Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Qupperneq 36
36 DVSPORT FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003
D V Sport
Keppni I hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sfml: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Benedikt maðurinn á bak við leikmanninn Jón Arnór
KÖRFUBOLTI: Benedikt Guð-
mundsson, þjálfari U16 og U18
landsliða Island, aðstoðarþjálf-
ari A-landsliðs karla og þjálfari
1. deildarliðs Fjölnis, er maður-
inn á þak við leikmanninn Jón
Arnór Stefánsson en hann
þjálfaði hann hjá KR upp alla
yngri flokkana og undir hans
stjórn varð Jón Arnór meðal
annars tvisvar sinnum valinn
Scania-kóngur á óopinberu
Norðurlandamóti félagsliða í
Svfþjóð.
„Af þeim sem hafa þjálfað mig
í gegnum árin verð ég að
nefna Benedikt Guðmundsson
sem þjálfaði mig upp alla yngri
flokkana," sagði Jón Arnór um
Benedikt. „Með metnaði sínum
og áhuga fyrir þjálfun þá gerði
hann ótúrlega hluti með okkur
strákana. Þessi hópur hefur
skilað sér upp og gæti myndað
kjarnann að landsliðinu ífram-
tíðinni. Benedikt tók mig líka í
einstaklingsæfingarog þær
æfingar hafa skilað mér miklu,"
sagði Jón Arnór um þátt Bene-
dikts í velgengni sinni. „Ég hef
verið mjög heppinn með þjálf-
ara því Ingi Þór Steinþórsson
tók síðan við mér þegar ég
kom upp í meistaraflokk."
Benedikt hefur áfram komið að
málum hjá Jóni Arnóri þrátt
fyrir að hann teljist ekki vera
þjálfari hans lengur og var sem
dæmi í miklu sambandi við
hann meðan á æfingaferð
hans í Dallas stóð í síðasta
mánuði.
Jón Arnór Stefánsson spilar í treyju númer tíu hjá
Dallas Mavericks næsta vetur fari allt að óskum
mér svolítið og ég
heyrði að þeir væru
ánægðir. Þetta var mikill
óvissutími, ég þurfti að spila og
sanna mig og á meðan voru menn
eins og Mark Cuban og Donnie
Nelson upp á svölunum að fylgjast
með. Þetta var stress en ég var rosa-
lega ánægður með það hvernig
þetta spilaðist hjá mér. Ég vissi
náttúrlega ekki alveg við hverju ég
átti að búast enda hafði ég aldrei
spilað á móti NBA-leikmönnum en
það gekk bara vonum framar,"
sagði Jón Arnór sem fékk síðan
fimm ára samning á borðið sem
hann undirritaði á þriðjdaginn. Jón
Arnór er síðan á leiðinni út þar sem
liggur fyrir honum að komast í 15
manna leikmannahóp Dallas í vet-
ur.
„Ég vissi náttúrlega
ekki alveg við hverju ég
átti að búast enda hafði
ég aldrei spilað á móti
NBA-leikmönnum."
„Ég fer út tólfta og það taka við
þrotlausar æflngar fram að æfinga-
búðunum," sagði Jón Arnór sem
þarf að berjast við „NBA-refi“ um
sæti í liðinu.
vitað af og fylgst með mér þegar ég
spilað heima 2001-2002. Það
fannst mér fyndið enda er eins og
þeir hafi augu alls staðar."
Hef alltaf horft upp til Óla
Jón Arnór Stefánsson viðurkenn-
ir að stóri bróðir sinn sé mikill
áhirfavaldur en Ólafur bróðir hans
hefur náð frábærum árangri sem
handboltamaður í erfiðustu deild í
heimi. „Ég hef alltaf horft upp til
Óla brósa og ég er þvílíkt ánægður
fyrir hans hönd hvað hann hefur
náð langt. Maður er stoltur af hon-
um og innst inni langar mann að
vera þarna í hans stöðu. Það má því
segja að hann hafi keyrt mann
áfram," segir Jón Arnór um Ólaf en
þeir lyftu saman í sumar og þar var
farið vel yfir það sem til þarf til að
standa sig í heimi þeirra bestu.
Þrátt fyrir að stefnan hjá Jóni
Amóri sé sett á NBA-deildina er
margt annað í boði fari Dallas-æv-
intýrið á versta veg. Takist Jóni Am-
óri ekki að vinna sér sæti í leik-
mannahópi Dallas í vetur er hann
með góðan samning við spænskt
úrvalsdeildarlið á borðinu.
„Ég hef það sem öryggisnet,"
segir Jón Amór um samningin en
ólfkt mörgum öðmm Evrópubúum
er Jón Arnór að koma mjög ungur
inn í deildina og í raun á undan
Græddi mikið á KR-árunum
Jón Arnór spilaði á síðasta ári
með Trier í þýsku úrvalsdeildinni
og stóð sig þar mjög vel þrátt fyrir
að hafa glfmt við meiðsli seinni
hluta tímabilsins. „Ég tel að ég hafi
farið út á hárréttum tíma og þar
fékk ég að spila og tækifæri til að
sýna mig. Ég græddi líka mikið á ár-
unum hjá KR. Þar fékk ég einnig
mikið að spila og fékk jafnframt að
gera mín mistök en var ekki kippt
strax út af," sagði Jón, en hann var í
liði ársins í íslensku úrvalsdeildinni
bæði 2001 og 2002 og var valinn
leikmaður ársins seinna tímabilið.
Jón Amór verður 21 árs seinna í
september og hann tekur undir að
draumurinn sé að rætast en er harð-
ur á því að toppnum sé þó ekki náð.
„Mig hefur dreymt um þetta síðan
ég var polli og ég er kominn nálægt
toppinum. Mér fannst þetta allt
samt ótrúlegt þegar menn fóm að
tala um að NBA-lið hefðu áhuga,"
sagði Jón Amór sem var ekki bara
undir smásjánni hjá Dallas þegar
Jón
Arn-
‘ór Stefáns-
son kom til lands-
ins í gær og með í för var samn-
ingur við eitt af þremur bestu
körfuboltaliðum heims og
Dallas-búningur númer tíu sem
mun bera nafn hans næstu
fimm árin. Á blaðamannafundi
í gær kom fram að einn af hverj-
um milljón körfuboltamönnum
kemst í NBA og nú er Jón Arnór,
sem enn á 17 daga í 21 árs ald-
urinn, að upplifa draum allra
körfuboltamanna. Jón Arnór
hitti íslenska fjölmiðlamenn í
gær og DV Sport mætti á stað-
inn og fékk að kynnast ævintýr-
inu á bak við að lsland á leik-
mann í NBA-deildinni á ný.
Það er ljóst að maður verður ekki
leikmaður í NBA-deildinni á einni
nóttu og það heyrðist vel á orðum
Benedikts Guðmundssonar, upp-
eldisþjálfara Jóns Arnórs, á blaða-
mannafundi í gær að hann og Jón
Amór hafa eytt flestum sumrum í að
betrumbæta og fínpússa hans leik
og að það liggur mikil vinna á bak
við hans hæfileika. Jón Arnór hefur
samt ekki farið troðnar slóðir á sín-
um ferli og hann varð sem dæmi ís-
landsmeistari árið 2000 án þess að
hafa leikið deildarleik - lék sína
fyrstu meistaraflokksleiki í úrslita-
keppninni. Á þessu sést vel að Jón
r Arnór er ekki vanur að taka lítil skref
f átt að markmiðum sínum en öll
eru þau úthugsuð og tekin af sönn-
um fþróttamanni sem getur lagað
sig fljótt að breyttum aðstæðum.
DV Sport hitti Jón Amór að máli í
gær og undirritaður spurði fyrst út f
þetta afdrifadríka og ánægjuiega
sumar sem hafði komið honum inn
í deild þeirra bestu.
„Ég var stressaður í byrjun þar
sem ég var búinn að vera meiddur
og gat ekki sýnt mig í þessarri sum-
ardeild sem átti að vera tíminn þar
^ sem þeir áttu að skoða mig. Eftir að
ég byrjaði f endurhæfingunni í
Dallas fann ég þó strax mikinn mun
á hnénu á mér. Ég fékk síðan að æfa
undir þeirra stjórn í tvær til þrjár
vikur og þar gátu forráðamenn og
aðrir skoðað mig," segir Jón Amór
um sfðasta mánuðinn í Dallas en
hann gat hlerað það á meðan að
'l menn væm ánægðir með hann.
„Þeir sögðu mér ekki mikið en ég
með
þessari einkaþotu liðsins. Ég hef
heyrt svo mikið um hana að ég get
ekki beðið eftir að stíga upp í
hana," segir Jón Arnór og dásamar
jafnframt alla aðstöðu í Dallas.
Jón Arnór hefur þegar hitt nokkra
af helstu stjörnum Dallas-liðsins og
ber þeim vel söguna. „Þetta em ailt
góðir strákar og ég hef ekki séð
neina stjömustæla ennþá. Dallas-
liðið er þekkt fyrir það, þar er gott
andrúmsloft þar sem menn spila
fyrir hver annan. Ég geri mér grein
fýrir því að ég á enn eftir að læra
mikið á NBA-leikinn og ég lít á
þetta fyrsta ár sem mikið lærdóms-
ár fyrir mig og ég býst ekki við að
spila mikið. Ég ætla mér að læra af
þessum gaurum eins og Steve Nash
og Travis Best og reyna að bæta
mig eins mikið og ég get," segir Jón
Arnór sem segir að hann hefði valið
Dallas eða Sacramento ef hann
hefði fengið að ráða tii hvaða NBA-
liðs hann fengi að fara.
Á næstu mánuðum kemur í ljós
hvernig Jóni Arnóri tekst að feta sig
í heimi þeirra bestu. Jón Arnór er
ákveðinn f að standa sig en jafn-
framt raunsær. „Ég veit að þetta
getur klikkað en ég ætla að gera allt
til að svo fari ekki. Þetta verður
mjög spennandi og skemmtilegur
tími." ooj.sport@dv.is
mörgum háskólaleikmönnunum í
Bandaríkjunum. „Ég hef smá-for-
skot áþessa karla og ég ætla að nýta
mér það."
Jón Arnór er nú kominn heim í
stutta heimsókn og þar tekur fjöl-
skyldan vel á móti honum og hann
telur stuðning hennar vera ómet-
anlegan. „Ég á foreldrum mínum
allt að þakka. Þau hafa stutt mig í
gegnum ailt. Pabbi elskar íþróttir
og er duglegur við að horfa á leikina
hjá okkur og tala um þá við okkur
eftir á þar sem hann er harður og
segir það sem þarf að segja.
Mamma heldur manni síðan niðri
á jörðinni," segir Jón Arnór sem er
„Þetta eru allt góðir
strákar og ég hefekki
séð neina stjörnustæla
ennþá. Dallas erþekkt
fyrir gott andrúmsloft
þarsem menn spila
fyrir hver annan."
ekki spenntur fyrir löngum flug-
ferðum en hlakkar þó til þeirrar
fyrstu hjá Mavericks. „Það er alveg
hrikalega leiðinlegt að fljúga en það
verða kannski öðruvísi ferðalög