Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Side 16
76 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003
SPÁNARFARARNIR: Schola cantorum á æfingu í Hallgrímskirkju ásamt stjórnanda sinum, Herði Áskelssyni.
■íÉhMBF
• i í '!■' % ■ ■
i • ;
- r*. v • w&lx mnm
- .. yM -iSLrt! í'17///
i 1 ■ H : (P
* 1 U
. 'ýt-- »';§ 1
■ 1 i , 7 • i -1 . .V. &£sBm vflZWmu/Ífl
Scho a cantorum
Það er hægt keppa í söng og stundum
hnappast saman kórar víðs vegar úr
heiminum og syngja í kapp. Schola
Cantorum sem starfar við Hallgríms-
kirkju, er einn slíkra kóra og er að fara úr
landi til að keppa á Spáni.
Schola cantorum, kammerkór Hallgríms-
kirkju, og stjórnandi kórsins, Hörður Áskels-
son, hafa þekkst boð um að taka þátt í alþjóð-
legri kórakeppni í Tolosa á Norður-Spáni,
sem haldin verður dagana 29. október til 2.
nóvember nk. Þessi keppni á sér langa sögu
og er nú haldin í 35. skipti. Þetta er í fyrsta
skipti sem íslenskur kór er á meðal þátttak-
enda. Forráðamenn keppninnar heyrðu í
Schola cantorum þegar hann vann til
tvennra verðlauna í kórakeppni í Gorizia á
Ítalíu á síðasta ári og höfðu þegar samband
við kórinn og buðu honum þátttöku í keppn-
inni á Spáni í ár. Þessi keppnisferð er hin
þriðja sem Schola cantorum leggur í, en árið
1998 bar kórinn sigur úr býtum í alþjóðlegri
keppni í Frakklandi.
Schola cantorum keppir að þessu sinni í
tveimur flokkum kammerkóra með 16 söngv-
urum eða færri; annars vegar með kirkjulega
og hins vegar veraldlega efnisskrá. Efnis-
skrárnar þurfa að spanna helstu tímabil tón-
listarsögunnar og Schola cantorum flytur
mjög fjölbreytt efni; madrigala, þjóðlög og
mótettur eftir Passerau, Wilbye, Gesualdo,
Brahms, Bruckner, Poulenc, Hjálmar H.
Ragnarsson og Hafliða Hallgrímsson.
Auk þess að taka þátt í keppninni heldur
kórinn þrenna tónleika í borgum í nágrenni
Tolosa, m.a. í San Sebastian, og kemur fram
með öðrum kórum á samkomum á vegum
keppninnar.
Þeim sem vilja heyra Schola cantorum
flytja keppnisverkefnin gefst kostur á því í
Hallgrímskirkju sunnudaginn 26. október
klukkan 17.00. Þar mun kórinn auk þess flytja
nokkur kórlög af tónleikaefnisskrá Spánar-
ferðarinnar, íslenskar kórperlur eftir Atla
Heimi Sveinsson, Báru Grímsdóttur og
Hjálmar H. Ragnarsson, svo og mótettuna
Warum ist das Licht gegeben eftir Brahms. Á
undan tónleikum og á eftir verður kaffisala í
safnaðarheimilinu í suðursal Hallgrímskirkju
til styrktar ferðasjóði kórsins. Aðgangseyrir
að tónleikunum er 1.500 kr.
Safnar verðlaunum
Kammerkórinn Schola cantorum var
stofnaður árið 1996 af Herði Áskelssyni og
samanstendur af 16 söngvurum með mikla
söngreynslu og tónlistarnám að baki. Kórinn
hefur reglulega haldið tónleika í Hallgríms-
kirkju með nýrri og gamalli tónlist. Auk þess
hefur hann komið fram á fleiri stöðum á ís-
landi og á erlendri grund. Kórinn hefur getið
sér gott orð fýrir vandaðan söng og jafnan
hlotið lof gagnrýnenda. Árið 1998 varð kórinn
sigurvegari í alþjóðlegri kórakeppni í Frakk-
landi og sumarið 2002 hlaut hann silfurverð-
laun í virtri keppni á Ítalíu. Scola cantorum
hefur gefið út geisladiskana Principium, með
tónlist frá endurreisnartímanum, og Heyr
himna smiður, með samtímatónlist eftir ís-
lensk tónskáld. Auk þess hefur kórinn tekið
þátt í umfangsmiklum upptökum á tónverk-
um Jóns Leifs fyrir kór og hljómsveit ásamt
Sinfóníuhljómsveit fslands fyrir sænska út-
gáfufyrirtækið BIS.
Hörður Áskelsson hefur verið organisti og
kantor Hallgrímskirkju í Reykjavík frá 1982 og
gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu listalífs
þar. Hann stofnaði Listvinafélag Hallgríms-
kirkju, Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola
cantorum, setti á laggirnar Kirkjulistahátíð,
sem haldin er annað hvert ár, og einnig hina
árlegu tónleikaröð Sumarkvöld við orgelið.
Hann hefur stjórnað flutningi margra
óratóría, m.a. með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, og frumflutt fjölda íslenskra tónverka.
Hörður hefur hlotið margháttaða viðurkenn-
ingu fyrir starf sitt. Árið 2001 fékk hann t.d.
bæði Islensku tónlistarverðlaunin og Menn-
ingarverðlaun DV fyrir túlkun sína á Passíu
eftir Hafliða Hallgrímsson og fleiri verkum.
Hann var einnig borgarlistamaður Reykjavík-
ur árið 2002.
Veraldleg reynsla
Guðrún Finnbjarnardóttir er formaður
Schola cantorum því í félagi eins og einn kór
er í rauninni er ekki nóg að hafa stjórnanda
heldur er stjórn með ritara, gjaldkera og for-
manni. Guðrún var í hópi þeirra sem stofn-
uðu Schola Cantorum árið 1996 en kórinn
hóf starfsemi sína sem angi eða útibú frá
Mótettukór Hallgrímskirkju og starfaði sem
slíkur um hríð áður en hann fékk sjálfstætt lff.
Guðrún sagði það nýja reynslu fyrir marga
kórfélaga að takast á við veraldlega tónlist þar
sem kirkjutónlist er alla jafna eina viðfangs-
efni kórsins.
„Þetta hefur verið afskaplega skemmtilegt
verkefni," segir Guðrún sem lærði söng í
Reykjavík, Boston og Noregi. Hún hefur feng-
ist við söng alla sína ævi og segir að það sé í
rauninni engin leið að hætta að syngja enda
engin ástæða til.
- Kórinn ákvað að keppa í flokki þar sem
aðeins þarf 16 söngvara en yfirleitt eru félag-
ar í Schola Cantorum 18 talsins. Var ekki
erfitt að velja tvo úr hópnum sem ekki ættu
að fara til Spánar?
„Það kom sem betur fer ekki til þess þar
sem tvær raddir úr kórnum voru í barneign-
arfríi,“ segir Guðrún og hlær.
Skyldu enn vera sömu félagarnir í kórnum
og voru þegar hann var stofnaður?
„Það er í rauninni ákveðinn kjarni, 10
manns, sem hefúr verið með nær óslitið síð-
an kórinn byrjaði þótt sumir hafi farið og
komið aftur."
- En er ekki eftirsótt að komast í þennan fá-
menna margverðlaunaða kór og hvaða kröf-
ur eru gerðar til þeirra sem það vilja?
„Við höfum stundum leitað í raðir
Mótettukórsins þegar vantar fólk en í haust
auglýstum við eftir bössum og ég held að það
hafi aðeins tveir sótt um og við tókum þá
FORMAÐURINN: Guðrún Finnbjarnardóttir er formað-
ur kórsins og einn stofnfélaga. DV-myndir £ Ót.
báða. Við gerum ekkert óskaplega strangar
kröfur en flestir ef ekki allir í kórnum eru
menntaðir á sviði tónlistar eða söngs og
starfa við tónlist með einum eða öðrum
hætti.“
Allt utanbókar
Guðrún segir að kórinn, sem hefur keppt
þrisvar sinnum í kórakeppnum og ævinlega
hlotið fádæma lof fyrir söng sinn, sé áhuga-
mannakór í hefðbundnum skilningi þess
orðs en draumurinn sé að hann starfi á
grundvelli atvinnumennsku að einhverju
leyti.
Kórinn æfir að jafnaði einu sinni í viku en
fyrir keppni eins og þær sem nú er stefnt til á
Spáni er æfingum fjölgað um helming og æft
tvisvar í viku. Æfingar hófust 2. september og
kórinn mun syngja utanbókar allt sem hann
flytur á erlendri grund. Þetta hlýtur að kalla á
nokkra heimavinnu?
„Það gerir það auðvitað. Það var ekki gerð
krafa um að syngja utanbókar af þeim sem
halda keppnina en við ákváðum að gera þetta
svona til þess að hafa betra samband við
stjórnandann. En við þurfum auðvitað að
læra talsvert heima.
Þetta er tímafrekt áhugamál og ekki mikið
pláss fyrir önnur tómstundamál og þegar við
erum að vinna að svona verkefnum verður
kórinn að vera í fyrsta sæti á undan vinnunni,
fjölskyldunni, vinunum og öllu öðru,“ segir
Guðrún að lokum. polli@dv.is
:
1
I