Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Síða 11
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2003 FRÉTWt 11
FBI á leið í Hvíta húsið
Efast um vísindin
UPPLÝSINGALEKI: Útsendarar
bandarísku alríkislögreglunnar
FBI eru á leið í Hvíta húsið til
að reyna að komast til botns í
því hver nafngreindi konu
eina sem starfar fyrir leyni-
þjónustuna CIA. Slíkt athæfi er
refsivert samkvæmt banda-
rískum lögum. Eiginmaður
konunnar hafði gagnrýnt
málatilbúnað Bush forseta fyr-
ir Iraksstríðið.
Embættismenn í Hvíta húsinu
sögðu í gær að hver sá sem
byggi yfir upplýsingum um
lekann skyldi koma þeim til
dómsmálaráðuneytisins. Þegar
er byrjað að leita gagna í tölv-
um forsetaembættisins.
Einn helsti ráðgjafi Bush, Karl
Rove, var um tíma efstur á lista
grunaðra en hann þvertekur
fyrir að hafa lekið.
fhaldssamur dálkahöfundur,
Robert Novak, greindi fyrstur
manna frá nafni CIA-konunn-
ar. Hann segir að upplýsing-
arnir hafi komið frá starfs-
manni CIA en ekki úr Hvíta
húsinu. Mál þetta er hið vand-
ræðalegasta fýrir Bush þar
sem enn hafa engin gjöreyð-
ingarvopn fundist í Irak.
LOFTSLAG: Ráðgjafi Vladimírs
Pútíns Rússlandsforseta setti í
gær fram efasemdir um vís-
indin sem liggja til grundvallar
Kyoto-samningnum um lofts-
lagsbreytingar af völdum
gróðurhúsalofttegunda. Vís-
indamönnum var mörgum
hverjum ekki skemmt.
Samningurinn mun ekki öðl-
ast gildi nema með stuðningi
ráðamanna í Moskvu. „Við
þurfum svör," sagði Andrei
lllaríonov, ráðgjafi Pútíns, á
loftslagsráðstefnu sem haldin
er í Moskvu þessa dagana.
Pútín sagði sjálfurá mánudag
að Rússar þyrftu meiri tíma
áður en þeir tækju ákvörðun.
Þar með gekk hann á bak fyrri
orða um að samningurinn yrði
staðfestur á næstunni.
Rúmenskur sígaunakóngur stendur fast á sínu:
Neitar að hafa þvingað tólf
ára dóttur sína í hjónaband
Rúmenski sígaunakóngurinn
Florian Cioaba þvertók fyrir
það í gærkvöld að hafa þvingað
tólf ára gamla dóttur sína til að
giftast fimmtán ára pilti. Málið
hefur vakið mikla athygli í bæði
Rúmeníu og erlendis.
„Börnin vildu þetta og foreldr-
amir féllust á ráðahaginn. Þetta var
ekki nauðungarhjónaband," sagði
Florian kóngur í þætti í rúmenska
sjónvarpinu í gærkvöld þar sem
hjónakornin komu bæði fram og
staðfestu að þau hefðu viljað þetta.
Hundmð gesta og fjöldi frétta-
manna urðu hins vegar vitni að því
á laugardag þegar Ana-Maria
prinsessa reyndi árangurslaust að
flýja af hólmi þegar kom að stóm
UMDEILT HJÓNABAND: Rúmensk stjórn-
völd hafa hafið rannsókn á umdeildu
hjónabandi hinnar 12 ára gömlu sígauna-
prinsessu Önu-Mariu og 15 ára pilts.
stundinni f borginni Sibiu í Tran-
sylvaníu.
Bæði Evrópusambandið og rúm-
enskir embættismenn hafa for-
dæmt hjónabandið. Rúmenar hafa
áhuga á að komast inn í ESB árið
2007 og er þetta mál því vandræða-
legt fyrir stjórnvöld.
Ana-Maria hafði gert það ljóst að
hún væri andvíg hjónabandinu
þegar hún flúði kirkjuna. Hún
komst ekki langt og fjölskylda
hennar fylgdi henni aftur þangað.
Síðar um kvöldið var brúðkaups-
gestum sýnt lak með blóðblettum
sem tákn um að hjónabandið hefði
verið fullkomnað með samræði.
Rúmensk stjórnvöld hafa ákveð-
ið að fram fari rannsókn á hjóna-
bandi ungmennanna.
Grunaður morðingi Önnu Lindh:
Þykist vera
geðsjúkur
Lögreglu og saksóknara í Sví-
þjóð grunar að maðurinn sem
talinn er hafa myrt Önnu Lindh
utanríkisráðherra geri sér upp
geðveiki til að verða úrskurðað-
ur til vistunar á réttargeðdeild
en ekki dæmdur í lífstíðarfang-
elsi ella.
Sænska blaðið Expressen hefur
það eftir heimildarmanni sínum í
dag að hinn 24 ára gamli Mijailo
Mijailovic hafi hagað sér afar ein-
kennilega.
Aftonbladet segir í dag að
Mijailovic hafi lagt eld að fötum
sínum eftir morðið á Önnu Lindh.
Morguninn eftir morðið játaði
hann á sig verknaðinn fyrir móður
sinni.
Stakk og stakk og stakk
„Það var ég sem gerði þetta,"
sagði Mijailovic við móður sína.
„Ég bara stakk og stakk og stakk."
Hann mun einnig hafa greint
fleirum frá því sem hann gerði.
Við yfirheyrslur hjá lögreglunni
hefur Mijailovic aftur á móti neitað
aðild að morðinu. Lífsýni af morð-
vopninu mun þó vera úr mannin-
um, að því er sænsk blöð hafa skýrt
frá. Endanleg niðurstaða mun hins
vegar ekki liggja fyrir fyrr en næst-
komandi þriðjudag.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um, sem hér segir:
Stillholt 2, fastanúmer 210-1339, Akra-
nesi, þingl. eig. Gunnar Kristinn Bald-
ursson, gerðarbeiðendur Akranes-
kaupstaður, Húsasmiðjan hf. og Út-
gáfufélagið DV ehf., miðvikudaginn 8.
október 2003 kl. 11.00._
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
ERFIÐUR: Grunaður morðingi Önnu Lindh,
utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur ekki ver-
ið samvinnuþýður við lögregluna og neit-
ar sök. Lögreglan er þó viss um að hafa
rétta manninn i haldi að þessu sinni.
Einstæð móðir, vinkona hins
grunaða, segir við Aftonbladet að
hann hafi komið í heimsókn tii sín
nokkrum klukkustundum eftir
árásina á utanríkisráðherrann í
vöruhúsinu NK í Stokkhólmi.
Uppboð
Eftirtaldið lausafé verður boðið
upp að Brúartorgi 8 fimmtudag-
inn 9. október 2003 kl. 17.00,
hafi beiðnirnar ekki verið aftur-
___________kallaðar._________
Gorgi affelgunarvél 312 0655,
Gorgi affelgunarvél 452 2445
Gorgi affelgunarvél án númers,
Gorgi affelgunarvél án númers,
Mondolfo Ferro affelgunarvél 1754,
Cemb C 32 balance-vél 843860,
Gorgi E T-66 balance-vél 6072143,
Brannick glennari
Shamal 2936 loftpressa.
SÝSLUMAÐURINN í BORGARNESI
HÚSAFRIÐUNARNEFND
RÍKISINS
auglýsir eftir umsóknum til Húsafriðunarsjóðs vegna endurbóta
á friðuðum eða varðveisluverðum húsum.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
1. undirbúnings framkvæmda, áætlanagerðar og
tæknilegrar ráðgjafar.
2. framkvæmda til viðhalds og endurbóta.
Enn fremur eru veittir styrkir til byggingarsögulegra rannsókna,
útgáfu þeirra og húsakannana.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. desember 2003 til
Húsafriðunarnefndar ríkisins, Lyngási 7, 210, Garðabæ, á
umsóknareyðublöðum sem þarfást. Eyðublöðin verða póstlögð
til þeirra sem þess óska. Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin
á heimasíðu Húsafriðunarnefndar, www.husafridun.is.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 530 2260 milli kl. 10.30
og 12.00 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins