Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2003, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 31
Sport.is í samstarf við DV.is
Framkvæmdastjóri IBV á línunni í leik ÍBV og KR
NETIÐ: (þróttavefurinn
sport.is hefur hafið samstarf
við DV Sport á netinu.
Þetta ergerttilaðaukaenn
meira þjónustu við íþrótta-
áhugamenn og geta lesendur
blaðsins skoðað allt það
nýjasta úr heimi íþróttanna á
www.dvsport.is
Sport.is er einn öflugasti
íþróttavefur landsins sem sinn-
ir öllum íþróttagreinum af
myndarskap.
Það er því ánægjulegt fyrir
dv.is að geta boðið uppáenn
fleiri fréttir úr íþróttaheiminum
en nú er gert en á sport.is er
fylgst vel með gangi mála á
öllum helstu íþróttaviðburðum
hérlendis sem erlendis.
KNATTSPYRNA: Það vakti
nokkra athygli í leik (BV og KR í
Landsbankadeild kvenna í gær
að annar aðstoðardómarinn
var enginn annar en fram-
kvæmdstjóri fBV, Birgir Stef-
ánsson.
„Já, það er rétt að ég var á lín-
unni," sagði Birgir þegar DV
Sport spurði hann um málið í
gærkvöld.
„Þannig var nú mál með vexti
að það forfallaðist aðstoðar-
dómari og ég var beðinn að
fylla í skarðið. Það var bara
hringt í mig strax um morgun-
inn og ég spurður að því hvort
ég gæti hlaupið í skarðið og
mér fannst það minnsta mál.
Ég er sjálfur héraðsdómari og
því ekki óvanur þessu hlut-
verki," sagði Birgir sem sagði
að hann væri löglegur í hlut-
verkið þar sem hann væri ekki
skráður í (BV.
„Ég er skráður sem leikmaður
hjá KFS og spila með þeim en
er engu að síður framkvæmda-
stjóri ÍBV. Það er skemmtilegt
þegar svona kemur fyrir en ég
passa mig að sjálfsögðu á því
að halda hlutleysinu, það er
ekki annað hægt. Mér fannst
þetta annars heppnast ágæt-
lega en það var verra að það
var skítaveður og við urðum
að skipta um búninga í leikhléi
því við vorum alveg rennandi
blautir," sagði Birgir og hló.
Vert er að geta þess að Birgir
þótti standa sig með stakri
prýði í leiknum.
Glötuð tækifæri
Blikar fóru illa með færin og enduðu í 4. sæti deildarinnar
fi'INTl
EKKERT GEFIÐ EFTIR: Stjörnustúlkur vörðu mark sitt með kjafti og klóm gegn Blikum í
gær. Hér sést þjálfarinn, Auður Skúladóttir, hreinsa frá marki Stjörnunnar með látum en sú
sjón var ekki óalgeng í gær. DV-mynd E.ÓI.
Blikastúlkur voru niðurlútar er
þær gengu af velli í Garðabæ í
gær og það ekki að ástæðu-
lausu. Þær fengu fjölmörg færi
til þess að klára leikinn gegn
Stjörnunni en nýttu þau ekki og
endaði ieikurinn því með jafn-
tefli, 1-1. Fyrir vikið enduðu
Blikastúlkur í 4. sæti Lands-
bankadeildarinnar en Valsstúlk-
ur skutust upp fyrir þær með ör-
uggum sigri á Norðurbandalag-
inu. Þetta er slakasti árangur hjá
kvennaliði Breiðabliks síðan
1989.
Það var heldur hráslagalegt veðrið
í Garðabænum í gærkvöld. Rigning,
sterkur vindur og frekar kalt. Var því
engin furða að ekki var einn einasti
haus í grasstúku Garðbæinga er
flautað var til leiks en 14 hugrakkar
manneskjur hættu sér út í veðrið á
næstu mínútum og voru þær orðnar
36 er komið var fram í háJfleik.
Leikurinn fór vægast sagt rólega
af stað. Leikmönnum beggja liða
gekk afar illa að ráða við boltann og
aðstæður. Því var lftið um fallegt
spil. Reyndar kom fyrsta skotið á
markið ekki fyrr en eftir 20 mínútur.
Stjömustúlkur lágu aftarlega og
leyfðu Blikastúlkum að koma. Gekk
Kópavogsstúlkum illa að opna vöm
Garðbæinga enda var þeirra besti
spilari, Margrét Ólafsdóttir, í
strangri gæslu hjá Lilju Kjalarsdótt-
ur sem hélt henni algjörlega niðri í
fýrri hálfleik.
Þrisvar sinnum skall þó hurð
nærri hælum við mark Stjömunnar
en Garðbæingar björguðu á línu og
svo vom markstangirnar að þvælast
fyrir Blikum og var því markalaust er
leikmenn gengu til búningsher-
bergja til þess að fá sér eitthvað heitt
að drekka.
Sterkt te
Teið sem Blikastúlkur smrtuðu í
sig í leikhléinu hefur væntanlega
verið af dýrari gerðinni því þær vom
eins og naut í flagi um leið og blásið
var til leiks á ný. Þær settu þunga
pressu á Stjömuvömina og sóknir
þeirra þyngdust jafnt og þétt. Það
má segja að markið hafi legið í loft-
inu þegar Stjömustúlkum tókst að
hreinsa boltann langt fram völlinn.
Þar tók Harpa Þorsteinsdóttir við
honum og lék hún laglega fram hjá
varnarmönnum Blika og inn í teig-
inn þar sem Hjördís braut á henni.
Auður þjálfari skoraði úr vítinu en
Dúfa var ekki fjarri því að verja.
Markið hafði engin áhrif á Blika-
stúlkur sem hertu róðurinn og settu
enn frekari pressu á Stjömustúlkur.
Þær uppskám loksins mark stund-
arfjórðungi fyrir leikslok þegar Greta
Mjöll kláraði færi vel í teignum eftir
sendingu Bjamveigar. Þrátt fyrir
mikla stórskothríð þá tókst þeim
ekki að bæta við mörkum og einnig
vom þær heppnar að tapa leiknum
hreiníega ekki því Harpa Þorsteins-
dóttir komst tvisvar í ákjósanlegt
færi í lokin en náði ekki að binda
endahnútinn á góðar rispur en hún
stríddi Blikavörninni ótt og títt.
„Svona ersumarið bara
búið að vera. Við fáum
fullt affærum en nýtum
þau bara ekki."
Ósanngjarnt
„Ég hafði ekki hugsað mér að
enda tímabilið svona en þetta er
týpískt að það séu vandræði gegn
Stjömunni í lokaumferð. Við höfum
lent í því áður," sagði Ólafur Þór
Guðbjömsson, þjálfari Blika.
„Við vomm með boltann nánast
allan tímann á meðan þær komust
aðeins nokkmm sinnum yfir miðju.
Þetta er virkilega ósanngjarnt.
Svona er sumarið bara búið að vera
hjá okkur. Við fáum fullt af fæmm
en nýtum þau bara ekki. Okkur var
spáð þriðja til fjórða sæti en auðvit-
að langaði okkur ofar en við emm
að byggja upp framtíðarlið og höf-
um verið að gera það undanfarin
tvö ár. Ég held að það sé bjart fram
undan hjá liðinu," sagði Ólaftir Þór
sem var væntanlega að stýra Blika-
stúlkum í síðasta sinn í gær.
henry@dv.is
FH náði markmiðinu
Vann 2-1 sigur á Þraukurum sem iéku í heilan klukkutíma manni færrí
FH-stúlkur unnu dýrmætan sig-
ur á Þraukurum á Ásvöllum í
gær - sigur sem færði liðinu 6.
sætið í Landsbankadeild
kvenna sem er besti árangur FH
síðan liðið komst aftur í hóp
þeirra bestu 1999.
Það var Ijóst á stórsókn FH strax
frá upphafi leiks að FH-stúlkur ætl-
uðu sér sigur og ekkert annað. Þrjú
skot dundu á marki Þróttar/Hauka
á fyrstu þremur mínútunum og
fyrsta markið kom strax eftir sex
mfnútur. Þegar FH-stúlkur létu
ekkert af stórsókn sinni, bættu við
marki á 30. mínútu og vom á sama
tíma orðnar manni fleiri stefndi í
ekkert annað en stórtap hjá Þrauk-
umm.
Fyrirliði Þróttar/Hauka-liðsins,
Guðrún Inga Sívertsen, fékk að fíta
rauða spjaldið fyrir að mótmæla
seinna marki FH og kom rauða
spjaldið að því virtist upp úr þurm
en dómari leiksins taldi Guðrúnu
Ingu hafa gengið of langt í gagnrýni
sinni á störf hans.
En Þraukarar bera nafn með
rétm því síðasta klukkutímann
sýndu þær mikinn barátmanda,
héldu markinu hreinu og skomðu
síðan gott mark og unnu því kafl-
ann manni færri, 1-0. FH-liðið fékk
reyndar góð færi til að bæta við og
þrjú skot dundu meðal annars á
slagverkinu en Sif Atladóttur var
gjörsamalega fyrirmunað að skora
í leiknum. Sif fékk hvert dauðafær-
ið á fætur öðm en tókst ekki að
skora frekar en öðmm sóknar-
mönnum liðsins.
Fyrir bragðið var lið Þrótt-
ar/Hauka enn f leiknum og dauða-
færi Önnu Bjargar Björnsdóttur á
lokamínútum hefði getað tryggt
Þraukumm jafntefli en Sigrún Ólöf
Ingólfsdóttir varði glæsilega og
tryggði FH stigin þrjú.
Sigurður Víðisson, þjálfari FH,
var mjög sáttur við uppskem sum-
arsins. „Þetta var frábært hjá stelp-
unum því það er mjög gott hjá okk-
ur að ná sjötta sætinu," sagði Sig-
urður en FH var spáð áttunda og
neðsta sæti fyrir mótið.
„Þetta er besti árangur FH í 14 ár
og stelpurnar em búnar að bæta
sig miídð frá því í fyrra. Ég er
ánægðastur með að mínar stelpur
héldu haus og klámðu þetta mót.
Við unnum botnliðin tvö í báðum
leikjum og það skipti öllu máli þeg-
ar upp var staðið," sagði Sigurður
sem er með lausan samning og því
er óráðið með framtíð hans og FH-
liðsins.
ooj.sport@dv.is
Stjarnan-Breiðablik 1-1
1-0 Aufiur Skúladóttir ...............63.
vítaspyrna.....brotiö á Hörpu Þorsteinsd.
1-1 Greta M. Samúelsd...............76.
skot úrteig............Bjarnveig Birgisd.
@@ Harpa Þorsteinsdóttir, Anna Sif
Hjaltested (Stjörnunni) - Silja Þórðardóttir
(Breiðabliki).
@ Auður Skúladóttir, Björk Gunnarsdóttir,
Lilja Kjalarsdóttir (Stjörnunni) - Linda
Persson, Kolbrún Steinþórsdóttir, Eyrún
Oddsdóttir, Greta Mjöll Samúelsdóttir
(Breiðabliki).
Skot (á mark):
9 (5)-17 (8)
Horn:
1 -16
Aukaspyrnur:
6-3
Rangstöðun
3-1
Varin skot:
Anna 6 -
Dúfa 2.
Besta frammistaðan á vellinum:
Harpa Þorsteinsd., Stjörn.
K 0 N U R
LANDSBANKADEILD
Staðan:
KR 14 11 3 0 61-15 36
(BV 14 10 2 2 62-14 32
Valur 14 9 2 3 47-20 29
Breiðablik 14 9 1 4 42-29 28
Stjarnan 14 3 3 8 20-32 12
FH 14 4 0 10 13-51 12
Þór/KA/KS14 3 0 11 10-42 9
Þró/Hauk 14 1 1 12 10-62 4
Markahæstar:
Hrefna Jóhannesdóttir, KR 21
Olga Færseth, (BV 19
Margrét Lára Viðarsdóttir, (BV 18
Ásthildur Helgadóttir, KR 16
Elfn Anna Steinarsd., Breiðabliki 12
Kristin Ýr Bjarnadóttir, Val 11
ÓKna G. Viðarsdóttir, Breiðabliki 8
Laufey Ólafsdóttir, Val 8
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 8
Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki 8
Dóra Maria Lárusdóttir, Val 7
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 7
Erna Björk Sigurðard., Breiðabliki 6
Mhairi Gilmour, (BV 6
Dóra Stefánsdóttir, Val 5
Karen Burke, (BV 5
Nlna Ósk Kristinsdóttir, Val 5
Þórunn Helga Jónsdóttir, KR 5
Þróttur/Haukar-FH 1-2
0-1 Gígja Heiðarsdóttir..............7.
skot utan teigs ......Elin Svavarsdóttir
0-2 Kristin Sigurðardóttir..........30.
skotúr markteig .... SigríðurGuðmundsd.
1 -2 Tinna Rúnarsdóttir ............65.
skotutanteigs ....IrisBjörkEysteinsdóttir
@@ SigriðurGuðmundsdóttir(FH).
@ Fjóla Dröfn Friðriksdóttir, (ris Björk Ey-
steinsdóttir, Jóna Sigríður Jónsdóttir.Tinna
Rúnarsdóttir (Þrótti/Haukum) - Elin Svav-
arsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Gígja Heið-
arsdóttir, Guðrún Sveinsdóttir, Sif Atladótt-
ir, Rakel Ósk Halldórsdóttir (FH).
Skot (á mark):
6 (4)-28 (16)
Horn:
3-7
Aukaspyrnur:
10-13
Rangstöður:
0-4
Varin skot:
Nanna Rut 11 -
Sigrún Ölöf 3.
Besta frammistaðan á vellinum:
Sigríður Guðmundsd., FH