Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2003, Síða 18
18 DVSPORT FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003
í*
DV-'nyndÆgir
SIGURRtlFUR: Guðmundur
Ómarsson, bikarmeistari i
leirdúfuskotfimi arið 2003,
sigurreifur í iok móts eftir
harða baránu um titllinn við
Hakon Svavarsson.
Lokamót í leirdúfuskotfimi fór fram á Akranesi um helgina:
Bikarmeistaratitillinn norður yfir heiðar
Bikarmeistaramót í leirdúfu-
skotfimi var haldið á Akranesi
síðastliðna helgi. Guðmundur
Ómarsson varð bikarmeistari t
leirdúfuskotfimi árið 2003,
þegar hann náði öðru sæti á
mótinu, en öll bikarmót sum-
arsins gefa stig til bikarmeist-
ara.
Fyrir mótið á Akranesi áttu
fimm skotmenn möguleika á titl-
inum. Guðmundur Omarsson, frá
Skotfélagi Akureyrar, og Gunnar
Gunnarsson frá Skotfélagi Suður-
lands, voru efstir og jafnir fyrir
mótið með 44 stig en tveim stig-
um á eftir þeim voru Hákon Þ.
Hákon sigraði á
mótinu en það
reyndist ekki nóg.
Svavarsson frá Skotfélagi Akureyr-
ar, örn Valdimarsson frá Skotfé-
lagi Hafnarfjarðar og Pétur Gunn-
arsson frá Skotfélagi Suðurlands.
Hákon Þ. Svavarsson sigraði á
mótinu á Akranesi en það nægði
þó ekki til sigurs þar sem Guð-
mundur Ómarsson varð í öðru
sæti og sigraði því með einu stigi í
mótaröðinni.
A-lið Skotfélags Akureyrar skip-
að þeim Guðmundi Ómarssyni,
Hákoni Svavarssyni og Aðalsteini
Tryggvasyni sigraði með yfirburð-
um í liðakeppni. Skotfélag Suður-
lands varð í öðru sæti og Skotfélag
Akraness í því þriðja. akureyri@dv.is
Rally Reykjavík hefst í dag
Alls verða eknar 25 sérleiðir víðs vegar á Suðurlandi og Reykjanesi
UTSIKG
BÆJArdEKK
Á FULLRI FERÐ: Tuttuyasta
ræst inn á fyrstu sérleid ki, 1
laugardaginn. Alls veröa Iki
Bræðurnir Runar og S|aldur.T..-T.......f-----i>»i'' .,,j : : ;iu »|iii . n. (, „
Guðmundsson og Isak Guðjóq^son a rauða MCTrórtuffi trafavéfttjþeirh fi'araa sarhkeppi
sumar.
) op verður
lúrfþvi á
■■t'"
Veiðihornið
Veiðin komin í 500 laxa í Miðfjarðará
Enn þá lætur smálaxinn lítið
sem ekkert á sér bera fyrir
norðan en tveggja ára laxinn
og eldri er í ánum og veiði-
mönnum leiðist ekkert að
veiða hann. Hópur veiði-
manna, sem var í Gljúfurá í
Húnavatnssýslu fyrir skömmu,
veiddi fjóra væna laxa og var
sá stærsti 18 pund.
Veiðin í Hrútafjarðará hefur
verið allgóð en þar hafa veiðst um
100 laxar og er sá stærsti 19 pund,
hellingur hefur veiðst af vænni
bleikju, þær stærstu um 6 pundin.
„Við vorum að koma úr Mið-
fjarðará og hollið veiddi 37 laxa,
það var víða lax á svæðinu og við
vorum alls staðar í fiski, en þetta
var leginn lax,“ sagði Jóhann Þor-
björnsson en hann gerði sér lítið
íyrir um daginn og hnýtti flugur
allra flokkanna, Sjálfstæðisflokks-
ins, Framsóknarflokksins, Sam-
fylkingarinnar, Frjálslynda flokks-
ins og Vinstri grænna. Árni Magn-
Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra hef-
ur reynt Framsóknar-
fluguna en ekki hefur
frést hvort hann hefur
fengið eitthvað á
hana.
ússon félagsmálaráðherra hefur
reynt Framsóknarfluguna en ekki
hefur frést hvort hann hefur feng-
ið eitthvað á hana.
„Við fengum 14 laxa og það eru
komnir 500 laxar úr ánni og hún á
örugglega eftir að bæta töluverðu
við - það er flskur víða á svæð-
inu,“ sagði Jóhann enn fremur.
Veiðinni er lokið í Laugardalsá í
ísafjarðardjúpi og þar veiddust
342 laxar og úr neðra vatninu
veiddust 23 laxar. Ágæt veiði hefur
verið líka í Langadalsá og eitthvað
hafa veiðimenn verið að fá úr
Hvannadalsá, en tölur liggja ekki á
lausu þar.
Andakílsá í Borgarfirði hefur
gefið 170 laxa og hefur heldur bet-
ur bætt sig frá fýrra ári. Stærsti lax-
inn er 16 pund en stærri laxar hafa
sést í ánni en ekki tekið enn hjá
veiðimönnum.
G.Bender
MOKVEIÐI f MIÐFJARÐARÁ: Það hafa margir vænir fiskar skilað sér úr Miðfjarðaránni
í sumar og von er á fleiri.
www.agn.is
^ VEIÐISVÆÐIVIKUNNAR
Vikulega er kynnt og boðið nýtt veiöisvæöi meö miklum afslætti.
TILBOÐ VIKUNNAR
Verslanir og heildsalar bjóöa vikulega ný tilboö
á takmörkuöu magni af úrvalsvörum.