Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003
Samgönguvika í Reykjavík
SAMGÖNGUR; Árni Þór Sigurðs-
son, forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur og formaður sam-
göngunefndar, setti Evrópska
samgönguviku 2003 í Ráðhúsi
Reykjavíkur í gær. Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra flutti
ávarp og opnaði nýjan vef um
mengunarmælingar. Reykjavík-
urborg er að taka þátt í Evr-
ópsku samgönguvikunni í fyrsta
sinn í ár og er meðal rúmlega
250 borga víðs vegar í Evrópu
sem taka þátt í verkefninu. Meg-
inþema vikunnar er „aðgengi
fyrir alla" í tengslum við Evrópu-
ár fatlaðra. Efnir Reykjavíkurborg
tii margvíslegra viðburða í vik-
unni. Þriðjudagurinn 16. sept-
ember er tileinkaður minni
mengun í umferðinni, miðviku-
dagurinn er hjólreiðadagur.
fimmtudagurinn ertileinkaður
aðgengi fatlaðra og föstudagur-
inn vistakstri. Laugardagurinn
20. september er sérstakur mið-
borgardagur og sunnudagurinn
21. september er göngudagur í
miðborginni. Þungamiðja vik-
unnar er Bíllausi dagurinn sem
haldinn verður 22. september
undir slagorðinu „I bæinn án
bílsins á virkum degi".
Línuívilnun
FISKVEIÐAR: Hreppsnefnd
Hríseyjarhrepps skorar á ríkis-
stjórn og sjávarútvegsráðherra
að standa nú þegar við gefin
fyrirheit um línuívilnun og
aukningu byggðakvóta sem
landsfundir ríkisstjórnarflokk-
anna samþykktu fyrir kosning-
arog skýrt er kveðið á um í
stjórnarsáttmála núverandi rík-
isstjórnar Davíðs Oddssonar.
Ópera fyrir alla
MADAMA BUTTERFLY: Hulda Björk Garðarsdóttir syngurtitilhlutverkið og Jóhann FriðgeirValdimarsson er í hlutverki bandaríska sjóliðs-
foringjans.
íslenska óperan ætlar að fresta
fyrirhugaðri upphafssýningu
starfsársins á Brúðkaupi Fíg-
arós eftir Mozart fram yfir ára-
mót, en aðstandendur hennar
ætla sannarlega ekki að sitja
auðum höndum þangað til.
Vetrardagskráin hefst norður í
Eyjafirði með tónleikunum Mozart
fyrir sex í Laugarborg á sunnudag-
inn kemur. Þar koma fram Chalu-
meaux-tríóið og þrír af fastráðnum
söngvurum Óperunnar. Gestasýn-
ing verður líka á óperutvennunni
Madama Butterfly & ítalska stúlkan
í Aisír í Vestmannaeyjum 5. október
þannig að Óperan ræktar tengslin
við landsbyggðina.
Austurríkismaðurinn Kurt
Kopecky hefur verið ráðinn tónlist-
arstjóri íslensku óperunnar og tek-
ur til starfa um næstu mánaðamót.
Þetta er maður um þrftugt með
geysivíðtæka reynslu, þrátt fyrir
ungan aldur, sem hljómsveitar-
stjóri, söngþjálfari og æfingastjóri.
Hann kemur fram bæði sem hljóm-
sveitarstjóri og undirleikari næstu
þrjú ár auk þess að hafa umsjón
með allri þjálfun og vinnu söngvara
við húsið. Bera söngvarar Óper-
unnar Kopecky afar góða söguna
eftir vinnu með honum í vor sem
leið.
Einn af fastráðnum söngvurum
hússins, Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson, yfirgefur það í haust;
hann hefur fengið spennandi til-
boð frá Þýskalandi.
Ný íslensk ópera
Á haustmisserinu verður blanda
við allra hæfi, kvöldtónleikar og há-
degistónleikar og uppsetningar á
óperum í stuttformi. Það er vel
þekkt og vinsælt víða um lönd að
setja óperur upp í styttra formi. Þá
er óperan sviðsett og leikin þannig
að sagan skili sér til áhorfandans en
sviðsmynd, búningum, lýsingu og
annarri umgjörð er í hóf stillt. Eins
er hljóðfæraskipan einfölduð. Þó
gerir stuttformið gríðarlegar kröfur
til flytjenda, enda ekkert hægt að
fela þegar búið er að umskapa stóra
óperu í knöppu formi.
„Við þurfum að hafa
undir höndum gífurlega
háar upphæðir til þess
að geta sett upp þessar
stóru óperur, tugi millj-
óna króna. Eitthvað
skilar sér svo aftur í
kassann, þó ekkert í lík-
ingu við útgjöldin." *
Stærsti viðburðurinn verður t
frumsýning nýrrar íslenskrar óperu g,
12. nóvember, Dokaðu við eftir J
Kjartan Ólafsson og Messíönu Q
Tómasdóttur, sem er byggð á ljóð-
um þriggja skálda: Theodóru
Thoroddsen, Þorsteins frá Hamri
og Péturs Gunnarssonar. Uppsetn-
ingin er samstarfsverkefni
Strengjaleikhússins og íslensku óp-
erunnar og það eru Garðar Thór
Cortes tenór og Marta Guðrún
Halldórsdóttir sópran sem syngja.
Haustkvöld í Óperunni hefjast
24. september en þá fagnar Ólafur
Kjartan Sigurðarson baritón 35 ára
afmæli sínu með söng og með hon-
um á píanó leikur Jónas Ingimund-
arson. 17. október verða haldnir
tónleikar í minningu dr. Victors
Urbancic og sjónum beint að þætti
hans í íslenskri óperusögu. Til
dæmis verða sviðsett atriði úr Rigo-
letto, en það var fyrsta óperan sem
Urbancic stjórnaði hér og um leið
fyrsta óperan sem flutt var í Þjóð-
leikhúsinu með íslenskum söngv-
urum og hljómsveit.
Hádegistónleikaröðin hefst 14.
október og er umsjónarmaður
hennar Davíð Ólafsson bassi.
Fyrstu tónleikarnir bera yflrskrift-
ina „Nú er það svart“ og eru tileink-
aðir Paul Robson; þar syngur Davíð
negrasálma. Á vormisseri hefúr
Hulda Björk Garðarsdóttir umsjón
með hádegistónleikum.
Ekki fellt nein segl
Stærsta verkefni Óperunnar á
starfsárinu verður Brúðkaup Fíg-
arós eftir Mozart, sem frumsýnt
verður 29. febrúar.
„Ástæðan fyrir því að við frestuð-
um Brúðkaupinu var sú að við kom-
um undan síðasta vetri með lengri
skuldahala en við höfðum gert ráð
fýrir,“ segir Bjarni Daníelsson óp-
erustjóri, „og það var ekki annað til
ráða en að færa Brúðkaupið til
þangað til við ættum fyrir start-
gjaldinu! Við þurfum að hafa undir
höndum gífurlega háar upphæðir
til þess að geta sett upp þessar stóru
óperur, tugi milljóna króna. Eitt-
hvað skilar sér svo aftur í kassann,
þó ekkert í líkingu við útgjöldin."
Óperan er rekin fyrir framlög frá
þremur aðilum: í fyrsta lagi hefur
hún þjónustusamning við ríkið sem
kveður á um að settar séu upp átta
óperur og þrjár barnaóperur á fimm
ára tímabili. í öðru lagi hefúr hún
verið í ágætu kostunarsamstarfi við
önnur fyrirtæki atvinnulífsins og
reiknað með að tíu prósent af tekj-
um Óperunnar kæmu frá þeim.
“Um síðustu áramót hækkaði
framlag ríkisins, tvöfaldaðist á
tveimur árum, og við höfðum gert
okkur vonir um að framlög fýrir-
tækjanna myndu hækka að sama
skapi en náðum ekki því marki,"
segir Bjarni. „Þriðja tekjulindin er
svo miðasalan. Þar kunnum við
orðið vel á útkomuna þegar stórar
uppfærslur eru annars vegar en
rennum meira blint í sjóinn með
minni uppfærslur. Það varð halli á
minni viðburðum í fyrra en við
höldum ótrauð áfram, því ef við
ætlum að vera með óperuhús og
fastráðna söngvara þá verðum við
að bjóða upp á minni viðburði með
þeim stóru. Fólk á eftir að átta sig á
því hvað stuttóperan er krefjandi
form, snjallt og skemmtilegt, og þá
stöndum við vel að vígi.
Við höfum ekki fellt nein segl,"
segir óperustjórinn að lokum, „við
höfum bara endurraðað dagskránni
miðað við fjármagnsstreymið f fýr-
irtækinu. Óg við erum bjartsýn.
Eins og þú veist þá er ópera á ís-
landi rekin fyrir fjármuni, en þegar
þeim sleppir taka bjartsýni og kok-
hreysti við!"
BJARTSÝNN OG KOKHRAUSTUR: Bjarni Daníelsson óperustjóri.
silja@dvJs
VETRARDAGSKRÁ ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
Mozart fyrir sex í Eyjafirði 21.9.
Óperutvennan Madama Butterfly og ftalska stúlkan f Alsfr. Sýnd f Vestmanna-
eyjum og Reykjavík í sept. og okt.
Haustkvöld fóperunnl. 24.9.: Afmælistónleikar Ólafs Kjartans. 17.10.: Minning-
artónleikar dr. Victors Urbancic. 1.11.: Kveðjutónleikar Jóhanns Friðgeirs.
Hádegistónleikaröð. „Nú er þaö svart", 14.10., „Verdi fyrir söngvara á barmi
taugaáfalls", 28.10., „Frosin tár" 4.11. og „Uxahali f hádeginu" 25.11.
Dokaðu vlö. Unglingaópera, frumsýnd 12. nóv.
Werther. Stuttópera frumsýnd 22. nóv.
Brúðkaup Ffgarós. Frumsýnt 29.2.04.
Carmen í stuttformi á vormisseri.
Mozart og Salleri verður sýnd í hádeginu í fáein skipti meðan Brúðkaupið er á
fjölunum.
Svipmynd úr óperuheiminum: Diddú og ferill hennar ((febrúar).