Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Page 20
20 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÚBER 2003
Liza Minnelli að skilja:
Fjörugt skilnaðarmál er nú fyrir dómstóli
á Manhattan. David Gest, eiginmaður
Lisu Minnelli, söngkonu með meiru,
krefst 10 milljóna dollara skaðabóta fyr-
ir ofbeldi og barsmíðar af hálfu konu
sinnar. Hún kveðst saklaus af ákærunum
en segir að maður sinn hafi aftur á móti
verið ofbeldisfullur í hjónabandinu sem
stóð í um 16 mánuði en hjónin skildu að
skiptum í júní sl.
Gest, sem er umboðsmaður og tónlistar-
framleiðandi, kveður konu sína hafa barið sig í
höfuðið og hent í sig lampa og væri hann haldinn
þráfelldum höfuðverk af hennar völdum. Ákæm-
skjalið er 11 síður og er skrautlegt. Minnelli hefur
löngum átt við drykkjuvandamál að stríða eins og
móðir hennar, Judy Garland söngkona, á sfnum
tíma.
Minnelli, sem nó er 57 ára, þambar vodka og
verður bandóð af því, eftir því sem fimmtugur eig-
inmaðurinn heldur fram. f því ástandi vex henni
afl og áræði og er mikill kraftur í árásum hennar.
Eftir æðisköst og árásir eiginkonunnar þjáist Gest
af sífelldum höfuðverk, að því er fram kemur í
ákæmnni. Hann er lofthræddur og píndur til sál-
ar og líkama, taugamar bilaðar, yfirspenntur, með
sár á höfði og þjáist af svefnleysi. Fyrir þessar
hremmingar vill hann fá 10 milljónir dollara.
Hann tekur inn 11 tegundir af lyfjum á hverjum
degi til að slá á þjáningamar.
í ákæmskjalinu er tekið fram að Gest sé ekki al-
deilis einn á báti því að í Bandaríkjunum verða
850.000 karlar fyrir heimilisofbeldi sem konur
þeirra standa fyrir.
Hann segist hafa reynt að koma frúnni í áfeng-
ismeðferð en áður fór hún í nokkrar slíkar, með-
fram jwí að vera eftirsóttur skemmtikraftur og
standa í þrem hjónaböndum áður en hún giftist
Gest. Ofan í kaupið berst hún við offitu.
Lögmaður Minnelli neitar að svara ásökunun-
um að svo stöddu en sjálf segist listakonan aldrei
hafa sýnt manni sínum ofbeldi og séu barsmíða-
sögur hans uppspuni.
Fræg brúðkaupsveisla
Parið gekk í hjónaband í mars 2002. Þá var mik-
ið um dýrðir og dýrðarfólk skemmtanaiðnaðarins
fyllti Fimmtutröð af ofvöxnum límósínum þegar
það kom til að fagna nýhafinni hjónabandssælu.
1200 gestum var boðið til veislunnar.
Michael Jackson var svaramaður og tók sig
MEÐ fTALSKT BLÓÐ íÆÐUM: Liza Minnelli erdáð
söngkona og afbragðsleikkona. Á myndinni er hún að
taka lagið í Hvíta húsinu á degi Kólumbusar.
stórkostlega út og Liz Taylor var ekki síðri sem blá-
edrú brúðarmær.
Margar uppákomur dundu yfir í stuttu hjóna-
bandi. Ein var sú að Gest ædaði að framleiða sjón-
varpsþætti um heimilislíf þeirra, svipaða og
Osbome-familfan gerði og þóttu hið besta efni.
En vegna frekju og afskiptasemi framfeiðandans
lenú hann í útístöðum við leikstjóra og tæknilið og
allt lenti í handaskolum og málaferlum á báða
bóga.
STORMASÖM SAMBÚÐ: David Gest og Liza Minnelli bjuggu saman í 15 mánuði eftir stórkostlegt brúðkaup þar sem flottustu skemmtikraftar heims voru boðsgestir. Nú er
eiginmaðurinn á hressingarhæli, farinn á sál og líkama, tekur inn 11 tegundir af lyfjum daglega og krefst hárra skaðabóta fyrir ofbeldi af hálfu frúarinnar.
Á heilsuhæli
Gest er nú staddur á heilsuhæli í Honululu þar
sem hann bryður lyf og reynir að koma taugakerf-
inu f lag eftir stormasamt hjónaband. En það var
ekki aðeins í hjónabandinu sem Minnelli sýndi
honum ofbeldi heldur var hún farin að berja hann
áður en þau giftust. Eða svo segir í ákærunni. Þar
eru líka tilgreind atvik sem áttu sér stað í London
og fleiri borgum þar sem þau ferðuðust um og
fengu sér neðan í því með síendurteknum afleið-
ingum. Frúin varð ofurölvi og óx við það ásmegin
og lúskraði á bónda sfnum sem átti ekki annars
úrkosta en flýja á meðan hamsleysið stóð yfir.
Hjónabandið hefúr verið mikið fjölmiðlafóður
og nú þegar skilnaðarréttarhöldin em að hefjast
fer heimspressan hamfömm í að skýra frá hinum
stórmerku U'ðindum og er von á enn meira af slíku
á næstu dögum.
s