Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Side 22
22 DVHELGAfWLAÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 Betri helmingurinn Umsjón: Arndís Þorgeirsdóttir, arndis@dv.is, og Bryndís Hólm, bryndis@dv.is Femínistar skipuleggja viku í þágu jafnréttis: draga úr misrétti Femínistafélag íslands stendur fyr- ir viku íþágu jafnréttis en hún hófst í gær, 24. október, og lýkur 1. nóv- ember. Dagskrá vikunnar er fjöl- breytt og megináhersla lögð á jafnréttismál, en meðal þess sem verður tekið til umfjöllunar eru at- vinnu- og launamál, vændi, klám- væðing og ímynd karlmennskunn- ar. „Við viljum meðal annars byggja brýr f launamálum kynj- anna en kannanir hafa sýnt fram á kerfisbundinn launamun þeirra, allt að 30%. Þess vegna viljum við hvetja konur til að sækja lögbundinn rétt sinn til að fá sömu laun og karlar. Femínistafélag fslands telur að ef allir leggjast á eitt þá verði hægt að útrýma þessum mikla mun. Við hvetjum atvinnurekendur til að leggja lóð sín á vogarskálarn- ar. Birtingarmyndir misréttis eru víða í þjóðfélaginu og það er mikilvægt að taka til skoðunar alla anga þess til að ná þessum markmiðum," segir Katrín Anna Guðmundsdóttir hjá Femínista- félagi íslands. FEMlNISTAFÉLAGIÐ: „Við viljum byggja brýr í launamálum kynjanna og efla umræðu um jafnréttismál innan samfélagsins," segja Katrín Anna Guðmunds- dóttir og Svanborg Sigmarsdóttir, fulltrúar Femínistafélagsins. DV-mynd GVA Fjölbreytt menningardagskrá í viku í þágu jafnréttis verður boðið upp á ýmsa menningar- viðburði en fjölbreyttri dagskrá lýkur 1. nóvember með dans- leik á skemmtistaðnum Vídalín þar sem boðið verður upp á kvennarokk í Reykjavík. Meðal þeirra sem koma fram eru sveitirnar Rokkslæðurnar, Dúkkulísurnar og Heimilistón- ar. Fyrirlestrar og málþing um kvennabaráttu og stöðu kvenna verða haldin víða og listunnendur fá eitthvað fyrir sinn snúð, með leiksýningum og listakvöldum. Itarlegt yfirlit yfír dagskrána er að finna á vef- síðunni: www.feministinn.is. Svanborg Sigmarsdóttir, kynningarfulltrúi jafnréttisvik- unnar, segir að megintilgang- urinn sé að vekja athygli á jafn- réttismálunum og efla umræð- una um þessi mál innan sam- félagsins. „A Kvennafrídeginum árið 1975 sýndu konur samstöðu sína til að undirstrika mikil- vægi sitt og stöðu sína á vinnu- markaðnum. Með jafnrétt- isvikunni vill Femínistafélagið leggja sitt af mörkum til að gera slíkt hið sama og benda á það sem betur má fara í þeim efn- um.“ ... kíkt ísnyrtibudduna hórdís Brynjólfsdóttir skipar hóp fremstu handboltakvenna hér á landi. Leiktíðin er nýhafin í handboltanum og hórdís leikur með FH, sínu gamla félagi, í vetur. Hún lék um tíma með landsliðinu og stefnir á sæti þar á ný. hórdís segist ekki mála sig mikið hversdags og oftast mæta ómáluð til vinnu. Uppáhaldið hennar er vatnsheldur maskari, sem hentar vel í boltanum, og svo gyllti varasalvinn. Sólarpúðrið „Sólarpúðrið mitt er frá Estée Lauder. Það er mjög gott og ég nota það alltaf þegar eitthvað stendur til - eins og fara út á lífið." Labello-varasalva á dögunum. Ég hef ekki áður séð Labello í gylltu en það er einn af uppá- haldslitunum. Ég er lítið fyrir varaliti og finnst miklu betra að nota bara varasalva eins og þennan. Hann gefur fallegan gljáa á varirnar." Vatnsheldurá augun . „Maskarinn minn er frá Bourjois. _________ Hann hefur þann góða kost að vera vatns- heldur sem virkar vel í sturt- unni eftir handboltaæfingu. Augnhárin harðna ekki heldur sem er mikill kostur. Svo má ekki gleyma burstanum sem er alveg frábær." Algjör nauðsyn „Þetta er eitt af þeim tólum sem ég get ekki verið án - en það er augnahárabrettar- inn. Það er nefnilega hægt að gera sig mjög ffna bara með því að laga augn- • * P' hárin.“ Gel í stað meiks „Þetta nota ég í staðinn fyrir hefðbund- ið meik. Þetta er gel frá Kanebo og kallast „golden glow“. Ég er ekki mikið fyrir CAv þykkan farða og finnst miklu betra að bera þetta á mig. Ég hef notað Kanebo í langan tíma og líkar mjög vel.“ Gjöf frá góðri vinkonu „Drífa vinkona mín gaf mér þessa fínu snyrti- buddu í jóla- gjöf í fyrra. Þetta er fínasta snyrti- budda og rúmar allt mitt snyrti- dót.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.