Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 Stjörnur tilnefndar VERÐLAUN: (slensk-þýska verk- efnið Music in My Life hefur ver- ið tilnefnt til verðlauna hjá fram- kvæmdastjórn Evrópusam- bandsins. Verðlaunin verða veitt að tilefni viku Ungs fólks í Evr- ópu sem haldin verður 29. sept- embertil 5. október. Umrætt verkefni var unnið í Þýskalandi árið 2001 og á (slandi árið 2002 en það eru hljómsveitirnar Blik- andi stjörnur og The Rockers sem stóðu að því. Sveitirnar eru skipaðar ungmennum og tóku þau upp geisladisk, gerðu myndband og héldu tónleika. Einnig heimsóttu ungmennin verndaða vinnustaði og ræddu réttindi fatlaðra á (slandi og í Þýskalandi. Þann 1. október verðurtilkynnt hvaða verkefni hlýtur viðurkenningu. Stálskip landa ÚTHAFSKARFI: Frystitogarinn Rán HF-42, eign Stálskipa í Hafnarfirði, landaði í gær 320 tonnum af frystum úthafskarfa í Kópavogshöfn. Mjög fátítt er að sjá löndun úr frystitogara í Kópavogshöfn,jafnvel eins- dæmi. Togarar Stálskipa hafa til þessa landað afurðum sínum í Hafn- arfjarðarhöfn og bæjarfélagið í Kópavogi þannig notið tekna í formi þeirra gjalda sem tekin eru af veiðiskipum, s.s. uppskipunar- og vörugjalda. Nú verður Hafn- arfjarðarbær af þeim tekjum. Stálskip hafa gert samning við Atlantsskip um flutning á fryst- um afurðum í frystigámum á markað erlendis. Aðsetur At- lantsskipa er í Kópavogshöfn. LÖNDUN: Landað úr Rán HF-42 í Kópavogshöfn. Frystigámarnir bíða svo komu næstu skipakomu Atlantsskipa. Eftirlitslaus neðan- jarðarstarfsemi TVÖ BÚ: Aðeins tvö hundarræktunarbú á landinu eru með tilskilin leyfi samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun. Lögfræðingur hundaræktunarbúsins í Dalsmynni fékk ofangreint svar við fyrirspurn sinni til stofnunarinnar. Þar kemur fram að stofnuninni er einungis kunnugt um eitt hundaræktunarbú fyrir utan Dalsmynni. DV-mynd GVA „Nú er komið á daginn, staðfest af Umhverfisstofnun, að aðeins eru til tvö skráð hundaræktunarbú á öllu landinu, Dalsmynni og eitt annað. öll önnur hundaræktun virðist því vera eftirlitslaus neðan- jarðarstarfsemi," sagði Sigurður Helgi Guðjónsson hrl., spurður álits á stöðu skráninga hundar- ræktunarbúa hér. Sigurður var um skeið formaður siðanefndar Hundaræktarfélags fslands. Hann hefur kynnt sér sérstaklega lagalegt umhverfi hunda og manna bæði hér og annars staðar á Norðurlönd- unum. Hann hefur komið að ýms- um lagasetningum varðandi hundahald í þéttbýli. „Þessar upplýsingar þýða að inn- an vébanda Hundræktarfélagsins er sem sagt bara í mesta lagi einn leyfisskyldur ræktandi. Hvað eru þá allir hinir að gera í félaginu? Má því varlega áætla að 90% hundaræktar á fslandi spili algjörlega frítt og hlíti engum reglum," sagði Sigurður Helgi enn fremur. „Stríðið um Dalsmynni snýst að mínu viti um peninga og fjárhags- lega hagsmuni hunda- ræktenda en ekki um dýravernd og ást á hundum." „Ég hef fylgst með átökum um hundarækt og hundahald að und- anförnu og mér blöskrar heiftin og illfýsin af hálfu andstæðinga Dals- mynnis. Ég var fyrir nokkrum árum formaður siðanefndar Hundarækt- arfélags íslands sem hafði til með- ferðar meint brot forráðamanna Dalsmynnis á reglum um pörun og ræktun. En þegar ég komst að því að það var talið sjálfsagt og í góðu lagi að varaformaður félagsins bryti sömu reglur þá sagði ég af mér og sagði mig úr Hundaræktarfélaginu. Á þeim bæ virtist það talið til stjórnarhlunninda eða forréttinda hinna innvfgðu að mega brjóta þessar reglur. Ef Hundaræktarfé- íagið á aðild að þessari krossferð er það að gelta úr glerhúsi. Strangt eftirlit Sigurður Helgi kvaðst vilja benda á að Dalmynnisræktunin væri undir ströngu opinberu eftir- liti sem er meira en hægt væri að segja um aðra rækendur sem stundi yfirleitt „rækun í þvottahús- um, kompum og kyndiklefum". „Slíkt er kallað „heimaræktunar- bú“ og á víst að vera voða gott og fínt fyrir menn og hunda. Dals- mynnisræktunin borgar skatta og skyldur af starfsemi sinni og rækt- un en hvað með aðra?“ bætti Sig- urður Helgi við. Hann kvaðst hafa kynnt sér að- stæðumar á Dalsmynni. Þær væm „vel viðunandi og hafa batnað mjög upp á síðkastið". Forráða- menn væm „hið vænsta fólk og góðir við hundana". „Þeir reyna að gera rétt og vel undir hreinum og klámm ofsókn- um og við hatrammar og bugandi aðstæður. Þeir vilja og reyna í hví- vetna að fara að fyrirmælum og ráðum þeirra yflrvalda og embætta sem hafa um þessi mál að segja. Þeir hafa þó m.a. liðið fyrir það að stjómsýslan á þessu sviði hehir ver- ið á breytingaskeiði, stofnanir hætt og nýjar tekið við og mál flust á milli embætta og stofnanna. Hin opinbem fyrirmæli hafa einatt ver- ið óljós og misvísandi." Stríð um peninga „Ég vorkenni þeim nytsömu sak- leysingjum sem í góðri trú og af góðum hvötum hafa látið etja sér í galdraofsóknir gegn öðm þeirra búa á landinu sem hafa tilskilin leyfi, þ.e. Dalsmynni," sagði Sig- urður Helgi. „Stríðið um Dals- mynni snýst að mínu viti um pen- inga og fjárhagslega hagsmuni hundaræktenda en ekki um dýra- vernd og ást á hundum. Alla vega ekki hjá þeim sem að baki standa og stjórna ófrægingarherferðinni. Vissulega má deila um það hversu stór hundabú eigi að vera og hversu margir hundar eigi að vera á hvern starfsmann en það má líka til sanns vegar færa að börn á leikskólakenn- ara séu hættulega mörg og að bekk- ir í barnaskólum séu alltof fjöl- mennir. Það væri æðislegt ef „regl- an“ um einn starfsmann á 8 hunda ætti líka við um blessuð börnin. Fyrir mér er þetta viðskiptastríð og má líkja því við að heimabmggarar og leynivínsalar gerðu aðför að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins og krefðust þess að henni væri lok- að vegna þess að hún seldi of mikið og hefði viðskipti af þeim.“ Þórhildur Bjartmarz formaður Hundaræktunarfélags íslands kvaðst ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu þegar DV náði tali af henni í gær. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.