Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2003, Page 53
LAUGARDAGUR 16.ÁGÚST2003 TILVEfíA 57
r
Höfuðstafír
Sjötíu ára
Valborg Soffía Böðvarsdóttir
leikskólastjóri
Umsjón: Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Netfang: ria@ismennt.is
Þáttur ?
90
1 dag byrjum við á vísu eftir Höskuld á Vatnshorni:
Þegarmín ergróin gröf
oggrasið Ieggst íkringum,
hlotnast mér sú góða gjöf
að gleyma Húnvetningum.
I
. ' ■ ■ ,:
■
•s •%' ^ f\ ■■ : • -v.' »'-•
■ ,. ^ -* ,m ^
M » Z' * Z.■ ■* **. * **.'■ á£k ^ w
ws£,tf. *
v— *V £ •' * * -. — — - T
Valborg Soffía Böðvarsdóttir leik-
skólastjóri, Breiðási 9 í Garðabæ,
verður sjötug á mánudaginn.
Starfsferill
Vaiborg Soffía fæddist í Reykjavík
18.8.1933 og ólst upp í Skerjafirði, í
Miðstræti 5 og Efstasundi 54.
Eftir gagnfræðapróf fór hún í
Fóstruskólann og útskrifaðist 1953,
síðan fór hún í húsmæðraskólann
á Laugarvatni þar sem hún dvaldi
1954-1955. Veturinn 1983-1984
var hún í framhaldsdeild Fóstru-
skóla íslands, 1. áfanga. Eftir það
fór hún í menntaskóla og nám í
heimspekideild Háskólans. Einnig
var hún eina önn í Háskólanum í
Uppsala í Svíþjóð.
Vcdborg hefur gegn um árin starf-
að við kennslu í leikskólum og
grunnskólum, hefur m.a. starfað
með.fötluðum oglömuðum íKópa-
vogsskóla á Kópavogsbraut 1, Safa-
mýrarskóla og á Sólheimum í
Grímsnesi. Einnig hefur hún unnið
í Lækjarskóla í Hafnarfirði og Set-
bergsskóla í heilsdagsskóla.
Vafborg Soffía hefur verið í félags-
störfum fyrir Alþýðuflokkinn og
víðar.
Fjölskylda
Valborg Soffía gifti sig 1.10. 1955.
Maður hennar er Magnús Júlíus
Jósefsson, plötu-og ketilsmiður og
sendiferðarbflstjóri, f. 7.7. 1930.
Foreldrar hans voru Guðrún Magn-
úsdóttir og Jósef Jónasson. Þau
voru bændur í Arnarfirði og síðustu
árin sín bjuggu þau á Bfldudal.
Börn Valborgar Soffíu og Magnús-
ar eru Böðvar Magnússon, f. 31.1.
1956, rafsuðumaður, búsettur í
Kópavogi; Jósef Rúnar Magnússon,
f. 22.3. 1957, húsasmíðameistari,
búsettur í Kópavogi, Ragnar Sveinn
Magnússon f. 12.12. 1967, býr í
Reykjavflc og er kennari við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti. Allir
eru þeir bræður fæddir í Kópavogi.
Barnabörn Valborgar Soffíu eru sex
og langömmubarn eitt.
Systkini Valborgar Söffíu eru Jón
Böðvarsson, f. 2.5. 1930, kennari,
og skólastjóri sem hefur á undan-
förnum árum verið með námskeið í
fornsögum á vegum Háskóla ís-
lands o.fl.; Vilhelmína Sigríður
Böðvarsdóttir, f. 13.6. 1931, hús-
móðir, hefur búið í Reykjavík þar til
nýlega að hún flutti í Hafnarfjörð;
Bjarni Böðvarsson, f. 13.11. 1934,
húsasmíðameistari, búsettur í
Reykjavík; Böðvar Böðvarsson f.
13.11. 1934, húsasmíðameistari í
Reykjavík; Sigmundur Böðvarsson,
f. 29.9.1937, lögfræðingur, búsettur
í Reykjavík; Hálfsystur Valborgar
Soffíu eru tvíburasysturnar Alberta
Guðrún húsmóðir og Guðný Þóra,
hárgreiðslumeistari Böðvarsdætur,
f. 19.6. 1942.
Foreldrar Valborgar Soffíu voru
Böðvar Stephensen Bjarnason, f.
1.10. 1904, d. 27.10. 1986, húsa-
smíðameistari í Reykjavík, og kona
hans, Ragnhildur Dagbjört Jóns-
dóttir, f. 31.3. 1904, húsmóðir.
Ætt
Böðvar var sonur Bjarna, b. í
Gerði, Jónssonar, b. á Stórubýlu
Jónssonar, og Guðrúnar Jónsdótt-
ur, b. á Eystra-Miðfelli, Einarsson-
ar, í Skipanesi, Einarssonar. Móðir
Jóns var Hallfríður Þorleifsdóttir, b.
í Belgsholtskoti, Símonarsonar, b. á
Þyrli, Þorleifssonar, b. á Þorláks-
stöðum í Kjós, Jónssonar. Móðir
Sfmonar var Guðrún Eyjólfsdóttir,
b. á Ferstiklu, Hallgrímssonar,
prest og skálds Péturssonar.
Móðir Böðvars húsasmíðameist-
ara var Sigríður Jónsdóttir Ólafs-
sonar. Móðir Sigríðar var Sesselja
Þórðardóttir, systir Bjarna, b. á
Reykhólum.
Ragnhildur var dóttir Jóns Veld-
ing, b. á Rein, Kristjánssonar Veld-
ing, sjómanns í Hafnarfirði, Frið-
rikssonar Velding. Móðir Jóns var
Kristín Þórðardóttir, vinnumanns á
Vorsabæ á Skeiðum, Jónssonar.
Móðir Ragnhildar var Soffía Jóns-
dóttir, útvb. í Vík á Akranesi, Sig-
urðssonar, b. á Bakka á Kjalarnesi,
Pálssonar. Móðir Sigurðar var Sol-
veig Sigurðardóttir, systir Magiús-
ar, langafa Guðrúnar, móður
Bjarna Benediktssonar forsætis-
ráðherra. Bróðir Solveigar var Árni,
langafi Sæmundar, afa Sighvats
Björgvinssonar alþingismanns.
Móðir Soffíu var Sigríður Ólafsdótt-
ir, b. á Litlu-Fellsöxl í Skilmanna-
hreppi, Magnússonar. Móðir Ólafs
var Sigríður Ólafsdóttir, b. á Snart-
arstöðum, Hermannssonar, bróður
Bjarna á Vatnshorni, langafa Guð-
bjarna, föður Sigmundar háskóla-
rektors.
Valborg Soffía verður að heiman á
afmælisdaginn. Hún skrapp til
Benidorm á vegum Heimsferða og
dvelur á E1 Faró á Poniente-strönd!
Sm áauglýsingar %
DV 550 5000 ^
jí
Sú næsta er eftir Maríu Bjarnadóttur. Þessa kallar hún Gjaldþrot:
Hér eru menn sem gráta gull,
ganga burtu „slyppir".
Líka afsínum sauðum ull
sjálfur fjandinn klippir.
Skarða-Gísli, hver sem hann nú var, orti þá næstu:
Hálsinn skola mér er mál,
mín því hol erkverkin.
Égmun þola þessa skál -
það eru svolamerkin.
Káinn átti það til að svara hvatskeytslega fyrir sig ef að honum var
vegið. Einhver kvenmaður hefur væntanlega verið að atyrða hann
fyrir drykkjuskapinn þegar hann svaraði með þessari vísu:
Gafmér Bakkus gott að smakka
gæðin bestu, öl og vín.
Honum á égþað að þakka
að þú ert ekki konan mín.
Kristján Hreinsson vann það afrek fyrir skömmu að yrkja hring-
henda limru. Reyndar er að líkindum ekki rétt að kalla þetta hring-
hendu, en svo mikið er víst að ris 2. bragliðar ríma saman í ölium lín-
unum:
Hér limran skal lýsa í stafni,
hún lengi á íslandi dafni,
þvíhúnersú vísa
sem hérna skal prísa
oghelst efhún rís undir nafni.
Páll Jóhannesson orti til óknyttastráka:
Þið hafíð sýnt ykkar fegursta fag,
þó framtakið miði’ei til dáða.
Égóska þess svona íofanálag
að andskotinn hirði’ykkur báða.
Næsta vísa er eftir ókunnan höfund:
Sjálfsafneitun er víst enn
á ósköp lágu stigi
úr þvíjafnvel AA-menn
eru á fylliríi.
Við endum á vísu eftir Helga Sveinsson:
„Linast kvöl íhrygg og hupp “,
héraðslæknir tautar.
Lyftir faldi, læðist upp
lærið bert og sprautar.
smáauglýsingablaðið
-berðu saman verð og órangur
Sama verð ó smáauglýsingum
alla daga
500 kr.
700 kr.
950 kr.
Smáauglýsing
dn myndar, pöntuö á
www.smaauglysingar.ls
Smáauglýsing
án mynáar, pöntuö hjd DVeöalslma
Smáauglýsing
meö mynd, pöntuö hjá DV, I slma eöa á
www.smaauglysingar.is
Við birtum -
það ber árangur