Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.2003, Side 32
r
M
v*
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2003
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
550 55 55
Við tökum við
fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert
fréttaskot sem birtist, eða
er notað i DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið (hverri viku
greiðast 7.000 kr. Fullrar
nafnleyndarergætt.
H-Laun
. ekki sætta þig við ríilnna!
Mikki refur í gifsi
Mikki refur, sem allir kannast
við úr Dýrunum í Hálsaskógi,
hefur verið settur gifs. Fótur-
inn á Mikka gaf sig þegar hann
var að eltast við Lilla klifurmús
og nú er hann haltur.
„Ég sleit hásinina í fætinum á
mér á generalprufu," segir Þröstur
Leó Gunnarsson sem fer með hlut-
verk Mikka í Dýrunum sem nú eru
sýnd í Þjóðleikhúsinu. Þröstur
kvaðst ekki hafa áttað sig á því hvað
hefði gerst og því hefði hann leikið
fjórar sýningar áður en hann fór til
læknis og var settur í gifs.
„Ég skrölti í gegnum sýningarnar
haltrandi," segir hann við DV í
morgun. „Það var ekki þægilegt, en
hafðist þó. Mikki leit út eins og
hann væri á sjötugsaldri, allur halt-
ur og skakkur. Hann var þó ekkert
að gefa sig.“
Þröstur Leó leikur tvær sýningar
næstkomandi sunnudag. Hann
segir, að í dag verði gengið í að
finna ráð til að fela gifsið að ein-
hverju leyti. Ef til vill verði búinn til
einhver texti í kringum það, en
lausnin liggi ekki fyrir enn.
Spurður um undirtektir sýning-
argesta á þeim sýningum sem bún-
ar séu segir Þröstur Leó að þær séu
„svakalega fi'nar".
„Það er ofboðslega skemmtilegt
að leika þetta," segir hann. „Krakk-
arnir þekkja textann út í gegn og
eru alveg með á nótunum. Þau taka
þátt í sýningunni af hjartans lyst og
vara Lilla við, þegar hann er í hættu
staddur, svo Mikki geti ekki platað
hann." -JSS
Veðrið á morgun
Minnkandi norðanátt á landinu með kalsarigningu eða slyddu, einkum á Norður-
og Norðausturlandi, en bjartviðri sunnan lands og vestan. Hiti yfirleitt 5 tillS
stig, hlýjast austanlands.
Veðriðídag
I
Avítur
og sekt
Aganefnd KSÍtók mál KA-
mannanna Slobodans Milis-
ic og Þorvaldar Örlygssonar
fyrir á þriðjudaginn en þeir
gerðu sig seka um niðrandi
ummæli í garð Kristins Jak-
obssonar dómara eftir leik
KA og ÍA í undanúrslitum
VISA-bikarins 17. septem-
ber síðastliðinn.
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, tók málið fyr-
ir samkvæmt 11. grein starfs-
reglna aganefndar KSÍ og skilaði
greinargerð um málið til aga-
nefndar fyrir fúndinn á þriðju-
dag. Forsaga málsins er sú að
Milisic sagði Kristin vera hálfvita
í viðtali við blaðamann DV
Sports en Þorvaldur ýjaði að því
að Kristinn mismunaði leik-
mönnum eftir því frá hvaða
landi þeir kæmu. Stór orð voru
látin falla en knattspyrnudeild
KA baðst opinberlega afsökunar
á orðum þeirra félaga daginn
eftir.
Aganefnd KSÍ ákvað að veita
Milisic og Þorvaldi alvarlegar
ávítur íyrir ummæli sín auk þess
sem KAvar sektað um tuttugu
þúsund krónur.
Ekki sama fyrir alla
Vignir Þormóðsson, formaður
knattpsymudeildar KA, sagði í
samtali við DV Sport að hann
væri ekki sáttur við sektina en
félagið myndi sætta sig við hana.
„Mér finnst hins vegar furðu-
legt að það sama skuli ekki yfir
alla ganga því að þetta er ekki í
fyrsta sinn sem svona mál kemur
upp í sumar. í það skiptið var
enginn sektaður," sagði Vignir í
samtali við DV Sport.
Ekki náðist í Geir Þorsteins-
son, framkvæmdastjóra KSÍ,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
oskar@dv.is
JAKKAR
BUXUR
VÖÐLUR
HÚFUR
SPORTVÖRUGERÐIN HF.
SKIPHOLT 5, S. 562 8383
Sm áauglýsingar
Veðrið kl. 6
Sólarlag
í kvöld
Sólarupprás
á morgun
Rvík 18.55 Rvík 7.41
Ak. 18.50 Ak.07.18
Síðdegisflóð
Rvík 23.27
Ak. 03.50
Árdegisflóð
Rv(k 10.53
Ak. 15.23
Akureyri
Reykjavík
Bolungarvfk
Egilsstaðir
Stórhöfði
Kaupmannah
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
London
Barcelona
NewYork
París
Winnipeg
i morgun
léttskýjað 12
súld
rigning
léttskýjað 10
súld
þoka
skýjað
rigning
mistur
skýjað
hálfskýjað 13
þoka
heiðskírt
550 5000