Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2003, Síða 39
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 39
r
Pardew loksins klár fyrir West Ham
hjá Jason Harden
KNATTSPYRNA: West Ham
hefur loksins gengið frá samn-
ingum við knattspyrnustjórann
Alan Pardew eftir að hans
gamla félag, Reading, hætti við
lögsókn gegn honum fyrir
samningsbrot. Síðan Glenn
Roeder var rekinn eftir 3. um-
ferð 1. deildarinnar í haust hef-
urTrevor Brooking stýrt liðinu
með mjög góðum árangri, fjór-
um sigrum í röð.
Félögin tvö gengu frá deilunni
í réttarsal í gær og hljóðaði
samkomulagið upp á að West
Ham greiddi Reading 380 þús-
und pund fyrir samningslok
Pardew sem átti enn þrjú ár
eftir að samningi sínum við
Reading. Hann náði afar góð-
um árangri með Reading og
kom liðinu upp í 1. deild á síð-
astliðnu tímabili. Pardew mun
þó ekki taka við stjórnun West
Ham fyrr en 18. október, þegar
liðið mætir Burnley. Það þýðir
að Brooking mun stjórna liðinu
í næstu sjö leikjum en það á
enn eftir að tapa leik í ár undir
hans stjórn.
Að sögn var Pardew ánægður
með lyktir málsins og er
spenntur fyrir nýja starfinu.
Þreföld tvenna
KÖRFUBOLTI: KR vann Fjölni,
101-87, í Reykjavíkurmóti karla
ígær og (S vann liðVals,
65-69. KR-ingar hafa unnið alla
þrjá leiki sína en Valsmenn
hafa hins vegartapað öllum
sínum þremur leikjum.
Baldur Ólafsson skoraði 25 stig
og tók 10 fráköst á 24 mínút-
um, Magnús Helgason gerði
12 stig og þeir Arnar Kárason
og Magni Hafsteinsson voru
með 10 stig. Steinar Kaldal var
einnig með 9 stig, 13 fráköst
og 10 stoðsendingar.
Jason Harden var með þre-
falda tvennu hjá Fjölni, 28 stig,
11 fráköst og 12 stoðsendingar
en auk hans skoraði Bjarni
Karlsson 17 stig og Pálmar
Ragnarsson var með 13 en
Fjölnismenn stóðu sig vel og
þvinguðu KR-liðið meðal
annars til að tapa boltanum 30
sinnum í leiknum.
Guðlaugur Eyjólfsson skoraði
17 stig fyrir (S, Guðmundur
Ásgeirsson bætti við 16 og
þjálfarinn, Bjarni Magnússon,
skoraði níu stig en hjá Val skor-
aði Ragnar Steinsson 28 stig
og Ágúst Jensson var með 11
stig.
umtlf
sagði Páll Krístjánsson, fyríríiði bikarmeistara 2. flokks KR
Á þriðjudag fór fram á KR-vell-
inum úrslitaleikur bikar-
keppninnar í 2. flokki karla. Þar
mættust KR og Fram í harðri
rimmu sem lauk með góðum
sigri heimaliðsins, 4-1.
Það má segja að KR-ingar hafi
gert út um leikinn í fyrri hálfleik
þegar þeir skoruðu öll sín mörk.
Kjartan Henry Finnbogason, sem
hefur leikið nokkra leiki með meist-
araflokki liðsins í sumar, skoraði
tvö mörk en þeir Vigfús Arnar Jós-
epsson og Ólafur Páll Johnson hin
tvö. Fyrir þá bláklæddu náði Guð-
mundur Auðunn Auðunsson að
klóra í bakkann þegar skammt var
til leiksloka.
Mikil fagnaðarlæti brutust svo út
í leikslok og það var glaður fyrirliði,
Páll Kristjánsson, sem tók við bik-
amum. DV Sport ræddi við hann
eftir leikinn.
„Fyrst við klúðruðum íslands-
mótinu kom ekkert annað til greina
en að vinna leikinn. Það virðist
nefnilega vera þannig að við séum
yfirleitt með besta hópinn án þess
að vinna neitt - elsti árgangurinn
hefur nefnifega aldrei unnið neitt
með 2. flokki KR og því tilvalið að
ljúka tímabilinu á þennan hátt. Það
var kominn tími til,“ sagði Páll.
Hann bætti því svo við að leik-
„Við erum yfiríeitt með
besta hópinn án þess
að vinna neitt."
mennirnir hefðu skuldað þjálfur-
um sínum, þeim Óskari Hrafni Þor-
valdssyni og Einari Sigurðssyni,
þennan árangur en þeir em báðir
að hætta þjálfun flokksins í haust.
Um leikinn sjálfan sagðist Páll
ánægðastur með baráttu sinna
manna. „Það var gott að byrja leik-
inn af krafti í stað þess að lenda
undir snemma leiks. Við emm
flestir á okkar lokaári í flokknum og
því skipti þessi leikur okkur mikfu
máli.“
eirikurst@dv.is/ooj.sport@dv.is
MARKAHRÓKARNIR:
Þessir þrír skoruöu mörk
KR f úrslitaleiknum. Frá
vinstri eru þeir Vigfús
Arnar Jósepsson, Kjartan
Henry Finnbogason og ,
Ólafur Páll Johnson. í
DV-mynd E.ÓI.
LOKSJJáS, LOKSINS:
Páll KiJstjansspn, fjrrirli^
KR.Jyftir hér bikariuim ?!
KRHyftir hér bikariuim I
góða sem liðid fékk til varð
veislu eftir sigurinn i bikar-
keppninni.
DV-myndir E.OI.
♦