvar:
1. a) Hefur þú þegið boðsferð á vegum einkaaðila (þ.e. einstaklinga eða einkafýrirtækja), utanlandsferð, veiðiferð eða annað sem
telja má sambærilegt, á undanförnum árum, eftir að þú tókst við starfi [þingmanns, ráðherra, borgarfulltrúa eða borgarstjóra]?
b) Ef svo er: Hvaða ferð(ir), hvenær og í boði hvefs/hverra?
2. Telur þú eðlilegt að stjórnmálamenn þiggi boðsferöir á vegum einkaaðila?
Arni Magnússon,
þingmaður Framsóknarflokksins og
félagsmálaráðherra:
| „Eg hef ekki þegið
sllkt boð og hef ekki í
hyggju að gera það.“
Einar Már Sigurðarson,
þingmaður Samfylkingarinnar:
„Svar mitt við báðum
spurningum er nei."
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar:
"1. Nei.
I 2. Það er matsatriði;
það getur farið eftir
eðli boðsins og
finnst mér að það
vanti siðareglurfyrir
stjórnmálamenn
hvað þetta varðar."
Jóhanna Sigurðardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar:
---------- "1. Nei.
2. Nei."
Bryndis Hiöðversdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar:
"1. Nei.
2. Það er allajafna
óeðlilegt þótt eflaust
geti í undantekning-
artifellum komið upp
tilvik er réttlæti sllkt."
Jón Gunnarsson,
þingmaður Samfylkingarinnar:
„I.Nei.
2. Nei."
ICELANDAIR
www.leelðiKlAif ÍS
Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs:
j „1. Nei, og ég hef
heldur ekki þegið
boðsferð bandarlskra
stjórnvalda til höfuð-
stöðva Atlantshafs-
flotans í Norfolk í
Virginíu (sem þeim.
þó datt I hug að
bjóða mér).
2. Nei. Ég tel afar mikilvægt að fólk sem
gegniráhrifamiklum opinberum störf-
um sé trúverðugt að þessu leytl og
hafni boðum sem mögulegt er að llta á
sem mútur."
Birgir Ármannsson,
þingmaður Sjálfstæðisfiokksins:
„I.Nei.
[ 2. Almennt eiga
menn í opinberum
störfum að fara gæti-
lega I því að þiggja
boð frá einkaaðilum
um ferðir og annað.
Að minu mati er ekki
' hægt að ganga svo
langt að segja að það eigi aldrei við.
Menn verða auðvitað að meta það eftir
aðstæðum í hverju tilviki fyrir sig og
varast allt sem hægt er að túlka sem
„góðgjörð gegn greiða"."
Siv Friðleifsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins og
umhverfisráðherra:
"I.Nei.
2. Það verður að
meta í hverju tilvikl
fyrir sig."