Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Síða 42
-jf 46 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR I6.ÁGÚST2003
F.h. Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins er óskað eftir tilboðum í
stólalyftu fyrir Bláfjallasvæðið. Um er að ræða 4—6 manna lyftu
með burðargetu frá 2.200 manns á klst.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar.
Opnun tilboða: 9. október 2003, kl. 10.00, á sama stað.
SKlÐ 102/3
flWfl INNKAUPASTOFNUN
Sil REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík
Fax 562 2616 - Netfang isr
- Sfmi 570 5800
ing isrörhus.rvk.is
Til sölu og flutnings
Laugavegur 86
F.h. Skipulagssjóðs Reykjavíkurborgar er auglýst til sölu og flut-
nings hús á Laugavegi 86. Um er að ræða u.þ.b. 352 m2 hús, kjal-
lara, tvær hæðir og ris. Húsinu fylgir lóö að Álagranda 4, Reykjavík.
Til viðbótar tilboðsfjárhæö greiðir kaupandi gatnageröargjöld fyrir
Álagranda 4, samkvæmt gjaldskrá Reykjavíkurborgar.
Frestur er til 1. desember 2003 að flytja húsið frá Laugavegi 86.
Aðstæður, ástand og nánari útlistun hússins kynna mögulegir
bjóðendur sér á staðnum.Nánari upplýsingar um húsin og
söluskilmála eru afhentar hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur. Tilboð
eru bindandi og skulu gilda í mánuð frá undirritun þeirra.
Tilboðum skal skila til Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, fyrir kl. 16.00 27. ágúst 2003, merkt „Laugavegur 86“.
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík - Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang isr^rhus.rvk.is
QV vantar blsðbera í
Innri-Njarðvík
Áhugasamir vinsamlegast hafi samband
við Oddnýju í síma 849 6050
Umboðsmaður
íBorgarnesi!
DV vantar umboðsmann í Borgarnesi
fráog meðl.september.
Áhugasamir vinsamlegast hafi
samband við Unni í síma 550 5744
Skák
Umsjón: Sævar Bjarnason
Óþekkti
skákmaðurinn
Skáksagan er full af frásögnum
af heimsmeistaraeinvígjum, al-
þjóðlegum mótum, titlum og
skákstigum. Skák er ekki þannig
að hún geti þeirra sem tapa, jafn-
vel þó að þeir haf! tapað með
sæmd og sæmd þeirra hafi jafn-
vel verið meiri en að vinna!
En skáksagan er ekki aðeins
saga herjöfra og mikilla „hers-
höfðingja". Hún er líka saga hins
óþekkta skákmanns sem tekur
þátt í skáklistinni af lífi og sáf.
Margir eru þeir sem hafa lagt
hönd á plóginn, haldið skákmót
og aðra skákviðburði, og svo eru
þeir sem tefla sér til ánægju og
gleði. Hér á fslandi eru margir
svona skákmenn sem tefla í
heimahúsum, á vinnustöðum, í
íþróttahúsum og taflfélögum, og
svo eru það þeir sem eru kjölfesta
okkar skákmanna, velvildarmenn
sem skipuleggja skákviðburði, og
þeir eru einna mestir skákmenn,
af lífi og sál, og vilja framgang
skákfistarinnar sem mestan. Það
eru margar leiðir til að njóta
skákfistarinnar. Ég ætla ekki að
nefna nein nöfn, það væri órétt-
látt, við skákmenn þekkjum og
þekktum þessa menn. En mig
langar aðeins að skrifa um oln-
bogabörn skáklistarinnar og þá
sérstakiega nefna eitt dæmi.
Alvis Vitolinis
Sá sem ég ætla að minnast í
dag hét Alvis Vitolinis og var frá
Riga í Lettlandi. Hann var hávax-
inn maður og grannur og með
fjarrænt augnaráð, já, langt í
burtu! En hann náði aðeins al-
þjóðiegum meistaratitli í skák og
ákafi hans við skákborðið varð
ekki beislaður. Auðvitað kynntist
hann „töframanninum" frá Riga,
Mikael Tal, og tefldi oft við hann,
en Vitolinis tefldi af enn meira of-
forsi.
Ég minnist þess að í gamla
daga, þegar skákir bárust ekki
jafn oft og í dag, þá var hetja
dagsins hjá okkur strákunum sá
sem gat sýnt nýjustu Vitolinis-
skákina.
Alvis (keimlíkt Elvis!) fæddist í
Sigulda (Sigöldu!) úthverfi Riga
1946 og lærði að tefla 9 ára gam-
all. Hann varð brátt einn af
fremstu skákunglingum Sovét-
manna og sumir gengu svo langt
að segja að hann hefði verið best-
ur þeirra. En hann varð snemma
sérlundaður og það varð hans
einkennismerki að fórna manni
fyrir frumkvæðið. Hann varð
einna besti hraðskákmaður
heims og tefldi mörg æfingarein-
vígi við Tal og aðra fremstu skák-
menn austur þar. í stuttu máli er
hægt að segja að lífshlaup hans
hafi verið svona: miklar vænting-
ar til hans sem unglings og ótak-
markaðir hæfileikar á skáksvið-
inu. Hann tefldi á fáum alþjóð-
legum skákmótum - sérviska
hans kom snemma upp á yfir-
borðið og varð honum fjötur um
fót.
Vitolinis vann meistaramót
Lettlands sjö sinnum og mörg
minni skákmót vann hann í
Eystrasaltslöndunum. Hann bjó
hjá foreldrum sínum allt sitt líf,
lagði stund á þýsku og þýskar
bókmenntir og sóttist námið vel.
Fáa vini eignaðist hann. Vitolinis
mætti á skákmót eða bankaði
upp hjá meisturum og hann var
alltaf út af fyrir sig - nema ef
menn vildu spyrja, skoða eða
tefla þá var hann alltaf tilbúinn.
Hann fór aldrei út fyrir Sovétríkin
fyrr en skömmu áður en járn-
tjaldið féll - hann var ekki til út-
fíutnings - þá fór hann til Þýska-
lands og tefidi á nokkrum mótum
en hann var þá kominn yfir fer-
tugt og andleg heilsa hans bág-
borin. Þar að auki voru fórnir og
nýjungar í skákbyrjunum orðnar
að sjúklegri ástríðu.
Það er nokkuð ljóst að hann
hafði mikil áhrif á Alexei Shirov,
sem einnig var frá Riga, þó hann
tefli nú fyrir Spán. Leiftursóknir
og gambítar voru hans yndi. En
Vitolinis var að vissu leyti ein-
feldningur og draumóramaður.
Ef hann vann skák á móti þá var
það nóg - hann var þá betri en
andstæðingamir því hann lagði
oftast sterka skákmenn á borð við
Tal. Hann hafði sannað sitt. Og
að lokum fengu þráhyggja og of-
sóknarhugmyndir yfirhöndina og
hann tók stökkið mikla inn í ei-
lífðina í Erevan í Armeníu 1989,
en þá hafði kerfið miskunnar-
lausa svipt hann þeim litlu aur-
um sem hann fékk fyrir skák-
kennslu og þjálfun. En minning
hans lifir, skákirnar glæsilegu og
fífldirskan í sinni ftrustu mynd á
skáborðinu. Þetta em aðeins fá-
ein brot úr sögu hans en margt
hefur verið ritað um hanri. En lít-
um á glæsilega taflmennsku! Ekki
reyni ég að skýra hana mikið - til
þess er ég of jarðbundinn enn þá!
Glæsileg skákmennska
Hvítt: Alvis Vitolinis
Svart: Júrí Anikaev
Sildleyjarvöm, Najdorf-afbrigðið.
Riga 1973
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4
Rbd7 8. DQ Dc7 9. 0-0-0 b5
Þetta var nú skömmu eftir ein-
vígið fræga í Laugardalshöllinni
1972. Margir voru sérfræðingar í
þessari byrjun og lærðu hana ut-
anbókar - sumir án þess að skilja
baun og aðrir sem þarna lærðu sín
fyrstu vinnubrögð til framfara.
Flestir léku hér annaðhvort 10.
Bd3 eða 10. g4. En stórhuga menn
sinntu ekki eðlilegustu leiðunum.
10. Bxb5?! axb5 11. Rdxb5 Db8 12.
e5 Bb7 13. De2 dxe5 Þetta var
Vitolinis ánægður og glaður með:
óvissa sókn með manni undir! 14.
Dc4 Bc5 15. BxfB gxf6 16. Hxd7!
Be3+ Þetta hafði svartur vonast
eftir að dygði til að hrinda sókn-
inni. En andstæðingur hans hugs-
aði ekki „rökrétt"! 17. Kbl Kxd718.
Hdl+ Ke8 19. Rc7+ Kf8 20. £xe5
Ha5 Svartur er fastur í gildrunni -
menn hans vinna illa saman - 20.
-Ba6 21. Dc6! vinnur og21.-Bxg2
strandar á 22. exf6 og svartur er í
svipaðri beyglu og í skákinni. 21.
exfB! Bd5 22. R3xd5 exd5 23. Dc3
Hc5 24. Dxe3 Hxc7
Eftir 24. - Dxc7 25. Hel er mát í
3 leikjum augljósara! En nú kemur
einn stuttur og einn langur og
snilldarverkið er fætt! 25. Hel h5
26. Da3+ 1-0
Hvítt: Vladimir Tukmakov
Svart: Alvis Vitolinis
Bogo-indversk vöm.
Erevan 1980
1. d4 RfB 2. 04 e6 3. Rf3 Bb4+ 4.
Bd2 c5 Þessi leikur, sem er skrýt-
inn við fyrstu sýn, er auðvitað ætt-
aður frá Vitolinis. Bestu stórmeist-
arar heims hafa flestir tekið hann
upp á arma sína! 5. Bxb4 cxb4 6. g3
b6 7. Bg2 Bb7 8. 0-0 a5 9. a3 Ra6
10. Rbd2 0-0 11. Db3 d6 12. Hfdl
De7 13. Hacl Hac8 Allt er þetta
hefðbundið, hvítur hefúr ágæta
stöðu en gætir sín ekki. Peðið á b4
truflar samskipti hvítu mannanna
og flestir reyna núorðið að leika
axb4 um þetta leyti. En það
gleymist að undirbúa það. 14. e3
e5 15. Rel Bxg2 16. Kxg2 Db7+ 17.
Kgl e4! 18. Rc2
18. - Dd7H Hótar a4-b3 og ekki
nóg með það, Dh3 líka og sókn úr
öngvu! 19. axb4 Dh3 20. bxa5 Rg4
21. Rfl
Nú tekur riddari svarts á a6
sprettinn og ætlar til e6-g5 og
máta. Hvítur kemur í veg fyrir það
en þá dynur annað á honum! 21. -
Rc7 22. d5 Re8! 23. Rd4 Ref6 24.
axb6 Re5 25. f4 exf3 26. e4? 0-1Æ,
hann gleymdi að svartur mátar
með 26. Dg2+ og mát. En eftir 26.
Hc2 Hxc4 27. Rc6 er barátta í hvítu
stöðunni. Ljótt að leika sig í mát
og skemma hugmyndir Vitolinis.
En þetta er ágætt dæmi um hversu
menn hræddust sóknir hans.