Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 19.SEPTEMBER2003 Launahækkun 5,2% LAUNASKRIÐ: Regluleg laun hafa hækkað að meðaltali um 5,2% frá 2. ársfjórðungi 2002 til 2. árs- fjórðungs 2003. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,0%. Samkvæmt því jókst kaup- máttur launa að meðaltali um 3,2%. Launahækkun starfsstétta var á bilinu 3,8% til 7,4%. Laun kvenna hækkuðu um 6,1% en karla um 4,7%. Laun á höfuð- borgarsvæði hækkuðu um 5,4% en laun utan höfuðborgarsvæðis um 4,7%. Á 2. ársfjórðungi 2003 fengu launamenn að meðaltali greiddar 192.900 krónur í reglu- leg laun, þ.e. fyrir venjulegan vinnutíma hvort sem um var að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Meðaltal heildarlauna var 247.600 krónur og heildarfjöldi greiddra stunda 45,6. Spyr um seðlabankastjóra STÓRTSPURT: Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, fulltrúi Sam- fýlkingarínnar í bankaráði Seðlabankans, hefur sent Dav- íð Oddssyni forsætisráðherra spurningar um hvernig staðið var að skipun Jóns Sigurðsson- ar í stöðu seðlabankastjóra. Hún spyr með hvaða hætti hafi verið gengið úr skugga um að Jón væri sá hæfasti sem völ væri á; með hvaða hætti jafn- ræðisreglu stjórnsýslulaga hafi verið gætt, en samkvæmt henni sé stjórnvöldum t.d. óheimilt að mismuna aðilum á grundvelli stjórnmálaskoðana þeirra; og hvaða hæfniskröfur hafi veríð lagðar til grundvallar við ráðninguna. Björgólfur fær Eimskip f gríðarlegri uppstokkun sem varð í viðskiptaheiminum í gær BMSKIP fHÖFN: Björgólfur Guðmundsson hefur í flóknu samningaferli tryggt sér og félögum sér tengdum yfirráð í Eimskipafélaginu. Gríðarleg eignauppstokkun varð í íslenskri fyrirtækjaflóru í gær í einhverjum umfangs- mestu og flóknustu viðskiptum sem þekkst hafa á fjórmála- markaði hér á landi. Helstu tíð- indi eru þau að Björgólfi Guð- mundssyni og liðsmönnum hans tókst að tryggja sér yfirráð yfir Eimskipafélagi íslands, en gáfu eftir aðra pósta, ma. fjár- festingarfélagið Straum, Sjóvá- Almennar og Flugleiðir. Mikið sjónarspil fór í gang strax í gærmorgun og voru viðskipti í Kauphöll íslands stöðvuð með bréf í mörgum af stærstu félögum landsins. Þar var m.a. um að ræða Eimskip, Fjárfestingarfélagið Straum, Landsbanka íslands, Framtak Fjárfestingabanka, fs- iandsbanka og Sjóvá-Almennar. Um hádegisbil kynntu Sjóvá-Al- mennar kaup íslandsbanka á 33% hlut í félaginu á genginu 37, sem er um 6,5 milljarðar króna. Einnig var greint frá því að fslandsbanki myndi kaupa 100% hlut í félaginu og Sjóvá-Almennar yrðu þar með dótturfélag fslandsbanka. Rammasamningur Stíf fundahöld vom ftam á nótt á milli Björgólfs Guðmundssonar og hans manna í Landsbankanum og Bjama Ármannssonar, forstjóra ís- landsbanka. Lauk þeim viðræðum með gerð rammasamnings um ráð- andi hlut Landsbanka Islands í Eim- skipafélaginu. Stjóm Eimskipafé- lagsins samþykkti rammasamning- inn með íýrirvara um samþykki hluthafafundar í félaginu sem hefiir verið boðaður 9. október. Þá mun jafnframt fara fram stjómarkjör. Stíf fundahöld voru fram á nótt á milli Björgólfs Guðmunds- sonar og hans manna í Landsbankanum og Bjarna Ármannssonar, forstjóra íslandsbanka. í þessu mun m.a. felast að Lands- bankinn eignast 15% hlut Fjárfest- ingarfélagsins Straums í Eimskip. Á móti selur Landsbankinn rúmlega þriðjungshlut sinn í Straumi til Is- landsbanka. Þá selur Burðarás, fjár- festingarfélag Eimskips, allan hlut sinn í Flugleiðum, eða tæp 32% ásamt 11,4% eignarhlut í Sjóvá-AI- mennum. Einnig selur Burðarás tæplega 5% hlut sinn í Islandsbanka. Sjávarútvegsfyrirtæki Eimskips, Brim, sem á ÚA á Akureyri, Harald Böðvarsson á Akranesi, Skagstrend- ing og hluti í fleiri félögum, eins og Marel og SH, verður áfiam í eigu Eimskips. Með þessari uppstokkun hefúr skýrst verulega myndin í þeirri at- burðarás viðskiptaheimsins sem Björgólfúr Guðmundsson og félagar hafa leitt undanfamar vikur. Efdr standa í megindráttum tvær fylking- ar. Annars vegar er það Landsbank- inn og Eimskip auk dótturfélaga sem Björgólfúr Guðmundsson hefúr for- ystu fyrir. Hins vera er fslandsbanld og Sjóvá sem meiningin er að sam- eina ásamt, Eignariialdsfélaginu Straumi, Flugleiðum og helmings- hlutur í Steinhólum sem eignaðist Skeljung í miklum átökum um það félag fyrir skömmu. Ekki er þar með sagt að átökum sé lokið. Ekki eru allir hluthafa Sjóvár- Almennra Ld. sáttir við hvemig mál hafa þróast og hyggst hópur hluthafa koma í veg fyrir áætlanir fslands- banka um yfirtöku á félaginu. hkr@dvjs Margeir Pétursson umkaup íslandsbanka í Sjóvá: Getum hindrað 100% yfirtöku „Þessu máli er alls ekki lokið gagnvart okkur. Við getum hindrað 100 prósent yfirtöku fslandsbanka á Sjóvá-Almenn- um," sagði Margeir Pétursson, stjórnarformaður fjárfest- ingafélagsins Atorku hf., við DV í morgun. Atorka á 4,5 pró- senta hlut í Sjóvá-Almennum. Margeir og Þorsteinn Vilhelms- son, stjómarformaður Afls - fjár- festingafélags, sem á rétt um 5 prósent í Sjóvá-Almennum, sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir að tilboð fslandsbanka hf. leggist illa í þá. Afl og Atorka hafa tryggt sér stuðning nokkurra annarra hluthafa tii að hindra að Islandsbanki geti komist yfir 90 prósenta eignarhlut í Sjóvá og þar með krafist innlausnar. Upplýsingagjöfvarðandi „þetta fyrirhugaða tilboð" sé algeriega ófullnægjandi segir í yfirlýsing- unni, og ekki hafi einu sinni kom- ið opinberlega fram á hvaða skiptigengi í fslandsbanka tilboð- ið sé gerL „Við fjárfest- um í Sjóvá á fag- legum forsend- um og teljum við Sjóvá síst ofmet- ið á genginu 37," segir enn fremur í yfirlýsingunni. „Einar Sveins- son, forstjóri Sjó- vár, sem jafnframt er varaformað- ur bankaráðs íslandsbanka, og Benedikt Sveinsson, stjómarfor- maður Sjóvár, keyptu á genginu 40 á miðvikudaginn. Það töldum við til marks um að mat okkar á félaginu væri rétL Það urðu okkur siðan mikil vonbrigði að þessi mál skyldu snúast upp í einhvers konar valdabrölt þar sem réttur minni hluthafa er fyrir borð bor- inn. Við emm að skoða réttar- stöðu okkar og hvetjum aðra hlut- hafa til að gera slíkt hið sama." „Það kemur í Ijós hver fram- vinda þessa máls verður," sagði Margeir við DV í morgun. „ís- landsbanki á eftir að skýra sitt mál.“ -JSS Margeir Péturs- son. Starfsmaður og fjórir aðrir í haldi í tvær vikur Fimm ungir menn hafa verið úr- skurðaðir í 14 daga gæsluvarð- hald, grunaðir um að hafa með mismunandi hætti staðið að því að flytja inn talsvert magn af fíkniefnum í gámi í einu skipa Samskipa. Starfsmaður félagsins, sem hefúr unnið á athafnasvæði félagsins í Holtagörðum, samkvæmt upplýs- ingum DV, er einn þeirra sem nú eru í haldi. Á þriðjudag voru tveir menn handteknir eftir að þeir höfðu farið út af gámasvæðinu við Holtagarða. Nánast á sama tíma voru tveir aðrir menn handteknir annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan og tollgæslan leituðu svo daginn eftir með aðstoð nokkurra leitarhunda á athafnasvæði Samskipa en lögregla tekur sérstaklega fram að hvorki skipafélagið né aðrir starfsmenn séu grunaðir í þessu málL Á þriðjudag voru tveir menn handteknir eftir að þeir höfðu farið út afgámasvæðinu við Holtagarða. Á miðvikudag fengust þessir fjór- ir ungu menn úrskurðaðir í 14 daga gæslu og þeir fluttir á Lida-Hraun. Þann sama dag var fimmti maður- inn viðriðinn málið handtekinn. Dómari ákvað svo í gær að lögregla skyldi einnig fá að halda honum í tvær vikur meðan unnið er að rannsókn þessa máls, sem þó telst ekki það stærsta það sem af er þessu ári miðað við magn efna. Lögreglan verst hins vegar frétta eins og stendur af því hvað lagt var hald á, hvaða efrú var um að ræða eða magn eða önnur atriði málsins. Samkvæmt heimildum DV er ekki útilokað að fleiri verði handteknir. Þeir sem þegar sitja inni hafa ekki sakarferil í fíkniefúamálum. Ásgeir Karlsson aðstoðaryfiriögreglu- þjónn sagði við DV að rannsókn þessa máls miðaði vel. ottar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.