Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Síða 10
70 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER2003
Neytendur
Verðkannanir ■ Nýjungar ■ Tilboð
Netfang: hlh@dv.is
Sími: 550 5819
Ótti við GSM-bylgjur
HEILBRIGÐI: Samband farsíma-
fyrirtækja í Danmörku,TI, segir
að ótti Dana við bylgjurfar-
símakerfa hafi aldrei verið
meiri en nú. Fjöldi fyrirspurna
berst daglega til farsímafyrir-
tækjanna þar sem fólk vill full-
vissa sig um að sendistyrkur
GSM-endurvarpsstöðva nærri
heimili þess sé ekki yfir leyfi-
legum mörkum. Forsvarsmenn
farsímafyrirtækjanna segjast
skilja ótta fólks en fullyrða að
hann sé ástæðulaus og vísa til
fjölda rannsókna og einnig
vottorða frá bæði innanríkis-
og heilbrigðisráðuneyti Dan-
merkur. Þrátt fyrir þetta sýnir
nýleg könnun að 8 af hverjum
10 Dönum vilja ekki búa í ná-
grenni endurvarpsstöðva eða
senda fyrir GSM-kerfi.
AÐ LÁTA SIG DREYMA: Flesta langar í dýrasta og flottasta búnað sem völ er á. Er þá ekki alltaf spurt að því hvort þörf sé fýrir hann eða ekki. Reyndar þurfa piltar á þessum aldri líklega fullkomnari tölvur en framhalds- og háskólanem-
ar þvi að tölvuleikir reyna hvað mest á getu tölvanna, miklu meira en dæmigerð forrit sem skólafólk notar.
Á skólafólki dynja nú tilboð um
fartölvur og tölvukaupalán.
Sjálfsagt eru fáir færir um að
meta allan þann búnað sem
sagður er nánast ómissandi í
slíkum tækjum og sölumenn-
irnir vilja vitanlega helst selja
það dýrasta. DV leitaði því til
sérfræðings.
„Það er ekki spurning að al-
mennt kaupir skólafólk dýrari far-
tölvur en það hefur þörf fyrir," seg-
ir Gunnar Smith, sérfræðingur hjá
Margmiðlun hf„ og bætir við: „Það
er með þetta eins og allt annað sem
íslendingar kaupa, GSM-síma eða
hvaðeina; allt þarf að vera flottast
og dýrast."
Lið fyrir lið
Til að freista þess að leiðbeina
fólki sem stefnir á að kaupa far-
tölvu valdi DV þá leið að fara með
Gunnari lið fyrir lið í gegnum aug-
lýsingu á dæmigerðri tölvu. Tölvan
sem um ræðir er frá þekktum fram-
leiðanda og kostar tæpar 165.000
krónur en algengasta verð er frá um
100.000 kr. upp í ríflega 200.000 kr.
Örgjörvinn
Intel Pentium „M“ 1,3GHz ör-
gjörvi, 1MB tiýtiminni
„Örgjörvar eru dýrasti hluti tölv-
unnar ásamt skjánum og
ráða mestu um vinnslu-
hraðann. Þeir breytast
mjög hratt og það sem er
gott í dag er nánast orðið
úrelt eftir einn og hálfan
til tvo mánuði. Menn
geta endalaust beðið eftir
nþeim næsta og þá fá
þeir sér aldrei tölvu.
Þessi örgjörvi er mjög
góður; almennt er lág-
markshraðinn 1GHz og
1MB flýtiminni er ágætt.
Það er ekki nauðsynlegt
að hafa Intel Pentium
örgjörva. Hins vegar
þarf að gæta að því að
stundum eru ör-
gjörvar í fartölv-
um ekki sér-
hannaðir
fyrir
far-
tölv-
ur;
þá
hitna þeir óþægilega mikið og tölv-
urnar geta orðið leiðinlegar í
vinnslu. Því er gott að spyrja um
þetta atriði.
Varðandi Pentium-örgjörva, sem
eru algengastir, eru aðallega tvær
týpur í boði: „4“ og „M“. Pentium
M vinnur hraðar en Penti-
um 4 á sama klukkuhraða.
Það er því alls ekki algilt að
hærri GHz-tala þýði hrað-
ari vinnslu. Og þar sem M
nýtir klukkuhraðann betur
endist rafhlaðan lengur
sem skiptir marga miklu
máli.
Vinnsluminnið
256MB DDR PC2100
minni, stækkanlegt í 1GB
„Þetta er vinnsluminnið.
Ég hallast að því að 256MB
sé lágmark. Hörðu diskarn-
ir í fartölvunum eru oftast
fremur hægvirkir sem þýðir
að þær þurfa að reiða sig á
vinnslumirmið meira en
ella. Ef það er ekki nægilega
stórt lendir fólk í því að tölv-
an hægir mjög mikið á sér.“
Skjárinn
14“ skjár meö 1024x768
punkta upplausn
.Skjáir eru mjög misjafnir. Það
„Það er ekki spurning
að almennt kaupir
skólafólk dýrari far-
tölvur en það hefur
þörffyrir. „Það er með
þetta eins og allt annað
sem íslendingar
kaupa..."
sem greinir þá að eru einkum
stærð, birtugæði, upplausn og loks
nýtilegt sjónarhorn, þ.e.a.s. hvað er
hægt að horfa á skjáinn mikið frá
hlið eða ofan og neðan frá. Þetta
getur fólk í rauninni sjálft metið -
sjón er sögu ríkari! Varðandi upp-
lausn myndi ég ætla að 1024x768
væri lágmark."
Skjákortið
32MB skjákort
„Skólafólk sem ætlar sér nær ein-
göngu að nota skrifstofuforrit og
vafra um á Netinu kemst af með
mjög lítið og ódýrt skjákort. Til þess
að keyra fullkomna leiki og horfa á
DVD-myndir í tölvunni þarf 64 MB