Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Síða 4
4 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003
0 borg,
min
borg!
Róm
30. október - 4 nætur
'J'Aff
Innifalið: Flug, gisting í 4 nætur
á Albani Hotel
í tveggja manna herbergi
með morgunverði,
flugvallaskattar og íslensk
fararstjórn.
Innifalið: Flug, gisting í 4 næti
ó Liegt Hótel
í tveggja manna herbergi
með morgunverði,
flugvallarskattar og íslensk
fararstjórn.
Innifalið: Flug, gisting í;
á Bewleys hótel
í tveggja manna herbergi
með morgunverði,
flugvallarskattar og íslensk
fararstjórn.
FERÐIR
www.plusferdir. is
Hliðasmára 15 • Simi 535 2100
Hafmeyjan á sinn stað
Gjaldþrotskröfu hafnað
DANMÖRK: Það er ótrúlegt
hvað mörgum er illa við litlu
hafmeyjuna, tákn Kaupmanna-
hafnar. (byrjun september
voru unnin alvarleg skemmdar-
verk á styttunni þar sem hún
var á granítstalli sínum. Eftir til-
raeðið var hafmeyjan, sem á
uppruna sinn í ævintýri H.C.
Andersens, flutt á verkstæði og
hefur verið í viðgerð í rúman
mánuð. Að sögn mannanna
sem unnu að viðgerðinni voru
smíðuð á hana ný hné og nýjar
varir, auk þess sem fýllt var upp
í sprungur og meyjan pússuð
upp.Túristar sem eiga leið um
Kaupmannahöfn geta nú tekið
gleði sína á ný og notað tæki-
færið til að heimsækja litlu haf-
meyjuna því hún verður sett
aftur á sinn stað á mánudaginn.
GJALDÞROT: Kröfu Kaupþings
Búnaðarbanka um gjaldþrot
sláturhúss og kjötvinnslufyrir-
tækis Ferskra afurða á
Hvammstanga var hafnað af
Héraðsdómi Norðurlands
vestra á Sauðárkróki vegna
formgalla á beiðninni. Fyrr í vik-
unni var beiðni Ferskra afurða
um framlengingu á greiðslu-
stöðvun fyrirtækisins hafnað af
Héraðsdómi Norðurlands
eystra á þeirri forsendu að ekk-
ert hefði gerst á greiðslustöðv-
unartímabilinu sem leitt hefði í
átt til samkomulags við skuldu-
nauta. Búist er fastlega við að
Kaupþing Búnaðarbanki sendi
fljótlega inn aðra beiðni þar
sem öllum kröfum er framfylgt.
Á meðan heldur kjötvinnsla
Ferskra afurða áfram starfsemi.
37 ára karlmaður spann blekkingavef með því að þykj-
ast vera stúlka á irlrínu:
Barnaklámsmaður kærður
fyrir að misnota sex pilta
BARNAKLÁM: 37 ára karlmaður er kærður fyrir að misnota sex pilta, 16 ára og yngri, síðastliðin þrjú til fjögur ár. Hald var lagt á nokkur
þúsund barnaklámmyndir á tölvu og yfir 800 hreyfimyndir á tölvu með sama efni.
Lögreglan í Reykjavík hefur lok-
ið umfangsmikilli rannsókn á
kynferðisbrotamáli þar sem 37
ára karlmaður er kærður fyrir
að misnota sex pilta, 16 ára og
yngri, síðastliðin þrjú til fjögur
ár. Ljóst er að hann átti sam-
skipti við marga aðra pilta á
vafasaman hátt en ekki verður
kært vegna þeirra tilvika.
Fram hefur komið við rannsókn-
ina að maðurinn var í öllum sex til-
fellunum í kynferðisathöfnum á
myndbandi með þolendunum.
Þegar drengirnir fóru
að sýna „henni" áhuga
bað maðurinn þá með-
al annars um að senda
sér mynd af kynfærum
sínum
Hald var lagt á nokkur þúsund
barnaklámmyndir á tölvu, yfir 800
hreyfimyndir á tölvu með sama
efni - 70 klukkustunda mynd-
bandsefni auk mikils af annars
konar barnaklámsefni.
Þetta er ein umfangsmesta og
flóknasta rannsókn lögreglunnar á
þessu sviði enda voru aðferðir
mannsins til að brjóta af sér gegn
piltunum með óvenjulegu móti.
Blekkingaleiðin
Maðurinn og piltarnir voru
gjarnan á irkinu og vissu þeir ekki
um hvern var að ræða að öðru leyti
en því að þeir sáu fyrst aðeins stafi
á skjá. Piltarnir voru áhugasamir
um að komast í kynni við hitt kynið
en þar kom maðurinn einmitt til
sögunnar. Hann þóttist vera stúlka
og lagði sig eftir því að ræða við
pilta sem greinilega voru á Netinu
með það í huga að kynnast stúlk-
um. Þetta nýtti maðurinn sér - gaf
drengjunum undir fótinn og það
ávallt sem stúlka.
Þegar drengirnir fóru að sýna
„henni“ áhuga bað maðurinn þá
meðal annars um að senda sér
mynd af kynfærum sínum - stúlkan
þyrfti að athuga hvemig drengirnir
litu út áður en hún færi að hafa við
þá kynferðislegt samneyti. Þegar
drengirnir gengu á lagið tóku þeir
eða létu taka af sér myndir og
sendu. Sfðan vildu þeir fá að hitta
stúlkuna. Maðurinn skrifaði þá tili
baka að ef þeir vildu gera það yrðu
þeir að hitta vin hennar. Og þar
kom maðurinn til sögunnar. Skil-
yrðið var að hann fengi að hafa við
þá samskipti sem vom kynferðis-
legs eðlis.
Með þessu móti gekk blekkinga-
vefurinn hjá manninum upp en
aldrei fengu piltarnr að hitta stúlku.
Málið fer fljótlega til ákæmvaldsins
sem fer með málið fyrir dóm.
ottar@dv.is
Dágóð síldveiði á
Digranesfiaki
Dágóð síldveiði hefur verið
undanfarna sólarhringa fyrir
austan land, aðallega á Digra-
nesflaki, í góðu veðri þar sem
um 15 bátar hafa verið við veið-
ar síðustu sólarhringa.
Enn hafa þó aðeins veiðst tæp-
lega 15.000 tonn af 130.000 tonna
heildarkvóta, þar af um 6.000 tonn
til frystingar og bræðslu. Mestu
hefur verið landað hjá Skinney-
Þinganesi á Homafirði, eða um
4.000 tonnum. Þrír bátar, Ásgrímur
Halldórsson, Steinunn og Jóna Eð-
valds, veiða sfldina sem er unnin
hjá Skinney-Þinganesi, en hún er
flökuð og síðan fryst eða söltuð.
Jóna Eðvalds SF var í gær á landleið
með 150 tonn af ágætri síld sem
fékkst á Digranesflaki.
Kolmunnaaflinn er kominn í
392.000 tonn af 547.000 tonna
heildarkvóta og enn em því óveidd
um 154.000 tonn. Mestu hefur ver-
ið landað í Neskaupstað, eða
104.000 tonnum, 86.000 tonnum á
Eskifirði og 73.000 tonnum á Fá-
skrúðsfirði. gg@dv.is
Veðrið á morgun
Suðvestanátt og rigning, nokkuft stff seinni partinn, en úrkomulítift
austanlands. Hiti 3 tll 10 stig.
Sólarlag í
kvöld
Rvík 17.39
Ak. 17.10
Sólarupprás á
morgun
Rvík 8.47
Ak.8.58
Síðdegisflóð Árdegisflóð
Rvfk 17.30 Rvík 5.19
Ak. 22.03 Ak.9.42
Veðriðídag
Veöríðkl. 121 gær
Akureyri alskýjað 6
Reykjavík úrkoma 7
Bolungarvík skúr 6
Egilsstaðir hálfskýjað 5
Stórhöfði þoka 6
Kaupmannah. skýjað 4
Ósló hálfskýjað 2
Stokkhólmur 3
Þórshöfn skýjað 6
London léttskýjað 13
Barcelona skýjað 16
New York heiðskírt 4
París hálfskýjað 7
Winnipeg alskýjað 8