Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 TILVEF.A 25
Sænskt menningarhaust
GARÐATORG: f dag hefst sérstakt
menningarátak, helgað sænskri iðn-
hönnun og sjónmenningu á Garða-
torgi í Garðabæ, að undirlagi sænska
sendiráðsins, Hönnunarsafns (slands,
Garðabæjar og innflytjenda sænskrar
iðnaðarvöru á landinu og lýkur því
ekki fyrr en um miðjan nóvember.
Þetta átak hófst með málstofu um
„hönnun án landamæra" í samkomu-
sal Vídalínskirkju kl. 9.30 í morgun.
Síðan verður svo sjónum beint að
þremur sýningum. Á morgun verður
sýningin Ágæti - Úrvalshönnun frá
Svíþjóð opnuð í og við sal Hönnunar-
safnsins. Þennan sama laugardag
verður opnuð sýning á sænskri iðnað-
arvöru á Garðatorgi þar sem eiga hlut
að máli allir helstu innflytjendur
sænskrar iðnaravöru á fslandi. Þá mun
Bókasafns Garðabæjar á Garðatorgi
efna til sýningar á bókum eftir sænska
höfunda í eigu safnsins, svo og bók-
um um sænska hönnun, meðan sýn-
ingarnar á torginu standa yfir.
AUKINN ÁHUGIÁ MENNTUN: Kolbrún Erla
Matthíasdóttir, markaðsstjóri hjá Endur-
menntun Háskóla fslands, segir að áhugi
fólks á að bæta menntun sína hafi aukist
mikið síðustu árin.
Örnámskeið ,
Kolbrún segir að í mörgum tilfell-
um taki stéttarfélög þátt í kostnaði
hjá fólki sem sækir námskeið og
hún hvetur fólk til að skoða þann
möguleika.
í tilefni af tuttugu ára afmælinu
bauð Endurmenntun HÍ upp á svo-
nefnd örnámskeið sem eru stutt
námskeið sem ætlað er að kynna
það sem er í boði og að sögn Kol-
brúnar skráðu sig um ellefu hund-
ruð manns. „Við ákváðum að bjóða
upp á brot af því besta eins og við
kölluðum námskeiðin. Hvert þeirra
tók um tvo tíma og það er búið að
vera fullt út úr dyrum á hverju
kvöldi." k/p@dv./s
LESIÐ f SKÓGINN: Frá skógargöngu í Hólaskógi í Skagafirði i sumar.
Haustgöngur hefjast:
Gengið í þremur
bæjarfélögum
Haustgöngur skógræktarfélaganna
eru syrpa haustgangna sem hefjast á
morgun á þremur stöðum kl. 10.
Göngurnar eru í fræðslusam-
starfi við Kaupþing Búnaðarbank-
ann og í samvinnu við Gárðyrkjufé-
lag Island. Meðal annars er hugað
að gömlum og merkum trjám og
þau stærstu mæld. Þetta eru eins
og hálfs til tveggja stunda léttar
göngur, ókeypis og öllum opnar.
Gengið verður allar helgar út ágúst-
mánuð á 2-3 stöðum á landinu. Að
þessu sinni verða göngur í Hafnar-
firði, Hveragerði og Borgarnesi.
Hafnarfjörður:
Lagt verður af stað frá Kaldárseli
og gengið með Undirhlíðunum og
endað í Skólalundi sem er einn
glæsiiegasti trjálundurinn í öllu
bæjarlandinu, gróðursettur upp úr
1930. Staldrað verður við um stund
áður en gengið verður til baka í
Kaldársel. Þar verður boðin létt
hressing. Til að komast að Kaldár-
seli er ekið af Reykjanesbraut, á
hringtorginu við kirkjugarðinn, inn
á Kaldárselsveg og hann ekinn á
enda. Göngustjóri verður Jónatan
Garðarson.
Hveragerði:
Lagt verður af stað frá hvernum
Grýlu, norðan við Hamar. Gengið
verður suður fyrir Hamarinn inn í
skógræktina upp Hamarsstíg yfir í
Ölfusdal þar sem Landgræðslu-
skógurinn verður skoðaður, ber
tínd og litið á athyglisverð um-
merki eftir sauðfé. Göngustjóri:
Böðvar Guðmundsson skógfræð-
ingur.
Borgarnes:
Safnast verður saman við Skalla-
grímsgarð í Borgarnesi og gengið á
slóðir fallegra og áhugaverðra trjáa
í gamla bænum. Boðið verður upp
á ketilkaffi. Göngustjórar: Ragnar
Olgeirsson og Örn Símonarson.
Kristinn H. Þorsteinsson, form.
Garðyrkjufélags fslands, verður
þeim til halds og trausts.
AUGLYSING
um úreldingu sauðfjársláturhúsa á árunum 2003 og 2004.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga auglýsir eftir umsóknum um úreldingu
sauðfjársláturhúsa á árunum 2003 og 2004 þar sem greiddar veröa bætur í
samræmi viö reglur nr. 651/2003 um úreldingu sauðfjársláturhúsa á árunum
2003 og 2004 en reglurnar eru birtar á heimasíöu landbúnaöarráöuneytisins,
veffang: www.landbunadarraduneyti.is.
Bætur fyrir úfeldingu er heimilt aö greiða eigendum sauðfjársláturhúsa sem
hlotiö hafa löggildingu landbúnaöarráöherra og hafa verið nýtt til
sauöfjárslátrunar árin 2000-2002.
í framangreindum reglum kemur fram hvaöa upplýsingar skuli koma fram í
umsóknum og hvaða gögn skulu fylgja.
Umsóknir skulu sendar framkvæmdanefnd búvörusamninga, Sölvhólsgötu 7,
150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 25. september 2003 ef úrelding tekur gildi
1. september 2003 en til 31. desember 2003 ef úrelding tekur gildi 1. janúar
2004 eða 1. desember 2004.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga, 3. september 2003.
Smáauglýsingar ^
550 5000 ?