Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 7
Synti frá Hrísey til Arskógssands
AFREK: Viktoría Áskelsdóttir,
ættuð úr Stykkishólmi, vann
það einstæða afrek um liðna
helgi að synda frá Hrísey til
Árskógssands. Leiðin er alls
2,6 sjómílur (3,7 km) og var
Viktoría sléttar tvær stundir á
leiðinni. Óhætt er að segja að
afrek Viktoríu sé mikið því að
leiðindaveður var meðan á
sundinu stóð, hvassviðri og
öldugangur. Viktoría sagði
sjálf að „veðrið hafi svo sem
ekki verið neitt glansandi," og
sérstaklega hafi öldurnar um
miðbik sundsins verið þungar.
Þetta hafi hins vegar allt
gengið upp.
Þeir sem synda lengri vega-
lengdir í sjó smyrja sig gjarn-
an með einhverri feiti til varn-
ar kulda. Viktoría notaði þó
ekkert slíkt, það var bara
sundbolur, sundhetta og gler-
augu.
Víktoría hefur stundað sjó-
sund frá því í fyrra og hefur
æft sig í Elliðaárvoginum. Þá
hefur hún synt frá Stykkis-
hólmi og út í Hvítabjarnarey
og með lögreglunni í Reykja-
vík frá Engey út í Örfirisey en
þetta er lengsta sjósund
hennar til þessa. Hún ætlar þó
ekki að láta staðar numið því
að stefnan hefur verið sett á
Grettissund, frá Drangey á
Skagafirði og til lands, líkt og
Grettir Ásmundarson gerði
forðum.
SUNDIÐ AFSTAÐIÐ: Viktoría sté um
borð í varðskip að sundinu loknu.
DV-mynd HIÁ
Orð sem Sandra Gregory skrifaði foreldrum sínum er hún fékk lífstíðardóm:
Gleymið að þið áttuð dóttur
TILÍSLANDS: Saga Söndru er komin út í 20 löndum á 13 tungumálum. Þegar hún kom til
íslands í síðustu viku var það fyrsta ferð hennar út fyrir Bretland og Taíland eftir að hinar
ófyrirséðu hremmingar hófust árið 1993. Hér er hún að segja nemendum MH sögu sína.
Dynjandi lófaklapp kvað við
þegar útskriftarnemendur í MH
þökkuðu Söndru Gregory, 37
ára frá Bretlandi, fyrir er hún
lauk frásögn sinni af því þegar
hún sat í sjö og hálft ár inni í
hinu alræmda „Bangkok
Hilton" fangelsi og síðan í einu
mesta öryggisfangelsi Breta.
Hún var að afplána 25 ára dóm
fyrir tilraun til að smygla rúm-
lega 80 grömmum af heróíni til
Japans frá Taílandi árið 1993.
„Ég ætla ekki að segja ykkur hvað
þið eigið að gera og heldur ekki
hvað þið eigið ekki að gera. Þið
metið það sjálf,“ sagði Sandra við
tilvonandi stúdenta sem sátu og
hlustuðu af athygli.
Hún varð veik eftir rúmlega
tveggja ára dvöl íTaflandi, landinu
sem hún elskaði. Þá komu her-
menn og myrtu borgara, blóðið
flaut og hún vildi fara heim. Hún
missti vinnuna vegna veikinda og
hafði ekki hjarta í sér til að biðja
foreldra sína um farareyri heim. Þá
bauðst henni að flytja efni. „Þá
hugsaði ég ekki um afleiðingarnar,"
sagði Sandra. Næstu sjö og hálft ár,
allt þar til í júlí 2000, voru martröð.
ísland er eina landið
sem hún hefur fallist á
að koma til vegna út-
komu bókarinnar. Síð-
asta vika hefur verið
henni sem ævintýri.
Hún er gersamlega
heilluð aflandi og þjóð.
En í dag geislar hún. Sandra er
frjáls, saga hennar er gefin út í hátt
í 20 löndum á 13 tungumálum og er
nr. 2 á metsölulista WHSmith í
kiljuformi í Bretlandi. Bókin kemur
út á íslandi í október - Gleymið að
þið áttuð dóttur- í þýðingu Sigurð-
ar Hróarssonar. Titillinn skírskotar
til bréfsins sem Sandra skrifaði
þegar hún taldi sig aldrei sleppa úr
fangelsi í Taílandi.
Þá geislaði hún ekki eins og í dag.
ísland er eina landið sem hún hefur
fallist á að koma til vegna útkomu
bókarinnar. Síðasta vika hefur ver-
ið henni sem ævintýri. Hún er ger-
samlega heilluð af landi og þjóð.
Hún og Andrew Garbett, kærastinn
hennar, upplifðu meira að segja
norðurljós á sunnudagskvöldið í
Bláskógabyggð eftir að hafa séð
perlur Suðurlands í baðandi sól-
skini um daginn.
Sandra ætlar að nota næstu viku
til að ferðast um ísland. Hún er að
njóta lífsins - tilgangur lífs hennar
er að ferðast, segir hún. En hún er
að fara í nám í Bretlandi - landa-
fræði. „Já, móðurfag allra greina,"
sagði hún við MH-nemendurna í
gríni. Hún hefur komið boðskap
sínum til íslendinga á ýmsan hátt á
ferðalagi sínu hingað: „Hugsið áður
en þið gerið eitthvað með fflcniefni!
Metið lífið sem ykkur var gefið.
Njótið landsins ykkar. Hér er góð
þjóðarsál," sagði Sandra Gregory.
ottar@dv.is
afölbm vöium íverslmum H^geu fínmtud., föstud.og feugaid.
SWfTZERtAND
TEP LAPIOUS
Skartgrpir
Abesse
co I I ec t i o n
LANCÖME JVE^AINl^URENf -ÖH UTIDO
CTðSSyO
PARIS
HtLtNA RUBíNSrl'-
Ckristian Di
íor
Okkar feabæru
tödcur
Guerlain
PAfUS
CHANEL
PARIS
BIOThERM
H Y G E A
a ny rtiv o r uve /v lun
Laugavegi sín i511 4533.
Sm áialhd, sín Í554 3960.
Krhglmni sín Í533 4533 .