Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 23
b FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 FÓKUS 23 Það hefur farið frekar lítið fyrir Barða Jóhannssyni og hljómsveit hans Bang Gang undanfarið. Fimm ár eru síðan fyrsta plata sveitarinnar kom út og því löngu tímabært að bæta úr því. Something Wrong kemur út um alla Evrópu í næsta mánuði og Barði tekur forskot á sæluna með tónleikum í Hafnarhús- inu annað kvöld þar sem verður afar gestkvæmt. Islenskur heimilis- iðnaSur með frönsku / „Ég er nýkominn úr sex daga viðtalstöm úti í Frakk- landi. Maður talaði allan daginn og var þess á milli í myndatökum,“ segir Barði Jóhannsson, heilinn á bak við Bang Gang, þegar hann er sestur niður með blaðamanni á heimili sínu. Barði hefur haft í nógu að snúast undanfarið enda kemur önnur breiðskífa Bang Gang, Something Wrong, út f byrjun næsta mánaðar, sú fyrsta í fimm ár. Það er útgáfufyrirtækið Recall í Frakklandi sem gefúr plötuna út í Evrópu en auk þess er Barði með „publishing“'Samning við stórfyrirtækið EMI. Tónlist Barða hefúr vakið mikla eft- irtekt úti í heimi undanfarin misseri. Sem dæmi um það var lag hans notað f Citroen-auglýsingu á síðasta ári og nú hefur Armani valið eitt af lögum hans í nýja auglýsinga- herferð. Það er því ánægjuefhi að loksins sé komið að plötu með Bang Gang. Maður þarf að vera með cóða músík Barði segir ýmsar ástæður fyrir því að svo langur tími hafi liðið frá því að síðasta plata kom út. „Ég var með samning við Spor sem var framseldur til Skífunnar og það samstarf gekk ekki vel enda var yfirmaður útgáfunnar á þeim tíma ekki alveg með á nótunum. Ég rifti því samningnum og þurfti að borga heilmikla peninga fyrir það. Ég var þvf lengi að vinna fyrir því. Fyrstu tvö árin eftir síðustu plötu var ég samt á fullu í að gera lög en fannst þau ekki nógu skemmti- leg. Ég ákvað þvf að eyða þeim og byrja upp á nýtt. Það eru nógu margir að gera leiðinleg lög. Lögin á nýju plötunni hef ég því verið að vinna undanfarin tvö ár.“ Pú tókst plötuna upp hér heima, ekki satt? ,jú, platan var tekin upp í Bang-stúdíóinu, í höfuðstöðv- unum,“ segir hann. „Hún var svo mixuð úti í Frakklandi af manni sem heitir Stephane Alf og hefur mixað allar Air- plötumar.“ Hvemig kemst maður í þessi sambönd að fá útgáfusamning erlendis? „Þetta er bara þrjóska, maður tekur þetta bara á þrjósk- unni. Svo þarf maður náttúrlega að vera með góða músík.“ Hvað er þetta annars með þig og Frakkland? ,Ja, af hverju ekki? Það er ekkert verra land en hvað annað.“ Kanntu ekiá orðið eitthvað í frönsku? „Ég kann að blóta og panta leigubíl. Ég þykist oft ekki skilja þegar það hentar mér, ég skil miklu meira en ég get talað." Ein allsherjarveisla í Hafnarhúsinu á morcun Barði fær til liðs við sig góða gesti á plötunni. Þar á með- al má nefna söngkonumar Keren Ann Zeidel, Nicolette, Pheobe Tolmer og Esther Talíu Casey og söngvarann Daníel Ágúst Haraldsson. „Það er mjög þægilegt að vera með svona sólóverkefni, þá fær maður bara til sfn góða gesti þegar þarf. Þetta em bæði vinir og vandamenn, margir hverjir sem voru það ekki áður en em orðnir það nú. Þama á meðal er til dæmis Danni frændi. Þetta er bara íslenskur heimilisiðnaður." Fram undan er mikil tónleikaferð um Evrópu til að kynna plömna og upphafið að þeim verður einmitt hér í Reykjavík annað kvöíd. Þá verða stórir kynningartónleik- ar haldnir í Listasafhi Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Bang Gang kemur þar fram ásamt strengjasveit og flestum af gestasöngvumm plötunnar. Miða mun vera hægt að kaupa í verslunum BT. ,Jú, ég er voða spennmr fyrir þessu,“ segir Barði. „Það eru allir ffá útgáfunni úti að koma, allir ffá auglýsingastofúnni og svo dreifingarfyrirtækinu auk blaðamanna og fleiri. Þetta verður ein allsherjarveisla.“ Það hljóta að vera gerðar miklar væntingar dl plötunnar fyrst alk þetta fólk er að koma hingað? „Já, menn em voða ánægðir með plötuna. Alla vega þeir sem hafa talað við mig. Þetta hefur meira að segja jaðrað við oflof. Ég ætla bara að vona að þetta sé ekki háð. En fólk hefúr tekið gríðarvel í þetta." Ekkert spennandi að gerast í MÍNU einkalífi Fyrsta smáskífan af plötunni er gamli slagarinn Stop in the Name of Love. Hvemig kom það al? „Ég var beðinn um að vera með lag á tribute-plötu fyrir mann sem heitir Claude Franfoise. Hann er hræðilega ljómr og ffægur söngvari, svona 80’s bolti sem kóveraði mikið lög. EMI á höfundarréttinn að þessum lögum og ég var beðinn að velja mér lag og valdi þetta. Ég átti að syngja það á ffönsku en það gekk ekki neitt þannig ég söng það bara á ensku og sendi þeim það. Þeir voru mjög ánægðir með lagið og vildu að ég setti það á plötuna mína. Mér leist ekkert á það fyrst en svo sættist ég á það. Þetta var eigin- lega svona slysabam.“ Myndbandið við lagið hefur vakið mikla athygli enda sýnir það unga stúlku spígspora um í íslenskri náttúru og fækka föt- um á endanum. Sögur herma að þetta sé kærastan þín, er það rétt? „Ég ræði ekki mín einkamál. Það er til nóg af fólki sem gerir þ_að og ég leyfi bara Birgittu Haukdal og fleiri að vera í því. Ég held líka að það sé ekkert svo spennandi að gerast í mínu einkalífi.“ Sambland af Beach Boys oc kvikmyndatónlist Ef þú værir beðinn um að skilgreina tónlistina á nýju plöt- unni... ,Ja, það er mitt að yrkja en annarra að skilja en sumir hafa viljað meina að þetta væri einhvers konar sambland áf Beach Boys og kvikmyndatónlist. Ég veit ekki hvort það er eitthvað til i því.“ Nafn þitt hefúr undanfarið verið nefnt í sambandi við plötu dúettsins Lady&Bird. Hvað viltu segja um það? „Líkaminn minn verður smndum yfirtekinn af Bird sem er ( hljómsveitinni Lady&Bird. Það er hljómsveit sem ég fíla afar vel og mér skilst að 25. september gefi hljómsveit- in út plötu hjá undirfyrirtæki EMI en ég veit ekki hvort hún kemur út hér heima. Hún gerir það alla vega víðast hvar annars staðar. Þetta er sem sagt dúett sem hefúr tekið sér bólfestu í líkama mínum og Kerin Ann Zeidel sem kemur einmitt ffam sem gestasöngvari á tónleikunum á morgun.“ Pað er svo langt síðan síðasta plata kom út, heldurðu að ís- lendingar séu nokkuð búnir að gleyma Bang Gang? „Það held ég nú ekki. Það er alltaf annað slagið fólk að spyrja mig hvenær von sé á nýju efni. Ef fólk er búið að gleyma Bang Gang þá á það einfaldlega við minnistap að stríða og það er eitthvað sem læknar eiga að sjá um. Þá get- ur fólk bara farið til heimilislæknis síns.“ m/rnO- M BR KffMÍO ns 'j'tpju Vf&KKtR. oeR><svKYKiam %/P. V j} \J vJ ftnmm TRESUItÞÚ . nomm maa , r r \ftY. smtK/ttir Yw ERjJM,KoMUtP MEB ftíiA astonwc ú Homo erektus, homo heidelbergensins, homo sapiens...við erum allir homo.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.