Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Blaðsíða 16
16 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 16.ÁGÚST2003
DvHelgarblað
ú
Umsjón: Snæfríðurlngadóttirog Finnur
Vilhjálmsson
Netfang: snaeja@dv.is / fin@dv.is
Sími: 550 5891
Sungið án orða
Gunnlaug Þorvaldsdóttir
syngur á óheföbundinn
háttenhúner
svokallaður
raddlistamaður.
Píkusnyrtingar
Baðhúsið býður upp á
brasilísktvaxsemer
vaxmeðferð á kynfærum
sem felur í sér að öll hár
eru fjarlægð.
Sígild dönsk
hönnun
lllumsBolighusí
Kaupmannahöfn er
þekktfyrirflottahönnun.
Nú má sjá sýnishorn af
vörum jpess í Epal.
Bls. 26
Bls. 36
B/s. 44
Bóksem hefur
áhrifá mann-
kynssöguna?
Eitt afatriðum Menningarnæturinnar er upplest-
ur tónlistarmannsins Guðmundar Steingríms-
sonar úr væntanlegri skáldsögu sinni á Súfistan-
um kl. 22. Bókin nefnist Áhrif mín á mannkyns-
söguna - Skáldsaga og er fyrsta bók höfundar.
„Sagan fjallar eiginlega um tilvistarlegt
ástand mannsins og möguleika hans til þess
að hafa áhrif á mannkynssöguna," segir Guð-
mundur, aðspurður um efhi þessarar fyrstu
skáldsögu sinnar. Aðalsögupersónan er Jón,
þrítugur piparsveinn sem er nýkominn úr
löngu sambandi. Lesendur fá innsýn í sjö
daga úr lífi hans þegar hann kemur heim tii is-
lands í jólafn' frá London þar sem hann er bú-
settur, minnislaus um síðustu daga.
„Fólk má þó ekki halda að þessi saga sé eitt-
hvað lík ævisögu minni þó vissulega séum við
Jón líkir að ýmsu leyti. Ég bjó t.d í London í
þrjú ár, var í löngu sambandi og hef lent í
ýmsum hremmingum, svipað og Jón, en hef
þó aldrei misst minnið á leið heim í jólafrf."
Fáir kvenmenn í bókinni
Guðmundur segist hafa byrjað á bókinni í
London árið 1999 þannig að fæðingin hefur
tekið fjögur ár.
„Ég hef eiginlega skrifað bókina tvisvar. Ég
hafði alltaf trú á söguþræðinum og vildi reyna
að koma sögunni út núna, áður en ég færi að
skrifa hana í þriðja sinn."
Hann segir að það sé ákveðinn húmor í
bókinni þó hann sjálfur sé reyndar löngu
hættur að hlæja enda hefur bókin verið svo
lengi í höndunum á honum. „Það getur verið
fyndið hvað lífið getur farið undarlega með
okkur."
Guðmundur segir að bókin ætti að höfða til
allra og ætti hún því að geta keppt um titilinn
„jólabókin í ár“ við allar hinar bækumar sem
koma út með haustinu. „Það em reyndar ekki
margar kvenpersónur í bókinni og menn hafa
sagt mér að það sé ekki sérlega gróðavænlegt.
Kvenmenn em þó líka í bókinni því sagan
fjallar auðvitað á endanum um ástina án þess
þó að ég segi of mildð," segir Guðmundur og
MENNINGARLEGUR: Tónlistarmaðurinn Guðmundur
Steingrímsson leggur sitt af mörkum til Menningar-
næturinnar og mun þá lesa upp úr væntanlegri bók
sinni á Súfistanum. Bókin er hans fyrsta skáldsaga en
söguþráðurinn minnir óneitanlega á margt úr hans
eigin lífi. DV-myndGVA
bætir því við að þær karlkyns persónur sem
fylla bókina séu lokaðar, í mikilli þröng og geti
illa tjáð sig.
Semur fyrir íslenska dansflokkinn
Fyrir utan bókarskrif hefur annars verið nóg
að gera hjá Guðmundi í sumar. Hann vinnur
við skriftir á Fréttablaðinu og svo má einnig
heyra reglulega í honum á Rás eitt þar sem
hann er með pistla. Hljómsveitin hans, Ske,
spilaði svo á Roskildehátíðinni fyrr í sumar en
sveitin hefur verið að semja tónlist fyrir hol-
lenskt dansverk, Match, sem íslenski dans-
flokkurinn mun setja upp í haust og fjallar um
fótbolta.
Guðmundur mun, eins og áður sagði, veita
gestum og gangandi nasasjón af bókinni á
Súfistanum á Menningarnótt þar sem hann
mun lesa upp brot úr einum kaflanum.
„Það getur verið nokkuð hættulegt að lesa
upp úr óútkominni bók. Ef viðbrögðin verða
neikvæð þá er hætt við því að ég fari heim og
breyti bóldnni einu sinni enn," segir Guð-
mundur og það vottar fýrir áhyggjum í rödd-
inni.
- En ertu byrjaður á næstu bók?
„Nei, en ég veit um hvað hún á að fjalla."
- snaeja@dv.is
MARGT í GANGI: Súfistinn verður athvarf skálda á menningarnótt en þar munu auk Guðmundar Steingrímssonar
m.a Guðmundur Andri, Gerður Kristný, Baldur Gunnarsson og Ólafur Gunnarsson lesa upp úr verkum sínum.
Tillaga að menningarnótt
Dagskrá menningarnætur í dag (ath. þversögn-
ina) og kvöld er svo mikil og þétt að hætt er við
að fólki vaxi menningarneyslan í augum og fríki
út á valkostunum, eins og skáldið kvað. Helgar-
blaðið tók því saman tillögu að menningarnótt I
tímaröð sem sameina á eftir megni magn og
gæði menningar. Peir sem vilja fylgja þessu
planiþurfa hins vegar að skipuleggja sig í þaula,
ekki láta sekúndu fara til spillis og vera auk þess
íafargóðu líkamlegu og andlegu formi.
13.00: Setningin.
Þórólfur telur í hátíðina með nokkrum vel
völdum, þ.e. að því gefnu að honum takist að
yfirgnæfa Kvennakór Reykjavíkur.
14.00: Slavneskir tvíburar þenja nikkuna.
Juri og Vadim Fedrov leika á harmoníkur í
tröppunum hjá Koggu keramik á Vesturgötu.
Svo er um að gera að slíta sig frá tvíburunum
og skoða tyggjóklessumálverk fyrir utan
Laugavegsapótek.
14.30: Happdrætti í Gallerí Fold.
Dregið á 30 mínútna fresti, væntanlega list í
verðlaun, a.m.k. eitthvað menningarlegt.
15.00: Brúðubíllinn og fúllt annað.
Nú vandast málið og viðburðunum fjölgar.
Brúðubíllinn er hjá ÍTR á Fríkirkjuvegi, svo er
hægt að ná í sporðinn á Siglfirðingum sem
sýna ffá síldinni í Ráðhúsinu og enda svo
kannski á þjónahlaupi á Kaffi Viktor. Galdrar,
blús og fjöltefli eru meðal annarra kosta í
stöðunni.
16.00: Spaöar!
Hin síunga hljómsveit Spaðar heldur tón-
leika í Norræna húsinu og samtökin Komið
og dansið sker stéttina á Ingólfstorgi með
nokkrum léttum sporum.
16.15: Hvfld.
Smáhvíld ffá menningu, gera eitthvað
plebbalegt í staðinn, t.d. skoða tjaldvagna úti
á Granda.
17.15: Proppé og Potter.
Óttarr Proppé stýrir pallborðsumræðum um
Harry Potter í Borgarbókasafninu.
17.30:40 mínútur.
Þeir sem geispa yfir galdrastráknum geta
fylgst með JC-félögum fara gegnum fslands-
söguna á 40 mínútum fyrir utan Heilsuhúsið
á Skólavörðustíg.
18.00: Æla.
Hér er ekki vísað til viðbragða við söguskoð-
un JC-félaga heldur hljómsveitarinnar Ælu
ffá Keflavík sem leikur í Tjamarbíói. Svo
beint á vísindamaraþon í Top-Shop-húsinu
við Lækjargötu - vísindi eru líka menning.
Mótettukór Hallgrímskirkju þenur radd-
böndin í Hallgrímskirkju.
(Nú em kraftar menningameytandans og
jafnvel lyst farin að dvína ört svo velja þarf
með kostgæfhi atburði hinnar eiginlegu næt-
ur.J
20.00: Da!
Konstantin Chtecherbak leikur rússnesk
þjóðlög á balalæku og fleiri skrítin hljóðfæri í
Gallerí Álfi, Bankastræti 5.
20.15: Stilluppsteypa.
Helgi Þórsson úr Stilluppsteypu spilar undir
myndbandsinnsetningu hljómsveitarinnar í
Tjarnarbíói.
21.00: Quarashi
Quarashi spilar á tónleikum Rásar 2 í tilefhi
20 ára afmælis rásarinnar á miðbakka
Reykjavíkurhafnar.
21.30: Danstískusýning.
Listræn danstískusýning í GuSt & dísjón,
Laugavegi 39. Nemendur Listdansskólans
túlka tísku.
22.00: Helgistund í Hallgrímskirkju
... í umsjón Jóns Dalbú Hróbjartssonar. Þeir
sem geta sagt nafnið hans þrisvar í röð hratt
eftir eril dagsins og hressingu ffá ókeypis
áfallahjálp.
22.30: Stuðmenn.
Stuðmenn leika á stórtónleikum Rásar 2 á
miðbakkanum.
23.00: Takk fyrir og góða nótt
Flugeldasýning á hafnarbakkanum í boði
Orkuveitu Reykjavikur í boði skattgreiðenda.
Ekki hefúr fengist gefið upp hvort hækkun-
inni um daginn á heita vatninu hafi verið ætl-
að að standa undir þessum dagskrárlið. Njót-
ið vel!