Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003
Hundar aflífaðir
ÓLAFSFJÖRÐUR; Tveir hundar
voru aflífaðir á Ólafsfirði í gær.
Hundarnir hafa verið til vand-
ræða um skeið og nauðsyn
þótti að grípa til ráðstafana
eftir atvik sem varð fyrir
skömmu. Þá munu hundarnir
hafa farið að Ólafsfjarðarvatni
og ráðist á kindur sem þar
voru á beit.
Þeir bitu ærnar og fóru leikar
svo að þeir hröktu fullorðna
kind út í vatnið. Kalla þurfti
eftir aðstoð björgunarsveitar-
manna til að ná kindinni upp
úr ánni. Að sögn lögreglunnar
á Ólafsfirði var mönnum kunn-
ugt að annar téðra hunda
hefði áður ráðist á búfé og því
varð að samkomulagi við eig-
endur að þeir yrðu báðir af-
lífaðir.
Minning
STOKKHÓLMUR: HalldórÁs-
grímsson utanríkisráðherra og
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra verða fulltrúar ís-
lensku þjóðarinnar á minning-
arathöfn um Önnu Lindh sem
fram fer í Stokkhólmi í dag.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingar, og Guð-
mundur Árni Stefánsson verða
einnig viðstaddir.
Ríkislögreglustjóri og Vegagerðin í samstarfi á lögreglubílum í eigu Vegagerðarinnar:
Tekinn, grunaður um
ölvun á lögreglubíl
Vegagerðarmaður ók. Sessunauturmn, lögreglumaður, tókúrhonum sýni
RAUÐAVATN: Þegar upp að Rauðavatni kom brá hins vegar svo við að lögreglumanninum fannst fullmikil áfengislykt út úr samstarfs-
manni sínum - ökumanninum. Lét hann manninn gefa öndunarsýni.
Sú sérstaka staða kom upp ný-
lega að maður sem ók merktum
lögreglubíl á Suðurlandsvegi
var tekinn, grunaður um ölvun-
arakstur.
Sá sem hafði ökumanninn grun-
aðan var lögreglumaður sem hafði
setið með þeim fyrmefnda ffá skrif-
stofum lögreglunnar við Skógarhlíð
upp að Rauðavatni þar sem menn-
imir voru báðir að fara í eftirlits-
störf fyrir lögregluna. Hinn gmnaði
er starfsmaður Vegagerðarinnar og
hefur hann ekki mætt til vinnu eftir
að atvikið kom upp. Lögreglumað-
urinn hafði séð til þess að úr hon-
um yrði teldn blóðprufa.
Ríkislögreglustjóri og Vegagerðin
hafa um skeið átt í samstarfi um
vegaeftirlit, t.a.m. við vigtun stórra
bíla og athugun á því hvort bílstjór-
ar þeirra hafi hvflst nægilega. Þrír
þessara bfla, sem em í stærra lagi af
lögreglubflum að vera, hafa gjarnan
verið á Suðurlandsvegi við Rauða-
vatn eða Vesturlandsveg, rétt ofan
Víkurvegar, en einn er á Norður-
landi.
Vegagerðin á bflana. Þeir em
hins vegar merktir eins og hefð-
bundnir lögreglubflar en em einnig
með merki Vegagerðarinnar. A
þeim er yfirleitt einn lögreglumað-
ur, einkennisklæddur, og gul-
klæddur vegagerðarmaður. í upp-
hafi vinnudags 9. september ók
einn vegagerðarmanna einum
Niðurstaða
öndunarsýnis var á þá
leið að ekki var um
annað að ræða en að
senda ökumanninn í
blóðprufu.
þessara bfla frá höfuðstöðvum
Vegagerðarinnar við Borgartún 5
sem leið lá inn í Skógarhlíð þar sem
starfsmenn umferðardeildar lög-
reglunnar hafa aðsetur.
Tók hann samstarfsmann sinn
þann daginn upp í bflinn og sat lög-
reglumaðurinn í farþegasæti. Þegar
upp að Rauðavatni kom brá hins
vegar svo við að lögreglumannin-
um fannst fullmikil áfengislykt út
úr samstarfsmanni sínum - öku-
manninum. Lét hann manninn
gefa öndunarsýni. Niðurstaða þess
var á þá leið að ekki var um annað
að ræða en að senda ökumanninn í
blóðprufú.
Hjá lögreglunni er litið svo á að
mál þetta fari sína leið - annaðhvort
verði ákært fyrir ölvunarakstur eða
ekki þegar niðurstaða blóðsýnis
liggur fyrir. Að öðru leyti telst þessi
misbrestur á samstarfi við eftirlits-
störf vera mál Vegagerðarinnar.
Samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar hefur umræddur mað-
ur ekki mætt til vinnu eftir atvikið.
Niðurstöðu blóðrannsóknar er hins
vegar beðið enda teljast allir sak-
lausir þar til sekt telst sönnuð.
ottar@dv.is
Veiða hrefnur á skoðunarsvæðum
Hafró fullyrðir að það sé staðfest-
ur vilji stofnunarinnar og starfs-
manna hennar að haga hrefnu-
veiðum og rannsóknum með til-
liti til ferða hvalaskoðunarbáta.
Ekki sé tilgangurinn að valda
ónæði eða árekstrum. Af því tilefni
voru leiðangursstjórum veiðiskip-
anna gefin þau fyrinnæli að halda sig
fyrir utan reglubundin hvalaskoðun-
arsvæði og að leiðangursmenn hafi
gert sér far um að afla upplýsinga um
ferðir hvalaskoðunarskipa. Þessu
hafi verið nákvæmlega fylgt eftir.
Hafrannsóknastofnun telur miður
að rekstraraðili hvalaskoðunarbáts-
ins Hafsúlunnar KE og Gests GK hafi
ekki sýnt áhuga á slíku samráði.
„Það skal hins vegar upplýst að
Gestur GK, sem um nokkurt skeið
hefur fylgt eftir hrefnuveiðibátnum
Nirði KÓ með kvikmyndatökumenn
óþekktra aðila um borð langt út fyrir
hvalaskoðunarslóð, kom á vettvang
þegar hrefnan var tekin að síðu
skips..
Hafrannsóknastofnunin telur að
ummæli hvalaskoðunaraðila í fjöl-
miðlum gefi ranga mynd af stað-
reyndum málsins. Ljóst er að sú
hrefna sem veidd var um borð í Nirði
KÓ um 20 sjómflur frá Gróttu var
utan venjubundinnar leiðar Hafsúl-
unnar. Jafnframt skal það upplýst að
skipverjar og leiðangursstjóri stofn-
unarinnar um borð í Nirði telja úti-
lokað að Hafsúlan hafi verið í
námunda við skipið þegar á veiði
Hafró hefur því þver-
brotið margt afþví sem
hún fer fram á afokkar
hálfu, m.a. tekurhún
ekki tillit til ferða
hvalaskoðunarbáta
stóð, enda aðgæsla vegna ferða skipa
í nágrenninu forgangsmál hjá áhöfn-
inni af öryggisástæðum. Af staðfest-
um upplýsingum skipa í nágrenni
Hafsúlunnar á þeirri stundu sem
hrefhan var veidd, var skipið fjarri
veiðistað á umræddum tíma,“ segir í
tilkynningu Hafrannsóknastofnun-
ar.
Guðmundur Gestsson, fram-
kvæmdastjóri Sjóskoðunar -veiði og
skemmtisiglingar, segir að Gestur GK
sé teigður bandarískri sjónvarpsstöð
sem hefur áhuga á að taka myndir af
því þegar hrefna sé skotin og skorin
um borð. Eðlilega haldi þeir sig því
nálægt hrefnuveiðibáL ísfenskur
myndatökumaður hefúr verið um
borð.
„Við skiljum nú af hverju Hafró vill
ekki hafa aðra báta nálægt hrefriu-
bátunum og eru hræddir við mynda-
vélar. í einu dæminu skutu þeir
þrisvar á eina hrefnuna áður en þeir
hittu hana. Þeir vilja ekki að þessar
aðfarir sjáist með þessum græjum
sem þeir segja að séu svo fullkomnar.
Gísli Vflangsson, forsvarsmaður
veiðanna, bað mig áður en veiðamir
hófust að gefa sér upp hvaða svæði
við færum á til hvalaskoðunar, og ég
gaf honum það upp. Eitt þeirra er
Syðra-Hraun sem þeir á Nirði hafa
verið að skjóta á. Við upphaf veið-
anna vorum við á Gesti að leita að
Nirði og rákumst óvart á hann á
þessu svæði, það hvarflaði ekki að
okkur að hann væri þar, og það inn-
an um fiskibáta. Beiðni þeirra um að
halda sig í mflu fjarlægð var þar gróf-
lega brotin af þeim sjálfum. Á mánu-
dag náðum við myndum þar sem
verið var að draga hrefnuna inn, ög
þegar þeir urðu okkar varir fóru þeir
að keyra út af svæðinu í norðvestur.
Ef við þurfum að fara 20 eða 30
mflur út á Hafsúiunni til hvalaskoð-
unar, þá gerum við það. En þegar
þeir vissu af Nirði þama, sném þeir
ffá. Ekki var tilgangurinn að sýna
hvalaskoðunarfólki dráp á dýrinu.
Hafró hefur því þverbrotið margt af
því sem þeir fara fram á af okkar
hálfu, m.a. taka þeir ekki tillit til ferða
hvalaskoðunarbáta og em að tmfla
þeirra starfsemi. Þeir halda að þeir
geti krafist einhliða hvar við höldum
okkur," segir Guðmundur Gestsson.
gg@dv.is