Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2003, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 DVheimsækir hið umdeilda hundabú að Dalsmynni: Hundaræktin er okkar lifibrauð Hundaræktarbúið að Dalsmynni hefur verið mikið í umræðunni á undanförnum árum. Deilan harðnar enn og mótmælastaða er fyrirhuguð vegna meintrar „hvolpaframleiðslu.". Blaða- menn DV heimsóttu búið í gær og skoðuðu í hvern krók og kima. Það sem fyrst bar fyrir augu þegar rennt var í hlað í Dalsmynni voru smáhundar af ýmsum tegundum f útigerðum. Haustíægðin enda ekki farin að banka á upp úr hádeginu í gær og veður ágætt. Það varð mikið uppistand í gerðunum þegar bílinn bar að garði, enda vildi hver hundur fá sína athygli og ekkert minna en það. Eftirtektarvert var þó að þegar gestir vom komnir í hús hjá húsráð- endum steinþögnuðu hundamir og undu glaðir við sitt. „Við flytjum nýtt blóð inn í hundaræktina og það verða menn að þola, hvort sem þeim er það Ijúft eða leitt." í Dalsmynni hefur nú verið kom- ið upp 30 ágætlega rúmgóðum úti- gerðum, sem em 2x3 metrar að stærð. Yfirleitt vom tveir hundar í hverju gerði, smndum einn eða fleiri. Vatn var hjá öllum og hár skjól- veggur norðan við gerðin. Stíurnar em reistar á steyptum fleti sem fljót- legt er að spúla að kveldi. Umbúnaður er með þeim hætti að hundarnir ganga beint út úr inni- stfum og út í gerðin, án þess að nokkur hætta sé á að þeir stökkvi í burtu. Það er því auðvelt og fljótíegt að hleypa þeim út og kalla þá aftur inn í stíuna sína. Aðbúnaður innan dyra Inni í húsinu em 36 stíur. í þeim öllum, undantekningarlaust, var að- REGiNA; Unga stúlku bar að garði meðan á heimsókn blaðamanna stóð. Ljósmyndari fékk að smella af henni einni mynd með bulldogtíkina Regínu, sem boðnar hafa verið í 400 þúsund krónur, en ræktendur tlmdu ekki að selja. búnaður með þeim hætti að dag- blöð vom á gólfi, greinilega ekki ai- veg nýlögð en yfirleitt þurr og hrein. Vatn var hjá hundunum í öllum til- vikum, svo og upphækkað legustæði með lausu, mjúku áklæði. Stíumar sjálfar vom yfirleitt þurrar, þótt sums staðar mætti sjá litía polla eftir íbúana. Hundaskítur sást í einni stíu, ÚrTGERÐIN: Séð yfir útigerðin, þar sem voru að viðra sig smáhundar af ýmsum kynjum. en gólfflöturinn var annars þurr. í gotherberginu vom tíkur með hvolpa og aðrar sem vom komnar að goti. Þar var einnig þurrt og hreint undir hundunum og ágætt loft. Sér- staklega var gáð að óhreinindum f feldi hundanna og slíkt var að sjá í tveimur tilvikum, öðmm ekki. Á tveimur göngum í fyrmrn gamla íjósi húsnæðisins hafa nú verið sett- ar upp allmargar nýjar stíur, sem verið er að taka í notkun. Eftir er að setja upp stíur á þriðja ganginn. Þá verða þessar nýju stíur samtais 25 talsins. Þær em ætíaðar fyrir tíkur komnar að goti, tíkur með hvolpa og stærri hundana, þ.e. boxer og bull- dog. Auðsjáanlega hefúr verið vand- að til frágangs við gangana þrjá, inn- réttingar og gott rými sem er framan við gangana. Fjórtán tegundir Að sögn hjónanna í Dalsmynni, Tómasar Þórðarsonar og Ástu Sig- urðardóttur em nú ræktaðar íjórtán tegundir á búinu, allt smáhundar nema buildog-hundamir og boxer- inn. Hundar þar nú em samtals 109. Tómas sagði að þeim myndi fyrirsjá- anlega fækka og umsvifin minnka heldur eftir að framkvæmdir við upp- byggingu búsins, lagnir, rotþrær, nýj- ar stíur og fleira væm að baki. Til að mynda yrði hætt með svokallaða fax- hunda, sem þyldu veðráttuna hér á landi greinilega illa. Þá lægi fyrir að láta svæfa um tuttugu hunda sem komnir væm á aldur. Ásta sagði að búið væri einungis rekið á innfluttum hundum, frá INNISTÍURNAR: Ráðamenn f Dalsmynni segjast ekki vilja hleypa gestum og gangandi inn í húsin, m.a. af því að mikiö ónæði myndi skapast af slíku rápi fyrir hundana. Þá sé mikið í húfi að þeir dýru ræktunarhundar sem þarna eru smitist ekki af einhverjum pestum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.