Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Blaðsíða 33
r
LAUQARDAGUR 25. OKTÓBER2003 DVHELGARBLAÐ 37
Maðursem kryddar tilveruna
KVIKMYKiDAGAGNRYNi
Hilmar Karlsson
hkarl@dv.is
Það eru ávallt til einstaklingar
sem eru á skjön (þjóðfélaginu, menn
sem láta sig litlu varða almenningsálit,
em sérvitrir og þrautseigir og vekja at-
hygli fyrir eitthvað sem margur ekki
skilur. Það kemur svo að því að það
skilningsleysi sem þessir einstaklingar
telja sig verða fyrir gerir það að verkum
að öfgamar taka ráðin af skynseminni.
Slíkur maður er Helgi Hóseasson, sem
hefur varið síðustu fjömtíu ámm í að fá
sig afskírðan og affermdan. Ráðuneyt-
ið féllst á beiðni hans að lokum en
kirkjunnar menn ekki. í seinni U'ð hefur
Helgi síðan meðal annars tekið upp á
því að mótmæla ákvörðunum ís-
lenskra ráðamanna í heimsmálum og
stendur á Langholtsveginum með skilti
sem ekki allir skilja.
Þjóðin þekkir Helga í gegnum fréttir
af mótmælum hans og eigin kynnum
af honum þar sem hann stendur
tímunum saman með mótmælaskilti.
Helgi hefur í raun ekki haft erindi sem
erfíðí á þessum fjöruU'u árum, en að
hætti þrjóskra manna gefst hann ekki
upp þótt orðinn sé 83 ára gamail.
Þetta er sá Helgi Hóseasson sem við
kynnumst í heimildamyndinni Mót-
mælandi Islands. I myndinni kynn-
Regnboginn
Mótmælandi íslands
umst við einnig Helga Hóseassyni sem
hjúkrar og annast eiginkonu sína, Jó-
hönnu, þar til hún deyr á heimili
þeirra. Við kynnumst Helga sem býr til
eigið brauð í eldhúsinu, er hagmæltur
og kann meira fyrir sér í ísienskum
skáldskap en flestir, og húsasmiðnum
Helga sem þvær þvottinn sinn eins og
móðir hans gerði.
Farið er skynsamlega með allt það
efni.sem til er um Helga og mannlega
þættinum bætt við. Húmorinn í mynd-
inni er í gömlum myndskeiðum, sem
kannski þóttu ekki svo fyndin í upphafi
en eru skemmtileg í dag. Hin fræga
skyrsletta er fyndin og öll umgjörðin í
kringum hana. Þá er fyndið að sjá
jakkafataklædda menn reyna að
hreinsa tjöm af forsætisráðuneytishús-
inu við Lækjartorg. Og eins og stund-
um viU verða er fyndnin mest í drama-
tlkinni. Helgi var settur á Klepp eftir
skyrævintýrið þaðan sem hann útskrif-
aðist heUbrigður. Hann náði að stela
skýrslunni um sig, fjölritaði hana og
seldi á „lágu verði" á Lækjartorgi.
Á móti kemur að lítUl húmor er í hin-
um meyra Helga þegar hann lýsir
dauða eiginkonunnar. Þetta atriði er
óþægUegt þar sem lýsingin er nákvæm.
Atriðið á rétt á sér í myndinni þar sem
það er í samræmi við öfgana í öUu sem
Helgi gerir. Svo er það spumingin
hvort Helgi hafi kveUrt í „kirkjuskríp-
inu" eins og hann kaliar Heydalakirkj-
una gömlu sem brann til gmnna. Hann
hvorki neitar né játar og það er eins og
hann vUji að fólk haldi að hann hafi
gert það. Þetta er sá Helgi sem upp-
nefnir lögregluna og er klaufalega orð-
ljótur gagnvart ráðamönnum. Þama
höfum við Helga Hóseasson sem erfið-
ara er að líka við.
Hvað sem segja má um Helga Hóse-
asson og gerðir hans þá leynir sér
ekki að maðurinn er merkUegur >
og stórhuga í öUu sem hann * - 's
gerir. I
myndinni er Helgi sögumaðurinn og
fréttir í myndum tengdum við sögu
hans. Ekki fáum við að heyra nein við-
töl við Helga og ef það er rétt að ljós-
vakamiðlar hafi aldrei fundið þörf hjá
sér tU að ræða við manninn þá er það
meira en li'tið einkenrúlegt.
Þóra Fjeldsted og Jón Karl Helgason
hafa gert eftirminnUega heimUd-
armynd. Þau hafa ekki haft mUdð af
eldra efni á mUli handanna og myndin
ber þess noklcur merki. Á móti kemur
að myndin hefur
góða sti'gandi og
tengingar miUi
atriða em vel
heppnaðar. Og
þar sem við-
fangsefhið er
forvitnUegt og
sérstakt þá er
myndin hin besta
skemmtun um
leið og hún fær
okkur til að hugsa
um þá sem em
öðmvísi en við.
Leikstjóran Þóra Fjeld-
sted og Jón Karl
Helgason.TónlistSig-
urjón Kjartansson.
Hljóðvinnsla: Gunnar
Árnason. Framleiðandi:
Böðvar Bjarki Pétursson.
Listvefnaður og
lágmyndir
Listamennirnir sem reka Meistara
Jakob gallerí á Skólavörðustíg 5,
Reykjavík, opna samsýningu í Nor-
ræna húsinu í dag, kl. 16, í tilefni þess
að fimm ár eru liðin frá stofnun gall-
erísins. Listformin eru grafík, listvefn-
aður, leirlist, málverk og lágmyndir.
Sýningin er opin þriðjudaga til föstu-
daga, frá kl. 12til 17.
Olía á striga
Nini Tang opnar sýningu á 45 olíu-
málverkum á striga í Galleríi Sævars
Karls. Sýningin stendurtil 13. nóv-
ember.
/y<
ið“ sem Kristinn vann fyrir þessa sýn-
ingu. Hún er opin daglega frá 13-17.
Töskusýning
Handverk og hönnun opnar í dag, kl.
16, sýningunaTöskur í Aðalstræti 12,
Reykjavík. Þar eru töskur úr leðri, leir,
tágum, flóka, roði, plasti og ýmsu
öðru. Opið er alla daga, nema mánu-
daga, frá kl. 13 til 17.
Vorljóð að
hausti
Vorljóð við leirur nefnist sýning Krist-
ins G. Jóhannssonar í Húsi málaranna
við Eiðistorg. Hún verður opnuð í
dag og stendurtil 9. nóvember.
Kraftaverk
Kristins
Kristinn Pálmason opnar sýningu í
Listasafni Reykjanesbæjar í Duushús-
um kl. 16 í dag. Þar er „Kraftaverka-
verkamálverkaserían" frá 1998 er
kemur nú í fyrsta sinn fyrir augu al-
mennings hér á landi og högg-
mynda- og hljóðinnsetningarnar
„Hellirinn" og „Kraftaverkahljóðverk-
Afmælissýning
og míníatúrar
Tvær sýningar voru opnaðar á Kjar-
valsstöðum í gær. Önnur heitir
Ferðafuða og er sýning á mínfatúr-
um. Hin heitir Myndlistarhúsið á
Miklatúni, Kjarvalsstaðir í 30 ár, og
þar er stiklað á sögu sýningahalds í
húsinu.
ODYR SIMTOL TIL UTLANDA
fleíri iönd - fleíri minutur
ATLAS FRELSI
INTERNATIONAL CALLING CARD
More countries - more minutes - less price
Knattspyrnuskóli
í REYKJAIMESHÖLL
Boðið er upp á 5 vikna námskeið
28. Október - 29. Nóvember
Æft er í Reykjaneshöll
Þriðjudaga kl: 06.30 - 07.30
Miðvikudaga kl: 06.30 - 07
Föstudaga kl: 06.30 - 07.30
Sé greitt meö MasterCard fá
ffijý handhafar kortsins verulegan afslátt.
5 vikna námskeið koster þá 20.000.
Yfirþjálfari er Þorlákur Árnason
Þjálfarar:
Freyr Sverrisson. Gunnar Jónsson,
ásamt Sigurði Jónssyni,
Zeljko Sancovic, Pavol Kretovic og
□ragi Pavol.
Aldurstakmark 13 ára,
4.fl. 3.fl.2.fl.m.fl.karla og kvenna
Hámarksfjöldí per námskeiö er 60 nemendur.
skráning fer fram á :
skraning@knattspyrnuskoli.com
5 vikv a skóli
kostai
20.000 efc
Eyjólfur Sverrisson
Sigurður Jónsson
Knaftspyi^w
^Vkademía Jslands
NETT
3 | skyrJs
tJasterCóitt
Allar nánari upplýsingar í síma 896 1523 og 820 5769 og á heimasíðu okkar www.knattspyrnuskoli.com
- f vl£''S' i
Vl
ALÞJOÐLEGT SIMAK0RT
fæsf hja Olis um land allt
220 mín. til 8 helstu landa
Á vefsíðunni www.atlassimi.is
er að finna gjaldskrá og sölustaði
h