Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR2. OKTÓBER 2003
CrTGAFUFÉLAG: ÚtgáfufélagiS DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRl: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRÍTSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar. auglys-
ingar@dv.is. - Dreiflng: dreifíng@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plðtugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Stóraukið aðhald boðað
í fjárlagafrumvarpinu
- frétt bls. 4
Samkomulag náðist við
Impregilo um uppgjör
- frétt bls. 6
Harkalegar deilur um
bréf Nóbelskáldsins
- fréttir bls. 8-9
Best að spila fyrir
íslendinga
- Menning bls. 12
Vampíra og
veðreiðahestur í bíó
- Tilvera bls. 16-17
Tveggja ára strákur
klessukeyrði bíl
Tveggja ára gamall ástralskur
ökumaður slapp með skrekkinn í
fyrradag þegar hann ók bifreið
móður sinnar gegnum grindverk
og á tvo kyrrstæða gamla bíla sem
stóðu á bflastæði fyrir utan heimili
hans í bænum Rockhampton í
Queensland. Bifreiðin mun vera
ónýt eftir ökuferðina en ökumað-
urinn, sem heitir Ethan Nicol og
eryngstur sjö systkina, hlaut ekki
svo mikið sem skrámu.
Móðirin, Althea Nicol, sagðist
hafa verið í eldhúsinu með vin-
konu sinni og litið út um glugg-
ann þegar hún heyrði lætin. „Eg
sá mér til mikillar skelfingar hvar
Ethan litli kom á fullri ferð í gegn-
um grindverkið. Ég hljóp út og
þegar ég opnaði bíldyrnar lá
hann ómeiddur á gólfinu," sagði
móðirin.
Geir og Halldór á toppnum
Hærri laun
KJARAMÁL: Um 90% félags-
manna í verkalýðsfélögum inn-
an Flóabandalagsins vilja leggja
áherslu á hækkun lægstu launa í
komandi kjarasamningum. Þetta
kemur fram á vef Eflingar og er
þar vitnað til viðhorfskönnunar
sem IMG Gallup. Skattar eru sá
málaflokkur sem flestir nefndu
þegar spurt var um áherslur
gagnvart ríki og sveitarfélögum.
SKOÐANAKÖNNUN: Kjósendur
eru ánægðastir með störf Hall-
dórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra og Geirs H. Haarde fjár-
málaráðherra ef marka má nýja
könnun Gallups. Um 60% segj-
ast ánægð með störf Halldórs
og rétt rúm 59% með störf
Geirs. Ekki er mikil munur á
næstu þremur mönnum; 52,8%
eru ánægð með störf Guðna
Ágústssonar landbúnaðarráð-
herra, 52,7% með störf Jóns
Kristjánssonar heilbrigðisráð-
herra og 52,1% með störf Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra.
Aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinn-
ar eru undir 50% markinu. Um
91,5% kjósenda Sjálfstæðis-
flokks eru ánægð með störf
Davíðs og 81,1% framsóknar-
manna með störf Halldórs.
Jón í bankann
SEÐLABANKI: Jón Sigurðsson
hóf störf sem seðlabankastjóri í
gær. Jón gegnir embætti seðla-
bankastjóra ásamt þeim Birgi (s-
leifi Gunnarssyni og Eiríki
Guðnasyni. Ingimundur Friðriks-
son, sem gegnt hefur starfi
seðlabankastjóra síðustu tólf
mánuði, hverfur aftur í stól að-
stoðarbankastjóra en því starfi
hefur hann gegnt frá árinu 1994.
Réttur fórnarlambs
símadóna er ótvíræður
segir BSRB, sem aðstoðar unga konu við að leita réttarsíns
Réttur konunnar sem missti
vinnu sina í kjölfar þess að hafa
orðið fyrir áreiti símadóna, er
ótvíræður, að mati formanns
BSRB, sem segir jafnframt að
samtökin muni standa á rétti
hennar.
Eins og DV hefur greint frá
missti ung kona, sem er einstæð
móðir, vinnu sfna í kjölfar þess að
hafa orðið fyrir ítrekuðu áreiti
símadóna á staðnum. Það voru
einkum tvær konur í Hrunamanna-
hreppi sem töldu sig hafa orðið fyr-
ir áreitni mannsins sem sendi þeim
fjölmörg SMS-símaboð eða skila-
boð í gegnum tölvu sl. vetur. Þær
gripu til þess úrræðis að leita til
embættis lögreglunnar á Selfossi
um aðstoð við að upplýsa málið.
Leiddi það til þess að konurnar
kærðu manninn. Nálgunarbann
var sett á hann. Það fólst í því að
honum var hvorki heimilt að koma
nærri vinnustöðum kvennanna né
heimilum þeirra.
„Við lítum þetta
mál mjög alvarlegum
augum og það leikur
enginn vafi á því að af
hálfu samtakanna
verður staðið á rétti
viðkomandi
einstaklings.
Manninum var sagt upp störfum
og gerður við hann starfslokasamn-
ingur. Sfðla sumars var hann síðan
ráðinn til sérverkefna á staðnum.
Við þau vann hann ffam á haustið
en þá hélt hann á brott. Önnur
kvennanna gat ekki hugsað sér að
mæta til vinnu meðan hann væri
að sýsla í nágrenninu. Forráða-
menn sveitarfélagsins tilkynntu
henni að ef hún ekki mætti strax
yrði önnur kona ráðin í hennar
stað. Konan skýrði sitt mál en engu
að síður var önnur kona ráðin í
starf hennar um mánaðamótin
september-október.
Forráðamenn sveitarfélagsins
hafa, samkvæmt upplýsingum sem
blaðið hefur aflað sér, sagt henni að
hún geti fengið annað starf en því
vill hún ekki una. Mikil óánægja
hefur verið á vinnustað konunnar,
svo og víðar í sveitarfélaginu, vegna
þessa máls. Hugðist samstarfsfólk
hennar grípa til tfmabundinna að-
gerða henni til stuðnings en af
þeim hefur ekki orðið enn sem
komið er.
„Málið er í athugun hjá Félagi
opinberra starfsmanna á Suður-
landi sem jafnframt hefur flutt það
yfir á vettvang BSRB,“ sagði Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB,
við DV. „Við lítum þetta mál mjög
alvarlegum augum og það leikur
enginn vafi á því að af hálfu sam-
takanna verður staðið á rétti við-
komandi einstaklings. Sá réttur er
ótvíræður að mínu mati, bæði sið-
ferðilega og félagslega. Enn er ég að
vona að lausn finnist og það hið
bráðasta. Að öðru leyti, og á meðan
málið er á þessu stigi vil ég ekki tjá
mig frekar." -JSS
Lögreglan í Neskaupstað segir rannsókn máls á viðkvæmu stigi:
Dularfull skemmdarverk
á jeppahjólbörðum
ÍTÓMU TJÓNI: Lögreglan leitar skemmdarvargsins sem skar langar rifur og
eyðilagði fjögur stór dekk hjá Steinþóri og öðrum bíleiganda. DV-myndÁsgeir
ég geri ekki ráð fyrir að tryggingarn-
ar bæti svona skaða. Ég vona bara
að þetta mál muni upplýsast hjá
lögreglunni - þessir misindismenn
muni nást.“
Ég er ennþá í sjokki.
Þegar ég vaknaði um
morguninn sá ég að
búið var að skera á öll
fjögur dekkin hjá mér.
Hann segir að greinilegt sé að
beittur hnífur hafi verið notaður
enda dekkin gjörónýt með löngum
rifum. Steinþór hvetur þá sem ein-
hverjar upplýsingar geta gefið um
skemmdarverkin til að láta lögregl-
una vita. Undir það tekur lögreglan
í Neskaupstað. -Ótt
Lögreglan í Neskaupstað rann-
sakar mikil skemmdarverk sem
unnin hafa verið á jeppabifreið-
um í bænum.
Hún segir rannsóknina á við-
kvæmu stigi en vill ekki segja neitt
frekar um málið.
Fjórir 35 tommu hjólbarðar voru
skorninr á Toyota pickup-jeppa
sem stóð fyrir utan hús við Strand-
götu, aðalgötuna, aðfaranótt
þriðjudags. Þar eru skemmdir, að
sögn eiganda, á bilinu 120 til 150
þúsund krónur. Ekki mjög langt frá,
eða við Ásgarð, voru svo tveir stórir
hjólbarðar skornir á annarri bifreið.
Þeir sem þekkja til málsins í Nes-
kaupstað eru afar hissa, enda
skemmdarverk sem þessi ekki al-
geng í þessu tiltölulega rólega
plássi.
„Ég er enn þá í
sjokki. Þegar ég
vaknaði um
morguninn sá ég
að búið var að
skera á öll fjögur
dekkin hjá mér,“
sagði Steinþór
Michelsen, eig-
andi bflsins við
Strandgötuna.
Hann segir þetta
afar bagalegt,
enda sé hann at-
vinnulaus og eigi
því lítið fé aflögu
til að kaupa nýja
hjólbarða. „Ég er á
litlum lánsdekkj-
um núna en þetta
er mjög slæmt því