Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Síða 21
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 SKOÐUN 21 Barnfóstrurnar Ar: Það vantar viðvaranir á smjör- stykkin. Of mikil smjörneysla getur valdið hjartasjúkdómum og það þarf að vara fólk betur við þessu. Stórir límmiðar, þar sem sláandi staðhæfingum er skellt fram með stóru letri og hauskúpumyndir hafðar með til áréttingar, gætu gert gæfu- muninn og forðað mörgum mætum manni frá hjartaslagi og vömb. Svo vantar viðvaranir í bíla. Ógætilegur akstur veldur fjölda al- varlegra slysa og á það mætti minna með límmiðum um alla bíla; einum á bílstjórahurðinni, tveimur á stýr- inu og þremur í hanskahólfinu. Eiginlega er ótrúlegt hvað víða vantar viðvaranir, þrátt fyrir þrot- laust starf opinberra barnfóstra undanfarin ár. Það er til dæmis ekki enn farið að sauma ábendingar í nærföt þar sem mönnum er bent á að þau eru ekki nægur klæðnaður utandyra á köldum vetrardögum. Sem þó er næstum ómótmælanleg staðreynd sem óráðlegt er að ve- fengja í verki. Loforð landlæknis Er ég orðinn galinn? Ja, þeir sem hafa keypt sér vindlapakka nýlega vita hversu langsóttar svona hug- renningar eru eða hitt þó heldur. Þeir eru að minnsta kosti alltaf að stækka, límmiðarnir sem settir eru á pakkana með persónulegu loforði landlæknis um sjúkdóma og tor- tímingu öllum til handa sem fá sér reyk. Úr því menn eru byrjaðir á opinberum hræðsluauglýsingum á vinsælum neysluvörum, hvaða von er þá til þess að þeir láti staðar numið? Hvenær verður byrjað að vara sælkera við of mikilli fitu- neyslu? Varla dettur nokkrum í hug að þessir tóbakslímmiðar segi reyk- ingafólki nokkuð sem það ekki vissi áður? Frá barnæsku hefur áróðri tóbakshatara verið haldið að fólki, ládausum fróðleik um hættuna af tóbaki og sögum af illsku framleið- enda þess er ausið yfir menn sýknt og heilagt en samt reykir fjöldi fólks. En aldrei er þetta fólk látið í friði, hinir ryðjast meira að segja með áróður sinn á pakkana sem reykingafólk hefur keypt sér rán- dýrum dómum. Það er eins og reyklausa liðið geti ekki sætt sig við að í þessum mál- um gildir það sama og í öllum öðr- um: það eru ekki ailir eins. Fólk hefur ólíkar skoðanir, ólíkar lang- anir og ólíkt gildismat, og - þó reyklausa liðið muni auðvitað seint samþykkja það - þá ættum við að reyna að hafa það sem meginreglu að hvert og eitt okkar megi sjálft ráða sem mestu um eigið líf. Breidd hurða Það er ekki aðeins í reykingamál- um sem hið opinbera leggur mikið á sig til að hafa vit fyrir almennum borgurum. Það er þvert á móti þannig að barnfóstrutendens ríkis- ins vex með degi hverjum. Enginn má aka bifreið nema vera í belti. Þeir eru alltafað stækka, límmiðarnir sem settir eru á pakk- ana með persónulegu loforði landlæknis um sjúkdóma og tortím- ingu öllum til handa sem fá sér reyk. Þeir vilja ekki einu sinni leyfa okkur að hjóla nema vera með hjálm. Þeir geta auðvitað ekki heldur unnt okk- ur þess að taka f nefið, því þannig gætum við skemmt í okkur slím- húðina. Það er alltaf verið að lög- vernda fleiri og fleiri starfsgreinar, allt undir því yfirskini að það verði að koma í veg fyrir að fólk leiti til fúskara. Og alltaf er það kúnninn sem á endanum þarf að greiða kostnaðinn af síflóknara eftirliti sem ríkið heldur úti til að nappa fúskar- ana. Ríkið virðist líta á borg- arana sem börn og á sjálft sig sem barnfóstru. Fólk má ekki einu sinni ráða íbúðum sín- um nema upp að vissu marki. Ríkið hefur sett sérstaka reglugerð þar sem settar eru alls kyns reglur um stærð her- bergja, flatarmál glugga, breidd hurða og svo framveg- is og svo framvegis og fram- vegis. Það er meira að segja tekið fram í reglugerðinni að það sé bannað að ganga úr svefnherbergi inn á salernið nema það séu fleiri salerni í íbúðinni. Þá er það í lagi. Smoking kills REYKINGAR DREPA: Óhætt er að segja að það fari ekkert á milli mála hvaða skilaboðum stjómvöld vilja koma á framfæri með merkingum á vindlinga- pökkum, bæði hér heima og erlendis. Vont uppeldi Já, allur er varinn góður. En þó væntanlega sé sjaldnast ástæða til að efast um að þær vilji vel, barn- fóstrurnar í stofnunum, þingi og ráðuneytum, þá eru þessar reglur varhugaverðar. Auðvitað er ekld skynsamlegt að klæða sig illa í köldu veðri, taka f vörina eða aka beltis- laus, en þetta eru ákvarðanir sem hver og einn á að taka fyrir sig. Það er líka þannig að með sívaxandi barnfóstrureglum ríkisins þá venst fólk af því að taka ábyrgð á eigin málum. Fólk venst því að haft sé vit fyrir því, að það sem sé varhugavert sé einfaldlega bannað. Og á móti, að það sem sé ekki bannað sé þá vænt- anlega óhætt. Það er fyrir löngu kominn tími til að snúa af þeirri of- verndunarbraut sem ríki og sveitar- félög hafa verið á undanfarin ár. Það gengur ekki að allir starfsmenn hins opinbera séu orðnir að fóstrum. Nema fóstrurnar auðvitað. Þær eru orðnar leikskólakennarar. og fleira: iðu" enn sem komið er innar alveg frá 1999. Við misstum af lestinni á þeim árum og síðan var botninn dottinn úr markaðinum þegar til stóð að gera þetta. En ég vona að það verði hægt að selja fyr- irtækið annaðhvort innlendum eða erlendum aðilum og leysa úr læð- ingi það fjármagn sem almenning- ur á bundið í þessu fyrirtæki. Mér finnst alveg ein- boðið að hugsa sér Sundabraut sem einka- framkvæmd þar sem yrði innheimt veggjald. Ef okkur tækist að selja Lands- símann er um að ræða tugi millj- arða sem við myndum fá, ekki til þess að eyða í rekstur eða bruðla með heldur til þess að greiða niður skuldir og búa í haginn. Það væri auðvitað ánægjulegt ef það tækist en um það höfum við ekkert hand- fast og það er ekkert um það í fjár- lagafrumvarpinu." - Þú segist „vona“ að þetti takist. En ertu „vongóður" um að það tak- ist? „[Hlær.j Það er svolítill munur á því. Já, ég ætla að leyfa mér að vera vongóður um það." Merkileg breyting Margir bíða þess spenntir hvort og þá hve miklar skattalækkanir koma til framkvæmda strax á næsta ári. I stjórnarsáttmálanum er heitið lækkun á tekjuskatti einstaklinga, eignasköttum og erfðafjárskatti og rætt um breytingar á virðisauka- skatti „með það í huga að bæta kjör almennings". Geir segist ekki vilja ræða mikið um einstök atriði sem tengjast fjár- lagafrumvarpinu en stefnt sé að því að taka fyrstu skrefin í skattamál- um í samstarfi við aðila vinnu- markaðarins f tengslum við kjara- samninga í vetur. Málin séu því í ákveðinni biðstöðu. - En sýnist þér að hægt verði að hafa veridagið þannig, eins og talað var um fyrir kosningar, að lögfesta lækkanirnar eins ogþær leggja sig í vetur þótt þær komi til fram- kvæmda í áföngum? „Það var okkar hugmynd, sjálf- stæðismanna, að reyna að gera það jafnvel núna í haust. Um það hefur ekkert verið samið en það er hins vegar ágæt aðferð finnst mér - hvort sem það er gert í haust, seinna í vetur eða annað haust - vegna þess að þá vita allir hvar þeir standa. Þá vita þeir sem bera ábyrgð á ríkissjóði hvaða tekju- stofna þeir hafa fram f tímann og það er held ég nauðsynlegt." Þá verður merkileg breyting á verklagi við fjárlagafrumvarpið að þessu sinni. Samliliða því verður nefnilega lögð fram langtímaáætl- un um ríkisfjármál sem verður efn- ismeiri en hingað til. Þar verða í fyrsta sinn lagðar til grundvallar pólitískar forsendur sem fjallað hefur verið um í ríkisstjórn, þ.e. markmið um afgang á ríkissjóði næstu árin, umfang framkvæmda og fleira. Þó að [niðurstaða hreppsnefndar um Norðlingaöldu] setji strik í reikninginn geri ég mér vonir um að Landsvirkjun og önnur orkufyrirtæki getið unnið úr því máli. „Inn í það koma þá líka þessar skattalækkanahugmyndir, að minnsta kosti einhverjar fjárhæðir. Þetta er heilmikil breyting og setur mönnum visst aðhald; það verður hægt að bera saman hvað menn æduðu sér og hverju þeir ná fram." olafur&dv.is AÐHALD: Fjármálaráðherra segir að fjárlagafrumvarpið muni einkennast af aðhaldi, en það verði hins vegar ekkert kreppufrumvarp og engir hópar þurfi að kvíða því sem þar verður lagt til. DV-MYND GVA Sendiherra mælir Viðtal við Jón Baldvin Hanni- ' balsson, sendiherra I Finnlandi, í £JJ vikuritinu Birtu þótti dálítið merkilegt.Venjaeraðsendiherr- Q ar tjái sig lítið eða ekkert um pólitík, en Jón Baldvin lætur það “ö ekki aftra sér frá því að skjóta gjj föstum skotum á ríkisstjórn (s- lands. „Það er slæmt að við skul- um ekki vinna kerfisbundið, eins og Finnar gerðu til dæm- is, að rannsaka málið í botn," segir hann um Evrópumálin. „Þetta þýðir að Jón Baldvin þegaraðþví Hannibalsson. rekuraðvið getum ekki frestað því lengur að vera hluti af Evrópusambandinu verðum við óviðbúin því. Það er slæmt og það er óskynsamleg hegöun." Sendiherrann lætur sem sagt ut- anríkisráðherra og forsætisráð- herra - yfirmenn sína - heldur betur heyra það og sakar þá um að vanrækja gjörsamlega skyldur slnar. Hitt þykir líka merkilegt að Jón Baldvin skuli telja fullvíst að Island gangi fyrr eða síðar í Evr- ópusambandið. Og eins að hann skuli tala um mikilvægi þess að „slá skjaldborg utan um“ Ingi- björgu Sólrúnu og láta ekki „andstæðingnum" takast að eyðileggja hana. „Andstæðingar" sendiherrans eru þá væntanlega ... Davíð og Halldór? Bullurnar komnar Með vél lceland Express frá Kaupmannahöfn i gær kom all- stór hópur Þjóðverja sem hingað eru komnir til að styðja slna menn I landsleiknum á morgun. Þótti hegðun þeirra um borð síst til fyrirmyndar.Til að mynda heimtuðu þeir að fá að drekka eigið áfengi, sem ekki er leyfi- legt. Erfitt reyndist hins vegar að stemma stigu við hinni ólöglegu drykkju þar sem mennirnir höfðu flestir meðferðis sömu bjórteg- und og seld er í flugvélinni! I Leifsstöð héldu „agabrotin" áfram með sigarettureykingum út um víðan völl, sem flugvallar- starfsmenn máttu hafa sig alla við að stööva. íslendingar um borð hugguðu sig við að með sama áframhaldi myndu menn- irnir fyrirgera ferðafrelsi slnu áður en flautað verður til leiks...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.