Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 TILVERA 25 Kvikmyndasýningar hjá MÍR Félagið MlR ætlar að minnast þriggja stórra atburða í septem- ber og október með kvikmynda- sýningum. 175 ár eru liðin frá fæðingu LévTolstoj, 300 ára af- mæli Sankti-Pétursborgarog 60 ár eru liðin frá sigri sovéska hers- ins í Stalíngrad. Á morgun verður sýnd bandaríska útgáfan af Stríð og friður, byggð á skáldsögu eftir Tolstoj. Framundan er svo LévTol- stoj, heimildarmynd, Kósakkar, byggð á skáldsögu Tolstojs, heim- ildarmyndirnar Hetjuborgin og Leníngrad, Bernska l’vans eftir Andrej Tarkovskí; Nokkrir dagar í lífi Oblomovs, byggð á skáldsögu Ivans Gontsarovs, og svo klassíkin Beitiskipið Potomkin eftir Sergei Eisenstein. Einnig verður opnuð Ijósmyndasýning í tilefni 300 af- mælis Sankti-Pétursborgar. Haustganga Á morgun kl. 10 árdegis verður ganga í syrpunni Haustgöngur skógræktarfélaganna og Garð- yrkjufélags Islands. I göngum þessum er meðal annars hugað að gömlum og merkum trjám og þau stærstu mæld. Þetta eru 1 1/2-2 stunda léttar göngur, ókeypis og öllum opnar. Að þessu sinni verður gengið í Grafarvogi í Reykjavík í fylgd leiðsögumanns sem þekkir vel til staðhátta. Safnast verður saman við Grafarvogskirkju. Gengið verður um gömul sum- arbústaðalönd, sem nú eru orð- in útivistarsvæði Reykvíkinga. Þarna er afar fjölbreyttur trjá- gróður og mikil ræktunarsaga sem fæstir hafa heyrt. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 564-1770 og 551-8150. aðdráttarafl um og í sveitum landsins og Ieitað svara við ýmsum áleitnum spum- ingum. Spurt var hvort unglingar byggjust við því að flytja nauðugir eða viljugir frá heimahögum sínum og í framhaldi af því hugleitt hvort flutningar af landi brott kynnu að verða meira vandamál en flutning- ar innanlands í framtíðinni. Vilja færa sig um set „Mínar helstu niðurstöður em þær að mun fleiri nemendur í 9. og 10. bekk vilja færa sig um set nú en fyrir ellefu ámm. Stærsta breyting- in er sú að krakkar úti á landi em líklegri til að vilja flytja beint til út- landa. Mynstrið var lengi þannig að krakkar úti á landi vildu flytja til Reykjavíkur og krakkar í Reykjavík vildu flytja til útlanda en nú er Reykjavík að missa aðdráttarafl sem milliskref hjá krökkum í sjáv- arþorpum og sveitum. Ef íslenskir krakkar flyttu þangað sem þeir helst vildu yrði stórfelld fækkun í Reykjavík. Hins vegar lítur út fyrir það að þar muni verða jafnvægi því að krakkarnir búast margir við því að búa þar þótt þá langi ekki sér- staklega til þess," segir Þóroddur. Kennir í Bandaríkjunum Þóroddur Bjarnason lauk BA- prófi í félagsfræði frá Háskóla ís- lands árið 1991, MA-prófí íaðferða- fræði frá University of Essex árið 1995 og doktorsprófi f félagsfræði frá University of Notre Dame í Bandaríkjunum árið 2000. Hann starfar nú sem lektor í félagsfræði við State University of New York í Bandaríkjunum. Þóroddur hefur stundað marg- víslegar rannsóknir á viðhorfum og hegðun íslenskra unglinga og ritað fjölda fræðigreina um þau efni á innlendum og erlendum vettvangi. Meðal nýlegra viðfangsefna hans má nefna grein um breytingar á tíðni sjálfsvíga og sjálfsvígstilrauna (Landlæknisembættið, 2002), breytingar á neyslu löglegra og ólöglegra vímuefna (Áfengis- og vímuvamaráð, 2003), áhrif fjöl- skyldugerðar á áfengisneyslu Qournal of Studies on Alcohol, 2003) og áhrif atvinnuleysis á and- lega líðan (Social Science and Medicine, 2003). Þóroddur stýrir jafnframt nýrri samanburðarrann- sókn á aðstæðum og lífsáformum unglinga á íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi. akureyri@dv.is BLÓMLEGT PAR: Hjónin Auður I. Ottesen og Páll Pétursson reka saman fyrirtækið Rit og rækt sem meðal annars gefur út tímaritið Sumarhúsið og garðurinn. LBKKONA OG FJALLAFÁLA: Harpa hafði fjóra daga til að æfa nýja hlutverkið. DV-mynd E.ÓI. Þetta er hendingskast Sýningar á Púntilla og Matta hefjast aftur í kvöld eftir sumarhlé. Harpa Arnardóttir tekur þar við hlutverki hinnar fordekruðu Evu, dóttur Púntilla bónda, af Nínu Dögg Filippusdóttur og hefur að- eins haft ijóra daga til æfinga. „Þetta er dálítið hendingskast," segir hún en kveðst hafa haft hlut- verkið hjá sér um tíma og kvíði engu. „Hlutverkið er skemmtilegt og maður kemur inn f góðan hóp,“ segir hún. Harpa er ein af fimm nýj- um leikurum í verkinu en titilhlut- verkin em samt sem fyrr í höndum Theodórs lúlíussonar og Bergs Þórs Ingólfssonar. Hún kveðst hafa kennt Nínu Dögg í grísku önninni í Leikiistarskólanum og því sé það eins og að taka við af dóttur sinni að fara í hennar spor. „Maður verð- ur bara að yngja sig, spóla svona tuttugu ár aftur í tímann," segir hún og hlær. Harpa kveðst hafa átt stórkost- legt sumar á fjöllum, m.a. í Þjórsár- vemm og á Brúaröræfum. „Ég er búin að ganga meira og minna í mánuð í frelsi fjallanna og líka lesa bókina um Fjalla-Eyvind. Ég er svona að kúpla mig út úr þeim heimi í þennan rússibana hér,“ segir hún og bætir við að lokum: „Þetta er allt gott hvað með öðm.“ gun@dv.is Iðandi lífílðnó TENÓRINN: Guðmundur Ólafsson fer með aðalhlutverk í eigin leik- riti en undir- og meðleikari er Sigursveinn Kr. Magnússon. MyndBÞÓ Margt verður í boði í hinu forn- fræga menningarhúsi Iðnó í haust, bæði fyrir líkama og sál. I anddyr- inu á myndlistin sinn sess. Vignir lóhannesson er með verk þar nú og um miðjan næsta mánuð munu tólf félagar í Samlaginu Listhúsi á Akureyri setja þar upp sýningu. Fleiri koma í kjölfarið og vom lista- konurnar Sossa og Gunilla nefndar til sögunnar. Af fyrirhuguðum tón- leikum má nefna að Kammerkór Suðurlands „gengur á lagið“ laug- ardaginn 11. október. Á fjölunum í glæstum sal hins gamla leik- húss verður fmmsýning hér syðra á Tenórnum, einleik eftir Guðmund Ólafsson leikara, einn af hápunkt- um haustsins. Dagsetningin er 5. október en heimsfmmsýning á verkinu var á Berjadögum á Ólafs- firði í ágúst. Skammt er stórra högga á milli í Iðnó því að Ólafía, leikrit Guðrúnar Ásmundsdóttur, verður sýnt þar í fyrsta sinn þann 8. október. Það fjallar um Ólafíu Jóhannsdóttur sem var hálf- gerð Móðir Ter- esa norðursins og auk þess um tíma í ástarsam- bandi við skáld- jöfurinn Einar Ben. Fyrri hluti verksins verður leikinn kirkjunni og í hléi ganga leik- arar og sýning- argestir yfir í Iðnó til að fá sér kaffisopa og fylgjast með seinni hálfleik. Björk Jakobs hefur flutt Sellófan- ið sitt í Iðnó og em sýningar á fimmtudagskvöldum því að ekkert lát virðist á vinsældum verksins þrátt fyrir að 140 sýningar séu að baki. Tangókvöld og hádegisleikhús Edda Björgvins mun svo „taka á móti gestum" með sínum hætti í Hádegisleikhúsinu á föstudögum frá og með 17. október. Þar verða einnig í boði súpa og heimabakað brauð og þess utan býður Tjarnar- bakkinn, veitingahúsið á 2. hæð, auðvitað upp á fjölbreyttan mat- seðil. Tangókvöld verða fyrsta þriðju- dag hvers mánaðar og harmóniku- tónar munu líka heyrast reglu- bundið. gun@dv.is 5ámábyrgð ómyndhmpa 2rSjónvo/p BlaáMalrixMyndlampi NiœmStereo kr.24.900.- Samsung 28" NICAM Stereo, NTSC afspilun kr. 49.990.- Calda 29" 100 Hz, Super Bhck Une myndhmpi kr. 114.900 SJÓNVARPSDAGAR BRÆÐURNIR OEMSSON LÁGMULA 8 • SIMI 5 3 0 2 800 l

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.