Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003
NORDFAG-verðlaunin afhent
krefst stækkunar Norðuráls
VEKÐLAUN: NORDFAG-verð-
launin verða afhent á Markúsar-
torgi í Útvarpshúsinu í Efstaleiti
á morgun, miðvikudag. NOR-
DFAG eru regnhlífarsamtök
næstum allra starfsmanna Ríkis-
útvarpa á Norðurlöndum,
þ.e.a.s. RÚV, DR, SVT,SR,YLE,
NRK og SVF og UF í Færeyjum.
Verðlaunin voru fyrst veitt á Is-
landi fyrir tólf árum á ráðstefn-
unni sem þá var einnig haldin
hér á landi. Þá hlaut Margrét
tndriðadóttir verðlaunin fyrir
starf sitt sem fréttastjóri frétta-
stofu Útvarpsins. Siðan hafa
verðlaunin verið veitt einu sinni
í hverju hinna Norðurlandanna .
Vigdís Finnbogadóttir mun af-
henda verðlaunin en hún er for-
maður nefndarinnar sem valdi
verðlaunahafann.
Borgarbyggð
ÁHYGGJUR: Bæjarstjórn Borg-
arbyggðar lýsti á fundi sínum
sl. fimmtudag yfir áhyggjum
vegna þeirrar ótryggu stöðu
sem stækkun Norðuráls á
Grundartanga virðist nú vera í
vegna ákvörðunar Landsvirkj-
unar um frestun á byggingu
Norðlingaölduveitu. Átta sveit-
arfélög á sunnanverðu Vestur-
landi sendu frá sér sameigin-
lega ályktun síðla árs 2002 þar
sem þau lýsa yfir vilja sínum til
að gera allt sem í þeirra valdi
standi til að uppfylla þær
skyldur sem stækkun Norður-
áls krefjist af sveitarfélögun-
um. Þessi sveitarfélög hafa
bundið miklar vonir við þá at-
vinnuuppbyggingu sem
stækkun Norðuráls mun hafa á
sveitarfélög á Vesturlandi. Því
sé sú óvissa sem stækkun
Norðuráls er nú stefnt í alger-
lega óviðunandi fyrir atvinnulíf
á Vesturlandi.
Bæjarstjórn Borgarbyggðar
skorará ríkisstjórnina að
standa við viljayfirlýsingu sem
undirrituð var af hálfu Valgerð-
ar Sverrisdóttur iðnaðarráð-
herra um að stjórnvöld skuld-
bindi sig til að sjá Norðuráli
fyrir orku til að stækka fyrir-
tækið. Mikilvægt sé að stjórn-
völd leiti allra leiða til að út-
vega Norðuráli þá orku sem
stækkun fyrirtækisins krefst
þannig að hægt verði að taka
nýlega áfanga í notkun árið
2005 eins og stefnt var að í
viljayfirlýsingunni.
Meint skjalafals og
misferli með vörslufé
Eru tilefni kæru konu á hendur fasteignasala í Reykjavík
irmrrTÍnrií
»! *!«» a latntí
*!iui t*»r ir»»?
w r:»* Tt
■I ;:t! l IÞ’ - »«
W ?m* a !*>* |*p|i
w ii|B»n
Fasteignasali í Reykjavík er
sagður hafa falsað undirskrift á
kauptilboði og náð þannig til
sín umtalsverðum fjármunum.
Jafnframt hefði hann notað
falsaða kauptilboðið til að flytja
veð af húsnæði viðskiptavinar
síns yfir á húsnæði sambýlis-
konu sinnar.
DV fjallaði í gær um mál sem
komið hafa upp á hendur öðrum
fasteignasala. Bæði honum og hin-
um, sem fjallað er um í dag, hefur
verið vikið úr Félagi fasteignasala.
Þá hefur dómsmálaráðuneytinu
verið gert viðvart um meinta slæma
viðskiptahætti þeirra.
Mál sem risið hefur á hendur
þeim fasteignasala sem DV fjallar
um í dag var kært til lögreglunnar í
Reykjavfk og er nú í vinnslu hjá lög-
fræðingum sem freista þess að að-
stoða viðskiptavininn til að ná rétti
sínum.
Málavextir eru þeir að Ólöf Ing-
þórsdóttir hafði leitað, ásamt eigin-
manni sínum, til umrædds fast-
eignasala vegna sölu á íbúð þeirra á
Seltjarnarnesi. Þann 22. mars 2002
samþykktu þau svo kauptilboð sem
borist hafði í íbúðina. Átti hluti
kaupverðsins að greiðast með töku
nýrra fasteignaverðbréfa upp á um
4 milljónir króna. Andvirði bréf-
anna átti að nota til að greiða upp
að fullu áhvílandi veðlán á íbúðinni
á Seltjarnarnesi. Fasteignasalinn
umræddi átti að annast greiðslu á
láninu og þar með afléttingu veð-
banda.
Lét senda póstinn í
eigið pósthólf
Ólöf flutti ásamt fjölskyldu sinni í
Garðabæ. Hún kvaðst í samtali við
DV hafa verið í góðri trú um að
undanfarin viðskipti hefðu verið
með þeim hætti sem lög gerðu ráð
fyrir. Nokkru síðarkomst hún þó að
«.
VEÐLÁN: Veðlánið var flutt á eign sem fasteignasalinn var skráður fyrir.
KÆRA: Kært hefur verið til lögreglunnar vegna málsins og er það nú í vinnslu hjá
lögfræðingum sem freista þess að aðstoða viðskiptavininn við að ná rétti sínum.
Dómsmálaráðuneytið:
því að lánið væri ógreitt og einhver
væri enn að greiða af því. Hún sagði
fasteignasalann þó hafa fullvissað
hana um að búið væri að greiða
lánið upp.
Jafnframt tók Ólöf eftir því að
hún fékk engan póst á nýja heimil-
isfangið í Garðabæ heldur einungis
maður hennar og börn. Hún hafði
samband við Islandspóst og kom
þá í ljós að fasteignasalinn sem hún
hafði átt viðskipti við hafði látið
flytja allan hennar póst, án umboðs
Ekki heimild til inngripa
Dómsmálaráðuneytið hefur
ekki heimildir í gildandi lögum til
að grfpa inn í mál sem upp kunna
að koma milli fasteignasala og
viðskiptavina þeirra, að sögn
Bryndísar Helgadóttur, lögfræð-
ings í ráðuneytinu. Missi fast-
eignasalar hins vegar skilyrði til
löggildingar þá innkallar ráðu-
neytið leyfi þeirra.
Bryndís sagði að þótt ráðu-
neytinu bærust viðvaranir um
meintar slæmar viðskiptavenjur
tiltekinna fasteignasala hefði það
ekki heimildir í lögum til að grfpa
inn í. Ef mál viðkomandi væri
kært til lögreglu gæti ráðuneytið
einungis óskað eftir því við lög-
reglu að fá að fylgjast með gangi
málsins. Það væri ekki fyrr en lög-
bundin skilyrði, sem fasteigna-
sölum væru sett, brystu sem
ráðuneytið hefði heimildir til að
svipta viðkomandi löggildingu.
DV hefur í gær og í dag fjallað
um mál tveggja fasteignasala í
Reykjavfk.
Kærur hafa verið lagðar fram á
þá vegna meints misferlis með
vörslufé og lögfræðingar vinna að
því að einstakir viðskiptavinir
umræddra fasteignasala nái rétti
sínum. Annar umræddra fast-
eignasala hefur löggildingu en
ráðuneytið felldi niður löggild-
ingu hjá hinum, samkvæmt upp-
lýsingum DV, þegar hann missti
lögboðna ábyrgðartryggingu
sína. Þegar slíkt gerist er viðkom-
andi tryggingafélagi skylt að til-
kynna ráðuneytinu að trygging
hjá viðkomandi fasteignasala sé
fallin úr gildi.
Ef fasteignasali hlýtur dóm er
það ákæruvaldsins að hlutast til
um að hann sé sviptur löggildingu.
Eins og fram hefur komið í DV
hefur Félag fasteignasala gert
ráðuneytinu viðvart um að þessir
tveir fasteignasalar hafi verið
kærðir til lögreglu fyrir meinta
slæma viðskiptahætti. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins eru
þetta einu fasteignasalarnir sem
tilkynnt hefur verið um til ráðu-
neytisins vegna meints misferlis
með vörslufé sem enn eiga ólokið
sínum málum, eftir að mál fast-
eignasölunnar Holts fór í rann-
sóknarferli. Samkvæmt
upplýsingum DV er rannsókn
þess máls á lokastigi hjá embætti
ríkislögreglustjóra. -JSS@dv.is
frá henni, í pósthólf í Reykjavlk sem
skráð var á hans nafn. Þegar Ólöf
hafði breytt póstfanginu aftur fékk
hún gíróseðil frá lífeyrissjóðnum,
sem lánið var frá, þar sem fram
kom að það væri enn ógreitt. Greitt
hefði verið af því til að byrja með
eftir sölu íbúðarinnar á Seltjarnar-
nesi en nú væri það komið í van-
skil.
Hún hafði samband við
íslandspóst og kom þá í
Ijós að fasteignasalinn,
sem hún hafði átt við-
skipti við, hafði látið
flytja allan hennar
póst, án umboðs frá
henni, í eigið pósthólf
í Reykjavík.
Lífeyrissjóðurinn sem Ólöf hafði
fengið veðlánið hjá gekk nú í að at-
huga málið. Kom þá í ljós að veð-
lánið hafði verið flutt af íbúð Ólafar
yfir á húsnæði á Laugavegi. Veð-
flutningurinn hafði átt sér stað í
ljósi kauptilboðs sem Ólöf hafði átt
að hafa gert í húsnæðið á Lauga-
vegi. Eigandi þess húsnæðis var
sambýliskona fasteignasalans en
sjálfur er hann einnig skráður til
heimilis f húsnæðinu ásamt tveim-
ur börnum sfnum.
Kærttil lögreglu
Ólöf kveðst aldrei hafa gert slíkt
kauptilboð, enda flutti hún í Garða-
bæ, eins og áður sagði.
Málið var kært til lögreglunnar í
Reykjavík, þar sem Ólöf bar að nafn
hennar hefði verið fálsað á kauptil-
boðið. Fölsunin hafi náð til kauptil-
boðs og heimildar til veðflutnings á
láninu til að fasteignasalinn, eða
aðrir á umræddri fasteignasölu,
gætu náð til sín þeim fjármunum
sem hefðu átt að fara í að greiða
það upp.
Ólöf sagði að í upphafi hefði eig-
andi fasteignarinnar á Laugavegi
þrætt fyrir veðflutninginn og vísað
til þess að hann hefði verið gerður á
grundvelli falsaðra pappíra. Síðan
hefði hann gengist við flutningnum
með því skilyrði að Ólöf drægi
kæruna til baka. Hún kvaðst hafa
gert það ef það yrði til þess að flýta
fyrir lausn málsins.
Spurning um veðhæfi
Það hefur þó ekki gengið eftir.
Lögfræðingar vinna nú að málinu. f
athugun er hvort húseignin á
Laugavegi stendur undir veðinu. Ef
svo reynist ekki vera er engin lausn
fyrir Ölöfu í sjónmáli. Ef eignin
stendur undir veði er um tvennt að
ræða samkvæmt upplýsingum sem
DV hefur aflað sér - annars vegar
að sambýliskona fasteignasalans
selji og lánið verði greitt upp, eða
að viðkomandi lífeyrissjóður láti
fara fram nauðungarsölu.
Ólöf sagði að upphæðin sem til
greiðslu væri til að aflétta veðinu
næmi nú um 5 milljónum króna.
Hún hefur nú barist fyrir rétti sín-
um nokkuð á annað ár.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins skilaði fasteignasalinn sem um
ræðir í þessu máli nýlega inn lög-
gildingarleyfi sfnu.
-JSS@dv.is