Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Qupperneq 36
36 DVSPORT FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 D V Sport Keppni í hverju oröi Netfang: dvsport@dv.is Sfmi: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 Beckham í sjöunda himni KNATTSPYRNA: Florentino Perez, forseti Real Madrid, er hæstánægður með enska landsliðsfyrirliðann David Beckham og segir að Beckham hafi tjáð sér að hann sé ham- ingjusamasti maður í heimi. Beckham hefur byrjað frábær- lega með Real Madrid og unn- ið á sitt band þá stuðnings- menn félagsins sem efuðust um að hann gæti spjarað sig með Real. „Beckham hefur verið í liðinu frá byrjun og þótt menn hafi misjafnar skoðanir á því þá held ég að þjálfarinn sé að láta hann spila rétta stöðu. Það sem meira er: Hann spilar af mikilli ákefð sem hefur orðið þess valdandi að stuðnings- menn okkar hafe tekið honum opnum örmum. Hann er virki- lega ánægður hjá okkur og mamma hans tjáði mér eftir leikinn við Marseille að hann væri hamingjusamasti maður í heimi. Seinna spurði ég hann að því hvort það væri satt og hann játti því," sagði Flor- entino Perez sem virðist hafa gert kostakaup í Beckham fyrir 25 milljónir punda. Fimm geta fallið Æsispennandi lokaumferð Landsbankadeildarinnar fer fram á morgun ÍÞRÓTTAUÓS ~ Henry Birgir Gunnarsson |gp; K heniy@dv.is Það verður mikil spenna í loft- inu klukkan 14.00 á morgun þegar flautað verður til leiks í síðustu fimm leikjum sumarsins í Landsbankadeildinni í knatt- spyrna. Þrátt fyrir að KR hafi tryggt sér titilinn fyrir nokkru er spennan ekki búin því að botn- baráttan hefur sjaldan eða aldrei verið eins jöfn og spenn- andi og staðan er einfaldlega sú að helmingur liða í Lands- bankadeildinni getur fallið. Það er klárt mál að það fara fram tveir algjörir lykilleikir í lokaum- ferðinni þar sem búast má við því að liðið sem tapi sé fallið, reyndar með þeim formerkjum að Valur sigri Fylki. Þessir lykilleikur eru viðureign Fram og Þróttar annars vegar og Grindavíkur og KA hins vegar. Engu að síður er staða Reykjavíkurliðanna Vals og Fram sýnu verst fyrir lokaleikina en þar sem þau sitja í botnsætunum er ljóst að ekkert annað en sigur í þeirra leikjum mun bjarga þeim frá falli. Framarar eru á kunnuglegum slóðum í neðsta sætinu og leika gegn Þrótturum sem eru í 6. sæti. Málið er mjög einfalt hjá Fram - ef þeir sigra eru þeir sloppnir og gild- ir þá einu hvemig aðrar leikir fara. Valur þarf, rétt eins og Fram, að vinna sinn leik - sigur tryggir áframhaldandi vem í deild þeirra bestu, sama hvemig aðrir leikir fara. KA getur haldið sér uppi með tapi ef Fram og Valur tapa sínum leikjum. Fari svo að annaðhvort Fram eða Valur sigri í sínum leik þá verða KA-menn að gjöra svo vel að sigra Grindvfldnga ætíi þeir sér ekki að falla. Jafntefli getur þó dugað KA ef Fram vinnur Þrótt og Valur tapar fyrir Fyfki f Árbænum. Grindvíkingar munu væntanlega stíga varlega til jarðar gegn KA- mönnum því að jafntefli nægir þeim til þess að hanga uppi. Með jafntefli em þeir alltaf með KA og annaðhvort Fram eða Þrótt fyrir neðan sig. Það er einnig athyglis- vert við leik Grindavfkur og KA að bæði lið geta aldrei fallið. Þá em það Þróttaramir. Strák- amir hans Ásgeirs Effassonar vom efstir í deildinni eftir fyrri umferð Það eru tveir algjörir lykilleikir um helgina, á Laugardalsvelli og í Grindavík. mótsins en síðan hefur heldur bet- ur hallað undan fæti. Þeir em nú í svipaðri stöðu og Grindvíkingar en jafntefli gegn Fram heldur þeim uppi. Einnig er æsispennandi barátta fram undan um Evrópusætin. Fylk- ismenn eiga ekki mikla möguleika á sæti í UEFA-keppninni. Til þess að svo megi verða þarf ansi margt að ganga upp. Þeir verða að sigra Val, treysta á sigur KR-inga gegn FH og treysta síðan á að Skaga- menn leggi FH-inga í bikarúrslitun- um. Þá tekur Skaginn UEFA-sætið sem bikarmeistari en Fylkir fær hitt UEFA-sætið fyrir að vera fyrir ofan FH en Fimleikafélagið fengi þá sæt- ið í Intertotokeppninni. FH fær UEFA-sæti með sigri í bikar, með sigri á KR og hreinlega ef Fylkir tapar fyrir Val. Til að IA missi af UEFA-sæti þarf liðið að tapa með einhverjum mörkum gegn ÍBV, Fylkir verður að vinna Val, einnig með nokkmm mörkum, og þar að auki verður ÍA að tapa úr- slítaleiknum í bikamum. Það er því heilmargt sem á eftir að ganga á þegar leikimir hefjast á morgun og ljóst að það liggur ekki fyrir hvaða lið hljóta það leiðinlega hlutskipti að falla úr Landsbanka- deildinni fyrr en klukkan slær fjög- ur. K A R L A R LANDSBANKADEILD Staöan: KR 17 10 3 4 28-20 33 ÍA 17 8 5 4 26-20 29 FH 17 8 3 6 29-24 27 Fylkir 17 8 2 7 23-22 26 ÍBV 17 7 2 8 24-24 23 Þróttur, R. 17 7 1 9 27-28 22 Grindavík 17 7 1 9 23-30 22 KA 17 6 3 8 28-26 21 Valur 17 6 2 9 22-27 20 Markahæstu leikmenn: BjörgólfurTakefusa, Þrótti 10 Sören Hermansen, Þrótti 10 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, (BV 9 SteinarTenden, KA 8 Lokaumferðin: 18. umferð Fram-Þróttur lau. 20. sept. kl. 14 Grindavik-KA lau. 20. sept. kl. 14 (BV-lA lau. 20. sepL kl. 14 FH-KR lau. 20. sept. kl. 14 Fylkir-Valur lau. 20. sept. kl. 14 UPP Á LÍF OG DAUÐA: Fram og Valur háðu harða baráttu um síðustu helgi. Bæði lið verða að sigra til þess að bjarga sér frá falli um helgina. Sigur tryggir einnig báðum liðum áframhaldandi sæti í Landsbankadeildinni - sama hvernig aðrir leikir fara. DV-mynd Pjetur Veiðihornið Veiðiveislan heldur áfram í Leirvogsá 18 laxar veiddust fyrir þremur dögum, allir á fluguna Miðað við stangafjölda er Leir- vogsá langbesta veiðiá lands- ins í ár en Laxá á Ásum lokaði fyrir nokkrum dögum og loka- tölur liggja ekki enn fyrir. Núna hafa veiðst 525 laxar í Leirvogsá og 13 dagar eru þangað til ánni verður lokað fyrir veiðimönnum. „Ég er aðeins búinn að veiða tvo laxa núna en það er mikið af fiski héma víða í ánni, veiðimenn sem vom héma í fyrradag veiddu 18 laxa, alla á fluguna," sagði Skúli Skarphéðinsson, veiðivörður við Leirvogsá, þegar við heyrðum í honum á árbakkanum við veiðar. ,Áin hefur gefið 525 laxa; það er mjög gott,“ sagði Skúli. Hann hélt síðan áfram að veiða og fékk skömmu seinna lax. „Leirvogsá er alveg frábær eftekið er dæmi aftíu stanga veiðiá." Leirvogsá er alveg frábær ef tekið er dæmi af tíu stanga veiðiá þá þyrfti hún að gefa 2.500 laxa miðað við tölumar í Leirvogsá. Ég þekki varla slflca laxveiðiá þetta sumarið." 140 laxar í Þverá „Þverá í Fljótshlíð hefur gefið 140 laxa. Menn sem vom þar fyrir fáum dögum veiddu 7 laxa og vom þeir stærstu 12 og 13 pund,“ sagði Hans Guðni Magnússon, aðspurður um stöðuna í Þver- ánni. „Á neðsta svæðinu er sjóbirt- ingurinn byrjaður að gefa sig. Ég hef sjálfúr veitt fjóra sjóbirtinga. Þama á hann ömgglega eftir að veiðast næstu daga og vikur," sagði Hans Guðni enn fremur. G.Bender www.agn.is VEIÐISVÆÐI VIKUNNAR Vikulega er kynnt og boðið nýtt veiðisvæði með miklum afslætti. TILBOÐ VIKUNNAR Verslanir og heildsalar bjóöa vikulega ný tilboð á takmörkuðu magni af úrvalsvörum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.