Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 25. OKTÚBER 2003 DVHELGARBLAÐ 19
HUGFANGNIR: Hugfangnir áhorfendur liggja flatir á gólfinu ÍTate Modern og njóta upplifunar sinnar af verki Ólafs Elí-
assonar.The Weather Project, sem þar hangir uppi og 100 þúsund manns hafa séð eftir rúma viku.
SVEIFLAN LIFIR: Þessir rosknu snillingar léku sveiflustandarda fyrir gestina á The Lamb and Flag.
ÚR LÓFAFÖRUM BARNANNA: Þetta mannhæðarháa
, verk af Myru Hindley barnamorðingja er gert úr lófa-
j förum lítilla barna. Það hangir uppi í Saatchi-listasafn-
j inu og vekur hálfgerðan óhug meðal sýningargesta.
Sennilega mun enginn halda því fram að Bret-
ar séu í fremstu röð matgæðinga heimsins en
þeir eiga einn klassískan rétt sem allur heim-
urinn elskar og það vill svo til að við íslending-
ar komum þar við sögu. Þarna er auðvitað átt
við fisk og franskar eða „fish and chips“.
Þetta er ekki flókinn réttur og varla til svo
aum krá í Bretaveldi að ekki sé hægt að drífa
upp einn skammt handa svöngum viðskipta-
vini. En það eru líka til veitingastaðir sem nán-
ast sérhæfa sig í þessum þjóðarrétti og einn
’ þeirra er The Rock and Sole á Endell Street þar
sem hlaupagestir fá skammtinn sinn í stórt
kramarhús úr bréfi, þó ekki dagblöðum eins og
lengi tíðkaðist, en það er líka hægt að setjast
við borð. Þarna fengum við stórt stykki af
þorski með roði og öllu saman beint upp úr
olíupottinum og væna hrúgu af frönskum
með. Edik, sítróna og salt er nauðsynlegt að
mati heimamanna en þetta var ótrúlega góð
máltfð enda vísað á staðinn í hinum frægu
leiðsögubókum sem kenndar eru við Lonely
Planet og hafa aldrei brugðist þeim sem þetta
' ritar.
Leið okkar lá hka á veitingastað sem heitir
Porters við Henrietta Street, rétt neðan við
gamla markaðinn við Covent Garden og þar er
lögð áhersla á hefðbundinn breskan mat. Það
voru hálfgerð vonbrigði því að bragðleysi og
daufleg framsetning var eiginlega einkenni
máltíðarinnar. Það er sjálfsagt að setjast niður
og prófa einu sinni að borða Shepherd’s Pie
eða Steak and kidney Pie en ekki rétt að gera
ráð fyrir veislu.
Gamlir skarfar sveifla sér
Frá Porters reyndist vera um 10 mínútna
gangur yfir í Soho að hinum fræga djass-
klúbbi Ronnie Scott sem var lokaður vegna
einkasamkvæmis þegar til átti að taka. En á
leiðinni til baka gengum við á hljóðið af
hornablæstri sem barst út um gluggana á
kránni The Lamb and Flag við Garrick Street.
Þar stóðu gamlir skarfar og blésu gamla stand-
arda og var auðheyrt að þeir voru ekki að byrja
á því. The Lamb and Flag segist vera í hópi
elstu kráa í London en það gera reyndar all-
margar þeirra. The Lamb and Flag var áður
þekkt sem The Bucket of Blood eða Blóðfatan
eftir umtalað banatilræði á staðnum árið
1675. Það var sönn spilagleði í loftinu á þess-
um gamla stað og annað slagið reis roskin
söngkona upp úr hópi áheyrenda og söng af
ótrúlegum krafti eitt og eitt lag.
Sjáðu fræga fólkið
Kráin sýnist í augum aðkomumanna vera
eins og annað heimili sumra. Við sátum inni á
The Coach and Horses, neðarlega á Bow
Street, og hlustuðum á hóp vinnufélaga
spjaUa saman en þeir stóðu við í um klukku-
tíma skömmu eftir hádegi. Allir sem komu inn
virtust vera fastagestir, af viðmóti afgreiðslu-
stúlknanna að dæma. Við vorum enn að jafna
okkur á því að á götunni fyrir utan höfðum við
gengið í flasið á Timothy Spall, sem er frægur
breskur leikari og gætu einhverjir munað eftir
honum úr myndum Mike Leighs, bæði Secrets
and lies, sem var sýnd hér fýrir nokkrum
árum, og einnig All or nothing sem var sýnd
nýlega á breskum kvikmyndadögum í Reykja-
vfk. Það eru sennilega meiri líkur en minni á
þvf að rekast á leikara á þessum slóðum þar
sem leikhús er á nánast hverju einasta götu-
horni. I þeim töluðum orðum gekk Hilmar
örn Hilmarsson tónskáld fyrir gluggann á The
Coach and Horses og var á svipinn eins og
hann ætti ekki von á því að neinn þekkti hann.
Svo má ekki gleyma að leika túrista; að fara
og standa fyrir utan Downing Street númer 10
og athuga hvort maður sér Tony bregða fyrir,
og þaðan er aðeins rúmur 10 mínútna gangur
yfir að Buckingham Palace þar sem maður
lætur mynda sig við skjaldarmerkið í hliðinu
og gáir hvort drottningin er einhvers staðar
bak við gluggatjald að horfa eftir gestakom-
um. Ég held að ég hafi ekki séð hana en líf-
vörðurinn með bjarnarskinnshúfuna var
heima og hefur sennilega verið búinn að fá
nóg af gestum þennan dag því hann tók ekki
undir kveðju okkar.
polli@>dv.is
... ..
P
Kynnstu af eigin raun hvað það er sem heillar bílaáhugafólk um víða veröid
Komdu ogxeyn
Mazda6
við Mazda6. Og svo er verðið miklu hagstæðara en ríkulegur búnaður bílsins
gefur til kynna.
Mazda6 fæst fernra og fimm dyra, sem skutbíll eða sportbíll, með
bensín- eða dísilvél, beinskiptur eða sjálfskiptur, framhjóladrifinn
eða fjórhjóladrifinn með eða án sóllúgu og eingöngu fáanlegur
í fallegum litum.