Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Page 15
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 75
KARLAR ELDAST: Fram kemur i spá Hagstofunnar að lífslíkur karla nálgast lífslíkur kvenna á næstu árum. Árið 2040 verður munurinn á
meðalævilengd karla og kvenna aðeins 2,5 ár.
Hlutfall aldr-
aðra tvöfaldast
fram til 2040
Styttist i að minnihluti landsmanna greiði í lífeyríssjóð
Hlutfall aldraðra á íslandi verður
tvisvar sinnum hærra árið 2040
heldur en það er nú, samkvæmt
nýrri fólksfjöldaspá Hagstofunn-
ar.
Hlutfall aldraðra er reiknað sem
hlutfall 60 ára og eldri af íbúum
20-59 ára. Þetta hlutfali er lágt á ís-
landi eða 0,28. Samkvæmt útreikn-
ingum Hagstofunnar nær það hins
vegar meðaltali Evrópusambands-
ríkjanna, sem er 0,38, í kringum
árið 2020. Og árið 2040 verður hlut-
fall aldraðra orðið 0,55.
í þessum útreikningum er gert
ráð íyrir að frjósemi verði sú sama
og árin 1998-2002 en tekið mið af
lækkandi dánartíðni, þ.e. lengri
meðcdævi.
Ekki lengur píramídi
Meðfylgjandi súlurit frá Hagstof-
unni sýnir glögglega hvílík breyting
verður á aldursdreifingu þjóðar-
innar fram til 2020; segja má að
hún breytist úr píramída í tum.
Greiningardeild Islandsbanka
bendir á að þessi þróun auki álagið
á lífeyrissjóðakerfi landsmanna:
„Gangi spá Hagstofunnar [...] eftir
munu útgreiðslur úr lífeyrissjóða-
kerflnu aukast vemlega þegar nær
dregur 2020 er minni hluti þjóðar-
innar mun standa að baki inn-
greiðslum í sjóðina."
Lífeyrisþegar vom tæp 56.000 í
lok síðasta árs en virkir sjóðsfélagar
í samtryggingardeildum ríflega
181.000, samkvæmt skýrslu Fjár-
Mannfjöldi 1. janúar 2003 og 2040 eftir kyni og aldri
10
86420246
80-84
75-79
70-74
65-89
60-84
55-59
50-54
45-49
40-44
35-39
30-34
25-29
20-24
15-19
10-14
5-9
0-4
10 46
ÞJÓÐIN ELDIST: Hagstofan tekur aðeins tillit til hækkandi meðalaldurs og gerir ráð fyrir að
frjósemi verði sú sama og 1998-2002. Engu að síður gjörbreytist aldurssamsetning þjóð-
arinnar á næstu tveimur áratugum.
málaeftirlitsins frá því í sumar. í
fýrra vom aðeins 12 lífeyrissjóðir af
þeim 43 sem starfa án ríkisábyrgð-
ar (eða ábyrgðar annarra) í „já-
kvæðri stöðu", samkvæmt trygg-
ingafræðilegri úttekt. Staðan í
fjómm þeirra var halli yfir 10%,
sem samkvæmt lögum kallar á
breytingar á samþykktum lífeyris-
sjóðs.
Karlar nálgast konur
Fram kemur í spá Hagstofunnar
að lífslíkur karla nálgast lífslíkur
kvenna á næstu ámm. Fyrir þrjátíu
ámm var munurinn á meðalævi-
lengd kynjanna 6 ár, konum í vil.
Undir lok 20. aldar var meðalævi-
lengd kvenna 81,4 ár en karla 77,1
ár; munurinn þvf ríflega fjögur ár.
Árið 2020 geta konur vænst þess að
verða 82,3 ára og karlar 79,1 og verð-
ur munurinn þá kominn niður í rúm
þrjú ár. Árið 2040 verður munurinn
aðeins 2,5 ár.
Styttist í 300.000
Þá spáir Hagstofan því að íslend-
ingum fjölgi í 300.000 á árinu 2007.
Árið 2020 verði landsmenn tæplega
326.000 talsins og liðlega 351.000
árið 2040.
Það dregur hratt úr fólksfjölgun.
Um miðbik 20. aldar fjölgaði hér um
2% á ári en á síðasta áratug fór hlut-
fallið niður fýrir 1%. Árið 2020 verður
árleg fólksfjölgun 0,6% og ekki nema
0,2% árið 2040. Gangi þessi spá eftir
fylgir Island í fótspor annarra Evr-
ópuþjóða þar sem fólksfjölgun verð-
ur sums staðar eingöngu rakin til
flutninga á milli landa. otafur@dv.is
Allra fóta
Heildsölu-
dreifing
Snyrtistofan °9 allra handa áburöur
HRUND
Sími: 5544025