Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 FRÉTTiR 17
Berlusconi í hryðjuverk
FRELSISÁST: Silvio
Berlusconi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, segist
meta frelsið svo mikils
að hann myndi gerast
hryðjuverkamaður ef
hann byggi í ólýðræð-
islegu ríki. Þetta kemur
fram í viðtali við
Berlusconi í breska
tímaritinu Spectator.
Berlusconi, sem sætir
ákæru fyrir spillingu,
sendir ítölskum rann-
sóknardómurum
einnig tóninn í viðtal-
inu. Hann segir dómar-
ana standa neðar í þró-
unarstiganum en aðra
menn og að auki gangi
þeir ekki andlega heilir
til skógar.
BNA stendur enn
ógn af al-Qaeda
Bandaríkjunum stendur enn
ógn af al-Qaeda og útsendara
hryðjuverksamtaka Osama bin
Ladens er að finna í landinu.
Þetta er mat embættismanna
bandarísku alríkislögreglunnar FBI
og ráðuneytis innanríkisöryggis-
mála, tveimur árum eftir hryðju-
verkaárásirnar á New York og Was-
hington.
Larry Mefford, aðstoðarforstjóri
þeirrar deildar FBI sem berst gegn
hryðjuverkum, sagði að meiri
hætta stafaði af al-Qaeda en af
hryðjuverkamönnum sem starfa
einir síns liðs.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti ætlar að minnast tveggja ára af-
mælis hryðjuverkaárásanna 11.
september. Það verður þó gert á
látlausari hátt en í fyrra, á eins árs
afmæli árásanna.
NEW YORK: Svona er nú umhorfs þar sem
turnar World Trade Center stóðu á Man-
hattan fyrir hryðjuverkaárásirnar 11. sept-
ember 2001. Uppbygging á svæðinu er
þegar hafin. Bush forseti ætlar að minnast
atburðanna í næstu viku.
Móöir 10 ára dóttur: “Krakkarnir ískólanum
voru farnir að stríða dóttur minni vegna
þess að það var reykingalykt afhenni”.
Nokkrir lesendur, sem hefur gengið vel að halda út reykleysið, hafa sent
okkur rafpóst og greint frá helstu ástæðum fyrir því að þau voru svo ákveðin
að hætta. Við birtum glefsur úr þessum bréfum:
Til hamingju með ákvörðunina og árangurinn!
“Ég var orðin hræddur við sjúkdómseinkenni, kominn með morgunhósta með
Guðbjörg Pétursdóttir, slímuppgangi".
hjúkrunarfræðingur.
Ung kona sem er nýbyrjuð í hjálparsveit: “Ég vil hafa eðlilegan púls í álagi, ég
hefreyktí 10 árog nú ernóg komiðl”.
Einstaklingur um 50: “Ég heffengið berkjubólgu ofoft".
Ung hjón sem giftu sig í sumar: “Við viljum vera fyrirmynd fyrirbörnin sem við ætlum að eignast!"
“Ég vilbæta heilsufarið og vera fyrirmynd fyrir drenginn minn".
"Ég vinn á reyklausum vinnustað og það má ekki reykja á lóðinni. Ég nenni
ekki að híma úti á annara manna lóðum og reykja/"
“Það er of dýrkeypt fyrir heilsuna! Pabbi dó úr reykingum 65 ára og ég finn að heilsa mín er ekki
sem best".
“Þetta er ofdýrt fyrir mig, en það kostar mig um 190 þúsund á ári að reykja".
“Ég vil stjórna mér sjálf, mér finnst það alger skömm að láta sigarettuna stjórna mér”.
“Ég er orðin 30 ára og nú er komið nóg!”
Til hamingju með ákvörðunina og árangurinn!
Haldið áfram að senda mér línur um það sem þið eruð að gera!
Gangi ykkur sem best! Kveðja, Guðbjörg.
Nicotinell
lengur en 1 ár. Nikótin getur valdió aukaverkunum, s.s. svima, höfuöverk, ógleöi, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með
slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf nema í samráði viö lækni. Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað börnum yngri
en 15 ára nema í samráði við lækni. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.