Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Side 12
12 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003
STÓRVIÐSKIPTI: Bjarni Armannsson
var Ibygginn á svip þegar Einar
Sveinsson, forstjóri SjóvSr-Almennra
trygginga hf„ tilkynnti í ga?r um sölu
hans og aðila sem honurn tengjast a
33% eignarhlut i felaginu til Islands-
banka.
-
Sjóvá-Almennar verða
dótturfélag íslandsbanka
Bankinn hefur þegar tryggt sér 33% hlutafjár á genginu 37
Það hefur verið skammt stórra
högga á milli í fjármálaheimin-
um undanfarna daga en í gær
var tilkynnt að samið hefði ver-
ið um kaup (slandsbanka á 33%
hlut í Sjóvá-Almennum trygg-
ingum hf. (framhaldinu hefur
bankinn í hyggju að gera öðr-
um hluthöfum yfirtökutilboð.
Sótt hefur verið um heimild til
Fjármálaeftirlitsins vegna kaupa ís-
landsbanka á virkum eignarhlut og
síðan 100% hlut í Sjóvá-Almenn-
um. Vegna lagaumhverfisins verð-
ur þó að reka félögin áfram í tveim
aðskildum hlutafélögum. Voru við-
skipti með hlutabréf í þessum fé-
lögum stöðvuð af þessum sökum í
Kauphöll fslands í gær.
íslandsbanki greiðir fyrir hlutina
í Sjóvá-Almennum með hlutabréf-
um í fslandsbanka. Þar er annars
vegar um að ræða útgefin hlutabréf
og ný hlutabréf í bankanum fyrir
1.500 milljónir króna að nafnvirði
sem sótt verður um heimiid til að
gefa út á hluthafafundi. Útgefnir
hlutir eftir kaupin yrðu því um
10.500 talsins. Samanlagt mark-
aðsvirði félaganna fyrir viðskiptin
Verður þessi samsteypa
meðum 1.000 starfs-
menn og um 25 millj-
arða tekjugrunn.
var rúmir 73 milljarðar króna.
Þetta ferli fór af stað fyrir alvöru
þegar upplýst var að Einar Sveins-
son, forstjóri Sjóvár, og Benedikt
bróðir hans, stjórnarformaður fé-
lagsins, hefðu keypt um 9,3% hlut f
félaginu að nafnvirði 48,6 milljónir
króna á genginu 40, sem eru 1.948
milljónir króna. Um hádegisbil í
gær var síðan tilkynnt að íslands-
banki hefði tryggt sér 33% hlut í
Sjóvá á genginu 37 en sá hlutur
kemur frá bræðrunum og öðrum
þeim tengdum.
Langt umfram væntingar
Ljóst er að gengi beggja félag-
anna hefur hækkað mjög að und-
anfömu og tengist víðtækri baráttu
um ítök á fjármálamarkaði. Þess
má geta að greiningardeildir bank-
anna, þar á meðal hjá íslands-
banka, hafa metið verðmæti hluta í
Sjóvá að undanförnu á genginu 27.
Viðskiptin sem nú hafa orðið á
genginu 40 í fyrradag og á genginu
37 í gær eru því iangt umfram mat
greiningardeilda á verðmæti hluta í
félaginu. í samtölum DV við fjár-
málasérfræðinga í gær kom fram að
þetta væri trúlega mikið yfirmat á
félaginu. Þó yrði að hafa í huga að
raunverulegt verðmæti réðist alltaf
af því hvað menn ætluðu sér með
félagið og hvernig til tækist á end-
anum.
Greitt með bréfum
í íslandsbanka
Greitt er fyrir þau viðskipti sem
þegar hafa farið fram með bréfum í
Islandsbanka. Þá lýsti Bjami Ár-
mannsson, forstjóri Islandsbanka,
því yfir á blaðamannafundi sem
haldinn var í Sjóvá-Almennum í
gær að bankinn hygðist eignast
Viðskiptin sem nú hafa
orðið á genginu 40 í
fyrradag og á genginu
37 í gær eru því langt
umfram mat greining-
ardeilda á verðmæti
hluta í félaginu.
100% hlut í félaginu. Þar með yrði
Sjóvá dótturfélag íslandsbanka.
Stefnir bankinn að því að bjóða
öðmm hluthöfum að kaupa þeirra
hluti á genginu 37 og að greitt verði
fyrir þá með hlutabréfum í bankan-
um. Þar með er endi bundinn á
vangaveltur um að hópur sem
tengist Björgólfsfeðgum komist til
frekari áhrifa í Sjóvá-Almennum í
gegnum Eimskip.
Sveinsbræður selja
Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár- '4?:
Almennra, sagði að nokkrar vikur
væm síðan menn fóm að ræða af
alvöru þann möguleika að íslands-
banki keypti Sjóvá að fullu og færi
þar með út í rekstur á trygginga-
sviði. Hann sagði að Sjóvá yrði
þrátt fyrir þetta áfram rekið sjálf-
stætt og í núverandi formi. Einar
sagði að sá hópur sem í kringum
hann stæði í félaginu hefði allur
selt íslandsbanka.
„Það má segja að tilurð þessa
samstarfs sé árangur af samtölum
sem við Bjarni höfum átt að undan-
fömu. Við höfum unnið saman í
bankaráði fslandsbanka og þekkj-
um svolítið hvor til annars. Því höf-
um við lagt það til við nokkra lykil-
hluthafa hér ( félaginu að selja
bankanum hlutina. Hefur bankinn
þegar tryggt sér 33% hlut.“
Einar sagði ljóst að samanlagt
væm þetta mjög öflug félög með
um 1.000 starfsmenn. Sjóvá-Al-
mennar með um 200 starfsmenn