Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 16
16 FRÉmR FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 Útlönd Heimurínn i hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Suu Kyi í aðgerð BURMA: Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Burma og handhafi friðarverð- launa Nóbels, hefur gengist undir aðgerð á legi á einka- sjúkrahúsi í höfuðborginni Rangoon. Að sögn talsmanns samtaka útlaga frá Burma samdi Suu Kyi við herforingjastjórnina um að hennar eigin læknir fengi að gera aðgerðina. Búist er við að baráttukonan fyrir lýðræði í Burma þurfi að liggja inni í nokkra daga. Suu Kyi hefur verið í haldi her- foringjastjórnarinnar síðan í maílok, eftir að í brýnu sló milli stuðningsmanna hennarog manna á snærum stjórnvalda. Ekkert hefur gengið að fá hana leysta úr haldi. Hundabæli DÝRAHALD: Bresk dýravernd- aryfirvöld greindu frá því í gær að þau hefðu fjarlægt 244 hunda, 16fugla, fimm ketti, eina kanínu og eitt nagdýr af heimili miðaldra hjóna í norð- vestanverðu Englandi.Tvo daga tók að rýma fjögurra her- bergja hús sem hjónin og dýr- in bjuggu í. Rannsókn er hafin á framferði hjónanna. Ekkert lát á skæruárásum í írak: Fórna blóði og sál fyrir Saddam Þrír bandarískir hermenn féllu og að minnsta kosti tveir aðrir særðust þegar bandarísk her- sveit varð fyrir skæruárás í þorpinu al-Ouja rétt suður af bænum Tikrit, fæðingarbæ Saddams Husseins, fyrrum íraksforseta, seint í gærkvöldi. Að sögn talsmanns Bandaríkja- hers í Tikrit var setið íyrir her- mönnunum þar sem þeir voru að leita að skothólkum fyrir hand- sprengjuvörpur, sem notaðir hafa verið við ítrekaðar sprengjuárásir á bandarískar hersveitir að undan- förnu og munu árásarmenirnir hafa beitt hríðskotarifflum. Þá bárust óstaðfestar fréttir af því að Bandaríkjamenn hefðu fyrr um daginn orðið fyrir enn þá meira mannfalli í óróabænum Khaldiyah, um sextíu kílómetra vestur af höf- uðborginni Bagdad, og sagði í frétt al-Arabiya sjónvarpsstöðvarinnar að þar hefðu átta bandarískir her- menn fallið og að minnsta kosti einn særst. Þriggja tíma skotbardagi Talsmaður Bandaríkjahers stað- festi í morgun að tvær bandarískar hersveitir hefðu orðið fyrir árásum Khaldiya og nágrenni en sagði að aðeins tveir bandarískir hermenn hefðu særst. í öðru tilfellinu hefði fjarstýrð sprengja sprungið undir herflutn- ingabifreið sem flutti bandaríska hermenn og hefðu árásarmenirnir hafið skothríð á hermennina eftir sprenginguna. Að sögn sjónarvotta svöruðu bandarísku hermennirnir skotárásinni og mun skotbardag- inn hafa staðið í allt að þrjár klukkustundir, eða þar til fjörtíu manna hersveit á skriðdrekum og brynvörðum bflum hafði verið send á vettvang til aðstoðar auk þyrlusveitar. „Með blóði okkar og sál fórnum við lífi okkar fyrir þig, Saddam," hrópuðu íbú- ar óróabæjarins Khaldiyah. í hinni árásinni, sem gerð var í útjaðri Khaldiyah, var einnig beitt fjarstýrðri sprengju með þeim af- leiðingum að einn herjeppi eyði- lagðist. Dansað á götum Khaidiyah Eftir að bandaríska herliðið hafði snúið aftur til bækistöðva sinna í gærkvöldi þustu hundruð fbúa Khaldiyah dansandi út á götur bæj- arins. Veifuðu þeir myndum af Saddam Hussein auk þess sem sumir skutu upp í loftið af Kalas- hnikov-rifflum sínum og hrópuðu: „Með blóði okkar og sál fómum við lífi okkar fyrir þig, Saddam." Árásirnar í gær vom gerðar að- eins degi eftir að al-Arabiya sjón- varpsstöðin sendi út hljóðupptöku með rödd Saddams Husseins þar sem hann hvetur Iraka til aukinna árása gegn Bandaríkjamönnum. Sífelldar skæmárásir hafa skapað aukna spennu og taugaveildun meðal bandarískra hermanna í Irak, svo mikla að þeir taka helst aldrei fingurinn af gikknum. Þar að auki reynist þeim oft erfitt að greina skæmliða frá óbreyttum friðsömum borgumm, eins og í gær þegar bandarískir hermenn hófu skothríð á veislugesti í brúðkaupi með þeim afleið'ngum að fjórtán ára drengur lét xífið og sex aðrir særðust. Að sögn sjónarvotta hófu hermennimir skothríð eftir að veislugestir höfðu skotið upp í loft- ið eins og tíðkast 'við brúðkaup. Skemmdarverk á olíuleiðslu í gær vom unnin skemmdarverk á olíuleiðslunni sem flytur olíu frá olíusvæðunum í Kirkuk til olíu- vinnslustöðvanna i Beiji og logaði þar mikill eldur í morgun, svo mik- ill að ekki var hægt að nálgast leiðsluna vegna hitans. Lokað hefur verið fyrir leiðsluna og sagði tals- maður stjómvalda að það hefði lítil áhrif á olíuframleiðsluna. Bandaríska herstjórnin í frak til- kynnti í morgun að Sultan Hashim Ahmed, fyrmm varnarmálaráð- herra í stjórn Saddams Husseins hefði gefið sig fram sjálfviljugur við bandaríska herliðið í gær en hann var númer 27 á lista bandarískra stjómvalda yfír eftirlýsta stuðn- ingsmenn Saddams. ELDUR f OLfULEIÐSLU: Mikill eldur logaði i olíuleiðslu vestur af Bagdad í morgun, svo mikill að ekki var hægt að nálgast leiðsl- una vegna hitans. Blair tapaði Gæsluvarðhalds kraf- ist yfir þeim grunaða Saksóknari í Svíþjóð hefur ákveðið að fara fram á að Per Olof Svensson, 35 ára maður- inn sem grunaður er um að hafa myrt Ónnu Lindh utanrík- isráðherra, verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Sænska frétta- stofan TT greindi frá þessu í morgun. Lögreglan vildi í morgun ekki greina frá niðurstöðum DNA- rannsóknar sem gerð var á lífsýni úr hinum gmnaða og samanburði við lífsýni sem fundust á morð- vopninu og húfu sem morðinginn er talinn hafa skilið eftir sig á morðstaðnum. Áformað var að halda fund með fréttamönnum klukkan 13 að ís- lenskum tíma þar sem greina á frá málavöxtum. LINDH MINNST: Kona með blóm stendur fyrir framan mynd af önnu Lindh. Saksóknari hafði frest til klukk- an tíu í morgun til að ákveða hvort gæsluvarðhalds yrði krafist yfir Svensson, ella yrði að sleppa hon- um úr haldi. Hinn gmnaði hefur neitað öllum sakargiftum til þessa, að best er vitað. Lögmaður Svenssons, Gunnar Falk, taldi í gær litlar líkur á að skjólstæðingi sínum yrði sleppt úr haldi þar sem enginn dómari vildi vera í þeim spomm að hafa sleppt manninum, ef síðar fyndust sann- anir fýrir sekt hans. Lögreglan hefur enn áhuga á að hafa tal af nokkmm öðmm möpn- um í tengslum við rannsókn morðsins. Miklar öryggisráðstafanir em í Stokkhólmi í dag vegna minning- arathafnar um Lindh þar sem margir erlendir framámenn verða. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Verkamanna- flokkur hans biðu herfilegan ósigur í aukakosningum til þingsins í gær. Talið er að íraks- stríðið og eftirmál þess hafr átt mestan þátt í því hvernig fór. Ef allt hefði verið með felldu hefði frambjóðandi Verkamanna- flokksins átt að vinna auðveldan sigur f Brent East kjördæminu í norðurhluta Lundúna. Sú varð þó ekki raunin því að snemma í morgun kom í ljós að frambjóðandi Frjálslyndra demókrata, Sarah Teather, hafði farið með sigur af hólmi. Frjáls- lyndir demókratar vom andvígir stríðinu í írak. „Við göngum augljóslega í gegn- um erfiða tíma," sagði ráðherrann Nick Raynsford. Blair og flokkur hans höfðu ekki tapað aukakosningum frá því að þeir gjörsigmðu Ihaldsflokkinn í þingkosningunum 1997. FYRSTl ÓSIGURINN: Tony Blair og flokkur hans biðu fyrsta ósigur sinn í aukakosn- ingum í gær. (raksstríðið réð úrslitum. Tapið í gær mun þó ekki skipta miklu máli í raun þar sem Verka- mannaflokkurinn hefur enn 165 manna meirihluta á þingi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.