Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Side 22
22 FÓKUS FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003
If ó k U S
Umsjón: Höskuldur Daði Magnússon og Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir.
Netföng:fokus@fokus.is, hdm@fokus.is,sigrun@fokus.is
Sími: 550 5894-550 5897
www.fokus.is
oru hvar?
Það var nóg af fólki sem leit inn á Hverf-
isbarinn um síðustu helgi enda virkar það
jafnan spennandi á fólk ef það sér röð fyrir
utan skemmtistað. Að sjálfsögðu lét fræga
fólkið sig ekki vanta frckar en fyrri daginn
og mátti þarna meðal annarra sjá til íra
fársliðanna Birgittu Haukdal, Andra hljóm-
borðsleikara og Vignis Vigfússonar, gftar-
leikara og lagahöfundar. Friðrik Weiss-
happel var í afar góðu skapi og þarna mátti
It'ka glitta í Örnu Pétursdóttur, verslunar
stjóra í Kiss og fyrrverandi Playboy-módel,
útvarps- og sjónvarpsmanninn Ásgeir Kol-
beinsson og litla bróður hans, Atla, auk
þess sem sást til Bjarka Sig á útvarpsstöð-
inni Létt og Vals Heiðars Sævarssonar,
söngvara í Buttercup.
Tónleikar Stuðmanna í Tívolfi f Kaup-
mannahöfn voru vel sóttir eins og lands-
menn allir ættu að vita eftir stífan frétta-
flutning af þeim. Nokkur hundruð íslend
inga flugu sérstaklega út og bættust í hóp
fjölmargra íslendinga sem búsettir eru í
Danmörku. Meðal þeirra sem lögðu á sig
ferðalagið voru Sigmundur Ernir Rúnars-
son fjölmiðlamaður og Elfn kona hans, Guð-
jón Arngrfmsson hjá Flugleiðum, Ríkarður
örn Pálsson, Halldór Harðarson, markaðsstjóri Flugleiða í Skandinavfu,
Reynir Traustason, blaðamaður og rithöfundur, Hjálmar Blöndal, nemi á
Bif röst, Ingvar Þórðarson athaf namaður og Gerður Kristný, ritstjóri Mann-
lífs.
Auglýsingastofan Ffton héltpartíáföstudagtil að fagna nýju blaði sem
stofan var að gefa út. Þar sást til Jóns Mýrdats, Hemma feita og Beturokk,
sem alltaf eru dugleg að mæta í svona partf, leikarans Jóns Bjarna og Jak-
obs Bjarnar Grétarssonar fjölmiðlamanns.
Á Gauknum var að vanda nóg af tónlistarmönnum enda er staðurinn
eins konar félagsheimili fyrir þá. Um helgina voru þar Pétur Jesú, Einar og
Bergur úr Buff. Birgitta Haukdal, Hanni, Siggi, Andri og Vignir úr írafári
spiluðu fyrir gesti og tóku létt á því á eftir. Einnig mátti sjá þar Súkka Pé
(Siggeir bassaleikari úr VV6B sem átti að vera úti í Brasilíu með Birni Jör-
undi). Sjónvarpskonan Jóhanna Vilhjáims rnætti með vinkonum sfnum og
stclpurnar úr kvennalandsliðinu f fótbolta tóku vel á þvíá dansgólfinu eft-
ir sigurinn á laugardeginum. Þá voru Ifka mætt Baldvin úr Sóldögg og Arna
Pétursdóttir f Kiss. Jón Jósep, Einar og Áki úr ísvörtum fötum voru hress-
ir eins og tónlistarmaðurinn Jón Óiafsson úr Ný dönsk. Útvarpsmaðurinn
Heiðar Austmann af FM957 mætti með frúnni, Einar Ágúst úr Skímó var
flottur, Jónbi úr Brain Police var í rokkgfrnum og svo sást til leikaranna
EsterarTalíu Casey, Ólafs Egils Egilssonar og Benedikts Erlingssonar.
Á Vegamótum um helgina sást til Árna
Eiliotts sem er kærasti Chloe Opheliu, Barða
Jóhannssonar í Bang Gang, plötusnúðsins Jóa
B og myndbandagerðarmannsins Gunna
Palla. Á Prikinu var svo Ungfrú ísland.is dam
an, Rakel McMahon.
Plötusnúðurinn Gullfoss fékk liðsinni
Gfsla galdurs á Þjóðleikhúskjallaranum á
laugardagskvöldinu. Þar var að sjálfsögðu
nóg af fólki en fyrst ber að nefna leikaraliðið
Friðrik Friðriksson, Selmu Björnsdóttur,
Nönnu Kristínu Magnúsdóttur, Arnbjörgu
Htíf Valsdóttur og Jón Gunnar Þórðarson,
leikstjóra og leiklistarnema. Að auki voru
mættir Ómar Swarez í Quarashi, Gústi „Guns“
kvikmyndagerðarmaður og Ottó Tynes fram-
leiðandi.
Á frumsýningu á Lfnu Langsokk á sunnu-
daginn voru Lilja Pálmadóttir og Baltasar
Kormákur, Ingvar E. Sigurðsson leikari, Ólaf-
ur Ragnar Grfmsson forseti og Dorrit eigin-
kona hans, Kristján Kristjánsson í Kastljós-
inu, Björn Ingi Hilmarsson leikari, Áifrún
Helga örnólfsdóttir, sem er að fara að leika
Dís ívæntanlegri kvikmynd, og Lísa Pálsdótt-
ir, útvarpskona á Rás 2.
Á frumsýningu á Erling á laugardagskvöld voru aftur á móti þau Logi
Bergmann Eiðsson og Svanhildur Hólm Valsdóttir.
Á Pravda um seinustu helgi voru félagarnir Maggi Jóns, a.k.a. Blake, og
Barði í Bang Gang í svaka gír. Einnig voru þar Kiddi Bigfoot, Árni Elliot
ásamt sinni heittelskuðu Chloe, Ijósmyndararnir Kjarri ft Sigurjón frá Séð
og heyrt, Máni á Xinu, Gylfi Gyifa, Heiðar
Austmann á Popp Tíví og FM 957, Jón Gerald
Sullenberger og frú og Ófeigur á Glaumbar
ásamt sinni konu. Gyða Hlfn f Retró tók sig
vel út á dansgólfinu með gullfallegri vin
konu sinni. Andrea Róberts sást kfkja inn og
það gerði Frosti á X-inu einnig með kærust-
una sfna, hana Halldóru, á öðrum arminum
og umboðsmann Mínus í Bandaríkjunum á
hinum. Einnig fór mikið fyrir Cass the
gentleman, aðalmanninum á Mayfair Club f
London, og Pétri, blaðaútgefanda í London
og Moskvu, en þeir tóku yfir flöskubarinn
bæði föstudags- og laugardagskvöld ásamt
fríðu föruneyti.
Listamaðurinn Elín Hansdóttir og sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir f Gallerí Dvergi.
í kjallara í Þingholtunum í Reykjavík hefur í sumar verið rekið
afar lítið og sætt gallerí þar sem nokkrir ungir listamenn hafa
sett upp sýningar sínar. Gallerí Dvergur heitir þetta fyrirbæri og
er það sannarlega réttnefni því lofthæðin í galleríinu er ekki
nema 165 sentímetrar.
Sfðpsta sýningin
1 Dvergnum
Gallerí Elvergur er sýningarrými í
kjallara hússins að Grundarstfg 21 í
Þingholtunum. Nafhið dregur gallerí-
ið af smæð þess og lofthæð sem er ekki
nema um 165 sentímetrar. Gallerí
Dvergur er rekinn af Birtu Guðjóns-
dóttur myndlistarkonu, sem er út-
skrifúð úr Listaháskólanum og stund-
ar nú framhaldsnám í myndlist við
Piet Zwart Institute í Rotterdam.
Birta bjó í húsinu árið 2002 og nýtti
þá kjallararýmið þegar hún og Hug-
inn Þór Arason myndlistarmaður
sýndu þar gjöminga. I sumar bauðst
Birtu svo að fá kjallarann að láni og
ákvað hún að skapa þar vettvang til
sýningarhalds.
Alls hafa fimm listamenn sett upp
sýningar í galleríinu frá því 11. júlf í
sumar, þeir Huginn Þór Arason,
Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar,
Claus Hugo Nielsen og Pétur Már
Gunnarsson og fimmta og síðasta
sýningin var opnuð í gær. I fréttatil-
kynningu frá Gallerí Dvergi kemur
fram að sýningar sumarsins hafa verið
afar fjölbreyttar. „Sýningar sumarsins
hafa átt fátt sameiginlegt, þar hafa
verið sýndar innsetningar, málverk,
teikningar, skúlptúrar og hljóðverk,
en veitt góða innsýn inn í listsköpun
ungra myndlistarmanna sem eru að
stíga sín fyrstu skref á sýningarbraut-
inni,“ segir í tilkynningu.
Það er Elín Hansdóttir myndlistar-
maður sem á síðasta orðið í sýningaröð
Gallerí Dvergs í sumar, með sýning-
unni Big Bird. Elín útskrifaðist frá
Myndlistardeild Listaháskólans í vor
og mun hefja framhaldsnám í mynd-
list við Listaakademíuna í Berlín í
næsta mánuði. Auk myndlistamáms-
ins hefur Elín fengist við eitt og ann-
að undanfarin misseri. Hún rekur
ásamt öðrum Búðina á Laugavegi, þar
sem meðal annars er seld fatahönnun
hennar, auk þess sem hún lék eitt af
aðalhlutverkunum f Nóa albínóa fyrr
á árinu. Sýning Elínar er opin ffá
fimmtudögum til sunnudaga, frá
17-19, og stendur til 4. október.
Layo & Bushwacka: á
AFMÆLISHÁTÍÐ PZ
Utvarpsþátturinn PartyZone
hefur um árabil verið helsta hald-
reipi áhugamanna um danstónlist
hérlendis. I heil 13 ár hafa um-
sjónarmennimir Helgi Már
Bjamason og Kristján Helgi Stef-
ánsson séð til þess að dansáhuga-
menn hafa fengið vikulegan
skammt af því nýjasta í þeim geira
en þeir hafa ekki látið útvarpsþátt-
inn duga. PartyZone-menn eru
orðnir jafh þekktir fyrir klúbba-
kvöldin sem haldin hafa verið í
nafni þáttarins ffá miðjum síðasta
áratug. Vinsælust hafa verið af-
mæliskvöld þáttarins sem hafa
dregið að sér gesti eins og Masters
At Work, Basement Jaxx, Dimitri
From Paris og Timo Maas. Nú er
komið að enn einni afmælishátíð-
inni og em það sjálfir Layo & Bus-
hwacka! sem mæta á Nasa í kvöld.
I fféttatilkynningu segir að Layo
&. Bushwacka séu meðal virtustu
og þekktustu nafna danstónlistar-
heimsins. „Layo Paskin og Matt-
hew „Bushwacka" B em plötusnúð-
ar, skemmtistaðaeigendur og tón-
listarmenn. Layo Paskin hefur til
að mynda aðsetur í London þar sem
hann á plötuútgáfu og dansklúbb-
inn „The End“ en hann hefur ver-
ið gríðarlega heimr síðusm misseri.
Þar hafa þeir félagar verið „res-
ident“-plötusnúðar fyrsta laugardag
hvers mánaðar. Hróður þeirra hefur
farið víða og í dag spila þeir úti um
allan heim.“
Gleðin hefst á Nasa í kvöld
klukkan 23 og ásamt aðalstjömun-
um koma fram þeir Grétar G og
Ámi E. Miðaverð er 1.500 kall í
forsölu í Þrumunni og 2.000 kall
um kvöldið.
Fatamarkaður í
Incólfsstræti
Um síðustu helgi tóku nokkrar
framtakssamar stúlkur sig saman
og settu upp fatamarkað í miðbæn-
um. Þær köfúðu djúpt í fataskápana
og tíndu til það sem mátti missa sín
og buðu til sölu. Það var ekki að
sökum að spyrja, fjöldi manns
mætti og stúlkurnar höfðu í nógu
að snúast. Þær hafa því ákveðið að
endurtaka leikinn nú um helgina
og hafa fleiri sölumenn bæst í hóp-
inn. Kvenpeningurinn ætti því að
geta gert reyfarakaup um helgina.
Markaðurinn verður opinn í dag frá
11-18 og á morgun frá 12-18 en
flestar verða að selja á laugardegin-
um. Markaðurinn er til húsa í Ing-
ólfsstræti 5.