Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Side 26
26 DV HELOARBLAÐ LAUGARDAGUR 16.ÁGÚST2003
.SÍÍÉC
HÆFILEIKARÍK: Gunnlaug er svokallaður raddlistamaður. Hún getur skríkt á við hvaða kriu sem er og búið til hin undarlegustu hljóð. Þessir hæfileikar hennar fá að njóta sín á Italíu í vetur þar sem hún tekur þátt í uppsetningu á verk-
inu Credo sem verður frumflutt í Karlsruhe í Þýskalandi næsta vor.
(junnlaug Þorvaídsdóttir hefur þann sérstaka
hæfileika að geta sungið án orða. í staðinn not-
ar hún hljóð og getur söngur hennar hijómað
angurvær eins og fiðla eða ógnandi eins og
ófreskja. Þessi sérstaki hæfileikihennar hefur nú
borið fiQoa til Ítaiíu þar sem hennfhefur verið
boðið að taka þdtt í uppfærslú á vegum Fabrica,
lista- og rannsóknarseturs í eigu Benetton-fyrir-
tækisins.
„Mamma segir að ég hafi ekki hjalað eins
og önnur börn heldur komu einhver furðu-
hljóð upp úr mér og það var grínast með að
ég væri hreinlega andsetin," segir Gunnlaug
Þorvaldsdóttir sem er 27 ára og hefur þann
sérstaka hæfileika að geta sungið á óvenju-
legan hátt. Flestir myndu kalla það hljóð
frekar en söng en sem dæmi má nefna að hún
getur látið röddina í sér hljóma angurværa
eins og fiðlu eða flautu, hermt eftir fuglum og
framkallað undarleg hljóð eins og ófreskja.
„Þegar ég var þriggja ára var ég farin að ná
mörgum fuglahljóðum og hermdi t.d vel eftir
kríu. Fjölskyldan var mikið í sumarbústað við
Rauðhóla og þar var ég alltaf úti að tala við
fuglana og pikkaði upp mikið af hljóðum úr
náttúrunni," segir Gunnlaug.
Skríkir eins og fugl
Þessir sérstöku hæfileikar Gunnlaugar
hafa borið hana víða en hún vakti fyrst at-
hygli fjölmiðla fyrir fuglahljóð sín þegar hún
lék m.a máv í útvarpsleikriti eftir Jón Gnarr á
sínum tíma. Gunnlaug hefur hins vegar hætt
að fást við fuglahljóðin á síðari árum og þess
í stað notast við röddina í listrænni tilgangi
með söng og raddgjörningum. Hún er nú á
leið til ftalíu þar sem henni hefur verið boðin
vist við Fabrica, sem er lista- og rannsóknar-
setur í eigu Benetton-fyrirtækisins, skammt
frá Treviso á Norður-ftalíu. Fabrica leitar að
hæfileikafólki víðs vegar um heim og býður
því að koma og dvelja í miðstöðinni og fundu
starfmenn Fabrica Gunnlaugu á tónleikum í
Frakklandi í vor. Þar dvaldi hún á Institute for
living voice. Þar hittist fólk sem er að vinna
með röddina og notarhana á margvíslegan og
óhefðbundinn hátt. Það voru þeir David
Moss, raddlistamaður og djasstrommari frá
New York, og Andrea Molino, hljómsveitar-
stjóri og yfirmaður tónlistardeildar Fabrica,
„Tilfinningin íröddinni skiptir
meira máli en að vera með
hljóðasýningu eða raddfim-
leika. Það er oft þreytandi að
hlusta á einhvern sem keppist
við að verá hljóðgervill eins
og margir hafa tilhneigingu til
á þessu sviði; mikilvægara er
að skapa framvindu og
stemningu."
sem báðu Gunnlaugu að koma og vinna að
uppsetningu á verkinu Credo. Það verður
síðan frumflutt í Karlsruhe í Þýskalandi
næsta vor. Verkið verður einnig sýnt á hátíð í
Istanbúl 1995. Þeir David og Andrea voru
gagngert að leita að fólki í verkið þegar þeir
fundu Gunnlaugu.
„Verkið verður flutt af 90 manna sinfóníu-
hljómsveit og sólistum ásamt hljóðupptök-
um og rafhljóðum. Þetta er margmiðlunar-
verk þar sem notast er við tölvumyndir og
myndbandsupptökur og einnig gervihnatta-
sendingar þar sem nokkrir hljóðfæraleikarar
Ieika í beinni útsendingu frá öðrum stöðum í
heiminum. Verkið er byggt á sögunni um fall
Babýlon og markmið þess er að sameina
mannkynið þrátt fyrir ólík trúarbrögð, kyn-
þætti og mismunandi tungumál. Þess má
geta að notast verður við brot úr viðtölum við
fólk úr blönduðum hjónaböndum og þeim
varpað á skjá,“ útskýrir Gunnlaug. Hvert
hennar hlutverk verður nákvæmlega í þessari
uppsetningu er enn ekki fullákveðið, því enn
er verið að semja verkið, en hún verður í hópi