Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Side 29
 LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 DV HELGARBLAÐ 29 I ••ií' skoðanir að ég heyri marga segja að Rimas kunni ekkert að leikstýra. Þetta er eftirsóttasti leikstjóri Evr- ópu sem hefur unnið flest verðlaun allra leikstjóra og í fyrra voru ellefu sýningar eftir hann á ferð um heim- inn. En við þykjumst vita betur hérna uppi á litla Islandi." - Koma gagnrýnendur oftar en einu sinni á sýningar? „Þeir koma stundum á aðalæf- ingu og svo frumsýningu en ekkert alltaf.“ - En eru leikarar og gagnrýnend- ur ekki alltaf ósammála? „Gagnrýnendur hafa vit á bók- menntafræði og stundum leikhús- fræði en lítið á leiklist. Mér finnst að þeir ættu að vita meira um vinnu leikarans og aðferðafræði hans. Við erum ekkei í beinu símasam- bandi við Shakespeare og vitum ekkert hvað hann vildi. Ég er hlynntur öllum tegundum af leik- húsi og er ekkert á móti Shake- speare á sokkabuxum. Það er ein- faldlega ekki til nein ein rétt að- ferð.“ Gráu dagarnir - Hilmir Snær er gríðarlega upp- tekinn í leikhúsinu. Hann er í Með fulla vasa af grjóti, sem hefur geng- ið langt á þriðja ár, og er kominn aftur inn í Veisluna í hlutverk Krist- jáns eftir nokkurt hlé og nú bætist Ríkharður í hóp þeirra persóna sem hann þarf að hafa á hraðbergi. Er þetta ekki heldur mikið álag, jafn- vel fýrir stórleikara? „Eg fer að losna við Grjótið og þá léttist álagið. Það er kominn tími á að gera eitthvað nýtt þótt það sé ágæt og góð reynsla að leika eitt- hvert verk svona lengi eins og við höfum gert við Grjótið. Það er ekki oft sem maður fær tækifæri til þess á íslandi. Ég held að við höfum sett met í fjölda áhorfenda í Þjóðleik- húsinu en veit ekki um met á öðr- um sviðum og við gætum sjálfsagt haldið áfram að sýna það enn um hríð.“ - Það hlýtur að vera snúið að stíga út úr hinu ofsafengna hlut- verki í Veislunni yfir í hlutverk kon- ungsins hálfóða í Ríkharði sem ætl- ar allt drepa í kringum sig og gerir það að lokum. Hvernig fer leikarinn að þessu? „Maður tekur þetta úr árunni í kringum sig en þetta er mikið álag og ég kalla sýningardagana yfirleitt gráu dagana með sjálfum mér. Ekki þó í neikvæðum skilningi heldur vegna þess að þeir eru oft í hálf- gerðri þoku. Ég byrja að hugsa um sýninguna þegar ég vakna og hún sígur yfir mann eftir því sem líður á daginn. Ég geri aldrei neitt af viti daginn sem ég á að sýna þótt ég reyni kannski að fara í Húsdýra- garðinn með dóttur minni eða eitt- hvað en ég er aldrei alveg í sam- bandi." - Helgarblað DV er svo heppið að daginn sem þetta viðtalið fer fram er ekki sýning svo það er Hilmir Snær sem þarna situr en hvorki Kristján né Ríkharður þriðji eða einhver persónanna úr Grjótinu. „Þessa dagana kemst Hilmir ekki mikið að og skapið fer svolítið eftir því hvað ég á að gera þá um kvöld- ið." Mín fyrrverandi - Hefurðu nokkum tímann áður fengið vonda dóma fyrir leik þinn á ferlinum? „Fyrrverandi kærasta mín gaf mér einu sinni mjög slæma dóma fyrir Rocky Horror söngleikinn. Ég fékk frekar slæma umsögn fyrir leikinn í Rauða spjaldinu og svo fékk ég þessa útreið hjá Höllu í DV og er hún þó ekki íyrrverandi kærasta mín." - Ertu í msli yfir þessu? „Nei, ég get ekki sagt það. Það em mjög skiptar skoðanir um þetta verk innan og utan leikhússins. Það er bara gaman að koma róti á hlut- ina.“ - Ertu þá kominn með svona sterka sjálfsmynd sem leikari að það trufli þig ekkert að fá vonda dóma? „Ég býst við að ég hefði farið í msl yfir þessu fyrir nokkmm ámm eða þegar ég var að byrja. Það að vera leikari er að leggja hjarta sitt á borðið fyrir 500 manns á hverju kvöldi. Svo þegar maður sér eitt- hvað svona á blaði þá virkar það sterkara og varanlegra heldur en eitthvað sem er sagt við mann. Ég býst við að ég hafi sterkt sjálfs- traust í þessu starfi og finnst engin ástæða til þess að verk manns séu allra. Það er heldur ekki það sem maður á að sækjast eftir.“ Gaman að hitta Forman - Hilmir Snær hefur leikið aðal- hlutverk í íslenskum kvikmyndum og nægir að nefna 101 Reykjavík og Hafið eftir Baltasar Kormák sem hlotið hafa góða dóma og unnið til verðlauna. Þar má heldur ekki gleyma hinum skuggalega Myrkra- höfðingja Hrafns Gunnlaugssonar. Hann komst nærri því að fá hlut- verk í mjög stórri kvikmynd þegar hann átti fund með leikstjóranum Milos Forman og las á móti honum hlutverk í mynd þar sem Sean Connery og Klaus Maria Brandauer leika aðahlutverkin. „Við erum ekki íbeinu símasambandi við Shakespeare og vitum ekkert hvað hann vildi. Ég er hlynntur öllum tegundum afleikhúsi og er ekkert á móti Shakespeare á sokka- buxum. Það er einfald- lega ekki til nein ein rétt aðferð." Myndin heitir The Embers og Hilmir las hlutverk Klaus Maria á yngri árum. Var ekki erfitt að fara svona nálægt þessu en fá ekki? „Það var gaman að hitta Forman og við áttum góða stund saman. Ég var einfaldlega ekki nógur líkur Brandauer og við spjölluðum mikið saman. Ég veit orðið hvernig þessi heimur virkar og hef farið í nokkrar prufur og þá hættir maður að taka þetta svo alvarlega. Ég á mitt bak- land alltaf hér og nóg af skemmti- legum verkefnum. Það væri gaman að fá fleiri tækifæri á þessum vett- vangi. Ég hef leikið í tveimur þýsk- um kvikmyndum og önnur þeirra verður frumsýnd í desember nk. en hin í febrúar á næsta ári og þar verð ég í aðalhlutverki. Sú mynd lofar mjög góðu og á forsýningum fékk ég mjög góða útkomu." - Væri það eitthvað sem þú vildir gera, að stíga um stund úr leikhús- inu yfir á hvíta tjaldið? „Eg held að leikhúsið og nálægð- in við áhorfendur verði alltaf sú uppspretta sem maður sækir í. Kvikmyndir eru annars konar vinna en ég gæti vel hugsað mér að fást meira við þær í nokkur ár. Ég er næstum viss um að þessar þýsku kvikmyndir eiga eftir að gefa mér fleiri tækifæri því að þær skarta báðar stjörnum sem eru vinsælar og upprennandi í Þýskalandi. Það eru ekki framleiddar óskap- lega margar kvikmyndir í Þýska- landi þótt sjónvarpsmarkaðurinn sé mjög stór þar. En þetta er gríðar- lega stór markaður og ég fer í leið- angur eftir áramótin til að tala við þýska blaðamenn." - Varstu góður í þýsku í MR? „Ekkert sérstaklega en vinnan við þessar tvær kvikmyndir var eins og stífur tungumálaskóli svo ég held að mér hafi farið mikið fram,“ segir Hilmir að lokum. polli@dv.is Ert þú að tapa réttindum Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðsfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur ó órinu 2003: lífeyrissjóður Austurlands ^ Lífeyrissjóður Bolungarvíkur ^ Lífeyrissjóðurinn Framsýn Lífeyrissjóður Norðurlands Lífeyrissjóður sjómanna llJV Lífeyrissjóður Suðurlands Lífeyrissjóður Suðurnesja *•* Lífeyrissjóðurinn Lífiðn Lífeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyrissjóður Vestmannaeyja Jfj Lífeyrissjóður Vesturlands o Sameinaði lífeyrissjóðurinn Fóir þú ekki yfirlit, en dregiS hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. nóv. n.k. Við vanskil ó greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta ó að dýrmæt réttindi tapist. Þar ó meðal mó nefna: Ellilífeyri Barnalif eyri Makalífeyri Örorkulífeyri Gættu réttar þíns Til þess að iðgjöld launþega njóti óbyrgðar óbyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar innan 60 daga fró dagsetningu yfirlíts ganga úr skugga um skil vinnu- veitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil ó iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram fró launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis óbyrgur fyrir réttindum ó grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fóst greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna. r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.