Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Page 19
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 MENNING 19
Skuggaleikir í Aþenu
Umdeildur heimspekingur
BÓKMENNTIR: Bókautgefend-
ur keppast nú við að gefa út
bækur höfunda sem væntan-
legir eru á Bókmenntahátíð í
Reykjavík í næstu viku. JPV út-
gáfa sendir frá sér glæpasög-
una Skuggaleiki eftir Kúbverj-
ann José Carlos Somoza sem
hlaut hin virtu alþjóðlegu
glæpasagnaverðlaun Gullna
rýtinginn árið 2002.
Sagan gerist í Aþenu til forna.
Þarfinnst ungur maður látinn
og illa útleikinn eins og eftir
úlfa. En lærifaðir hans hefur
grun um að annað og meira
búi undir þessum skelfilega at-
burði og leitartil ráðgátu-
meistarans Heraklesar Pontórs.
Ekki skánarástandið þegar
fleiri nemendur Platóns falla í
valinn ... Somoza les upp á
Bók-
mennta-
hátíð á
miðviku-
dags-
kvöldið
kemur og
tekur þátt
í umræð-
um um glæp og refsingu á
fimmtudaginn.
FYRIRLE5TUR: Á morgun kl.
14 heldur Peter Singer, kennari
við Princeton-háskóla og einn
umdeildasti siðfræðingur sam-
tímans, fyrirlestur í Hátíðasal
Háskóla (slands í boði Heim-
spekistofnunar.
(erindi sínu mun Singer tala
um heimspeki náttúruverndar
út frá gildi náttúrunnar fyrir
manninn.
Singer er kunnur fyrir baráttu
sína fyrir umhverfis- og dýra-
vernd bæði í heimalandi sínu
Ástralíu og víðs vegar um
heiminn. Hann er einn fárra
akademískra fræðimanna sem
hefur tekist að brúa bilið milli
strangfræðilegrar umræðu og
deilumála í samtímanum sem
setja mark sitt á allt hversdags-
líf manna.
Esperanto
TUNGUMÁL Esperanto er hlut-
laust tungumál sem ætlað er að
stuðla að mállegum samskiptum á
jafnréttisgrundvelli og hefurverið
að þróast í meira en hundrað ár
sem talmál, bókmenntamál og vís
indamál. 15. sept. hefst námskeið í
því hjá Endurmenntun HÍ og hæc t
er að skrá sig á http://www.endur-
menntun.hi.is/tungu-
mal-flokk.asp?ID=23h03
Leikfélag Akureyrar frumsýnir fjögur ný verk á afmælisvetri:
Atvinnuleikhús í 30 ár
AFMÆLISBÖRN: Starfsfólk og stjórn Leikfélags Akureyrar á nýju leikári. Þau láta ekki bilbug á sér finna þó að hús-
ið þeirra sé lokað.
Leikfélag Akureyrar fagnaði þrítugs-
afmæli sínu sem atvinnuleikhús og bauð
til kaffisamsætis á Græna hattinum að
kvöldi 1. september, en þann dag fyrir
30 árum voru fyrstu atvinnuleikararnir
ráðnir til starfa hjá félaginu.
Þar sem atvmnuleikhúsið var hugsað sem
nokkurs konar listamiðstöð fyrir Norðurland
fór vel á því að fyrsta verkefni LA á því sviði
var kynningarferð um nágrannabyggðir á
vegum Menntamálaráðs með List um landið,
samsetta dagskrá úr ljóðum Guðmundar
Böðvarssonar, Landhelgiskvikmynd Magn-
úsar Jónssonar og einþáttunginum Bónorð-
inu eftir Anton Tsjekhof. Sýnt var í október á
tíu stöðum á Norður- og Austurlandi, segir í
Sögu leiklistar á Akureyri 1860-1992 og urðu
leikhúsgestir 1045. Flokknum var hvarvetna
vel tekið.
Að austan og vestan
Fyrsta frumsýning vetrarins er leikritið Er-
ling eftir norska leikskáldið Axel Hallstenius,
unnið eftir samnefndu skáldverki Ingvars
Ambjornsens sem er nýkomið út á íslensku.
Þetta er samvinnuverkefni við Sögn ehf. í
Reykjavíkogverðurverkið frumsýnt 11. sept-
ember í Freyvangsleikhúsinu í Eyjaijarðar-
sveit og í Loftkastalanum í Reykjavlk tveimur
dögum seinna. Leikfélagið getur ekki notað
Samkomuhúsið framan af vetri vegna við-
gerða sem þar standa yfir en gert er ráð fyrir
að þeim ljúki 19. desember.
Undarlegi norski mömmudrengurinn Er-
ling hefur hreiðrað um sig við hjartarætur
lesenda og bíógesta undanfarin ár og verður
spennandi að sjá hvernig Benedikt Erlings-
syni leikstjóra og Hallgrími Helgasyni, sem
þýðir og staðfærir verkið, tekst að komahon-
um til skila. Aðalhlutverkið leikur Stefán
Jónsson en Jón Gnarr leikur þursinn sem Er-
ling deilir íbúð með.
Önnur sýning vetrarins er Ástarbréf eftir
A.R. Gurney. Verkið íjallar um samband
tveggja einstaklinga ævina á enda í gegnum
bréfaskriftir. Það var samið 1989 og sýnt í
ÞjóðleiJchúsinu 1993. Þá léku Gunnar Eyjólfs-
son og Herdís Þorvaldsdóttir hlutverkin tvö í
verkinu við miklar vinsældir. Nú feta Þráinn
Karlsson og Saga Jónsdóttir í fótspor þeirra.
Þriðja frumsýning leikfélagsins er Eldað
með Elvis sem hefur farið sigurför um heim-
inn. Það eftir Lee Hall sem m.a. hlaut ósk-
arsverðlaun fyrir kvikmyndahandrit sitt um
Billy Elliot.
íslenskt fyrir börn og fullorðna
Fjórða sýning vetrarins er barnasýningin
Búkolla eftir Hildigunni Þráinsdóttur en
verkið var frumsýnt síðastliðið vor og hlaut
góðar viðtökur barna og fullorðinna á þeim
örfáu sýningum sem húsið var laust til sýn-
inga.
Lokafrumsýning vetrarins er sfðan nýtt
BÚKOLLA: Vinsælasta íslenska þjóðsagan verður vin-
sælt barnaleikrit.
sérnorðlenskt samtfmaverk sem ber heitið
Draumalandið og er samið af Ingibjörgu
Hjartardóttur rithöfundi í Svarfaðardal.
Sögusviðið er afdalur norður í landi þar sem
þjóðfræg baráttumanneskja, „ekkjan við
Sögusviðið er afdalur norður í
landi þar sem þjóðfræg bar-
áttumanneskja, „ekkjan við
ána", berst fyrir lífi sauðkind-
arinnar...
ána“, berst fyrir lífi sauðkindarinnar og gam-
alla úreltra drauma á kostnað eigin heilsu.
Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann leikhús-
stjóri.
Ýmis önnur verkefni verða á vegum Leik-
félagsins í vetur. í september fer af stað
leiksmiðja barna í samvinnu við önnu Ric-
hardsdóttur og Örnu Valsdóttur. Einnig hefur
verið komið á fót nýju rannsóknar- og þróun-
arsviði innan leikhússins sem er ætlað að
vinna að nýsköpunarverkefnum undir hand-
leiðslu Halldórs Þórssonar, leiklistarstjóra ís-
lensku óperunnar.
Fastráðnir leikarar f vetur verða fjórir,
Hildigunnur Þráinsdóttir, Saga Jónsdóttir,
Skúli Gautason og Þráinn Karlsson.
akureyri@dv.is
-r
Bókmenntahátíðin hefst á sunnudaginn:
Upplesturog opin viðtöl
Nú hefst Bókmenntahátíð í
Reykjavík á sunnudaginn og
stendur í heila viku. Opnun
hátíðarinnar verður í Nor-
ræna húsinu kl. 15 þar sem
nóbelsverðlaunahafinn José
Saramago og Thor Vilhjálms-
son ávarpa gesti.
Fyrsti upplesturinn hefst kl.
20 á sunnudagskvöldið í Iðnó.
Þar lesa úr verkum «fnum Hall-
grímur Helgason, franski
spennusagnahöfúndurinn
Emmanuel Carrere, sem skrif-
aði m.a. Óvininn, Gerður
Kristný, Svíinn Per Olov
Enquist, höfundur Lfflæknisins
og fleiri vinsælla bóka, og Yann
Martel frá Kanada. Skáldsaga
hans, Sagan af Pi, sem hlaut
Booker-verðlaunin f fyrra, er ný-
komin út á íslensku og þykir
óhemjufrumleg og skemmtileg.
í hádeginu á mánudaginn, kl.
12, ræðir Silja Aðalsteinsdóttir
við Haruki Murakami frá Japan
sem ítarlega var fjallað um hér f
DV á miðvikudaginn. I tilefni af
komu hans gefur Bjartur út aðra
bók hans á íslensku, Spútnik-
ástina, heillandi sögu um sam-
band ungs manns við þrjár kon-
ur.
Á þessum hádegisfundi ræðir
Hjálmar Sveinsson einnig við
Israelsmanninn David Gross-
man, einn fremsta rithöfund
þjóðar sinnar.
Kl. 15 á mánudaginn verða
pallborðsumræður um enskar
heimsbókmenntir undir stjórn
Frfðu Bjarkar Ingvarsdóttur
með Yann Martel, Nicholas
Shakespeare ffá Englandi, höf-
undi The Dancer Upstairs sem
er nýkomin út á íslensku hjá
Máli og menningu, Bill Holm frá
Bandaríkjunum og Ástralanum
Murray Bail, höfundi skáldsög-
unnar Myrtusviður sem kom út
hér í fyrra.
Á mánudagskvöldið kl. 20 lesa
síðan upp í Iðnó Haruki
Murakami, Murray Bail, David
Grossman, Vigdís Grímsdóttir
og finnski vísindasagnahöfund-
urinn Johanna Sinisalo sem
hlaut Finlandiaverðlaunin árið
2000.
Rithöfundarnir lesa upp á
móðurmáli sínu en íslenskri
þýðingu verður varpað á tjald.
Hádegisspjall og pallborðsum-
ræður fara fram á ensku nema
annað sé tekið fram. Sjá nánar
um dagskrá og gesti á vefnum
www.bokmenntahatid.is.
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Haustönn 2003 sjá www.myndlistaskolinn.is
Barna- og unglinganámskeið og tjölbreytt
nám á námskeiðum fyrir alla aldurshópa:
Grundvallarnám í teikningu, málun, mótun, keramik
ásamt fjölbreyttum námskeiðum fyrir lengra komna.
Fornámsdeild: 40 eininga undirbúningsnám í dagskóla
fyrir nám á háskólastigi
MYNDUSTASKÓLINN
|í reykjavík|
Hringbraut 121 • 107 Reykjavík
Skrifstofan opin mán.- fim. 14 -18 og fös.14 -17 • Sími 551 1990