Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Blaðsíða 34
38 DVHELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 16.ÁGÚST2003
1
4
Enginn megrunar-
kúr er eins góður og
ástin, segja sérfræð-
ingar. Hvort heldur
maður er nýástfanginn
eða er í ástarsorg má maður
búast við því að grennast um
nokkurkíló.
Megrunarsérfræðingar og nær-
ingarfræðingar eru sammála
því að ástin sé eitt besta
ráðið til að halda þyngd-
inni í réttum skorðum. í
nýlegri grein sem birtist
í norska Dagbladet
sögðu sérfræðingar að
ástin væri eins konar
víma sem yfirleitt
grennti mannskepnuna.
Þegar fólk er ástfangið fær-
ist nefnilega athyglin frá
manni sjálfum yfir á aðra
manneskju og þar með minnkar
þörfin fyrir bæði mat og svefn. Það
er ekki óalgengt að fólk missi jafnvel
3-4 kíló þegar það er nýbúið að hitta
nýjan félaga og er ástfangið upp fyrir haus.
Ástfangin pör eru einnig oft mikið á fartinni
og gera ýmislegt
spennandi sem ekki
er beint til þess fallið
að fólk leggi sig - að
ekki sé minnst á alla
brennsluna við kynlífið
sem er yfirleitt í hámarki á
þessum tíma. Þrátt fyrir að
fólk eldi mikið hvort fyrir
annað um þetta leyti er samt
sjaldnast um neinn skyndibitamat
að ræða heldur eru menn að dusta
rykið af gömlum matreiðslubókum með
framandi réttum sem eru ekki endilega svo
óhollir. Fólk hugsar einnig
■meira um útlit sitt þegar
það er nýástfangið og
t er meðvitaðra um
þyngdina en ella.
B Ástarsorg getur á
B sama hátt haft
| grennandi áhrif
því iífsins áföll
W hafa ekki síður áhrif
' á líkamann en hjart-
að. Margir hreinlega
missa matarlystina og
leggjast í þunglyndi. Mat-
urinn missir hreinlega bragð-
ið og kaffið bragðast ekki einu
sinni vel. Reyndar getur ástarsorg líka
haft þveröfug áhrif því sumir leita einmitt
huggunar í mat. Sérfræðingar segja reyndar
ÁSTIN ERGÓÐ: Ástin er góð á svo marga vegu. Auðvitað finnst flestum gott að kúra með einhverjum en svo
grennir hún mann einnig. Þessi mynd er úr kvikmyndinni „Elsker dig for Evigt".
að það sé fólk á þrítugsaldrinum sem sé í
mestri hættu á að bæta á sig á en aftur á móti
grennast gamalmenni yfirleitt þegar
vöðvarnir fara að rýrna. Algengt er að konur
þyngist um 12-15 kfló í kjölfar barnsburðar
en flestar ná því aftur af sér þegar þær fara að
hafa barn á brjósti. Konur á breytingaskeið-
inu fá oft mikinn maga en það er vegna
hormónabreytinga í líkama þeirra sem gerir
það að verkum að kílóin virðast flytja sig frá
lærum og baki upp á magann. Flestir bæta þó
mestu á sig þegar mesti ástarbríminn er horf-
inn og við taka róleg kúrukvöld í sófanum
með nammi og vöfflur. snaeja@dv.is
íönið liggur
Övenju fjölbreytt farartæki svífa um loftin blá yfir Reykjavíkurflugvelli i dag. í og við Skýli 4, Flugfélags
Islands megin, verður margt um að vera. Flugfreyjur, flugmenn og flugvirkjar kynna störf sín og
Flugbjörgunarsveitin kynnir starfsemi sína. Yfir 20 áhugaverðar flugvélar verða til sýnis á svæðinu.
Afmælisleikur í flugskýlinu!
Búðu til þína eigin skutlu úr flugskutlublaðinu sem fylgdi með Fréttabiaðinu í dag og taktu þátt
í skemmtilegum afmælisleik. Þeir sem hitta skutlunni i mark ienda í verðlaunapotti fiughátíðarinnar
Stórglæsilegir vinningar: 60 flugmiðar og 100 aukavinningar