Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Blaðsíða 30
30 DVSPORT FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 -P Magdeburg með fullt hús Ekki útséð um framtíð Micic hjá HK HANDKNATTLEIKUR: Magdeburg, lið Alfreðs Gísla- sonar og Sigfúsar Sigurðsson- ar, er með fullt hús stiga eftir sex leiki í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Magdeburg bar (.sigurorð af Wilhelmshavener, 34-22, í gærkvöld eftir að stað- an hafði verið jöfn, 15-15, í hálfleik. Alfreð Gíslason, þjálf- ari liðsins, hvíldi flesta sína bestu menn í fyrri hálfleik en setti þá alla inn á í síðari hálf- leik og þá var ekki að sökum að spyrja. Þýski landsliðsmað- urinn Stefan Kretzschmar var markahæstur með tíu mörk en Sigfús Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg sem er í öðru sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Kiel sem hefur leik- ið einum leik meira. ÞRJÚ MÖRK: Sigfús Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg. KNATTSPYRNA: Ekki er útséð um það hvort Goran Kristófer Micic muni þjálfa lið HK í 1. deildinni í knattspyrnu á kom- andi tímabili líkt og hann hefur gert undanfarin þrjú ár. Micic á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og hefur ým- iss konar orðrómur verið gangi; að hann hafi sagt upp vegna samstarfsörðugleika eða að honum hafi verið sagt upp. Þorsteinn Einarsson, formaður aðalstjórnar HK, sagði í samtali við DV Sport í gær að hann gæti staðfest það að Micic væri enn þá þjálfari hjá HK. „Við höfum ekki rætt saman síðan tímabilinu lauk en ég hef í hyggju að setjast niður með honum næstu daga og ræða framtíðina. Hann hefur stýrt liðinu í þrjú ár, unnið frábært starf, en ég veit satt að segja ekki hver staðan er. Það verður farið betur yfir hana á næstu dögum og þá kemur þetta endanlega í Ijós. Ég veit ekki einu sinn hvað Goran ætlar sér en það hlýtur að skýrast þegar við hittumst," sagði Þorsteinn Einarsson í samtali við DV Sport í gær. Stutt(gart) gaman Leikmenn Manchester Unitedsóttu ekki gull í greipar Þjóðverja Átta leikir fóru fram í meistara- deild Evrópu í gærkvöld. Manchester United beið lægri hlutfyrir Stuttgart í Þýskalandi, 2-1, og Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í vetur þegar liðið mætti tyrkneska liðinu Besiktas á Stamford Bridge. Tyrkirnir fóru með sigur af hólmi, 2-0, og sat Eiður Smári Guðjohnsen á ' bekknumailantímann hjáChel- sea. Leikmenn Manchester United náðu sér aldrei á strik í Stuttgart og jafnvel mark úr vítaspyrnu frá Ruud Van Nistelrooy gat ekki bjargað þeim. Varnarmistök leikmanna liðsins voru dýrkeypt og segja má að bandaríski markvörðurinn Tim Howard hafi bjargað þeim frá stærra tapi því að hann varði víta- spyrnu frá Fernando Meira tólf ' * mínútum fyrir leikslok. Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Macnhester United, var reiður eftir leikinn og skammaði leikmenn sfna fyrir slælegan varnarleik. „Við vörðumst skelfilega í báðum mörkunum og það er þekkt stað- reynd í leikjum af þessu tagi að ef varnarleikurinn er lélegur þá refsa andstæðingarnir. Við misstum tök- in á leiknum strax í byrjun og gáf- um leikmönnum Stuttgart sjálfs- traust. Við börðumst um bolta sem við hefðum ekki átt að berjast um í stað þess að bfða þolinmóðir við teiginn. Það var dýrkeypt fyrir okk- ur,“ sagði Ferguson. Felix Magath, þjálfari Stuttgart, , var í sjöunda í himni eftir leikinn og lýsti úrslitunum sem einum þeim bestu í sögu félagsins. „Við sýndum að við eigum fullt erindi í þessa keppni og þessi leikur fer í sögubækur félagsins sem einn sá besti í sögunni," sagði Magath eftir leikinn. Velkomnir til jarðar Stjömum prýtt lið Chelsea tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar það beið lægri hlut, 2-0, fyrir tyrk- nesku meisturunum f Besiktas á Stamford Bridge. Það hjálpaði ekki einu sinni að Tyrkirnir léku einum manni færri nær allan síðari hálf- leikinn því að leikmenn Chelsea vom hálfmáttlausir og ógnuðu marki Besiktas aldrei að ráði. „Við vörðumst skelfi- lega í báðum mörkun- um og það er þekkt staðreynd í leikjum af þessu tagi að efvarnar- leikurinn er lélegur þá refsa andstæðingarnir." Miðjumaðurinn snjalli Sergen Yalcin tryggði Besiktas sigur með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla um miðbik hálfleiksins. Refsað fyrir mistök Claudio Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, kenndi einstaklings- mistökum um ófarirnar en hrósaði jafnframt leikmönnum Besiktas fyrir að ná að halda fengnum hlut. „Þegar þú gerir mistök þá er þér refsað fyrir þau,“ sagði Ranieri. „Við byrjuðum vel en gerðum tvö hræðileg mistök í fyrsta og öðm markinu og eftir það róuðu þeir leikinn. Þeir spiluðu mjög vel og það var erfitt fyrir okkur að finna opin svæði. Þegar leikur tapast þá er eitthvað sem klikkar en það er mikilvægt fyrir okkur að læra af reynslunni og reyna að bæta okkur. Það ætluðu allir að vinna leikinn í kvöld, það var augljóst en því mið- ur gekk það ekki,“ sagði Ranieri. Komum sterkir til baka Varnarmaðurinn sterki John Terry sagði að hann og félagar hans myndu koma sterkir til leiks eftir þetta tap. „Við verðum að gera öðmm lið- um erfitt fyrir þegar þau koma í heimsókn. Þeir virtust hafa stjórn á leiknum frá byrjun, þeir héldu bolt- anum vel og gerðu okkur erfitt fyrir. Það vom vonbrigði að bæði mörkin komu eftir varnarmistök og við verðum að fara vandlega yfir þau og laga fyrir næsta leik á sunnudag- inn gegn Middlesbrough. Það er engin pressa á okkur, stuðnings- mennirnir vom frábærir og við munum kom sterkir til baka,“ sagði Terry. Með fullt hús stiga Real Madrid er með fullt hús stiga eftir góðan útisigur á Porto, 3-1. Það blés þó ekki byrlega fyrir spænsku meisturunum, sem léku án Davids Beckhams, því að Porto komst yfir á sjöundu mínútu. Leik- menn Real Madrid rifu sig þó upp og þegar upp var staðið höfðu þeir Ivan Helguera, Santiago Solari og Zinedine Zidane skorað fyrir liðið. Mikill karakter Carlos Queiroz, þjálfari Real Ma- drid, var sáttur eftir leikinn og sér- staklega ánægður með framfarirn- ar frá því í tapleiknum gegn Val- encia um helgina. „Það er engin pressa á okkur, stuðningsmenn- irnir voru frábærir og við munum kom sterkir tilbaka." „Leikmenn mínir sýndu mikinn karakter með því að rífa sig upp eft- ir tapið gegn Valencia. Real Madrid er stórt félag með miklar væntingar og frammistaðan sem sást gegn Valencia er ekki ásættanleg. Það em hins vegar margir frábærir leik- menn í liðinu og þeir sýndu hvað þeir geta í kvöld. Við áttum allan leikinn og áttum skilið að vinna. Ég má þó til með að hrósa leikmönn- um Porto fyrir frammistöðuna því að þeir létu okkur hafa mikið fyrir þessum sigri. Þessi úrslit setja okk- ur í góða stöðu á toppi riðilsins og gefa góð fyrirheit um framhaldið," sagði Queiroz eftir leikinn. oskar@dv.is KURANYI FAGNAR: Kevin Kuranyi, framherji Stuttgart, sést her fagna marki sínu gegn Manchester United í meistaradeildinni i gær en Stuttgart vann óvæntan sigur, 2-1. EVRÓPA MEISTARADEILD E-riðill Stuttgart-Man. Utd 2-1 1-0 Imre Szabics (50.), 2-0 Kevin Kuranyi (52.), 2-1 Ruud van Nistel- rooy, víti (67.). Panathinaikos-Rangers 1-1 0-1 Moises Emerson (35.), 1-1 Pan- telis Konstantinidis (87.). Rangers 2 1 1 0 3-2 4 Man. Utd 2 1 0 1 6-2 3 Stuttgart 2 1 0 1 3-3 3 Panathin. 2 0 1 1 1-6 1 F-riðill Porto-Real Madrid 1-3 1-0 Francisco Costinha (7.), 1-1 Ivan Helguera (28.), 1-2 Santiago Solari (37.), 1-3 Zinedine Zidane (67.). Marseille-P. Belgrad 3-0 1-0 Didier Drogba (62.), 2-0 Didier Drogba (68.), 3-0 Didier Drogba (85.). R. Madrid 2 2 0 0 7-3 6 Marseille 2 1 0 1 5-4 3 Porto 2 0 1 1 2-4 1 P. Belgrad 2 0 1 1 1-4 1 G-riðill Lazio-Sparta Prag 2-2 0-1 Libor Sionko (27.), 0-2 Karel Poborsky (35.), 1-2 Simone Inzaghi (46.), 2-2 Simone Inzaghi, víti (60.). Chelsea-Besiktas 0-2 0-1 Sergen Yalcin (25.), 0-2 Sergen Yalcin (29.). Lazio 2 1 1 0 4-2 4 Besiktas 2 1 0 1 2-2 3 Chelsea 2 1 0 1 1-2 3 S. Prag 2 0 1 1 2-3 1 . H-riðill Celta Vigo-AC Milan 0-0 Ajax-Club Briigge 2-0 1 -0 Wesley Sonck (11.), 2-0 Wesley Sonck (54.). AC Milan 2 1 1 0 1-0 4 Ajax 2 1 0 1 2-1 3 Celta 2 0 2 0 1-1 2 Brugge 2 0 1 1 1-3 1 . f J 1 . D E I L D ENGLAND m Úrslit: Coventry-Crewe 2-0 Nott. Forest-Preston 0-1 West Ham-Crystal Palace 3-0 Staða efstu liða: Sheff. Utd 10 7 2 1 20-10 23 WBA 10 7 1 2 17-10 22 Wigan 10 6 3 1 14-6 21 WestHamlO 6 2 2 13-6 20 Norwich 10 6 2 2 16-11 20 Sunderl. 10 6 1 3 17-10 19 N. Forest 10 5 1 4 16-12 16 Millwall 114 4 3 15-13 16 Cardiff 10 4 3 3 19-12 15 BrynjarBjöm Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Nottingham Forest sem tapaði dýrmætum stigum á heimavelli gegn Preston. oskar@dv. -f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.