Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Síða 29
28 DVSPORT FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2003 DV Sport Keppni í hverju oröi Netfang: dvsport@dv.is Simi: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 Massey kemur KÖRFUBOLTI: Bandaríkjamað- urinn Kyrem Massey, sem hyggst spila með Blikum í vet- ur, kemur til fslands í dag en Blikar hafa beðið komu hans lengi. Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari Blika, hefur því um viku til þess að koma Massey í stand því fyrsti leikur Blika í deildinni er 9. október gegn KR. Massey er 24 ára framherji ídag og 196 sm á haeð. Hann lék með Kent State-háskólanum þar sem hann var byrjunarliðs- maður (111 leikjum af þeim 116 sem hann lék með skólan- um. Síðustu tvö ár hefur hann leikið í lægri deildum í Banda- ríkjunum. Massey þykir fjöl- hæfur leikmaður. Hann er sterkur í vörn og getur leikið jafnt inni í teig sem utan. Hreyfingar i NBA KÖRFUBOLTI: NBA-liðin Memphis Grizzlies og Phoenix Suns skiptu á leikmönnum í gær. Grizzlies losuðu sig við Brevin Knight, Robert Archi- bald og Cezary Trybanski yfir til Suns en fengu í staðinn Bo Outlaw og JakeTsakalidis. Mi- ami bætti við sig manni líka í gær þegar gerður var samn- ingur við Cherokke Parks. Hou- ston Rockets fengu Jim Jackson frítt þar sem hann var með lausan samning og los- uðu sig í leiðinni við Glen Rice en hann var sendur til Utah. Fyrir Rice fengu þeir Bretann John Amaechi sem og valrétt í annarri umferð nýliðavalsins. Svo hefur miðherjinn Chris Dudley gefið það út að hann sé hættur eftir 16 ár í deildinni. Collymore íhugar endurkomu KNATTSPYRNA: Vandræða- gemlingurinn Stan Collymore lýsti því yfir í gær að hann væri alvarlega að íhuga að taka fram skóna á nýjan leik en tvö ár eru síðan hann lagði þá á hilluna. „Sú staðreynd að félög hafa verið að sýna mér áhuga hefur kveikt í mér á nýjan leik," sagði Collymore við breska blaða- menn í gær. „Ég meinti það þegar ég sagðist vera hættur á sínum tíma en ég mun alvar- lega íhuga öll tilboð sem ber- ast en það verður að vera rétt tilboð fyrir báða aðila. Annars er þessi ákvörðun hjá mér ekki tekin af peningalegum ástæð- um helduralgjörlega affót- boltalegum ástæðum," sagði Stan Collymore. PENINGAR EÐA METNAÐUR? Collymore íhugarendurkomu. FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER2003 DVSPORT 29 Robson ekki að hætta KNATTSPYRNA: Gamla brýnið Bobby Robson blæs á allar sögusagnir þess efnis að hann sé að hætta með lið Newcastle en liðið hefurfarið hörmulega af stað í ensku deildinni í vetur og er enn án sigurs. „Ég hef aldrei stokkið frá borði áður né neitað góðum slag í fótbolta þau 50 ár sem ég hef verið í bransanum," sagði Robson. „Þegar ég fyrst heyrði sögur af því að ég væri hættur þá varð mér óglatt. En svo hló ég því þetta var fáránlegt." Freddie Shepard, stjórnarformaður Newcastle, sagði síðar að ekk- ert væri hæft í því að Robson myndi hætta. „Bobby er Newcastle-maður og eins og allir sannir Newcastle-menn þá leggur hann ekki árar í bát." FÁRÁNLEGT: Robson segist ekki ætla að hætta. Arnar hetja FH-inga þegar þeir slógu Gróttu/KRúr bikarnum í bráðabana FH-ingar tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar með sigri á Gróttu/KR, 33-32, í hreint mögnuðum bikarleik. Úrslitin réðust ekki fyrr en í bráðabana þar sem Arnar Pét- ursson tók af skarið í fyrstu sókn með því að brjóta sér leið fram hjá varnarmönnum Gróttu/KR og skora. Allt frá upphafi var ljóst hvert stefndi, jafnt var á nær öllum tölum lengi vel nema hvað Grótta/KR komst í 6-3 eftir sjö mínútna leik. Varnir beggja liða voru úti á þekju til þess að byrja með og mikill hraði einkenndi leikinn. Grótta/KR fór að spila 6-0 vörn með góðum árangri og FH-vörnin fann fljótlega svör við öllum sóknaraðgerðum Gróttu/KR nema þegar kom að Gintaras sem var óstöðvandi lengst af. Seinni hálfleikur var spilaður af meiri varfærni þar sem varnirnar voru í aðalhlutverki. FH-ingar gripu til þess ráðs að taka Gintaras úr umferð þegar hann var kominn með 11 mörk og seinni hálfleikur rétt nýbyrjaður. Það gaf góða raun og tókst FH-ingum að breyta stöð- unni úr 19-17 í 19-21. FH-ingar voru hins vegar ekki nógu þolin- móðir en Gísli Guðmundsson var í svakalegum ham í marki Gróttu/KR sem komst á ný yfir. Gísli varði vítakast frá Magnúsi Sig- urðssyni þegar 10 sekúndur voru eftir en Guðmundur Pedersen tryggði FH-ingum framlengingu með því að skora beint úr innkast- inu sem á eftir fylgdi. í fyrri framlengingunni var það Gintaras sem tryggði Gróttu/KR aðra framlengingu með langskoti þegar skammt var eftir og í þeirri síðari leit allt út fyrir sigur heima- manna sem komust í 32-29. FH- ingar nýttu síðustu fimm mínút- urnar vel og jöfnuðu í 32-32 með „Við erum undirþegar við byrjum að taka Gintaras úr umferð og það gekk að vissu leyti upp en annars var leik- urinn jafn allan tímann og þetta gat fallið báð- um megin." skynsamlegum leik á meðan leik- menn Gróttu/KR fóru oft illa að ráði sínu. „Þetta var alvöru leikur sem gat dottið báðum megin, við vorum yf- ir í framlengingunni en svo misstum við það niður og náðum að jafna. Við vinnum síðan hlut- kestið og náum að skora. Ég er mjög ánægður með að við skyldum ná að jafna og knýja fram sigur eft- ir að hafa lent þremur mörkum undir í seinni framlengingu. Við er- um undir þegar við byrjum að taka Gintaras úr umferð og það gekk að vissu leyti upp en annars var leikur- inn jafn allan tímann og þetta gat fallið báðum megin," sagði Þor- bergur Aðalsteinsson, þjálfari FH, í leikslok. Tveir menn drógu vagninn fyrir Gróttu/KR, Gísli Guðmundsson varði frábærlega eða alls 34 skot og Gintaras Savukynas skoraði 15 mörk og var potturinn og pannan í sóknarleik Gróttu/KR. Ekki má gleyma því að vörnin var mjög öfl- ug á köflum og fyrirliðinn Magnús Agnar Magnússon var liðinu mikil- vægur á lokakaflanum. FH-liðið var mun jafnara, Guðmundur Peder- sen og Valgarð Thoroddsen voru atkvæðamestir til þess að byrja með og í seinni hálfleik vaknaði Arnar Pétursson til lífsins ásamt Magnúsi Sigmundssyni í markinu. Mörk Gróttu/KR: Gintaras Savu- kynas 15/1, Brynjar Hreinsson 6, Magnús A. Magnússon 5, Páll Þór- ólfsson 3/2, Kristján Þorsteinsson 2, Sverrir Pálmason 1. Varín skot: Gísli Guðmundsson 34/1. Mörk FH: Valgarð Thoroddsen 7, Guðmundur Pedersen 6/2, Magnús Sigurðsson 6/6, Arnar Pétursson 5, Svavar Vignisson 4, Ólafur Björns- son 2, Sigurður Þorgeirsson 2, Pálmi Hlöðversson 1. Varin skot Magnús Sigmunds- son 20/1. Gríðarleg barátta þegar Víkingur lagði Stjörnuna Víkingur sigraði Stjörnuna í 32 liða úrsiitum SS-bikarsins í Ás- garði í gærkvöld. Lokatölur urðu 22-24 í spunakenndum leik þar sem dómararnir léku sitt hlutverk til enda, líkt og leikmenn allir; allt var á suðu- punkti og barátta beggja liða gekk stundum úr hófi fram. Stjarnan byrjaði leikinn af krafti og náði fljótíega góðri forystu, 7-4. Víkingar létu mótstöðuna ekki slá sig út af laginu og þrátt fýrir að verða fyrir áfalli um mið- bik fyrri hálfleiks, þegar Bjarki Sig- urðsson fór meiddur af leikvelli, náðu þeir að berja sig saman og þegar flautað var til hálfleiks höfðu þeir náð tveggja marka for- ustu, 12-14. Reynir ÞórReynisson lokaði þá markinu og þrátt fyrir mörg opin færi náðu Stjörnu- menn ekki að koma knettinum í markið. f upphafi síðari hálfleiks var hið sama upp á teningnum og komust Víkingar í 13-18. Stjörnu- menn tóku leikhlé og með góðri baráttu skoruðu þeir fjögur mörk í röð og áttu möguleika á að jafna leikinn, en Gústaf Bjarnason lét Reyni verja frá sér og við það náðu Víkingar undirtökunum f leiknum að nýju. Stjörnumenn voru samt aldrei langt undan en þrátt fyrir mikla dramatík undir lokin, þar sem allt var á suðu- punkti og tíðir brottrekstrar leik- manna settu mark sitt á leikinn, náðu Víkingar að tryggja sér sigur og áframhaldandi þátttöku með- an Stjörnumenn sitja eftir með sárt ennið og eru úr leik í SS-bik- arnum. „Við sýndum ótrúlegan karakt- er og ég er virkilega ánægður með strákana og hvernig við þurftum „Við sýndum ótrúlegan karakter og ég er virki- lega ánægður - hvern- ig við þurftum að ganga í gegnum hvert mótlætið aföðru og alltaf urðum við sterk- ari og sterkari." að ganga í gegnum hvert mótíætið af öðru og alltaf urðum við sterk- ari og sterkari. Við sýndum það að við erum með breiðan og góðan hóp, fullt af efnilegum strákum, og þeir stóðu sig í kvöld," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Vík- inga, að leik loknum. „Það eru öll töp slæm, en það er leiðinlegt að tapa í leik þegar þjálfari fær að rífa kjaft á línunni og það virkar; ég skU ekki að það skuli ganga upp. Dómaramir dæmdu þennan leik ágætíega en við vorum sauðir og klúðruðum þessu sjálfir. Þó að sóknarleikur- inn væri agaður klúðruðum við hverju dauðafærinu á fætur öðm, en Reynir stóð sig mjög vel í mark- inu hjá Vfkingum og á þennan sig- ur þeirra. Ég er mjög ósáttur við markvörsluna hjá okkur þar sem vörnin stóð sig vel," sagði Sigurð- ur Bjarnason, þjálfari Stjörnunn- ar. Mörk Stjömurman Þórólfur Nielson 5/1, Vilhjálmur Halldórs- son 3/1, Arnar Jón Agnarsson 3, Björn Friðriksson 3, Kristján Krist- jánsson 2, Arnar Theódórsson 2, David Kekelia 2, Gústaf Bjarnason 2/1. Varrn skot: Jacek Kowal 3, Guð- mundur Karl Geirsson 2. Mörk Vúríngs: Andri Haralds- son 8/2, Benedikt Árni Jónsson 5, Þröstur Helgason 4, Þórir Júlíus- son 2, Ragnar Hjaltested 2, Björn Guðmundsson 1, Karl Grönvold 1, Bjarki Sigurðsson 1. Varin skot Reynir Þór Reynis- son 22/2. þaþ Haukar tapsins qeqn HK í síðustu viku Leikur íslandsmeistara Hauka og bikarmeistara HK á Ásvöll- um í gær náði aldrei þeim hæð- um sem margir höfðu vonasttil. Vörn og markvarsla liðanna var ágæt en sóknarleikur beggja liða var á frekar lágu plani og þá sérstaklega hjá Kópavogsbú- um. Haukar voru alltaf ívið sterkari og sigur þeirra var í raun aldrei í hættu og unnu þeir að lokum með fimm mörkum, 28-23. HK-menn héngu þó ágætíega í heimamönnum til að byrja með og þá fyrst og fremst fyrir tilstilli Alex- anders Arnarsonar sem fór mikinn á línunni. Hann skoraði hvert markið á fætur öðru og öll voru þau eins. Vippur sem voru farnar að fara verulega í taugarnar á Birki fvari. Stórskyttur Hauka voru væg- ast sagt mjög hljóðar og fékk maður á tilfinninguna að þær þyrðu ekki að skjóta á mark HK. Þess í stað hélt Þorkell Magnússon þeim inni í leiknum ásamt Birki fvari mark- verði. Haukar höfðu þriggja marka for- ystu í leikhléi og það var ljóst strax í upphafi síðari hálfleiks að þeir ætí- uðu ekki að láta forystuna af hendi. Skytturnar vöknuðu af dvalanum og fóru loks að skjóta á markið. Vörnin small enn betur saman og fyrir vikið náðu Haukar góðum hraðaupphlaupum sem gerðu þeim kleift að halda HK-mönnum í hæfilegri fjarlægð. Það gerðu þeir allt til enda og unnu verðskuldaðan og öruggan sigur. Leikur íslandsmeistaranna var ekki mjög rishár að þessu sinni. Vörnin virkar ágætíega hjá þeim og Birkir ívar var í ágætu formi fyrir aftan hana. Þeir gerðu sér þó ekki auðveldara fyrir með sífelldum brottrekstrum og þar gaf Viggó Sig- urðsson, þjálfari liðsins, lærisvein- unum ekkert eftir en hann nældi sér í 2 mínútna brottvísun í leikn- um fyrir óíþróttamannslega hegð- un. Sóknarleikur liðsins er langt frá því að vera fullslípaður en hann var hægur og máttlaus að þessu sinni og augljóst var að skyttur liðsins vantaði nokkuð af sjálfstrausti enda voru þeir með eindæmum ragir við að skjóta á markið á löng- um köflum. Þeir þurfa að bæta sig Dómarar: Guöjón L. Sigurðsson I JmgVfKHL og Olafur Haraldsson. rb, 8/10 Gæöi leiks: 3/10 1 Ahorfendur: 350. Besturávellinum: Þorkell Magnússon, Haukum Gangur leiksins: 0-1, 3-3, 7-4,8-7,11 -8, (14-11), 15-11, 17-12,18-16, 22-20,24-22, 27-22, 28-23. KYSSTU MIG: Það er engu líkara en Litháarnir, Augustas Strazdas úr HK oq Haukamaðurinn Robertas Pauzolis séu hér í Ijúfum ástaratlotum en svo er nú aldeilis ekki því þeír tóku hressilega á hvor öðrum á Ásvöllum i gær og var lítil ást í þeim átökum. OV-mí/rsd f. Ó/. HAUKAR-HK 28-23 (14-11) Matthías Árni Ingimarsson 4; , 0 i slökum leikí Hafnarfirði Dalius Rasakevicius 2(4)0 Þórir Ölafsson 2(4)0 Pétur Magnússon 1(1)1 Andri Stefan 0(1)0 mikið þar ef þeir ætla ekki að fá skell gegn Barcelona um næstu helgi. HK-liðið er á uppleið eftir slaka byrjun. Vörnin er að smella saman hjá því og ekki var hægt að kvarta mikið yfir henni í gær. Hörður Flóki var öflugur f síðari hálfleik og lagði sitt af mörkum til að koma liðinu inn í leikinn. Það gekk ekki eftir þvf sóknarleikurinn var skelfilegur. Boltinn gekk hægt og illa milli manna og einu mennirnir sem lögðu í að skjóta á markið voru Lit- háarnir en þeir máttu sín lítils gegn Haukaliðinu. Vilhelm Gauti komst aldrei í gang og fór snemma af velli. f hans stað kom Haukur Sigurvinsson sem hafði lítið fram að færa enda leit hann vart út fyrir að vera í formi til þess að leika í efstu deild. Þar af skoruðu þeir aðeins úr einu hraða- upphlaupi og fiskuðu ekki eitt ein- asta víti og slíkt dugar ekld gegn Haukum. Vörnin góð „Við náðum okkur ekki alveg á strik í sókninni en vörnin var fín og við héngum f þeim lengstum en það vantaði herslumuninn," sagði Árni Stefánsson, þjálfari HK, eftir leikinn. „Við erum enn að slípa okkur saman og það má ekki gleyma því að okkur vantar enn Ólaf Vi'ði en ég hef engar áhyggjur af þessu. Varn- arleikurinn sem við spilum er frá- bær og ég er mjög ósáttur við þau skrif sem ég hef fengið hjá ykkur um að við séum einhvetjir grófir ruddar. Ég er mjög ósáttur við það því það er bara rugl." Páll Ólafsson, aðstoðarþjálfari Hauka, var nokkuð sáttur í leikslok. „Við áttum engan glansleik en það var samt góð barátta. Markvarslan hefur verið betri hjá okkur, vörnin stóð vel og sóknin rúllaði svona þokkalega og þetta er allt á leið í rétta átt," sagði Palli og játaði að leikmenn Hauka hefðu verið hræddir við Hörð Flóka. „Menn voru ragir. Hörður hefur verið okkur erfiður og varði eins og brjálæðingur í sfðasta leik þannig að menn eru enn með smá móral gagnvart honum en sem betur fer yfirstigum við það og kláruðum leikinn." henry@dv.is Jón Karl Björnsson 0 (2/210 Samtals: 28/3 (43/6) 7 Fiskuð vfti Matthlas Arnl Ingimarsson 2 Þorkell Magnússon Dalius Rasakevicius 2 1 Halldór Ingólfsson 1 Varin skot/þar af víti (skot 4 sig/vttí) Birkir Ivar Guðmundsson 17 44% Þóröur Þórðarson Brottvfsanin 16 mlnútur. 1 (2) 50% Mörk/ þar af víti (skot/vfti) Hraöaupphl. Andrius Rackauskas 6(16 0 Augustus Strazdas Alexander Arnarson 6(11)0 5(6)1 Ellas Már Halldórsson Már Þórarinsson 4(6)0 2,60 Brynjar Valsteinsson Samúel Árnason 0(2)0 00(0 Atli Þór Samúelsson Vilhelm Gauti Bergsveinsson o o o o Haukur Sigurvinsson Samtals: 0(2)0 23(45)1 Varln ikot/þar af vlti (ikot é *ig/vHI) Hörður Flóki Ólafsson 17/2 .(1/J 40% Björgvin Gústavsson Brottvlsanln 10 mlnútur. 1/1 (3/2)33% Selfyssingar sáu rautt gegn KA Það var mikill hugur í heima- mönnum þegar þeir tóku á móti KA í bikarkeppninni í gærkvöldi. Þeir komust strax í þriggja marka forustu og spiluðu mjög góðan leik. KA náði þó að jafna og jafnræði hélst með liðunum í fyrri hálf- leik þó svo að KA-menn hefðu þriggja marka forustu í hálf- leik. Þeir sigruðu síðan örugg- lega, 32-23. KA-menn fóru betur af stað f síðari hálfleik og komust í fimm marka forustu og þar fóru fremst- ir í flokki Andrius Stelimokas og Arnór Atlason. Selfyssingar náðu þó að klóra í bakka og minnka muninn í þrjú mörk en þá fór ógæfan að dynja yfir þá - þeir fóu að missa menn út af í óþarfa brot- um og létu líka dómarana fara í taugarnar á sér, sem ekki var kannski fúrða því að þeir ágætu menn virtust ekki ráða við að dæma þennan leik í lokin, þeir sendu Selfyssinga út af í tuttugu mínútur og þrír þeirra fengu að líta rauða spjaldið. Ekki verður þó barátta KA- manna tekin frá þeim - þeir voru seinir í gang og munaði það kannski því að fyrirliði þeirra, Jónatan Magnússon, var ekki með. Selfyssingar spiluðu ágætis handbolta, þeir vörðust vel og Sebastian var grimmur í markinu. Þó vantaði einhvern neista í sókn- arleik liðsins og munar um minna en menn eins og Ramunas Mika- lonis sem ekki virtist finna sig í þessum leik. „Það var leitt að tapa þessum leik, við lögðum okkur alla fram og spiluðum ágætis bolta, en KA- menn voru bara sterkari og verð- skulduðu þennan sigur," sagði Sebastian Álexandersson, þjálfari Selfoss, svo mikil voru þau orð. Jóhannes Bjarnason, þjálfari KA-manna, var léttari en kollegi hans. „Okkur gekk heldur illa í byrjun að ná tökum á þessu og vorum sjálfum okkur verstir, en um miðjan fyrri hálfleik náðum við þó tökunum og bættum varn- arleik okkar f síðari hálfleik - eftir það var það aldrei spurning. Sel- fossliðið er mjög gott lið og á eftir að gera góða hluti í vetur, þeir voru bara sjálfum sér verstir í kvöld með óþarfa tuði," sagði Jó- hannes að lokum. Mörk/víti Selfoss: Ramunas Kalendauskas 7/1, ívar Grétars- son 4, Hjörtur Leví Pétursson 4, Ramunas Mikalonis 3, Haraldur Þorvarðarson 2/1, Guðmundur Guðmundsson 2, Atíi Marel Vokes 1. Varín skot/víti: Sebastian Alex- andersson 20/1. Brottvísanir. 20 mínútur, þrjú rauð spjöld. Mörk/víti KA: Andrius Stelimokas 13/3, Arnór Atlason 7, Ingólfur Axelsson 4, Bjartur Máni Sigurðsson 3, Árni Björn Þórar- insson 2, Einar Logi Friðjónsson 1, Bergsveinn Magnússon 1, Magnús Stefánsson 1 Varin skot/víti: Stefán Guðna- son 13/3, Hafþór Einarsson 1. Brottvísanir. 8mínútur eh HVERT ERT ÞÚ AÐ FARA, VINUR? HK-maðurinn Jón Bersi Ellingsen tekur hér hraustlega á Haukamanninum Matthiasi Árna Ingimarssyni en sá síðarnefndi lék vel I gær. DV-mynd E. Ól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.