Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Síða 39
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 39
Bræðurnir leiða Rally Reykjavík
Dýr er hrákinn
KNATTSPYRNA: Senegalski
landsliðsmaðurinn El Hadji-Di-
ouf, sem leikur með Liverpool,
hefur verið sektaður um 5000
pund, eða rúmar 600 þúsund
krónur, fyrir að hrækja á stuðn-
ingsmann Celtic þegar Liver-
pool mætti Celtic í UEFA-bik-
arnum á síðustu leiktíð. Diouf
sagði að hann hefði brugðist
svona illa við þar sem klappað
var á hausinn á honum
skömmu áðuren hann hrækti.
„Ég vil enn og aftur biðjast af-
sökunar á því sem gerðist en
vil samt að fólk skilji hversu
mikið mér brá þegar það var
klappað á hausinn á mér,"
sagði Diouffulluriðrunaren
hann hyggst greiða sektina
þegjandi og hljóðalaust.
DÝRT MUNNVATN: Diouf greiðir
sektina með bros á vör.
RALLY: Bræðurnir Rúnar og
Baldur Jónssynir stóðu sig best
á fyrsta degi Rallys Reykjavíkur
en sex sérleiðir voru eknar í
gær. Þeir hafa 3:31 mínútu for-
skotá næstu lið.
Dagurinn í gær var mjög við-
burðaríkur. Strax á fyrstu sér-
leið, um 500 m frá upphafi sér-
leiðarinnar, gaf framhjólafest-
ing sig á bifreið þeirra feðga
Stefáns Gunnarssonar og
Jónasar Stefánssonar. Valt bíll-
inn við það, fór út af veginum
og lenti í ánni Bugðu sem
rennur með fram sérleiðinni.
Engum varð meint af en
keppnin heldur stutt hjá þeim
Stefáni og Jónasi og spurning
hvort þeir hafi ekki komist í
metabækurnar með þessari
frammistöðu sinni.
Á Djúpavatni og Kleifarvatni
gerðu rafmagnsbilanir vart við
sig í bifreið þeirra Sigurðar
Braga og Isaks. Það leiddi til
þess að (sak eyddi mestum
tíma í að þurrka innan af fram-
rúðunni móðu frekar en að
lesa upp leiðarnótur.
I dag verður síðan ekið um
Suðurland og spurning hvort
bræðurnir halda forystunni.
*
Þurfum á heppni að halda
ef við ætlum að sigra, segir landsliðsfyrirliðinn, Eiður Smári Guðjohnsen
„Það er virkilega fín stemning í
hópnum. Það vantar ekki þegar
stórleikur er fram undan. Það
hefur aldrei verið erfitt að ná
upp stemningu í hópnum,"
sagði landsiiðsfyrirliðinn Eiður
Smári Guðjohnsen í samtali við
DV Sport í kuldanum á Laugar-
dalsvelli í gær.
„Það er alltaf stemning í hópnum
og gildir þá einu hvort fram undan
er stórleikur gegn Þjóðverjum eða
leikur gegn einhverri annarri þjóð.
Adrenalfnið verður örugglega á
fullu hjá öllum fyrir þennan leik því
fyrir suma er þetta væntanlega
stærsti landsleikur sem þeir hafa
spilað á ferlinum. Ef við náum góð-
um úrslitum þá verður þetta eitt-
hvert skemmtilegasta verkefni sem
maður hefur tekið þátt í,“ sagði
Eiður sem segir að leikmenn séu al-
gjörlega á jörðinni fyrir leikinn.
„Ég held að allir leikmennirnir
séu frekar jarðbundnir. Við þurfum
líka að gera okkur grein fyrir því að
við erum að fara að spila við Þýska-
land. Lið sem lék til úrslita í heims-
meistarakeppninni fyrir rúmu ári.
Þannig að þetta er engin smáþjóð
sem við erum að fara að mæta. Allt
þetta bull og kjaftæði um að þeir
séu í niðursveiflu er út í hött því
þeir eru alltaf í úrslitum í nánast
hverri einustu stórkeppni," sagði
fyrirliðinn sem hefur trú á því að
allt sé hægt í fótbolta.
„Auðvitað getum við unnið því
að það er allt hægt í fótbolta. Ég
held að það sé samt ljóst að við
þurfum heppnina með okkur og
allir leikmenn verða að eiga sinn
besta dag til þess að dæmið gangi
upp.
Höfum allt að vinna
„Þetta eru skemmtilegustu leik-
irnir. Maður er að minnsta kosti
ekkert stressaður. Við erum að fara
að spila við eitt besta lið heims
þannig að við höfum engu að tapa
en allt að vinna,“ sagði leikreynd-
asti leikmaður íslenska Iiðsins,
Rúnar Kristinsson, en landsleikur-
inn á morgun verður númer 102 hjá
honum.
„Þessi leikur og leikirnir við
Frakkana á sínum tíma eru tví-
mælalaust stærstu leikirnir sem ég
hef tekið þátt í. í dag er staðan samt
önnur en þegar við lékum við
Frakkana þannig að þessi leikur er
öðruvísi að því leyti. Við gerum
okkur aftur á móti fullkomlega
grein fyrir því við hverja við erum
að fara að spila og því erum við ekki
að gera okkur miklar vonir um sig-
ur. Við ætlum engu að síður að
leggja okkur alla fram, gera okkar
besta til þess að ná hagstæðum úr-
slitum,“ sagði Rúnar og bætti við að
það væri mjög góður andi í íslenska
hópnum.
„Andinn í hópnum er frábær og
„Þessi leikur og leikirnir
við Frakkana á sínum
tíma eru tvímælalaust
stærstu leikirnir sem ég
hef tekið þátt í.“
hefur verið geysileg stemning. Það
hefur gengið vel undanfarið og því
verið jákvæðar straumar hjá okkur.
Varðandi leikinn þá erum við sáttir
við allt nema tap. Að sjálfsögðu vilj-
um við vinna en við myndum samt
alveg sætta okkur við jafntefli líka.
Við förum í alla leiki til að vinna en
við verðum að gera okkur grein fyr-
ir því við hverja við erum að fara að
spila. Við erum litla liðið og sam-
kvæmt allri tölfræði og speki um
knattspyrnu þá eiga þeir að vinna
leikinn en við ætlum að gera allt
sem í okkar valdi stendur til þess að
stöðva þá og ná fram hagstæðum
úrslitum og ganga stoltir af velli.
Það er markmið leiksins hjá okkur."
henry@dv.is
GRIMMUR f SKALLANUM: Hermann Hreiðarsson hefur hér betur í skallaeinvígi við Ólaf Örn Bjarnason á æfingunni á Laugardalsvelli í
gær. fvari Ingimarssyni er augljóslega skemmt yfir tilburðum þeirra Hermanns og Ólafs. DV-mynd ÞÖK
Er orðinn gríðarlega spenntur
segir Þórður Guðjónsson sem leikur í Þýskalandi
„Það er gríðarlega mikil
spenna hjá mér og sú spenna
er eiginlega búinn að vera í
mér síðan ég skrifaði undir hjá
Bochum í fyrra. Þannig að há-
punktur spennunar nálgast og
ég hlakka mikið til leiksins á
laugardag," sagði Þórður Guð-
jónsson en hann mun mæta
sömu strákum á morgun og
hann mætir hverja helgi í
þýska boltanum.
„Það er að sjálfsögðu öðruvísi
þegar maður er að keppa við land-
ið sem maður þénar launin sfn í
og við leikmenn sem maður þekk-
ir vel af eigin raun. Þannig að fyrir
mig er þetta gríðarlega spennandi
og skemmtilegt. Svo er líka frá-
bært að vera í þeirri stöðu sem við
erum í fyrir þennan leik en engan
hafði grunað það. Það að fá að
taka á móti Þjóðverjum og vera
fyrir ofan þá er náttúrlega alveg
frábært og gerir alla umgjörð
stærri en nokkru sinni fyrr. Ég er
bjartsýnn á að liðið eigi góðan dag
en hversu langt það kemur til með
að fleyta okkur verður að koma í
ljós. Eg hef fúlla trú á því að allir
leikmennirnir muni gefa allt sem
þeir eiga en hvort það dugir er
stóra spurningin."
Pressan á Þjóðverjum
„Maður er að sjálfsögðu
spenntur en maður verður að
reyna að halda spennunni niðri.
Það þarf að minnsta kosti ekki að
peppa neinn upp fyrir svona leik,“
sagði vamarjaxlinn Hermann
Hreiðarsson.
„Við stefndum á 9 stig í síðustu
leikjum og við fengum nokkurt
sjálfstraust við að ná því mark-
miði. Pressan er á Þjóðverjum og
við munum gefa okkur alla í verk-
efnið. Þjóðverjarnir em gríðarlega
sterkir og leikurinn verður mjög
erfiður. Það er frábær stemning f
hópnum og það hefur alltaf verið
síðan ég byrjaði með landsliðinu
en það er eins og í öllu öðm að
það er alltaf skemmtilegra þegar
vel gengur. Gengið upp á síðkastið
hefur gert allt miklu skemmtilegra
og kannski aðeins minni pressa
fyrir vikið og þar af leiðandi er
andrúmsloftið allt jákvæðara.
Þetta verður rosalega gaman. Við
emm búnir að koma okkur í þessa
skemmtilegu stöðu og nú er kom-
ið að því,“ sagði Hermann Hreið-
arsson sem stendur væntanlega í
ströngu á morgun. henry@dv.is
¥
-L