Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003
Smíði álvers
ÁLVER: Fulltrúar Fjarðaáls og
verktakafyrirtækisins Bechtel
undirrita í dag samning um
byggingu álvers fyrir Alcoa á
Reyðarfirði. Athöfnin fer fram í
samkomuhúsinu Félagslundi á
Reyðarfirði kl. 15.00.
Slæmt ástand göngustíga
TILLAGA: Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins fluttu tillögu
um viðhald gangstétta og
göngustíga í borginni á fundi
borgarstjórnar í gær.
Tillagan gerir ráð fyrir að borg-
arstjórn Reykjavíkursamþykki
að gert verði sérstakt átak
varðandi endurnýjun og við-
hald gangstétta og göngustíga
í eldri hverfum borgarinnar.
Ljóst sé að ástand gönguleiða-
kerfisins er víða óviðunandi í
eldri borgarhlutum og getur
skapað slysahættu fyrir gang-
andi og hjólandi vegfarendur.
Brýnt er að gera skipulegt átak
í þessum efnum þannig að
ástand gönguleiða verði viðun-
andi og standist öryggiskröfur
hvarvetna í borginni.
Innbrot
INNBROT: Brotist var inn í fyrir-
tæki við Skipholt í nótt og ein-
hverju smálegu stolið. Er þetta
önnur nóttin í röð þar sem inn-
brot er framið í Skipholti og
því sjálfsagt fyrir eigendur fyr-
irtækja og íbúðarhúsa þar að
hafa varann á gagnvart inn-
brotsþjófum.
Þórir Tryggvason fékk heimsreisu
fyrir tvo í netleik DHL:
Ertu ekki á
lausu, Þórir?
Þóri Tryggvasyni, starfsmanni
hjá OgVodafone í Síðumúla, brá
heldur betur í brún þegar hann
var að sjá um morgunkaffið á
starfsmannafundi um níuleytið í
gær. Starfsmenn DHL voru mætt-
ir og tilkynntu að hann hefði
unnið heimsreisu fyrir tvo á
fyrsta farrými að verðmæti 6
milljónir króna.
Þór tók þátt í leik á vegum DHL á
netinu þar sem raða átt saman
myndum og upplýsingum um þjón-
ustu fyrirtækisins. Um ein milljón
manns tók þátt í leiknum. Á dögun-
um voru nöfn 25 heppinna þátttak-
enda dregin út og var heimsreisa íyr-
ir tvo í boði fyrir hvern þeirra. Þórir
var meðal hinna 25 heppnu. Verð-
mæti vinningsins er um 6 milljónir
króna. Ferðin verður farin á fyrsta
farrými með einhverjum af 15 flugfé-
lögum Star Alliance.
Samstarfsmenn Þóris brugðu á
leik með starfsmönnum DHL, fengu
Þóri til að sjá um morgunkaffið á
starfsmannafundi í morgun til að
tryggja að hann væri á staðnum þeg-
ar verðlaunin yrðu afhent. Uppá-
koman kom Þóri algjörlega í opna
skjöldu og að sögn viðstaddra skalf
hann og vissi ekki alveg hvernig
hann átti að takast á við þessa uppá-
komu. Um leið og DHL-menn
kvöddu hópuðust starfsmenn að
honum og víst að einhver af kven-
kyns samstarfsmönnum hefur haft
áhuga á að „húkka far“. Heyrðist óm-
þýð kvenmannsrödd kalla þegar
hann fékk verðlaunin: „Ertu ekki á
lausu, Þórir?" hlh@dv.is
UÓNHEPPINN: ÞórirTryggvason, t.h., tekur við verðlaununum góðu, heimsreisu fyrir tvo á fyrsta farrými, úr hendi Þóris Kolbeinssonar,
framkvæmdastjóra DHL á islandi. DV-mynd GVA
í morgun
HEPPINN: Vill einhver með? Þórir hampar heimsreisu fyrirtvo á fyrsta farrými.
Baugur gerir sátt við eiganda Nordica Inc. á Flórída:
Jón Gerald heldur
bátnum Thee Viking
(MPWBaP
verður haldið laugardaginn
6. september kl. 13.30
í húsnæði Vöku hf. að Eldshöfða 6.
Svæðið opnar kl. 10.30.
Þar verða meðal annars eftirfarandi
bílar og tæki boðin upp:
Ford Focus '01
Hyundai Trajet '01
MMC L200 '00
Opel Astra '00
VW Golf '00
Peugeot 306 '99
VW Polo '99
VW Transporter Double
Cab '99
Hyundai Grace H 100 '98
Renault Mégane '98
MMC Lancer '97
Jón Gerald Sullenberger og for-
svarsmenn Baugs hafa samið um
að falla frá öllum einkamálum sín
á milli. Samningurinn hefur þó
ekki áhrif á þá lögreglurannsókn
sem nú stendur yfir vegna kæru
Jóns Geralds á hendur Baugi.
Eins og greint var frá í DV 21. ágúst
höfðu samningaumleitanir staðið
yfir um skeið vegna málaferla á milii
aðilanna, m.a. um skemmtibátinn
Thee Viking. Samningar höfðu þá
náðst nokkrum dögum áður, en í
þeim er m.a. samkomulag um að að-
ilar skýri ekki frá innihaldi þeirra op-
inberlega. Jón Steinar Gunnlaugsson
staðfesti við DV að samkomulag
hefði náðst milli aðila. Samkvæmt
því væru öll einkamál fyrirtækis Jóns
Geralds á Flórída, Nordica, gegn
Baugi hér heima felld niður, sem og
mál Baugs gegn Nordica í Bandaríkj-
unum.
Samkvæmt heimildum DV hafa
viðsemjendur síðan unnið að því að
afturkalla öll mál sem samninginn
varða. Þar á meðal fellur Gaumur,
sem er að stærstum hluta í eigu
Baugsfeðga, Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar og Jó-
hannesar Jóns-
sonar, tfá kröfu í
skemmtibátinn
Thee VUdng sem
mjög hefur
komið við sögu í
þessum deUum.
Höfðu þeir gert
kröfu um að Jón
Gerald SuUen-
berger endur-
greiddi 560.000
doUara sem þeir
sögðust hafa
lánað honum til
kaupa á bátn-
um. Er nú fallið
frá þessari kröfú
og mun Jón Ger-
ald því halda
bátnum óskertum, en hann var m.a.
kyrrsettur að kröfu Gaums sl. vetur
en dómari ógUú siðar þá kyrrsetn-
ingu. Var báturinn metinn á um
1.000.000 dollara, eða um 80 milljón-
ir króna, en talið að raunverulegt
söluverðmæú hans sé þó talsvert
minna. hkr@dv.is
Jón Ásgeir.
Jón Gerald.
UMDEILDUR: Skemmtibáturinn Thee Viking sem margsinnis hefur borið á góma í deilum
Baugsmanna og Jóns Geralds Sullenbergers.