Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Page 4
4 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2003 Davíð hvetur „lekann" til að gefa sig fram STEFNURÆÐA: Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að endur- skoða þurfi þingsköp Alþingis eftir að þingmaður lak stefnu- ræðu hans í fréttastofu Stöðvar 2 í vikunni. Annaðhvort fái þingmenn stefnuræðuna ekki afhenta fyrir fram eða aðeins þeir þingmenn sem svara henni á Alþingi. Davíð segir atvikið mjög alvar- legt. „Það er vonandi að þessi til- tekni þingmaður gefi sig fram því að hann heldur náttúrlega grun- semdum yfir öllum öðrum þing- mönnum. Og það sem lakara er, að við- komandi fréttamenn hafa heljar- tak á þessum þingmanni á með- an þetta er leyndarmál. Ef þetta er nýr þingmaður sem hefur ekki þekkt reglurnar væri auðvitað langhollast að biðjast bara afsök- unar á því og skýra það mál, ella er viðkomandi í vondum málum náttúrlega." Davíð segist ekkert ætla að gera til að kanna hvaða þingmaður lak ræðunni. „Það má vel vera," segir hann, spurður um hvort hann gruni hver það sé. (bréfi Davíðs til forseta Alþingis um málið kemur fram að hann telur að það hafi verið ósæmilegt af fréttastofu Stöðvar 2 að birta kafla úr stefnuræðunni sem var merkt trúnaðarmál. Davíð Oddsson forsætisráðherra gengurtil þings í gær. Lögregluþjónar standa heiðursvörð. DV-mynd ÞÖK Frumvarp til fjárlaga 2004 kynnt: Stóraukið aðhald boðað SÁTTUR: „Við viljum hafa vaðið fyrir neðan okkur, ólíkt sumum öðrum sem vilja hafa svaðið fyrir neðan sig," sagði Geir H. Haarde fjár- málaráðherra þegar hann kynnti fjárlagafrumvarpið í gær. Langtímaáætlun um ríkisfjármálin kynnt í gær: Ríkisútgjöld aukist um 7% á kjörtímabilinu Tekjuafgangur ríkissjóðs án til- lits til óreglulegra liða verður 14,6 milljarðar á næsta ári sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi sem Geir H. Haarde fjármálaráð- herra kynnti í gær. Þetta er margfalt meiri afgangur en gert er ráð fyrir á þessu ári. Óreglulegir liðir eru meðal ann- ars hagnaður af sölu eigna (einka- væðingj, gjaldfærðar lífeyrisskuld- bindingar og afskriftir skattkrafna. Ef litið er fram hjá þessu og aðeins horft á „reglulega" liði var stefnt á 5 milljarða tekjuafgang í fjárlögum fyrir þetta ár en áætlun gerir ráð fyrir að hann verði aðeins 1,7 millj- arðar. í fjárlögum fyrir næsta ár er sem fyrr segir stefnt að því að hann verði 14,6 milljarðar. 6,4 milljarða afgangur Að teknu tilliti til óreglulegra liða er hins vegar gert ráð fyrir 6,4 millj- arða afgangi. Til samanburðar var stefnt að 9,4 milljarða afgangi í íjár- lögum þessa árs en hann verður samkvæmt nýjustu áætlun 6,2 milljarðar. Árin 2005-2007 verður um 20 milljörðum króna varið tilskatta- lækkana og allt að 3 milljörðum til verkefna á borð við hækkun barnabóta. Reynslan - m.a. þróun mála á þessu ári - sýnir að oftar en ekki verður afkoman lakari en stefnt er að í fjárlögum. í því ljósi mætti segja að ekki sé gæfulegt að setja markið á minni afgang en í síðustu fjárlögum. Hins vegar ber að hafa í huga að á þessu ári fær ríkissjóður 13 milljarða í óreglulegar tekjur. Á næsta ári er hins vegar aðeins gert ráð fyrir óverulegum óreglulegum tekjum. Segja má að markmið frumvarpsins um 6,5 milljarða tekjuafgang sé fyrir vikið metnað- arfyllra en markmið frumvarpsins í fyrra. Það er - a.m.k. að hluta - til marks um meira aðhald í rekstri, þótt auknar tekjur vegna uppgangs í efnahagslífinu hafi einnig áhrif. Hvar er sparað? Útgjöld ríkissjóðs standa nokkurn veginn í stað á milli ára og lækka raunar að raungildi. For- senda þess eru einkum sérstakar ráðstafanir sem eiga að spara alls 3,7 milljarða. Útgjöld til sjúkratrygginga eiga að lækka um 740 milljónir, einkum vegna lyfjakostnaðar, hjálpartækja og sérfræðilæknisaðstoðar. Vaxta- bætur eiga að lækka um 600 millj- ónir þar sem lagt er til að hámark vaxtagjalda til útreiknings bóta miðist við 5,5% í stað 7% af skuld- um vegna íbúðakaupa. Lækka á út- gjöld ríkissjóðs um 500 milljónir til viðbótar með því að hverfa frá end- urgreiðslu hluta af tryggingagjaldi til atvinnurekenda vegna viðbótar- lífeyrissparnaðar launþega. Aðrar 100 milljónir eiga að sparast með 1% hagræðingarkröfu til stjórn- sýslustofnana. Þá er gert ráð fyrir að atvinnuleysisbætur lækki um 170 milljónir þar sem lagt er til að ekki verði greiddar bætur fyrstu þrjá dagana frá skráningu. Loks eru framlög til vegagerðar lækkuð um 1 mQljarð króna miðað við fjárlög þessa árs og framlög tQ ýmissa stofnkostnaðarverkefna og tækjakaupa ríkisstofnana um 500 milljónir. Aukin útgjöld Á móti kemur að framlög til líf- eyristrygginga aukast um 17%, meðal annars vegna samkomulags við samtök aldraðra um hækkun tekjutryggingar. Framlög tQ heil- brigðismála aukast um 8% og er þar bæði um að ræða „venjulega" hækkun rekstrarkostnaðar og auk- in útgjöld tQ byggingar öldrunar- stofnana. Útgjöld tQ menntamála aukast og verður m.a. 6% hækkun á framlögum til framhalds- og há- skóla. Skuldir (og vaxtagjöld) lækka Gert er ráð fyrir að á næsta ári fari heQdarskuIdir rfidssjóðs niður í 31,5% af vergri landsframleiðslu. Til sambanburðar voru þær yfir 50% árið 1995 en hafa farið stöðugt lækkandi síðan, ef frá er talið árið 2001. Vaxtakostnaður ríkisins hefur að sama skapi farið lækkandi. Nettó- vaxtagjöld voru 7,7 mQljarðar árið 1998 (á verðlagi þess árs) en verða líklega 900 milljónir á þessu ári og aðeins 100 mQIjónir á því næsta samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Skattalækkanir 2005-2007 Með frumvarpinu var nú í fyrsta sinn kynnt langtímaáætlun sem byggir á pólitískri stefnumörkun sem ríkisstjórnin hefúr fjallað um. Þar kemur fram að árin 2005-2007 verði um 20 mQljörðum króna var- ið til skattalækkana og allt að 3 mQljörðum tQ tiltekinna verkefna, svo sem til hækkunar barnabóta. Geir Haarde vísaði í gær tQ stjórn- arsáttmálans varðandi útfærslu á skattalækkunum en þar er m.a. QcQlað um lækkun tekjuskattspró- sentunnar, niðurfellingu eigna- skatts og endurskoðun á virðis- aukaskattskerfinu. í langtímaáætluninni kemur einnig fram að afgangur ríkissjóðs eigi ekki að vera undir 1,75% af landsframleiðslu árið 2005 og 1% árið 2006. TQ samanburðar er stefnt að 0,75% afgangi á næsta ári. Þá er stefnt að því að ríkið dragi úr framkvæmdum um 3 milljarða króna árið 2005 og 2 mQljarða árið 2006, en auki þær aftur um 3 mQlj- arða 2007 og 2 mifijarða 2008. Þetta er gert til að draga úr efnahagsleg- um áhrifum stóriðjuframkvæmd- anna á Austurlandi. Geir H. Haarde fjármálaráðherra sagði í gær að þrátt fyrir umtals- verðan hagvöxt, sem spáð er á næstu árum, yrði þenslan ekki meiri en svo að stöðugleikinn væri tryggður. olafur@dv.is Útgjöld ríkissjóðs dragast saman að raungildi á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu sem kynnt var í gær, en samkvæmt langtímaáætlun aukast þau um 7% að raun- gildi til ársins 2007. Áætlunin er sýnd í meðfylgj- andi töflu. Þar sést að áætlað er að útgjöldin hækki - á verðlagi hvers árs - um ríflega 10 milljarða á milli áranna 2004 og 2005, um tæplega 20 milljarða tQ viðbótar árið 2006 og um 22 milljarða árið 2007. Alls hækka útgjöldin úr 273 milljörðum 2004 í ríflega 325 milijarða 2007, á verðlagi hvors árs. Þetta er um 19% hækkun en DV bað embættismenn í fjármála- ráðuneytinu að reikna út hver hún er að raungildi, þ.e. að teknu tilliti til verðbólgu. Svarið er að frá 2003 til 2007 hækka ríkisútgjöld um 7% að raungildi, eða um u.þ.b. 1,75% á ári. Þess má geta að hækkunin væri heldur meiri ef miðað væri við 2004 en ekki 2003, þar sem útgjöldin lækka að raun- gildi á milli þessara ára. Hafa ber f huga að hækkunin er minni - ef þá nokkur - sem hlut- fall af landsframleiðslu, sem eykst umtalsvert á þessu tímabili. olafur@dv.is LANG TÍMAÁÆTLUN í RÍKISFJÁRMÁLUIVl: / milljöröum króna á verölagi hvers árs. Frumvarp 2004 Tekjur 279,4 Áætlun 2005 300,0 Áætlun 2006 312,8 Áætlun 2007 319,7 Breyting 14,4% Gjöld 273,0 284,7 303,2 325,4 19,2% Tekjujöfnuður 6,4 15,4 9,6 -5,7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.