Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Qupperneq 6
6 FRÉrrn LAUGARDAGUR 25. OKTÚBER 2003
4
Áfram í eigu fjölskyldunnar
Grundfirðingar kæra
Fóstureyðingar
HÆTT VIÐ SÖLU: Ekkertverður
af sölu Ingvars Helgasonar hf.
og Bílheima ehf. eins og fyrir-
hugað var og hætt hefur verið
við söluáform fyrirtækisins.Til-
kynnt var í gær að eigendur
Ingvars Helgasonar hf. og Bíl-
heima ehf. hafa ákveðið að
auka hlutafé félaganna veru-
lega og í kjölfar þess mun ný
stjórn fyrirtækjanna hefja störf.
Viðræður hafa staðið frá því í
sumar um sölu á fyrirtækjun-
um en á hluthafafundi sl.
mánudag var ákvörðun tekin
um að fara ekki þá leið heldur
að auka hlutaféð og er öllum
núverandi hluthöfum mögu-
legt að taka þátt í aukningunni
auk þátttöku nýrra hluthafa.
Nýja stjórn skipa Þorsteinn
Þorsteinsson, sem áður var
bankastjóri Búnaðarbankans í
Lúxemborg, og er hann for-
maður, Júlíus Vífill Ingvarsson,
einn af hluthöfum, er varafor-
maður og Sigurður R. Helga-
son, framkvæmdastjóri Björg-
unar hf., er meðstjórnandi. For-
stjóri fýrirtækjanna verður
áfram Guðmundur Á. Ingvars-
son.
SVEITARSTJÓRNARMÁL: Ný-
lega voru tilkynntar niðurstöð-
ur í samkeppni Byggðastofn-
unar um rafrænt samfélag.Tvö
verkefni voru valin til að þróa
enn frekar og var verkefni
Grundarfjarðar ekki þar á með-
al. Því hefur Grundarfjarðar-
bær kært framkvæmd keppn-
innar til kærunefndar útboðs-
mála.
HEILBRIGÐISMÁL: Fóstureyð-
ingum hefur fækkað um 6%
frá árinu 2001 til 2002 sam-
kvæmt bráðabirgðatölum frá
landlæknisembættinu. Árið
2001 voru alls 984 fóstureyð-
ingar framkvæmdar hér á landi
en 926 aðgerðir í fyrra. Þá voru
663 ófrjósemisaðgerðir fram-
kvæmdar á síðasta ári sem er
mjög svipað árinu á undan.
Framhaldsskólanemar ótryggðir - ekki
benda á mig, segja ráðuneytin:
Raðmálaferli
til að ná
rétti sínum
Nemendur í framhaldsskólum
landsins eru yfirleitt ekki slysa-
tryggðir. Þeir verða því að leita
réttar síns fyrir dómstólum
lendi þeir í slysi og séu ósáttir
við málalok.
Þessar upplýsingar fengust hjá
Karli Kristjánssyni, deildarstjóra
framhaldsskóladeildar í mennta-
málaráðuneytinu. Hann sagði að
rfkið tryggði ekki „neitt af neinu
tagi“. Þar með eru taldir nemendur
í framhaldsskólum.
Karl sagði enn fremur að um-
ræða hefði verið uppi um að tryggja
þyrfti nemendur, einkum þá sem
störfuðu í verkmenntadeildum.
Ekki hefði þó orðið úr að ríkið tæki
á sig slíkar tryggingar.
Ef nemandinn værihins
vegar ósáttur við mála-
lok yrði hann að fara í
mál við kennarann sem
aftur færi í mál við skól-
ann.
Spurður hvernig bótum til nem-
enda væri háttað ef þeir söguðu í
fingur, brenndu sig eða klemmdu í
verknáminu, sagði hann að skól-
arnir greiddu í þeim tilvikum ferðir
nemenda á heilsugæslu. Sem betur
fer væru slík slys fátíð og minni
háttar ef þau ættu sér stað.
Ef nemandinn væri hins vegar
ósáttur við málalok yrði hann að
fara í mál við kennarann sem aftur
færi í mál við skólann. Karl kvaðst
muna eftir einu slíku máli sem
komið hefði upp eftir slys í leikfimi-
kennslu. Ef skóli væri dæmdur til
greiðslu skaðabóta stæði ríkið að
baki honum. Viðkomandi skóli
þyrfti þá ekki að sitja uppi með fjár-
údát. Hann færi fram á fjárveitingu
sem skaðabótunum næmi og ríkið
VANTRYGGÐIR: Nemendur í framhaldsskólum landsins eru yfirleitt ekki slysatryggðir. Þeir
verða því að leita réttar síns fyrir dómstólum lendi þeir í slysi
hlypi þá undir bagga.
Karl kvaðst ekki muna eftir
mörgum málum sem rekin hefðu
verið fyrir dómstólum né hvernig
þeim hefði almennt lyktað. Hann
áliti að þau væru næsta fátíð.
Spurður hvers vegna ríkið hefði
ekki tryggt nemendur verkmennta-
brauta framhaldsskólanna úr því
að umræða væri uppi um slíkar
tryggingar kvaðst Karl ekki geta
svarað því. Hann vísaði á Örlyg
Geirsson, skrifstofustjóra í mennta-
málaráðuneytinu. Sá sagði við DV
að hann tjáði sig ekki við fjölmiðla
og vísaði yfir f fjármálaráðuneytið
enda hefðu reglurnar verið búnar
til þar. Þegar DV náði sambandi við
fjármálaráðuneytið, til að spyrjast
nánar fyrir um málið, var vísað á
menntamálaráðuneytið.
JSS@dv.is
i
(
f
i
!
Fjölbreyttar jógaæfingar á notendavænum DVD diski
með Guðjóni Bergmann, einum þekktasta jógakennara íslands.
Rúmlega 2 og 1/2 tími af efni: Jóga fyrir alla, einfaldar æfingar,
kraftjóga, hugleiðsla, öndun, slökun og margt fleira.
Verð aðeins 2.499 kr.
Nánari upplýsingar á www.gbergmann.is
Útsðlustaðir: Hagkaup, Penninn, Mái og menning, Heilsuhúsið, Betra Lff og fleiri verstanir.
Tryggingastofnun um óánægju aðstand-
enda Goldenhar-barna:
Óánæqðir geta kært
Tryggingastofnun ríkisins
bendir aðstandendum Golden-
har-barna, svo og annarra, sem
ekki eru sáttir við afgreiðslu
stofnunarinnar, á að þeir geti
kært til úrskurðarnefndar.
í tilkynningu sem TR hefur sent
frá sér segir m.a.:
„f ljósi fjölmiðlaumfjöllunar
undanfama daga vill Trygginga-
stofnun ítreka og vekja athygli á því
að allir þeir sem ekki una afgreiðslu
stofnunarinnar af einhverjum
ástæðum hafa ávallt möguleika á
að kæra. Óháður aðili, Úrskurðar-
nefnd almannatrygginga, Lauga-
vegi 103, 105 Reykjavík, tekur
kærumál vegna afgreiðslu Trygg-
ingastofnunar til úrskurðar. Úr-
skurðarnefnd er óháður aðili, skip-
uð sérfræðingum, og heyrir undir
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neyti. Afgreiðslutími er kl. 10-12
virka daga
Sími 551 8200 - fax/símbréf 551
1444. Netfang: postur@ural.stjr.is
önnur kærunefnd, Úrskurðar-
nefnd fæðingar- og foreldraorlofs-
GOLDENHAR-BÖRN: Systurnar Gabríella Kamí og Anika Rós þurfa m.a. á dýrum næringar-
drykk að halda vegna sjúkdóms sfns. DV-mynd Pjetur
I
mála, tekur til úrskurðar öll kæm-
mál sem rísa vegna afgreiðslu
stofnunarinnar í fæðingarorlofs-
málum en stofnunin annast sem
kunnugt er greiðslur úr Fæðingar-
orlofssjóði. Úrskurðarnefnd fæð-
ingar- og foreldraorlofsmála starfar
á vegum félagsmálaráðuneytis og
er óháður úrskurðaraðili. Aðsetur
nefndarinnar er hjá félagsmála-
ráðuneytinu, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu, 150 Reykjavík, sími
560-9100, bréfasími: 552-4804,
heimasíða: http://www.stjr.is/fel
Tryggingastofnun setur ekki lög
eða reglugerðir og ákvarðar ekki
upphæðir greiðslna eða bóta.“
Þegar DV leitaði eftir sjónarmið-
um Tryggingastofnunar á ummæl-
um ungrar móður, sem á tvær dæt-
ur, sem báðar em með Goldenhar-
heilkenni, var blaðinu tjáð að
stofnunin gæti ekki tjáð sig um ein-
stök mál. jss@dv.is