Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Qupperneq 40
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 Ævintýraferðir í Haukadalsskógi Ekið á Ijórhjólum um —bbmb skóglendi, fallegar bergvatnsár og "csks 5000 kr/mann 892 0566 og 892 48101 Rekstrarþjónusta Öruggur rekstur tölvukerfa o TOLVUMIÐLUN sími: 545 5000 -www.tm.is Ridsdale keypti Barnsley * / í * Segirstöðu Guðjóns örugga og að hann verði dæmdur af árangri Veðrið á morgun Sunnan 3-8 m/s en austlægari og bætir fítið eitt í vind suðvestanlands. Skúrir, einkum sunnan og vestan til, en úrkomulítið og bjart með köflum norðaustanlands. Hiti 10 til 15, hlýjast á norðausturhorni landsins. 66 i*- Veðriðídag Vib, .cCSt bb 4á Sólarlag f kvöld Rvík 20.31 Ak. 20.22 Sólarupprás á morgun Rvlk 06.23 Ak. 05.44 Síðdegisflóð Rvík 13.51 Ak. 17.24 Árdegisflóð Rvik 00.57 Ak. 05.30 Veðrið kl. 6 í morgun Akureyri skýjað 12 Reykjavík skúr 11 Bolungarvík rigning 13 Egilsstaðir skýjað 11 Stórhöfði skúr 10 Kaupmannah. þoka 13 Ósló skýjað 10 Stokkhólmur 10 Þórshöfn skúr 12 London þoka 14 Barcelona skýjað 21 New York þokumóða 22 Parfs skýjað 12 Winnipeg heiðsklrt 17 Fjárfestingarhópur undir stjórn Peters Ridsdales, fyrrum stjórnarformanns Leeds, náði í gær völdum í enska knatt- spyrnufélaginu Barnsley. Rids- dale og Patrick Cryne, millj- ónamæringur og harður stuðningsmaður Barnsley, hafa reynt að ná völdum í félaginu síðan í júní en samn- ingar tókust loks í gær og þurftu þeir að reiða fram rúm- ar 600 miiljónir króna til þess að eignast félagið og annað sem fylgir því. Þar með eru mennirnir sem réðu Guðjón Þórðarson til starfa horfnir á braut en Ridsdale sagði þó í gær að staða Guðjóns væri ör- ugg en hann yrði engu að síð- ur dæmdur af árangri sínum með liðið. „Ég hitti Ridsdale eftir blaða- mannafundinn í gær er hann kom út á æfmgasvæði til okkar. Við ræddum mín mál lauslega og ég mun starfa hér áfram sem fram- kvæmdastjóri. Það er vilji hjá Rids- dale til þess að hafa mig áfram í starfi. Hann sagðist ánægður með það sem ég væri að gera og að hann væri kominn til þess að styðja við bakið á mér,“ sagði Guðjón Þórðar- son í samtali við DV Sport í gær. Eftirsótt starf Það má ætla að staða Guðjóns hjá félaginu sé ótryggari eftir að Ridsdale tók við félaginu, en heim- ildir DV Sports herma að nokkrir atvinnulausir framkvæmdastjórar hafi sett sig í samband við Ridsdaie eftir að það fréttist að hann væri að taka við félaginu og lýst yfir áhuga sínum á að taka við starfmu. Samkvæmt okkar heimildum eru í þeim hópi Bryan Robson, fyrrum fyrirliði Manchester United og framkvæmdastjóri Middlesbrough, SiMI- 698-9696 og 564 6415 Bomwnn MÖSSUN - PIETTUN - LAKKVÖRN SKEMMUVESUR22 Auglýsingac/e/7c/ auglysingar@dv.is 550 5000 og Steve Cotterill en hann var einmitt ráðinn í stað Guðjóns er hann var rekinn frá Stoke. Guðjón var staddur á landinu síðastliðinn mánudag og þriðjudag og samkvæmt heimildum DV Sports var hann í leit að fjármagni til þess að kaupa Barnsley áður en það lenti í höndunum á Ridsdale. „Samkvæmt heimildum DV Sports hafa Bryan Robson og Steve Cotterill sett sig í samband við Ridsdale og lýst yfir áhuga sínum á að stýra liði Barnsley." „Ég var í persónulegum erinda- gjörðum á Islandi og.það kemur engum við hvaða erindagjörðir það voru,“ sagði Guðjón aðspurður hvort hann hefði verið á landinu í leit að fjármagni til þess að kaupa Barnsley. Heldur áfram ótrauður Guðjón segir að hann muni halda áfram ótrauður í sínu starfi án þess að velta sér of mikið upp úr því hvað sé að gerast bak við tjöld- „Ég hef nú upplifað rosalega mikið á mínum ferli. Ég hef verið rekinn eftir að hafa komið liði upp og ég hef verið í þeirri stöðu að yflr- taka hafi átt sér stað og maður lát- inn fara fyrir mig. Ég hef séð þetta allt og maður veit aldrei á hverju maður á von í þessum heimi. Mað- ur verður að halda áfram veginn og vinna eitthvað af fótboltaleikjum. Þá eru allir kátir. Það er hreint ótrú- legt hvað góð úrslit í fótboltaleikj- um gera menn káta," sagði Guðjón Þórðarson í samtali við DV Sport frá Barnsley í gær. henry@dv.is r Ljósabekkir - gufa Alltaf nýjar perur - rólegt umhverfi Tilboö: 10 tímar á 3.900 kr. Verið velkomin Grænatúnl 1 - Kópavogl - slmi 554 3799 NETT / / / / / / / / ! FRETTASKOTIÐ SfMINN SEM ALDREI SEFUR 550 55 55 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 7.000 kr. Fullrar nafnleyndar er gætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.