Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Side 10
70 SKOÐUN LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER2003 Að hafa endaskipti á hlutunum mmímmmm, Sj'íyr® j, l’i vmssmtvi aKÍVí'V,' « mmm V • mmam í þjóðfélagsumræðum eru sett fram misjafn- lega merkileg rök og staðhæfingar. Á stundum eru höfð endaskipti á hlutunum eða þeir tekn- ir úr eðlilegu samheng, settar fram villandi staðhæfmgar og þegar verst lætur beinlínis rangar fullyrðingar. Forystumenn Alþýðusambands fslands hafa því miður fallið í þá gryfju rangra og villandi staðhæfmga í umræðum um skattastefnu rík- isstjórnarinnar. í ályktun miðstjórnar Aiþýðusambands Is- lands um fjárlagafrumvarpið segir meðal ann- ars: „Einsýnt er að ríkisstjórnin telur að byrð- arnar af nauðsynlegri aðhaldssamri hagstjórn komandi missera eigi að leggja á atvinnulausa, sjúka, öryrkja og skuldsett heimili. Á sama tíma telur ríkisstjórnin nauðsynlegt að lækka sérstaklega skattbyrði og auka ráðstöfunar- tekjur þeirra tekjuhærri." Efnislega er þetta sami tónn og Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ, sló í ávarpi sínu á árs- fundi sambandsins: „Allt ber þetta að sama brunni. Hér er um að ræða aðgerðir sem bitna á launafólki - ekki síst þeim sem hafa minnst á milli handanna. Til að bíta höfuðið af skömminni og kóróna yfirbragðið ætla menn að lækka hátekjuskattinn." Hér verður ekki gerð athugasemd við fullyrð- ingar ASÍ-forystunnar um auknar byrðar á þá sem lakast standa. En það er rangt að halda því fram að verið sé að lækka svokallaðan hátekju- skatt á komandi ári. Hið rétta er að ríkisstjórn Það er rangt að halda því fram að verið sé að lækka svokallaðan há- tekjuskatt á komandi ári. Hið rétta er að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur tekið ákvörðun um að leggja enn á há- tekjuskatt á komandi ári - skatt sem samkvæmt lögum átti að falla niður um komandi áramót. Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur tekið ákvörðun um að leggja enn á hátekju- skatt á komandi ári - skatt sem samkvæmt lög- um átti að falla niður um komandi áramót. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinn- ar verða þannig Iagðar 1.400 milljónir króna á einstaklinga umfram það sem heimilt er að óbreyttum lögum. Hitt er hins vegar rétt hjá verkalýðsforyst- unni að hátekjuskatturinn verður 4% á næsta ári en var 5% á þessu. En það er rangt að ræða um hátekjuskattinn sem sérstakan skatt á efnamenn. Miklu fremur má halda því fram að hátekjuskatturinn sé ranglátur skattur sem kemur ekki síst niður á barnafjölskyldum og ungu fólki sem vinnur myrkranna á milli í við- leitni sinni að koma sér upp heimili og fjöl- skyldu. Hátekjuskatturinn er því fjandsamleg- ur íslenskum fjölskyldum og þó ekki væri nema af þeirri ástæðu ætti ASÍ að mótmæla harðlega að ákveðið skuli að leggja hátekju- skattinn á. I upphafi átti hátekjuskatturinn að vera tímabundinn skattur. Sjálfstæðisflokkurinn og forystumenn hans höfðu heitið kjósendum því að afnema skattinn sem er í eðli sínu ranglátur og kemur fýrst og fremst niður á þeim sem síst skyldi. Ekkert hefur orðið úr verki. Og enn á ný verður skatturinn lagður á með breytingum á lögum um tekju- og eignaskatt og enn á ný í skjóli og með samþykki Sjálfstæðisflokksins. Að faqna falleinkunn STILLA SAMAN STRENGI: Ingibjörg Sólrún segir að ríkisstjórnin eigi að segja af sér eftir að Hæstiréttur kvað upp úr um að ríkisstjórnin hefði ekki hunsað dóm Hæsta- réttar eins og Össur Skarphéðinsson sakaði hana um. RITSTJÓRNARBRÉF Ólafur Teitur Guðnason blaöamaður - olafur@dv.is Fátt segir meira um það hvaða kröfur nemendur gera til sjálfra sín en hvernig þeir bregðast við einkunnum sín- um. Sumir gráta hvert tuga- brot sem vantar upp á tíu, aðrir eru sáttir við fyrstu ein- kunn og enn aðrir standa svo tæpt að þeir hrósa sigri nái þeir að skríða yfir lágmarks- einkunn. Ekki man ég hins vegar eftir að nokkur hafi fagnað falleinkunn. Líklega hefur það bara aldrei gerst. Fyrir næstum þremur árum, í janúar 2001, þreyttu þingmenn próf. Um þetta próf sagði Þómnn Sveinbjarnardóttir, þingkona Sam- fylkingarinnar: „Ég hef aldrei á mfnum stutta þingtíma tekið þátt í umræðu sem reynt hefur eins mik- ið á þingmenn og sú sem hér stenduryfir." Þetta var að sjálfsögðu umræðan um hvernig ætti að túlka og bregð- ast við svokölluðum öryrkjadómi Hæstaréttar. Engar venjulegar ásakanir Meginþunginn f málflutningi stjórnarandstöðunnar var á þá leið að samkvæmt dómi Hæstaréttar væri óheimilt að skerða tekjutrygg- ingu öryrkja vegna tekna maka. Stjórnarliðar voru ósammála. Um þetta snerist deilan fyrst og fremst. En þetta vom ekki venjulegar rökræður. Það var ekki skipst á rök- semdum í rósemd. „Þú segir það, gott og vel, en ég er ekki sammála, sjáðu til.“ Ekki aldeilis. Því var nefnilega haldið fram statt og stöðugt að stjórnarliðar vissu að þeir hefðu rangt fyrir sér, að þeir væru vitandi vits að snið- ganga sjálfan Hæstarétt, að þeir gerðu sér grein fyrir að þeir væru að brjóta mannréttindi á öryrkjum, að þeir væru viljandi að hafa stjórnar- skrá lýðveldisins að engu. Með öðr- um orðum: að stjórnarliðar væru svo illa innrættir og vondir að þeir gerðu það að gamni sínu að níðast á öryrkjum og gefa Hæstarétti og stjórnarskránni puttann. Orðrétt Við skulum Iíta á nokkur dæmi af mörgum: „Um hvað snýst þetta mál? Það snýst um að ríkisvaldið er að gera tilraun til að hunsa Hæstarétt. [...] Þetta snýst um það, herra forseti, að ríkisstjórn íslands getur ekki tekið ósigri sínum fyrir dómstólum eins og menn heldur misbeitir hún valdi sínu til þess að koma ranglega fram vilja sínum," sagði Össur Skarphéðinsson. Stjórnarandstaðan sagði ekki afsér. Nei, hún fagnaði, því að þótt hún félli á prófinu fékk hún ekki núll. „Ríkisstjórnin er hins vegar ein- hverra hluta vegna í stríðshugleið- ingum við Öryrkjabandalagið. Hún vill láta kné fylgja kviði og hún hef- ur búið til eigin hæstarétt og hún getur einfaldlega ekki sætt sig við það að hún tapaði fyrir Hæstarétti," sagði Össur seinna. Og enn sagði Össur: „[Rfkis- stjórnin] lýsir því yfir að stjórnar- slááin sé aðeins plagg, pappfr, inn- antóm orð.“ ,,[Menn[ koma hér aftur og aftur með útúrsnúning vegna þess að það er pólitísk ákvörðun þeirra að bregðast ekki við dómnum eins og hann fellur," sagði Rannveig Guð- mundsdóttir. Seinna sagði Rannveig: „Stjórn- arliðar segja ekki: Þetta var leiðin- legt. Lögum þetta. Við töldum að við værum að gera rétt. Nei, þeir ákveða að fara sína eigin leið. [Þeir] ákveða að þeir geti í raun farið sínu fram þrátt fyrir niðurstöðu Hæsta- réttar." „Það skal liggja mikið við til þess að skerða kjör öryrkja. Svo mikið liggur við að það er flutt sérstakt frumvarp til að skerða það sem Hæstiréttur hefur dæmt þeim," sagði Jóhanna Sigurðardóttir. Og Jóhanna bætti við: „Það virð- ist eini tilgangur þeirra að skrum- skæla niðurstöðuna þannig að ekki sé farið eftir dómsniðurstöðu Hæstaréttar." „Það voru tíndir til einkavinirnir hver af öðrum inn í nefnd til að koma til móts við dóminn. Ekki að fara að dómnum," sagði Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir. „Ríkisstjórnin valdi að Ieggja þetta mál fyrir Alþingi á þann hátt sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Hún valdi það vegna þess að hún vildi ekki lúta dómnum að fullu," sagði Bryndís Hlöðversdóttir. „Því miður hefur öll framganga ríkisstjórnarinnar [...] lyktað af því langar leiðir að ríkisstjórnin væri að reyna að flnna sér aðferðir til að komast fram hjá dómnum; lyktað af því langar leiðir," sagði Stein- grímur J. Sigfússon. „Ríkisstjórnin er að leita leiða til að komast á svig við þennan dóm, a.m.k. að einhverjum hluta til,“ sagði Steingrímur seinna. „Þeir eru ekki tilbúnir til þess að hlíta dómum. Það verður að fara og finna einhverjar leiðir fram hjá þeim og ekki má skerða valdið sem þeir telja sig hafa og eiga að hafa,“ sagði Jóhann Ársælsson. Falleinkunn Hin „hrottalegu" viðbrögð ríkis- stjórnarinnar kölluðu að sjálfsögðu á málshöfðun. Niðurstaða fékkst fyrir viku: Hæstiréttur hafnar því að fyrri dómurinn hafl falið í sér bann við skerðingu tekjutryggingar vegna tekna maka. Þetta var meg- inröksemd stjórnarandstöðunnar í janúar 2001 og þetta var meginrök- semd stefnandans í málinu. Rangt, sagði Hæstiréttur. Grundvöllurinn fyrir ásökununum var þar með brostinn. Úbbs! Stjórnarandstaðan sagði ekki af sér. Nei, hún fagnaði, því að þótt hún félli á prófínu fékk hún ekki núll. Ðómurinn fól nefnilega í sér að afturvirkni nýju laganna stóðst ekki og þessari afturvirkni hafði verið mótmælt - reyndar líklega ekki í nema um það bil tíu mínútur af þeirri 41 og hálfu klukkustund sem umræðan stóð, en samt. Sigrihrósandi Þetta var aldeilis fagnaðarefni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði á Alþingi í síðustu viku að nú hefði Hæstiréttur staðfest að ásakanirnar hér að ofan hefðu verið réttmætar. „[Ríkisstjórnin] braut vísvitandi gegn stjórnarskránni. Hún gerði það með augun opin og hún á að segja af sér,“ sagði Ingibjörg. „Hún var vöruð við.“ Það er alveg rétt að ríkisstjórnin var vöruð við. Til dæmis hafði Ásta R. Jóhannesdóttir sagt um aftur- virknina: „Ég leyfí mér að efast um að það sé löglegt." Auðvitað hefði ríkisstjórnin átt að hrökkva í kút og hlusta á þessa viðvörun. Hvað með það þótt meginmálflutningur Ástu og félaga, allt það sem þau skömm- uðust mest yfír og fullyrtu að væri augljóst brot á stjórnarskrá og vís- vitandi illvirki og níðingsháttur - að það væri allt markleysa? Það átti að taka mark á þessu atriði sem Ásta „leyfði sér að efast um“. Annað var klárlega vísvitandi brot á stjórnar- skránni. Merkilegt Það kemur auðvitað ekki á óvart að stjórnarandstaðan skuli fagna hverju marki. Hitt er merkilegra að þeir fjölmiðlar eru til sem virðast telja að þetta sé aðalatriðið og hafa skilmerkilega tínt til allar þessar viðvaranir og birt með áberandi hætti undir fallegri fyrirsögn. Á sama tfma og ekki er talin ástæða til að rifja upp margítrekaðar og óvenjulega þungar ásakanir, sem reyndust staðlausir stafir, er farið nákvæmlega ofan í það hvernig til- teknar „efasemdir“ reyndust rétt- mætar. Þetta er ekki í fyrsta sinn - og ekki það sfðasta - sem stjórnarandstað- an fær frítt spil. Mörgum fjölmiðl- um virðist standa alveg nákvæm- lega á sama þegar hún hefur rangt fyrir sér. Jafnvel þegar hún kolfellur á einhverju þyngsta prófi sfnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.